Morgunblaðið - 20.07.1968, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 20.07.1968, Qupperneq 13
MORGUNRLAÐEÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1968 -=1 13 ÞAÐ er ekki á hverjum degi, sem maður hittir útlendinga, sem ekki þarf að hafa fyrir að tala við á erlendri tungu. Þeg- ar fréttamaður og ljósmyndari Mbl. litu upp í Kennaraskóla nú á dögunum, nægði þeim „ást- kæra ilhýra málið“ til að halda uppi samræðum við þann glað- væra hóp æskufólks, sem þar var fyrir. — Ég er hér á ferð um land- ið með 15 nemendum mínum úr Kennaraskólanum í Stavanger, sagði Torleiv Skarstad, íslands- vinur og yfirkennari frá Noregi, er við spurðumst fyrir um ferð- ir hópsins. — í skólanum okkar í Stav- anger tókum við upp það ný- mæli, fyrir tveimur árum, að gefa fólki kost á að nema nú- tíma íslenzku. í>ar sean ég er eini kennarinn í greininni hlaut aðsókn auðvitað að verða tak- Hopurinn • Kennaraskólanum. — Það er líka gott að vera Norðmaður á Islandi. Ljósm. Sv. Þorm. Við lærum íslenzku — lesum l\loggann til prófs og syngfum Ifóð mörkuð. f bekknum, sem val- inn var, eru 31 nemandi, og er því um helmingur hans stadd- ur á íslandi. fslenzkan' vár valgrein og var þeim því í sjálfsvald sett að nema hana. Niðurstaðan varð þó sú, að miklu færri komust að en vildu. Þetta er fjögurra vetra skóli svo nú hafa þau tvö ár að baki. Þá er í skólanum stúdentadeild sem þau munu sækja að þessum 4 árum liðn- um. — Hvaða kennslubækur styðstu við? — Það er aðallega ný kennslu Fararstjórl, bílstjóri, kennari og stundum líka túlkur: Torleiv Skarstad. bók í íslenzku, eftir Magnús Stefánsson, sendikennara í Osló, Eskeland, forstjóra norræna hússins og Heggstad yfirkenn- ara. Bókin er gefin út fyrir at- beina Norræna félagsins. Svo les um við valda kafla úr Nj'álu og öðrum gullaldarbókmenntum, kafla úr verkum Laxness, mikið af kvæðum og síðast en alls ekki sízt Morgunblaðið. — Hvaða ljóð lesið þið helzt? — Þar kennir nú margra grasa, segir Skarstad, og varla hefur hann sleppt orðinu fyrr en hópurinn sannar orð læri- meistara síns, og byrjar að syngja hið klassíska lag um Maríu sem tróð sér inn í tjald. — Já, segir Skarstad bros- andi, — við gerum mikið af því að syngja í tímum og þeir sem fram'hjá ganga og á hlýða ,skilja ekkert í þessari „norsku“! Ég hef sjálfur ákaflega gam- an að íslenzkum ljóðum og stök- um. Jónas og Davíð eru mín uppáhalds skáld og það er tóm- stundagaman mitt að safna ís- lenzkum stökum. Þegar ég fer um landið safna ég þeim saman í eina heljarmikla skræðu og reyni að fá bændur og búalið til að fara með hvað þeir kunna af lausavísum. íslenzkan er frábært mál til að yrkja á. Þið getið sagt það í 10 orðum, sem við segjum í 50. Þess vegna eru ljóðin ykkar líka oftast stuttorð, en því mun gagnorðari. Ferskeytlan og sléttubönd eru einstök bragar- form. — Þessu til stuðnings fer Skarstad með sléttubandavísu eftir Andrés Björnsson, og seg- ir síðan: — Hérna um daginn þegar við vorum að ferðast um landið, hittum við einn anzi góð ann uppi á Héraði. Hann var dálítið vinstrisinnaður á vegin- um ennþá blessaður, en það kom nú ekki að sök. Við stigum báð- ir úr úr bílunum og röbbuðum saman. Ég spyr hvort hann kynni nokkra góða stöku. Hann segist nú halda það og fer með eina e-ftir Káinn. Að því búnu segir bóndi: — Ekki kunna Norðmenn lausavísur. — Þekkirðu Þóri Jökul, segi ég. Nei, var svarið. Þá lét ég þessa fjúka: Upp skaltu á Kjöl klífa, köld er