Morgunblaðið - 20.07.1968, Blaðsíða 1
24 SIÐUR
152. tbl. 55. árg.
LAUGARDAGUR 20. JULÍ 1968
Prentsmiðja Morgublaðsins
Humpfirey vill Kennedy fyrir
varaforsetaefni
Trúir ekki fréttum um að Kennedy
sé því fráhverfur
New York, 19. júlí. NTB.
HUBERT H. Humphrey vara
forseti hefur gefið í skyn, að
hann vilji að Edward Kenne-
dy verði varaforsetaefni sitt
ef hann verði tilnefndur for-
setaefni Demókrataflokksins,
að því er The New York
Times skýrði frá í dag.
Fréttaritari blaðsins, Roy Reed,
segir að Humphrey hafi sagt um
fréttir þess efnis, að Kennedy
muni ekki taka við tilnefningu
til þess að verða varaforseta-
efni á þessa leið: Ég hef enga
ástæðu til að trúa þessum frétt-
um. Ég vona einlæglega að þær
séu ekki réttar.
í frétt blaðsins segir enn frem
ur, að Humphrey hafi farið mikl-
um vi'ðurkenningarorðum um
Kennedy og kveðst varaforsetinn
bráðlega mundu hitta hann að
máli.
Síðan Robert Kennedy öld-
ungadeildarmaður var ráðinn af
dögum í síðasta mánuði hefur
það verið hald margra að bróðir
hans, sem er 36 ára gamall, muni
varpa sér út í stjórnmálabarátt-
una, sem frám fer fyrir lands-
þing demókrata. Enn sem komið
er hefur hann hins vegar enga
tilraun gert til þess.
í viðtalinu lýsti Humphrey
því einnig yfir, að hann mundi
gefa mikilvæga yfirlýsingu um
Vietnam eftir nokkra daga.
Samkomulag um friö-
arviðræður í Nigeriu
— Formlegar viðrœður eiga að
fara fram í Addis Abeba
Edward Kennedy
Niamey, Niger, 19. júlí NTB
Leiðtogar Biafra og sambands
stjórnar Nigeriu hafa náð sam-
komulagi um að koma saman til
fundar í Niamey, höfuðborg Nig
er, til þess að hefja þar undir-
búning að friðarviðræðum. Segir
í tilkynningu Nigeriunefndar
Einingarsamtaka Afríkuríkja, að
deiluaðilar hefðu fallizt á að
koma saman til undirbúningsvið
ræðna, áður en formlegar friðar
viðræður hæfust, sem fram
myndu fara í Addis Abeba, höf-
uðbnrg Eþíópíu.
Sambandsstjórnin í Nigeriu og
Biafra, sem áður var austurhluti
landsins, en lýsti yfir sjálfstæði
sínu í fyrra, hafa átt í blóðugri
styrjöld, sem staðið hefur meira
en eitt ár. LeiðtOgar beggja styrj
aldaraðila urðu við áskorunum
Nigeríunefndar Einingarsamtak-
anna um að koma til Niamey, á
meðan nefndin hélt fund þar.
Leiðtogi sambandsstjórnarinnar,
Gowon hershöfðingi og leiðtogi
Biafra, Ojukwu hershöfðingi,
hafa skýrt sjónarmið sín á fundi
nefndarinnar.
James Earl Ray meintur morðingi Martins Luther Kings við
komuna til Memphis í gærmorgun. Lögreglumaður fylgir hon
um til klefa hans í fangelsi í Memphis. Ray er þarna hand-
járnaður við leðurbelti og er klæddur skotheldum búningi.
(AP-símamynd).
Ray fluttur með leynd
frá London til Memphis
— Fylgzt með hverri hreyfingu hans
Memphis, 19. júlí. NTB-AP.
JAMES Earl Ray var í dag
Harðnandi taugastríð í Tékkdslóvakíu
Bandaresk áform um gagnbylt-
ingu í Tékkóslóvakíu segir Pravda
Moskvu, Prag og Washington,
19. júlí. NTB-AP.
