Morgunblaðið - 20.07.1968, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JULI 1968
Sigldu á 47 feta skútu frá Póllandi
— og umhverfis ísland
Margir dism átt hafa leið um
Reykjavíkurhöfn að undanförnu
hafa veitt athygli lítilli, en renni
legri seglskútu sem legið hefur í
höfninni. Hún er hingað komin
um langan veg, alla leið frá
Gdansk í Póllandi. Við hittum að
máli skipstjóra skútunnar, Ors-
zulok, að nafni og fengum hann
til þess að segja okkur ferða-
sögu þeirra félaga í stórum drátt
um. Orszulok er þrautreyndar
siglingakappi og hefur siglt hing
að til Islands áður.
— Við lögðum af stað írá
Gdansk, 28. júní s.l., sagði Ors-
zulok. Komum fyrst við í Dan-
mörku, en sigldum síðan til Skot
lands og þaðan til íslands. Yfir-
leitt vorum við heppnir með veð-
ur á þessari leið, en þegar víð
hófum hringferð um ísland feng
um við mikinn storm á okkur
úti af Dalatanga. Allt gekk þo
að óskum 'njá okkur. Fyrir norð-
an land var ísinn okkur til tra-f-
ala, og urðu alltaf tveir að vera
uppi til að fylgjast með sigling-
unni. Úti af Horni fengum við
einnig mótvind, og sigldum þá
nærri landi. Þegar til Látrabjargs
kom, fengum við síðan blásar.di
byr til Reykjavíkur, en hingað
komum við s.l. mánudag. Héðan
er svo ferðinni heitið til Póllands
fcn sennilega munum við koma við
í Kaupmannahöfn og taka neyzlu
vatn.
— Skútan er 47 fet að lengd,
og er í eigu starfsmanna járn-
brauta inni í landi, og byggð
af þeim. Var síðan flutt til sjáv-
ar á járnbraut. Að mér undan-
skildum hafði enginn af úhöfn-
inni áður siglt um úthaf, en þeir
hafa allir reynst dugandi, enda
miklir áhugamenn um siglingar.
— Á fslandi höfum við fengið
sérstakar og ógleymanlegar mót
tökur. Greiðvikið og elskulegt
fólk hefur allt gert til að greiða
götur okkar. Fyrir þetta erum við
mjög þakklátir.
Þegar við ræddum við Orszu-
lok var hann staddur hjá klúbbfé
lögum í Siglingaklúbbnum Óðni.
Formaður þess klúbbs er lngi-
mundur Sveinbjörnsson i>g not-
uðum við tækifærið til að spyrja
hann um starfsemi klúbbsins.
Sagði Ingimundur að klúbbf úag
ar væru nú 27 og hefðu þeir
hug á að fjölga í klúbbnum á
næstunni. Klúbburinn á skútuna
Stormsvöluna, sem þeir keyptu
frá Skotlandi 1965 og varla liði
sá dagur sem hún væri ekki í
notkun á tímabilinu maí - sept.
Pólverjarnir ásamt forráðamönnum Óðins. — Lengst til vinstri er Ingimundur Sveinbjarnar-
son, en sjötti maður frá vinstri er Orszulok. Skútan í baksýn er Stormsvalan.
Loksins farþegaflug
mifli N.Y. og Moskvu
Á leiöinni vestur er flogið yfir Island
Eftir sjö ára töf, sem stafar
bæði af tæknilegum og dipla-
matiskum ástæðum, hefur verið
tekið upp beint farþegaflug miili
New York og Moskvu og cf-
ugt og á það að fara fram reglu-
lega einu sinni í viku. Þetta
flug hófst 15. júlí sl., en þá lagði
fyrsta farþegaþotan frá New
York.
Samkomulag um beint flug
milli Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna náðist 1961. Hins vegar
tafðist það árum saman, að því
yrði komið í framkvæmd, og átli
sú töf rót sína að rekja ti!
stirðrar sambúðar ríkjanna, er
stafaði af byggingu Berlínar-
múrsins og fl. Samningurinn var
hins vegar undirritaður í nóv-
ember 1966, en síðan hafa ,,tækni
leg vandkvæði", sem að nokkru
hafa stafað af ströngum skilyrö-
um Bandaríkjanna um óryggi,
hindrað, að byrjað yrði a þess-
ari nýju loftbrú.
