Morgunblaðið - 19.07.1968, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1968
Allar vonirnar brustu - Noregur vann 4:0
unnu auðveldan sigur
Með hugann fullan af vonum um góðan leik, kappsfulla baráttu,
og jafnvel sigur komu 7—8000 manns á Laugardalsvöllinn í gær-
kvöldi. Unglingaliðið með sinn gneistandi sigurvilja hafði kveikt
bjartar vonir í íþróttaunnendum. Sigurvíma hafði gagntekið fjölda
fólks — sumarkvöldið var bjart og fagurt og margir voru undir-
búnir að fagna sigri.
En vonirnar eiginlega meira en brustu. Það var eins og kastali
hryndi.
íslenzkt lið má víst aldrei eygja von um sigur, ef leikur á að
sjást hjá því. Vonir áttu sannarlega að vera fyrir hendi eftir fyrri
töp Norðmanna. Og þær vonir hefðu sannarlega átt að hafa getað
rætzt eftir leik norska liðsins að dæma. En hver og einn getur
reiknað út hvar staða okkar er þegar við, okkar lið tapar 4:0 fyrir
líði sem á mánuði hefur tapað 6:1 fyrir Pólverjum og 5:1 fyrir
Dönum.
Við fengum fjögur mörk í okkar mikla markasafn — ekkert í
sjóðinn.
og varnarmann.
íslenzka liðið náði engri samstöðu
Baráttuandinn lítill og IMorðmenn
Blómagjöf
Leikurinn hófst mjög friðsam-
lega með blómaafhendingu frá
Norðmönnum til Éslendinga. Leik
urinn átti eftir að sýna og sanna,
að blómagjötfin var eins vel til
íaliin og smyrsl á sár.
En leikurinn var aldrei eins
friðsamlegur og blómagjöf getur
gefið tilefni til. Norðmenn léku
strax í byrjun mjög fast og ís-
lendingarnir svöruðu síðar í
sama tón.
Fyrstu mínúturnar gáfu þegar
í skyn einhverja deyfð í ísl. lið-
inu, menn voru staðir eins og
þeir ætluðu þeim næsta að gera
það sem þeim sjálfum bar.
Engin hætta skapaðist þó Norð
menn fengju hornspyrnu á 2.
mín og ættu síðan tvær skottil-
raunir.
Norðmenn reyndu að kæfa
tilraunir íslendinga til sókn-
ar í byrjun og það var ein-
mitt á slíkri stund, sem Þór-
ólfur fyrirliði féll,. Hann var
að byggja upp sókn er Tor
Spydevold kom aðvífandi og
gaf engin grið. Þórólfur féll
við eftir viðureignina og var
borinn af velli litlu síðar,
með djúpan skurð á fæti, eft
ir takka á skóm Norðmanns-
ins.
Byrjunin hafði verið svört
hjá ísl. liðinu, en þó syrti nú
enn í álinn er fyrirliðinn og
helzta vonin varðandi sigur
var af velli borinn.
Leikurinn hófst að nýju og
Norðmenn gáfu langa sendingu
upp að vítateig fslendinga. Þar
var Olav Nielsen til staðar, lék
aðeins til hliðar og átti svo fast
og fallegt skot í efra horn marks
ins, sem hvaða markvörður sem
var átti litla möguleika til að
verja.
Norðmenn náðu nú algerðum
tökum á leiknum. Miðjumenn
þeirra réðu lögum og lotfum á
vallarmiðjunni og framherjarn-
ir með sífelldar skiptingar rugl
uðu vörn íslendinga næstum að
vild. Þar brotnaði þó allt á mið
vörðúnum Ellert og Guðna —
um sinn. Hættan varð þó otft mik
il við ísl. markið og mátti stund
um heppni hrósa.
Noregs mjög laglega, enda
fengu þeir góðan tíma til þess
og frið af hálfu íslendinga.
Dybwad Olsen fékk að skoða
alla leikstöðuna í rólegheitum
úti á hægra kanti og sendi síð
an fallega fyrir og fram og
hitti á fætur Haralds Berg
sem viðstöðulaust skoraði af
Þorbergur fær bjargað.
Móti þessu áttu fslendingar
ekki nema örfáar tilraunir til
sóknar — allar án þunga og al-
drei var um hættu að ræða
nema er Reynir var nálægt því
að ná góðri sendingu yfir vörn
ina — og var ívið of seinn og
var að laga hnöttinn með hend
inni til að fá markfærið, en að
sjálfsögðu var aukaspyrna dæmd
á ísl. liðið.
Rothöggið
Á 28. mín skoraði Harald
Berg miðherji annað mark
Þórólfur Beck borinn af velli.
stuttu færi. Á aðdragandann
horfðu ísl. varnarmennirnir.
Fimm mínútum siðar var
norski sigurinn innsiglaður.
Sent var fram frá vallar-
miðju og fengu fáir annað
grent en Harald Berg væri
þá rangstæður — en línuvörð
ur veifaði ekki og dómari
flautaði ekki, flestum til mik-
illar furðu og Harlad Berg
lék að marki og skoraði auð-
veldlega.
Möguleikar.
Það var eins og þetta mark
kveikti aðeins lífsneista í ísl. lið-
inu. Þrívegis tókst þeim að ná
snöggum sóknartikaunum og
varð mesta hættan er Eyleifur
komst innfyrir vörn með knött-
inn og átti markvörðin einan
Frjdlsíþróttamót
UNGLINGAMEISTARAMÓT Is-
lands í frjálsum íþróttum verður
haldið á Akureyri 27. og 28. júlí
n.k. Þátttaka tilkynnist fyrir 23.
