Morgunblaðið - 19.07.1968, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1968
17
Byggingarframkvæmdirnar í Breiöholti
Frá stjórn Einhamars, samstarfsfélags byggingameistara
í maímánuði var frá því sagt
í blcðum, útvarpi og sjónvarpi,
að Framkvæmdanefnd byggingar
áætlunar í Breiðholti hefði af-
hent fyrstu íbðúirnar, sem full-
gerðar væru þar í hverfinu sam-
kvæmt þeim áætlunum, sem FB
starfar eftir. Yar fátt til sparað
að gera það sem eftirminni-
legast, að þessum áfanga væri
náð, og meðal annars voru 200-
300 starfsmenn látnir hætta
vinnu um tíma, til þess að hægt
væri að taka af þeim mynd, og
varð einu blaðanna þess vegna
að orði i því sambandi, að þar
mundi hafa verið um dýra
myndatöku að ræða.
f*að fór þess vegna ekki fram-
hjá þeim, sem fylgjast almennt
með tíðindum af þjóðmálum, að
þarna var talið um stórtiðindi
að ræða. Það hafði og venð bc.ð-
að á síðasta ári, þegar fram-
kvæmdir voru að hefjast í Breið-
holti, að tiðinda yrði að vænta,
þegar kæmi að því að íbúðirn-
ar yrðu afhentar snemma á þessu
árL
Af þessu munu margir telja,
að allt hafi gengið samkvæmt á-
ætiun hjá Framkvæmdaneínd
inni, allar áætlanir staðizt og
þar fram eftir götunum, enda
skyldi ætla, að þar sem svo
margir fróðir aðilar fjalla um
málin, verði þeim ekki skota-
skuld úr því, að láta allt koma
heim við það, sem þeir hafa loð-
að fyrirfram.
En þar sem svo hefir farið
eins og ef til vill mátti vænta,
ef litið var með raunsæi á mál-
in að ýmislegt, sem nú hefir
verið sagt, er ekki í samræmi við
það, sem heitið var og boðað í
öndverðu á árinu sem leið, verð-
ur varla hjá því komizt að taka
loforð og efndir Framkvæmda-
nefndar byggingaráætlunaF til
nokkurrar athugunar.
Verður þá fyrst að hverfa aft-
ur til maímánaðar á síðasta ári,
en þá gaf FB út tilkynningu til
blaða um væntanlega starfsemi
sína. í dagblöðunum 24. maí seg-
ir m.a. svo, að þann dag verði
byrjað að afhenda umsóknaeyðu
blöð vegna sölu á íbúðunum í
Breiðholti, og sé ætlunin að af-
henda hvorki meira né minna en
260 íbúðir fyrir 15. júlí 1968, auk
23ja einbýlishúsa, sem ætlunin
var að afhenda um sl. áramót.
Áætlað verð íbúðanna í fjöl-
býlishúsunum skv. söijiu heim
um upp í 970 þúsw*" e ftir
stærð. Ennfremur sagði svo í 1,il-
kynningu um þetta mál frá Hús-
næðismálastofnun ríkisins, en
undir hana heyrir starfsemi FB:
„Fjölbýlishús þau, sem Fram-
kvæmdanefnd byggingaráætlun
ar er að láta byggja og nú eru
til ráðstöfunar, eru staðsett ísvo
nefndu Móholti (Breiðholti I),
sem er lægð í vestanverðu Breið
holtshverfi. Húsin standa við
göturnar Ferjubakka 2-16,
Grýtubakka 2-32, Hjaltabakka
2-32 og frabakka 2-16. f hverju
fjölbýlishúsi eru 52 íbúðir: 14
tveggja herbergja, 56-66 fer-
metra, 19 þriggja herbergja, 70-
78 fermetra, og 19 fjögurra her-
bergja, 83-90 fermetra. Auk þess
fylgir átta fermetra geymsla
hverri íbúð.
íbúðunum verður skilað 'ull-
frágengnum og tilbúnum til íbúð
ar (Er síðan upptalning á
ýmsum búnaði íbúðanna og sýn-
ir hún, að ekki á að vera um
neina ofrausn eða bruðl að
ræða.)
Verð íbúðanna er áætlað sem
hér segir: 2ja herbergja íbúð kr.
655-745 þúsund eftir stærð, 3ja
und, eftir stærð og 4ra herbergja
herbergja íbúð kr. 785-860 þús-
íbúð 910-970 þúsund eííir
stærð .. . “
Óþarfi er að rekja tilkynn-
ingu þessa nánar.
Þá kemur að því, að rifjað
skuli upp, hvernig áætlanir IB
hafa staðizt og um það má einn-
ig leiða nefndina sjálfa sem
vitni með tilstyrk blaðanna í maí
síðastliðnum.
