Morgunblaðið - 19.07.1968, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 196«
1
I horninu til vinstri á myndinni, sem Sveinn Þormóðsson tók upp í Eddubæ í fyrradag, sést
Elín Biöndal og heldur á málverkinu af beljunum, sem henni þykir svo ósköp vænt um. Á
veggnum sjást svo önnur málverk.
Sýnir málverk í hlöðu og hænsnahúsi
Elín Blöndal, 73 ára, heldur málverka-
sýningu í Eddubœ ofan við Árbœjarstíflu
Á morpun, laugardag, verJur
opnuð hér á höfuðborgar*
svæðinu sérstæð málverka»ýn-
ing, sem vert er að gefa faum
að. Sýninguna heldur 73 ára
gömul kona, margra barnd móð
ir, Elín Blöndal í Eddubæ, íctt
ofan við Árbæjarstífluna, beint
á móti Árbæjarhverfi, hinu nýja
handan EHiðaánna.
Eddubær er ekki hár í loft-
inu, en hann er umkringdur
gróskumiklum trjám og falleg-
um blómum, og útsýnið til
vesturs til borgarinnar við
Sundin, með Jökulinn í baksýn,
er heillandi og fögur, og ekki
er á því minnsti vafi, að Reyk-
víkingum, mun þykja það góð
tilbreytni á næstunni að aka
þangað uppeftir í kvöldbliðunni
og skoða um leið málverkasýn-
ingu Elínar blöndal.
Til frekari upplýsingar um
leiðina þangað uppeftir, skal
það tekið fram, að ekið er upn
í gegnum Blesugróf, neðanvert
við hið nýja Breiðholtshverfi og
í átt til gömlu vatnsveitubrúar-
innar, sem svo mjög lét á sjá í
ftóðunum í vetur. Stórt skilti
við Eddubæ gefur til kynna, að
þar sé málverkasýning hald-
in svo að vonandi villist eng-
inn.
Við heimsóttum Elinu Blöndal
á dögunum til að fræðast um
málverk hennar og aðra list-
muni, þvi að á sýningunni eru
einnig falleg rýjateppi, sem
sum eru til sölu, líka tusku-
teppi.
Þegar okkur bar að garði var
gamla konan að sinna heyskap
sínum á árbakkanum, rakaði
saman ilmandi töðu í dáfalleg-
an flekk, því að í eina tíð hafði
hún bæði kýr og kindur.
Og síðan bauð þessi listfenga
kona okkur til sýningarsalarins
sem sjálfsagt er einn sá frum-
legasti, sem um getur hérlend-
is.
„Sjáðu nefnilega til, ég hafði
engin önnur ráð en að inméÞa
hlöðuna og hænsnahúsið og
sýna myndir mínar i þeim húsa
kynnum. Það var bara einf.ilt
bárujárn á veggjunum, en nú
hef ég sett gólf i þetta og þilj-
ur á veggi, sett glugga i, S ’O
að ég held að fari sæmilega um
myndirnar mínar hérna, þótt
auðvitað mætti vera rýmra um
þær.“
„Hver hefur nú inméttað
þetta fyrir þig? spyrjum við
fyrir kurteisissakir.
„Fyrir mig? Biddu fyrir þér
Þetta hef ég allt saman gert
sjálf. Ég fékk aðeins hjáip til
að setja þessar þungu þi'plöt-
ur í loftið, og einnig ka’laði ég
í nokkra menn, sem voru að
grafa skurð hér nærri _>g bað
þá um að rétta mér stóru rúð-
una þama, við h ana réð ég
ekki ein. Allt annað hef ég unn-
ið sjálf. Ég hef sjálf byggt minn
listamannaskála, meira að segja
glugga og hurðir," segir þossi
73 ára valkyrja, sem aðeins
heymin er íarin að verða til
ama.
„Hefirðu lært að mála, Elin?“
„Ekki get ég sagt það og þó.