þ.m. Frjálsíþróttaráði Akureyr-
ar, c/o dr. Ingimar Jónssyni,
Byggðavegi 154, sími 11544 og á
íþróttavellinum 21588.
eftir. Markvörðurinn kom hlaup-
andi á móti og fékk kraflað í
knöttinn og stefnt honum út
fyrir.
Upp úr horninu sem eftir
fylgdi var fast sótt að norska
markinu — en heppnin var ekki
með.
Siðari hálfleikurinn var mun
jafnari framan af og var greini-
legt að Norðmenn ger’ðu sig á-
nægða með að halda unnum
sigri. Spilið var dreifðara og það
var t.il hags fyrir ísl. liðið og
nú hófst þáttur Elmars Geirs-
sonar. Hann barðist af mikilli
hugprýði og átti oft mjög fallega
einleiksspretti, en því miður kom
minna út í öllu saman en ástæða
var til að ætla. Hann var líka
oft einn í baráttunni, því allan
tímann skorti hreyfanleik í ísl.
liðfð.
Að heppnin var mótsnúin fs-
lendingum sannaðist vel á 18.
mín. eftir einleikssprett Elmars
og ákveðna sókn á miðjunni þar
til að mjög gott færi skapaðist
fyrir Eyleif sem átti fast skot,
að vísu úr þröngu færi og mark
vörðurinn fékk bjargað með út-
hlaupi.
í mörg önnur skipti voru ísl.
sóknarmennirnir komnir í færi
misjafnlega góð, en skot þeirra
geiguðu öll.
A síðustu minútu leiksins eru
Norðmenn enn í sókn. Og Ola
Dybwad Olsen, framliggjandi
miðjuspilari, var kominn fram-
arlega og skora'ði af alllöngu
færi. Reiðarslagið var enn dunið
yfir ísl. knattspyrnu.
Liðin.
fslenzka liðið var eins og svip-
ur hjá sjón frá leiknum við Þjóð
verjana. Þá var aldrei friður gef-
inn mótherjunum. Nú var beðið,
hörfað og horft á aðgerðir hinna.
Miðjumennirnir náðu aldrei tök-
um á mfðjunni og framlínan var
án nokkurs baráttuhugar - nema
Elmar í síðari hálfleik. að þýðir
ekki að tala um smámistök, þeg-
ar þau stóru blasa við á allar
hliðar. Vörnin var betri helm-
ingurinn en bakverðirnir þó slak
ir einkum Þorsteinn sem sjaldan
eða aldrei réði við mótherja sinn.
Ellert Schram, Guðni Kjartans-
son og Elmar eru þeir einu sem
frá þessum leik komast án þess
að hafa gersamlega brugðizt von
um manna. Það að Þórólfur
meiddist afsakar ekki allt, þótt
slæmt hafi verið og vafasamt er
a'ð val varamanna hafi verið
eins vandað og ástæða er tiL
Norska liðið lék hressilega og
ákveðið. Það hafði einsett sér að
tapa nú ekki í þriðja sinnið.
Taktikin var að gefa mótherjan
um ekki frið, vinna miðjuna og
mata framherjana sem voru
hreyfanlegir mjög og sívökulir
með stöðuskiptingar, me'ð góð-
um langboltum. Þessi taktik
tókst fullkomlega, og Norðmönn
um þykir þetta nokkur plástur
á sín miklu sár, sem eru 6-1 tap-
ið fyrir Póllandi og 5-1 tapið
fyrir Dönum.
frski dómarinn Mc Carthy var
dæmigerður „heimadómari" sá
sem dæmir að óskum fjöldans,
heimaliðinu í viL Það lá við að
maður tæki stundum fyrir aug-
un að sjá, hvernig hann dæmdi
í þessa átt.
— A. St.
Golf á Suðurnesjum
Bridgestone-Camel keppni Golf
klúbbs Suðurnesja hófst á Hólms
vellinum í Leiru á miðvikudags-
kvöld og leiknar 18 holur. Kepp
endur eru alls 52 frá 3 klúbb-
um, G.R., Keili í Hafnarfirði
og G.S.
Keppnin um Bridgestone bik-
arinn er höggleikur án forgjaf-
ar. ar tók hinn nýbakaði íslands
meistari, Þorbjörn Kjærbo G.S.,
forystu með 76 högg. Næstur er
Gunnlaugur Ragnarsson GR 77
högg og Pétur Guðmundsson GS
81.
f keppninni um Camelbikarinn
eru þeiæ með fæst högg án for-
gjafar Högni Gunnlaugsson GS
63, Pétur Guðmundsson og Héð-
inn Pétursson (feðgar) GS 65
högg og Gunnlaugur Ragnarsson
GR 66 högg.
' Keppninni verður haldið á-
fram á laugardag kl. 13.30. Þá
leiknar 18 holur. Ræst verður út
þannig að þeir fara fyrst sem
beztum árangri ná'ðu á miðviku
dag og keppninni lýkur á sunnu-
dag, en þá leiknar síðustu 36
holurnar.
Alsökunarbeiðni
f GREIN um úrslitaleik fslend-
inga og Svia í unglingamótinu
í knattspyrnu var m.a. látið að
því liggja, að „annarleg sjónar-
mið“ hefðu ráðið gerðum dómar-
ans. Þessi orð eru tekin til baka
og beðist afsökunar á þeim.
— A. St.