Kemur þar.strax fram, að ekki
hefir verið staðið við það verð,
sem Húsnæðismálastjórn til-
kynnti á sínum tíma, að áætlað
hefði verið og getið er hér að
framan. Fer því svo fjarri, að
áætlanir stjórnarinnar hafi stað-
izt, því að hækkunin á verði ó-
dýrustu íbúðanna nemur hvorKi
meira né minna en 16-17 af
hundraði, það er að segja full-
um sjöttungi íbúðarverðs, og
verð minni gerðar 4ra herbergja
íbúðanna hefir hækkað enn
meira eða um hvorki meira r.é
minna en rúmlega 20 af hundr-
aði. Taflan, sem hér fer á efiir,
sýnir, hversu fjarri raunveru
leikanum áætlun Húsnæðismála-
stjórnar hefir reynzt í þessu
efni.
Áætlað verð íbúða:
2ja herbergja íbúðir:
Minnstu kr. 655.000.—
Stærstu kr. 745.000.—
3ja herbergja íbúðir:
Minnstu kr. 785.000.—
Stærstu kr. 860.000.—
4ra herbergja íbúffir:
Minni kr. 910.000.—
Stærri kr. 970.000—
Hér hefir því komið greinliega
fram, að áætlanir Húsnæðismála
stjórnar, eða Framkvæmdansfnd
ar byggingaráætlunar það
gildir einu, hvor aðilinn er tal-
inn hinn á’byrgi, hafa verið
mjög fjarri lagi, svo að neinur
allt að fimmtimgi verðs á íbúð.
Rétt er jafnframt að benda á,
að þegar FB fer nú að skýra fiá
hinu raunverulega íbúðarverði,
notar hún ekki sömu stærðartöl-
ur og gefnar voru upp á sl. ári,
þegar tilkynnt var væntanlegt
verð á íbúðum. Má gjarnan
spyrja FB, hvaða tilgangi þessi
talnabreyting eigi að þjóna, en
meðan beðið er eftir svörum við
því, verður hver að hafa það,
sem hann telur sennilegast t.
d. það, að þessar stærri tölur
séu settar til þess að fegra hlut
nefndarinnar. Mundi ekki em-
hver hafa sagt, ef því hefði ver-
ið spáð fyrir fram, að þsnnig
mundi fara, að-slíkur „spámað-
ur“ væði reyk? En því er ckki
að heilsa, þetta eru staðreyndir
mál-sins, sem íbúar nýju íbúð-
anna í Breiðholti eiga eftir að
súpa seyðið af um langt árabil.
En að sjálfsögðu hefir Húsnæðis
málastjórn gætt þess vandlega
að þeissu sinni að þegja um þder
tölur, sem mönnum voru gefnar
upp, þegar íbúum þessum og
hinu væntanlega, lága verði á
þeim var veifað framan í almenn
ing fyrir rúmu ári.
Það fer þó ekki framhjá glögg-
um lesanda, að Húsnæðismála-
stjórn gerir sér grein fyrir því,
að málstaður hennar er ekki góð
ur. Hún gerir nefnilega saman-
burð á rúmmetraverði í íbúðum
þessum og útreikningum Hag-
stofunnar á vísitölu byggingar-
kostnaðar. En við þann saman-
burð er eitt að athuga. Húsnæðis
málastjórn nefnir annars vegar
rúmmetrafjölda í Breiðholti
það er að segja í fjölbýlishúsi
en hins vegar grípur hún svo
rúmmetraverð í sambýlishúsi,
sem reiknaður er út af Hagstcf-
unni. Menn taki eftir Hús-
næðismálastjórn ber saman verð
á rúmmetra í fjölbýlishúsi ann-
ars vegar og sambýlishúsi liins
vegar. Geta menn látið sér til
hugar koma, hvers vegna jafn
ólíkum byggingum er jafnað sam
an? Það skyldi þó ekki vera,
að Húsnæðismálastjórn geri það
til þess að fegra sinn hlut
blekkja almenning, sem áttar sig
ekki í fljótu bragði á þeim regin
mun, sem er á þessum tveim bygg
ingategundum.
Með þessum heiðarlega saman-
burði getur Húsnæðismálastjórn
sagt sem svo: Sjáið, góðir háls-
ar, okkar rúmmetraverð er kr.
2.679.00, en vísitöluverð Hag-
stofunnar er kr. 2.922.00 4 rúm-
metra. Þið sjáið, hvað við erum
miklu ódýrari!
En Húsnæðismálastjórn er þó
jafnframt hálfhiædd við þessa
blekkingu sína, því að hún segir
einnig:
„Spyrja má, hvort réttmætt sé
að bera saman á þennan hátt
byggingarkostnað fjölbýlishús-
anna í Breiðholti við byggingar-
kostnað vísitöluhússins, sem er
Raunverulegt verff íbúffa sam-
kvæmt upplýsingum FB.