Ég fékk ágætis tilsögn hjá Gunn
laugi Blöndal, við vomm þre-
menningar. Þá kenndi hann
teikningu i lýðskóla, sem rtatf-
ræktur var fyrir mörgum árum
á Hvammstanga. O ég var nokk
uð sæmileg i teikningu, og stund
um hef ég stækkað andlitsmynd
ir af fölki, eins og t.d. þessa af
Steingrími Thorsteinssyni.
Nú, svo lærði ég hjá nonum
Stefáni Eirikssyni mynúskera
um tíma, svo að þú sérð að
þeir voru ekkert blávatn, kenn
ararnir minir.“
„Þetta er sölusýning hjn þér,
svo að mér er spum, hefúrðu
selt margar myndir áður?“
„Bæði já og nei. Ætli ég hafi
ekki gefið þær flestar. En það
er alltaf verið að fala hjá mér
myndir, svo að mér fannst þá
eins gott að gefa fólki kost á
að kaupa þær á sýningu og
velja úr. Þetta er alfyrsta sýn-
ing, sem ég hef haldið á mynd-
um mínum".
„Ertu máske nýbyrjuð að
mála?"
„Hvernig spyrðu, ég sem hef
fengist við að mála i áratugi,
en þetta eru flest ný málverk.
Já, ég mála ekki eftir neinum
póstkortum, það em máske
ein eða tvær þannig tilkomnar.
Allar hinar em málaðar úti í
náttúrunni, héðan frá Eddu’oæ,
austan úr Þórsmörk, ofan írá
Húsafelli, eða þá ég mála skepn
urnar mínar, bæði hesta, kýr og
hunda, kerlingar og karta, eða
þá eitthvað beint héaðan innan
úr hugarfylgsnum mínum, eins
og t.d. þessa, sem máluð er með
só N/EST bezti
Eftir dansleik, sem haldinn var austur á Skeiðum, fylgdi piltur
einn ungri stúlku heim.
Strákur gerði sér títt um stúlkuna, og þegar heim á bæinn kom,
þar sem hun átti heima, hvíslar hún:
„Kanntu að læðast?“
„Já, já,“ hvislar hann á móti og er spenntur.
„Þá skaltu læðast heim til þín“, segir ungfrúin.
hendíngu úr Stjána bláa, eftir
örn Arnarson i huga, og ég
kalla: „Horfi ég út í himinblám
ann."
Hérna em tvær kerlingar að
hvfslast á, en það er kvenna
siður að segja: „Blessuð, segðu
það engum.“
Nú, svo mála ég talsvert héð-
an frá Eddubæ. Horfi þá til höf-
uðborgarinnar með háhysin í
baksýn jökulinn, í forgmnni
blessaðar kindurnar minar. Nei,
mig skortir aldrei fyrirmyndir.
Ég hef m.a. málað af mér sjálfs
mynd. Nú, svo að þér líkar hún
ekki? En sjáðu, góði besti,
svona er ég, og við því verð-
ur ekki gert.“
„Og það er auðvitað albann-
að að kvennahætti að spyrja um
aldur þinn?“
„Ég held nú síður. Ég er 73
ára gömul, og skammast m.n
ekkert fyrir það.“
Nú kom Sveinn Þormóðsson
til skjalanna með tæki sín, og
þá segir Elín:
„Góði, leyfðu mér að halda á
þessari mynd af beljunum min-
um. Ég elska beljur. Hafði einu
sinni beljur. Mér þykir svo vænt- ,
um þær.“
Og Sveinn smellti mynd af
Elínu Blöndal, sem á áttræðis-
aldri heldur sína fyrstu mál-
verkasýningu, með beljumynd í
fanginu, en bak við eru blóma-
myndir, inyndir úr Þórsmórk
og HúsafellskógL
Þetta er ekki nein smáræðis
málverkasýning, því að hér eru
milli 60-70 oliumálverk, fjöld-
inn allur af vatnslitamyndum,
auk þess fjöldinn allur af
smærri myndum á borði í sýn-
ingarsalnum, rýja teppi á gólfi
og tuskuteppi. Heimsókn í
Eddubæ margborgar sig, fyrir
utan þá staðreynd, að Elín er
ekki dýrseld á verk sín. Hún
opnar sýningu sína kl. 2 á morg
un og siðan verður daglega op-
ið frá kl. 2-10. Það verða eng-
ir boðsgestir. Allir eru velkomn
ir. Og eitt ráð kann ég til vega-
gerðar borgarinnar, að láta
heíla veginn upp að Eddubæ
fyrr en seinna, því að þangað
á eftir að liggja straumur Reyk
víkinga að skoða þessa íorvitni
legu sýningu Elínar. Mætti segja
mér að þyrfti lögreglu líka til
að stjórna umferðinni.
