Morgunblaðið - 19.07.1968, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1968
13
Þota neydd til aö
fljúga til Havana
Kom við í New Orleans, en rœninginn
hótaði að sprengja þofuna í loft upp
Mimi, Florida, 17. júli AP
Vopnaður maður ruddist í dag inn
í stjórnklefa þotu frá flugtélag-
inu National Airlines, skömmu
eftir flugtak frá Houston í Tex-
as í dag og skipaði flugstjóran-
um að fijúga til Kúbu. Þotan
kom við á leiðinni í New Orleans
til að taka eldsneyti, en lög-
reglumenn og starfsmenn alrikis
lögreglunnar, FBI, gátu ekkert
aðhafzt því að maðurinn hótaði
að sprengja þotuna í loft upp.
Þotan lenti á Jose Marti-flug-
velli síðdegis í dag, og maður-
inn sem rændi þotunni steig
fyrstur út. Að sögn fréttaritara
AP í Havana er hann Kúbumað-
ur. í þotunni voru 57 farþegar
og sjö manna áhöfn, og var einn
farlþegi eða áhafnarmeðlimur
borinn út úr flugvélinni á sjúkra
börum. f Washington sagði tals-
maður utanríkisráðuneytisins, að
ástæða væri til að ætla, að þot-
unni yrði fljótlega skilað ásamt
farþegum og áhöfn.
Flugstjórinn, Sid Oliver, til-
kynnti fljótlega eftir flugtak frá
Houston-flugvelli, að Kúbumað-
ur hefði ruðzt inn 1 stjórnklef-
ann með handsprengju í annarri
hendi og skammbyssu í hinni.
„Mér hefur verið skipað að
fljúga til Kúbu,“ sagði hann.
Glæpamaðurinn hélt kyrru fyr-
ir í stjórnklefanum og hótaði að
sprengja þotuna í loft upp ef
ráðist yrði á hann. Talsmaður
flugfélagsins sagði, að ekkert
væri hægt að gera.
Kvikmynd um
„Fiðlnrann
ó þnkinu“
Þetta er í níunda skipti á þessu
ári, sem farþegaflugvél hefur
verið rænt í Bandaríkjunum. Síð
asta flugvélarránið var framið
12. júlí, þegar vopnaður maður,
sem sagðist þjást af krabbameini
reyndi að neyða fLugstjóra Delta
flugvélar til að fljúga með sig
til Kúbu, en flugstjóranum tókst
að telja honum hughvarf og flug
vélin lenti í Miami. Einu sinni
áður hefur flugstjóri fengið flug
vélarræningja til að fallast á að
flugvélin tæki eldsneyti áður en
hún héldi til Kúbu, en það var
1961 þegar tveir feðgar tóku
stjórn farþegaflugvélar í sínar
hendur. Þegar vélin lenti til að
taka eldsneyti var lofti hleypt
úr hjólbörðum vélarinnar og síð
an tókst að ráða niðurlögum
glæpamannanna.
Þegar Oliver flugstjóri lenti á
flugvellinum í New Orleans í
dag skipaði flugvélarræninginn
honum að staðnæmast á jaðri
flugbrautarinnar og hótaði að
sprengja þotuna í loft upp ef
einhverjir aðrir en þeir sem
fylltu tanka vélarinnar nálguð-
ust hana. Þotan var af gerðinni
Dc 8.
Fasteignasalan Garðastræti 17
Símar 24617—15221.
Til sölu
tvlyft hiis með tveimur 3ja herb. íbúðum í Miðbæn-
um í Kópavogi, girt og ræktuð lóð, bílskúrsréttur.
Hentar vel sem einbýlishús með lítilsháttar breyt-
ingu. Laust í ágúst.
Árni Guðjónsson hrl., Þorstcinn Geirsson hdl.,
Helgi Ólafsson sölustj., kvöldsími 41230.
Lausar stöður
VIÐ RAUNVÍSINDASTOFNUN HÁSKÓLANS.
Athygli skal vakin á aiuglýsingu menntamáilaráðuneyt-
isins, dagsettri 25. júnd 1968, seim birtiist í Lögbirtingar-
blaðinu 9. júlí 1968, þess efniis, að ráðgert er að veita
á árinu 1968 nokkxar stöður tiO. 1—3 ára fyrir vísindialega
menntaða starfsmenn við Raunvísindastofnun Háskólans á
eftirtöldum sviðum: Stærðfræði, eðliiafræði, efnafræði eða
jarðeðliisfræði.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna rfkisins.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi. Starfs-
mennirnir verða ráðnir til rannsóknarstarfa, en þó skal,
ef háskólaráð óskar, setja ákvæði um kennslu við háskód-
ann í ráðningarsamning þeir.ra, enda verði greidd aúka-
þó'kniun fyrir kennslustarfið.