68 ferm. kr. 767.000,—
70 ferm. kr. 812.000,—
71 ferm. kr. 823.000—
78 ferm. kr. 883.000,—
83 ferm. kr. 934.000,—
86 ferm. kr. 985.000,—
92 ferm. kr. 1.016.000—
97 ferm. kr. 1.097.000—
.04 ferm. kr. 1.132.000—
sambýlishús, tvær hæðir, kjali-
ari og ris, með íbúð á hvorri
hæð fyrir sig ásamt íbúð í kjall-
ara og risi. Hagstofan birtir ekki
einungis verð á rúmmetra í vísi
töluhúsinu heldur jafnframt
verð á rúmmetra í fjölbýlishúsi
í Reykjavík, sem hún telur að
eigi að vera 10% lægra. Þessi
síðargreinda tala er þó einvörð-
ungu byggð á lauslegu mati, en
ekki á nákvæmri verðkönnun á
byggingakostnaði tiltekins húss,
eins og átti sér stað með vísi-
töluhúsið.“
Menn taki eftir því, að þeir
hinir sömu menn, sem reiknuðu
svo fjarri lagi, að skakkar hvorki
meira né minna en fimmtungi á
sumum íbúðunum, .leyfa sér að
bera Hagstofunni á brýn, að
hún framkvæmi útreikninga, sem
séu út í bláinn hreint ómark
og vitleysa. Það þarf sérstak-
lega brynjaða samvizku, til þess
að menn geti borið annað eins á
borð. -
I þessu sambandi má líka
gjarna benda á það, að nokkrum
dögum áður en afhending íbúð-
anna fór fram með miklu bram-
bolti, birti Vísir eftirfarar-di
fyrirsögn á forsíðu: ,BREIð-
HOLTSHÚSIN 30-50 ÞÚSUND
KR. YFIR VÍSITÖLUVERðI.“
Blaðið sagði ennfremur urn
þetta:
„Verð þetta er á annað hundr-
að krónur hærra en núv’erandi
byggingarvísitala gerir ráð fyr-
ir, að hver rúmmetri í fjölbýl-
ishúsi kosti — 2.629.81 kr. Skýt-
ur þar nokkuð skökku við, þar
eð byggingaráætlun átti meðal
annars að miðast við lágan bygg-
ingarkostnað.“
Blaðið telur ennfremur eðli-
legt, að 2ja herbergja íbúð:rn-
ar ættu ekki að fara yc'ir 800
þús. kr., 3ja herbergja ekki yf-
ir 900 þús. og 4ra herbergja
ekki yfir milljón króna.
Visir skýrði frá þessu á áber-
andi stað nckkrum dögum áður
en afhending fyrstu íbúðmna
fór fram. Hefði Húsnæðismala-
stjórn talið sér fært að mótmæla
þessu, hefði hún vafalaust gert
það, en svar hennar við bolla-
leggingum blaðsins og hugleið-
ingum ýmissa manna, sem láta
sig þessi mál miklu varða, kem-
ur aðeins fram í því, sem þegar
hefir verið bent á hér að ofan:
Húsnæðismálastjórn telur út-
reikninga Hagstofu íslands út í
bláinn af því að niðurstöð-
ur þeirrar ágætu stofnunar
henta ekki afrekum Fram-
kvæmdanefndar byggingaráætl-
unar!
Af framanskráðu ætti að vera
hægt að draga ýmsar ályktanir
og skulu nokkrar nefndar hér,
en hvorki allar, sem tiltækar eru
né heldur skal orðlengt um þær.
1) Þótt FB hafi haft ót.ak-
markað fjármagn, hefir henni
ekki tekizt að afhenda íbúðirn-
ar á þeim tíma, sem lofað var,
og verða hinar síðustu ekki til-
búnar fyrr en á næsta ári, sjö
mánuðum eftir áætlaðan af-
hendingartíma.
2) Þrátt fyrir sömu, góðu að-
stöðu hefir ekki verið unnt að
standa við gefin loforð um verð
á íbúðum, svo að það er ekki
hagstæðara en hjá „bröskurum“,
sem FB mun m.a. hafa átt að
klekkja á.
En þá er eftir sú ályktun, sem
þeir gera sér bezta grein fyrir,
er standa sjálfir í byggingai-
framkvæmdum án aðstoðar FB.
Sú ályktun er á þessa leið:
3) Svo miklu fjármagni liefir
verið beint í þessa tilraunabygg-
ingastarfsemi FB, að þa5 hefir
bókstaflega haft lamandi áhrif á
starfsemi annarra aðila, bæði ein
staklinga og félaga, bakað þeim
aukinn kostnað og margvíslegar
tafir, svo að það tjón, sem af
þessu hlýzt, verður vart metíð
til fjár.