Það hefur löngum verið tögg-
ur í okkar gömlu komirn, 03
það sannar Elín Blöndal mtð
málverkum sínum. — Fr. S.
Spakmæli dagsins
Ombætnr eru leiðréttlng misferla.
I pprcisnir eru valdaskipti. — Bul
wer.
Hreint land!
Fagurt land!
Vil kaupa Ökukennsla
vel með farinn hnakk. — Hringið í síma 34097. Gísli V. Sigurðsson, sími 11271.
Vantar 2ja—3ja herb. íbúð, 3 fullorðið í heimili. Tilboðuon sé skilað fyrir 27. þ. m á afgreiðsluna, merktum: „Areiðanlegur - 8439“. íbúð óskast 2ja—3ja herb. íbúð óskast í Austurborginni. Reglu- semj og góðrí umgengni heitið. Uppl. í síma 82332 og 34005.
Keflavík — nágrenni Drengjasportskyrtur, dömu og telpnapeysur nýkomnar. Margir litir, láigt verð. Verzlun Kristrúnar, sími 2023. Til leigu 3ja til 4ra herb. íbúð 130 ferm. á fegursta stað í borginni. Tilboð merkt: „8437“, sendist Mbl.
Hestur óskast Keflavík
Vil kaupa röskan og traust an hest. Uppl. í síma 12518 kl 19—20 næstu kvöRL Stórt herbergi til leigu. — Aðgangur að eldhúsi getur fylgt. Skni 2718.
Kaupi alla máhna nema jám, hæsta verðL Staðigr. Opið alla virka daga kl. 9—5 og laugard. 9—12. Arinco, Skúlag. 56. S. 12806 og 33821. Ferðafólk Heitur matur, kaffi, þægi- leg herbergi. — Dvöl í skemmri eða lengri tkna. Sanngj. verð. Sælgæti og benzín við Suðurlandsveg. Hótd Hveragerði.
Til leigu gott forstófuberbergi. — Einnig bílskúr. Upplýsing- ar í síma 41675. Tunþökur til sölu Upplýsingar í símum 22564 og 41896.
r
Utsala - útsala
byrjar í dag á höttum, húfum , peysum, pilsum,
blússum 0. fL
Hattabúð Reykjavíkur
Laugavegi 10.
EINANGRUNARGLER
BOUSSOIS
INSULATING GLASS
Mikil verðlœkkun
ef samið er strax
Stuttur afgreiðslutími.
10 ARA ábyrgð.
Leitið tilboða.
Fyrirliggjandi
RÚÐUGLER
4-5-6 mm.
Einkaumboð:
HANNES
ÞORSTEINSSON,
heildverzlun,
Sími 2-44-55.
Vörugeymsla
v/Shellveg 244-59.
Harðtex
WISAPAN
Spónoplötnr
frá Oy Wilh.
Schauman aJb
Vér eigum jafnan fyrir-
liggjandi hinar vel þekktu,
finnsku spónaplötur í öll-
um stærðum og þykktum.
Caboon- plötur
Krossviður
alls konar.
OKALBOARD
(spónlagt).
VIALABOARD
Útvegum einnig allar ofangreindar plötur með stutt-
um fyrirvara.
Einkaumboðið