Fluginu milli Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna verður hagað
á þessa leið. Á hverjum mánu-
degi getur farþegi kl. 9 15 að
kvöldi farið með Pan American
þotu af gerðinni 707 frá Kenn-
edy flugvelli í New York. Eft-
Framhald á bls. 14
4 kortinu sést hvaða leið flugvélarnar fljúga frá New York til Moskvu og Moskvu til New
York. Athyglisvert er, að á leiðinni vestur fljúga vélarnar samkvæmt kortinu yfir ísland.
ÚTSALA
UTSALA
Sumarútsalan hefst á mánudag, 22 júli
Fvrstu vikuna verða seldar KÁPUR, DRAGTIR og JAKKAR
í fjölbreyttu úrvali, svo sem:
FRAKKAR ÚR KAMELULL ÁÐUR 3.335 — NÚ 1995 —
FRAKKAR ÚR TWEED — 2.500.-- 1250,—
TERYLENEKÁPUR — 1.970.- 1.320,—
BUXNADRAGTIR — 2.800.- 1.400.—
Bernhard Laxdal
Kjörgarði
Skúta Pólverjanna í Reykjavíkurhöfn.
Ráðstefnurnar burt af
annatíma hótelanna
— Þœr útiloka aðra ferðamenn
Hótelin í Reykjavík hafa ekki
verið eins setin í júlímánuöi og
reiknað hefur verið með. I’ d.
hefur aðeins verið svo fullt 4-5
nætur í mánuðinum að ekki hali
verið hægt að taka við gestum
á Hótel Sögu, Konráð Guð-
mundsson, hótelstjóri, sagði að
það hefði ekki reýnzt rétt sem
flugfélög og ferðaskrifstof-
ur hafa stundum haldið fram, að
ekki sé hægt að auka ferða-
mannastrauminn á þessum tíma
vegna þess að hótelrými sé ekki
fyrir hendi. Aftur á móti verði
ástandið betra í ágúst frá sjón-
arhóli hótelanna, því þá sé um
hálfur mánuðurinn upp pantað
ur. Að minnsta kosti hefur eng-
in aukning orðið á ferðamönnum
á hótelunum frá í fyrra, sagði
Konráð.
Konráð sagði, að tvennt kæmi
til. Afpantanir hefðu borist eink
um frá Bandaríkjunum, par sem
sú stefna ríkir að draga úr ferð-
um til útlanda. Kæmi þetta eink-
um fram á Hótel Sögu og Loft-
leiðahótelinu. En talið hefði ver-
ið að það yrði bætt upp með öðr
um ferðamönnum. Stærri liður
væri þó sá, að hinar stóru ráð
stefnur á mesta annatímanum
væru farnar að hafa mjög nei-
kvæð áhrif. þar sem þær tækju
upp hótelherbergi vissa daya
löngu fyrirfram og þyrfti þá að
vísa almennum ferðamönnum frá
þá daga, og ættu þeir ekki sama-
stað á meðan. Svo fækkaði oft
þátttakendum í ráðstefnunu.n á
seinustu stundu eða yrðu breyt-
ingar á þeim. 1
Það er orðið mál málanna á
þessum vettvangi að færa ráð-
stefnurnar af mesta annatima
hótelanna, sagði Konráð. Hvern
ig ég tel að eigi að fara að þvi?
Á tvennan hátt, með því að hó-
telið bjóði lægra verð fyrir stóra
hópa annan tíma árs, og einnig
með því að hið opinbera, riki og
borg, hætti stuðningi við ráð-
stefnur í júlí og ágústmánuði.
Okkar reynsla er sú, að ef mik-
ið er um ráðstefnur, þá lokar
það landinu fyrir venjulegum
ferðamönnum.
Geymsluhíisnæði
Til leigu á einum bezta stað í Austurborginni er
geymsluhúsnæði samtals að stærð 1800 ferm. Til leigu
í einu lagi eða í þremur einingum, sem væru þá
u.þ.b. 400, 500 og 800 ferm.
Væntanlegir leigjendur vinsaml. leggi nöfn sín og síma-
númer á afgr. Mbl. merkt: „Geymsluhúsnæði — 8448“.
Nýkomið glœsilegt úrval af
KERAMIK
LÖMPUM
SKOÐIÐ í GLUCCANA
LJÓS 0G 0RKA
Suðurlandsbraut 12 — Sími 84488.