Það er kapítuli út af fyrir sig,
sem drepið er á hér að síðustu,
og mætti ræða um þetta atriði í
löngu máli þótt aðeins skuli að
sinni látið nægja að drepa á
veigamestu atriðin í þessu sam-
bandi.
Það liggur í augum uppi, að
það hlýtur að hafa mikil ahrif í
litlu þjóðféiagi eins og okkar js-
lendinga þar sem fjármaga er
mjög takmarkað en þörfin fyrir
það nær oþrjótandi — þegar
miklum hluta þess er beint til á-
kveðinna aðila vegna einstakra
verkefna, eins og gert hefur ver
ið í því máli, sem hér hefir ver
ið rætt að nokkru.
Þegar þannig er að farið, tð
hundruð milljóna eru fengin ein-.
stökum aðila til ráðstöfjnar,
hlýtur það að orsaka fjármagns-
svelti hjá öðrum, sem verða að
leita til sömu sjóða. Þetta bitnar
því á fjölmörgum einstaklingum,
bæði þeim, sem eru að reyna að
byggja yfir sig af eigin tamra-
leik, eða gengið hafa í bygg-
ingarsamvinnufélög, sem fá lé-
legri fyrirgreiðslu vegna þess,
hve FB er frek til matarins, fjár-
muna Húsnæðismálastjórnar, og
loks bitnar þetta á svo að segja
öllum öðrum, sem við byggmgar
fást.
Þeir aðilar, sem verða þannig
afskiptir, verða þá að ger i ann-
að tveggja, því að þriðja leiðin
er ekki til: Þeir verða annað-
hvort að draga saman seglin og
fresta framkvæmdum að ein-
hverju eða öllu leyti um lang-
an tima eða skamman, eða þeir
verða að afla sér dýrara láns-
ifjár. Báðir þessir kostir hafa í
för með sér óeðlilegan drátt á
framkvæmdum og stóraukinn
kostnað.
Nú væri hægt undir vissum
kringuiústæðum, að verja raðstaf
anir, sem leiða til þess ástands,
sem getið er í síðustu málsgrein.
Þær mætti verja, ef árangurinn
væri sá, að fundin væri örugg
leið til lækkunar á byggingar-
kostnaði. En sýnt hefir verið
fram á fyrr í þessari grein, að
því er alls ekki að heilsa —
byggingarkostnaður hjá FB er
hærri en sá, sem Hagstofa ís-
lands gerir ráð fyrir í fjölbýlis-
húsi.
Niðurstaðan af þessari til-
raunastarfsemi Húsnæðismála-
stofnunar er sú, að hún hefir
ekki borið tilætlaðan árangur,
þótt FB hafi haft allar aðstæð-
ur til þess að inna það hlut-
verk af hendi, sem til var ætl-
azt: Fullnægjandi fjármagn og
frjálsar hendur til þess að fara
nýjar leiðir í byggingarfram-
kvæmdum.
Það er sjálfsagt að gera til-
raunir á sviði húsbygginga, sem
á öðrum sviðum þjóðfélagsins, og
allir eru sammála um, að reynt
sé að finna leiðir til að iækka
íbúðarverð. En þegar það er
komið á daginn, að árangurinn
hefir ekki orðið sá, sem mönn-
um var talin trú um í upphafi,
að hlyti að verða, og þegar það
er auk þess augljóst, að sú rausn
sem FB hefir verið heimiluð í
notkun fjármuna, hefir ekki að-
eins orðið árangurslaus lieldur
bókstaflega skaðleg fyrir aðra
aðila þjóðfélagsins, þá er full á-
stæða til að taka til athugunar,
hvort ekki sé rétt að skapa öðr-
um aðilum aðsrtöðu til að fara
þær leiðir í byggingarmálun., sem
reynslan sýnir þeim, að helzt
muni vera vænlegar til úrbóta.
Það er því almenn ásk irun lil
viðkomandi aðila, að þeir átti
sig á því, sem reynslan af bygg-
ingarstarfi FB hefir sýnt ótví-
rætt að nefndin veldur eng-
an veginn því verkef.V., sem
henni var fengið. Þess vegna
verður að leita annara úrræða 1
þessum málum.
Stjórn Einhamars.
Mýlenduvöruverzlun til sölu
Til sölu nýlenduvöruverzlun, er starfrækt er í húsnæði
eiganda sem fæst leigt með liagstæðum skilmálum.
Lítill og góður vörulegar. Tæki og innréttingar seljast
eða fást leigð eftir samkomulagi.
Málflutnings og
fasteignastofa
t Aguar Gústafsson, hrl. t
Björn Pétursson
fasteignaviðskipti
Austurstræti 14.
, Simar 22870 — 21750. j
Utan skrifstofutíma:
35455 —