• Framkvæmdaráð sovézka
kommúnistaflokksins sendi í
dag forsætisnefnd kommún-
istaflokks Tékkóslóvakíu
bréf, þar sem sú tillaga er
borin fram, að haldinn verði
sameiginlegur fundur allra
æðstu leiðtoga kommúnista-
flokkanna í þessum tveimur
ríkjum dagana 22. eða 23.
júlí og verði hann haldinn í
Moskvu, Kiev eða Lvov, sem
er skammt frá landamærum
Tékkóslóvakíu. Tillaga þessi
er sögð einstök í sögu komm-
únistaríkjanna. Ljóst þykir,
að sovézku leiðtogarnir vilja
ógjarnan, að slíkur fundur
fari fram í Prag.
• Miðstjórn kommúnista-
Tjáningarfrelsi heitiö
— Aref lýsir byltingunni í viðtali
við blað í Beirut
flokks Tékkóslóvakíu veitti í
dag einróma samþykki sitt
við stefnu leiðtoga landsins.
Þá samþykkti miðstjórnin
enn fremur, að fram færu
viðræður við aðra kommún-
istaflokka Austur-Evrópu
hverja í sínu lagi.
• Valdhafarnir í Kreml juku
enn á taugastríðið gegn Tékkó
slóvakíu í dag, en þá hélt
aðalmálgagn sovézka komm-
Bagdad, 19. júlí — AP
NÝJA stjórnin í írak hefur heit
ið þjóðinni tjáningarfrelsi, er
leitt geti til lýðræðislegra stjórn
arhátta, og iýst yfir þeim ásetn-
ingi sínum að leysa vandamál
Kúrda í norðurhluta landsins og
tryggja þjóðareiningu. Forsæt-
isráðherra nýju stjórnarinnar,
Abdul Razzak lýsti yfir því í
útvarpsræðu, að stjórnin mundi
auk þess hafá nána samvinnu
við önnur Arabaríki á öllum
Framhald á bls. 3
Ahmed A1 Bakir,
hinn nýi forseti í írak.
únistaflokksins, Pravda, því
fram, að Sovétríkin hefðu
komizt yfir bandarísk áform
um gagnbyltingu í Tékkó-
slóvakíu og fullyrti, að flokk
ar uppreisnarmanna þar
hefðu fengið bandarísk vopn
um Vestur-Þýzkaland. Sagði
Nikolaj Podgorni forseti, að
Sovétríkin myndu láta Tékkó
slóvakíu í té umfangsmikla
Framhald á bls. 23
fluttur í skothelda deild í
fangelsinu í Memphis í Tenn-
essee, þar sem sjónvarps-
myndavélar fylgjast með
hverri hreyíingu hans meðan
hann bíður þess að verða
leiddur fyrir rétt, ákærður
fyrir morðið á dr. Martin
Luther King.
Ray, sem var handtekinn á
Lundúnaflugvelli undir nafninu
Ramon George Sneyd, var fram-
seldur bandariskum yfirvöldum
í nótt. Bandarísk herfiugvél flutti
hann beint til Memphis frá ónafn
greindum flugvelli í nágrenni
London og lenti á ákvörðunar-
stáð eftir rúmlega 10 klukku-
stunda flug um kl. 4.30 að stað-
artíma, eða um hálf tíu að fe-
lenzkum tíma.
Hann var fluttur í lokaðri
Framhald á bls. 9
Júgóslavíustjórn leitar
eftir trausti þingsins
Belgrad, 19. júlí — AP
JÚGÓSLAVÍtTSTJÓRN fór í
gær fram á traustsyfirlýsingu
hjá þjóðþingi landsins og hlaut
hana. Einn þingmanna greiddi
atkvæði gegn traustsyfirlýsingu
og einn sat hjá.
Þetta er í fyrsta skipti, siðan
kommúnistar komust til valda í
Júgóslavíu, að stjórn landsins
fer fram á traustsyfirlýsingu og
stjórnmálafréttaritarar í Bel-
grad eru þeirrar skoðunar, að
þetta sé sömuleiðis í fyrsta
skipti í sögu kommúnistaríkja.
Stjórnin mun hafa tekið þessa
ákvörðun vegna gagnrýni, sem
hún hafði sætt í blöðum fyrir
það, að ráðherrar stjórnarinnar
sýndu óhóflega bjartsýni í efna-
hagsmálum landsins.