Umsóknir, ásamt greinargerð um menntun og vísinda-
leg störf, skulu hafa borizt menntamálaráðuneytinu fyriir
1. ágúst 1968.
____________RAUNVÍSINDASTOFNUN HÁSKÓLANS.
LÖGTAK
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangengn-
um úrskurði verða lögtökin látin fram fara án frekari
fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs að
átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar,
fyrir eftirtöldum gjöldum:
Hækkunum á þungaskatti af dísilbifreiðum skv. lög-
um nr. 7 frá 1968 (vegalögum), sem féllu í gjalddaga
1. júlí s.l., söluskatti 2. ársfjórðungs og nýálögðum við-
bótum við söluskatt eldri tímabila, áföllnum og
ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi, gjöldum af
innlendum tollvörutegundum, matvælaeftirlitsgjaldi
og gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra, skipulagsgjaldi af
nýbyggingum, almennum og sérstökum útflutnings-
gjöldum, aflatryggingasjóðsgjöldum, svo og trygginga-
iðgjöldum af skipshöfnum 1. og 2. ársfjórðungs 1968
ásamt skráningargjöldum.
Borgarfógctacmbættið í Rcykjavk, 17. júlí 1968.
TÖLT/RÖLT pósthólf 293 R.
TÖLT / bölt
er nýjung, leikfang, sem
allir hafa beðið eftir.
Stattu á körfunni, haltu
í bandið og stígðu dans,
röltu eða töltu.
1. Sendu kr. 20 í ónotuðum frí-
merkjum. Þú færð um hæl eitt
sett TÖLT/RÖLT með póst-
kröfu, sem kostar kr. 60.
2. Sendu kr. 100, eins og pönt-
unarseðillinn sýnir, og fáðu
í kaupbæti smart vendi/kápu.
Stærðir á kápunum eru 30-32-34-36-38.
Klippið hér
Utanáabrift: TÖLT/RÖLT, pósthólf 293, Reykjavík.
□ Sendi hér með kr. 20 í ónotuðum frímerkjum, óska
eftir einu setti TÖLT/RÖLT.
□ Sendi hér með kr. 100 í ónotuðum frímerkjum, óska
eftir tólf settum TÖLT/RÖLT og í baupbæti vendi/
Jcápu eitt stykki.
NAFN: HEIMILISFANG. Krossið við það sem viið á.
New York, 17. júlí AP
Kvikmynd um söngleikinn vin
sæla „Fiddler on the Roof“ mun
verða framleidd og stjórnað af
Norman Jewison. Er áformað að
byrja kvikmyndatökuna 1970 og
hefja sýningar á henni 1971.
Söngleikur þessi var fyrst
sýndur á sviði 1964 og síðan
hafa um 5 millj. manns séð hann
í Bandaríkjunum einum saman,
en hann hefur einnig verið sýnd-
ur í 17 öðrum löndum.
Jewison stjórnaði töku verð-
launamyndarinnar „In the Heat
of the Night“ og stjórnar nú
tölku myndarinnar „The Thomas
Crown Affair“.
Snitttappar og bakkar
High speed borar
Múrboltar
Vélareimar-V-Fenner.
TMPOULSENf
Suðurlandsbraut 10, sími 38520
TJÖLD — TJÖLD
Kaupið vönduð tjöld, tjöld sem þola islenzka veðráttu
Þau fáið Jbið hjá okkur. Skoðið sjálf og dæmið
TJÖLD alls konar
tvílit og einlit.
Fallegir litir.
SVEFNPOKAR mjög vandaðir, margar
VINDSÆNGUR
margar gerðir.
GASSUÐUÁHÖLD
alls konar.
gerðir.
Picnic TÖSKUR
2ja, — 4ra og 6 manna.
Sportfatnaður — ferðafatnaður
í mjög fjölbreyttu úrvali.
Viðleguútbúnaður
alls konar, hvergi annað eins úrval.
Allt aðeins
úrvals vörur
GEíSÍB
H