sjávardrífa, kostaðu hugann að herða, hér muntu lífið verða. Þá sannfærðist bóndi um að ekki væri Norðmönnum nú alls varnað og héldum við síðan hvort sína leið og kvÖddumst með virktum. — Hvernig lærðir þú ís- lenzku Skarstad? — Ég byrjaði á þessu 1056, mest af sjálfum mér í fyrstu, en síðan sótti ég þriggja vikna námskeið hjá Árna Böðvars- syni, sem þá var sendikennari í Noregi. Hafði ég mikið gagn og ánægju af þeirri kennslu. Fyrir átta árum kom ég hingað í fyrsta skipti og dvaldizt hér i tvo mánuði. Nú, svo var það í hitteðfyrra, að við tókum upp kennslu í nú- tíma íslenzkunni, og gátu nem- endur valið milli hennar og forn-norsku, þ.e. forn-íslenzku. Ég held, að meiri áhugi sé að vakna í Noregi fyrir að læra íslenzkuna. Við Orgland, fyrrv. sendikennari, héldum kvöldnám skeið sl. vetur í Stavanger og sóttu það 30 manns. Áhuginn var mikill og nemendur á aldr- inum 19—68 ára. Þá heldur menntamálaráðuneytið uppi ein hverri tilraunakennslu í mennta skólastiginu og er vonandi að hún megi eflast. Okkur þykir nú kominn tími til að láta nemendur Skarstads spreyta sig í málinu og snúum okkur að tveimur þeirra: Helgu Haaland og Helgu Lindvik, með góðum árangri. — Er íslenzkan ekki erfitt mál, spyrjum við. — Ekki vill Helgi samþykkja það, en Helga er ekki jafn viss í sinni sök. Hvað er þetta, seg- ir Helgi, þetta lagast allt með tímanum, og nú skellir allur hóp urinn upp úr. Það er greinilegt að lærifaðir þeirra hefur ein- hvern tímann hughreyst nem- endur sína með þessu orðum, þá er vor fjögur föll tófcu að vefjast um fyrir einhhverjum. — Fer það ekki að einhverju leyti eftir því hvaða mállýzku við talið, hvernig ykkur sæk- ist' námið? — Jú, svarar Helgi, fram- burður og orðaforði landsmáls- ins er líkari íslenzkunni en rík ismálið og það auðveldar nokk- uð. Sjálfur tala ég ríkismálið, en Helga landsmálið. — Hvernig hefur ykkur líkað námið? —• Þau ljúka upp einum munni, að það hafi verið mjög ánægjulegt. Ljóðin ykkar eru svo falleg segir Helga og svo auðvitað Velvakandi! Já, segir Dagsbrún mðtmælir — uppsögnum aldraðra verkamanna — Telur nauðsynlega framkvœmd lifeyrissjóðs allra landsmanna Á fundi trúnaðarráðs Dags brúnar, sem haidinn var 18. júlí sl. var samþykkt álykt- un, þar sent því er harðlega mótmælt, að atvinnurekend- ur taki upp þann hátt að segja verkantönnum upp, þeg ar þeir hafa náð sjötugs aldri og jafnframt er vakin athygli á nauðsyn þess að taka föst- um tökum lífeyrissjóðsmál verkamanna, þar sem ellilíf- eyrir Almannatrygginga nægi ekki til lífsframfæris. í ályktun fundarins um at- vinnumál er sagt, að mikill fjöldi skólafólks gangi enn at- vinnulaust og nokkuð beri einn- ig á atvinnuleysi meðal almenns verkafólks. Jafnframt er talið að alvarlega horfi um atvinnu á haustmánuðum og fyrri hluta vetrar og er skorað á ríkisstjórn ina og aðra opinbera aðila að gera í tæka tíð ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir a'tvinnu leysi og tryggja næga atvinnu fyrir alla. Ályktun fundarins um atvinnu mái aldraðra fer hér á eftir: „Fundur í trúnaðarráði Verka mannafélagsins Dagsbrúnar, hald irin 18. júli 1968, mótmælir harð lega þeirri stefnu, sem nú er að ryðja sér til rúms hjá atvinnu- rekendum, a'ð segja verkamönn- um upp vinnu, þegar þeir hafa náð vissu aldursmarki (70 ár). Fundurinn mótmælir eindregið þeim uppsögnum á eldri verka- mönnum, er þegar hafa átt sér stað af þessum sökum, svo sem hjá Eimskipafélagi íslands o.fl. Forsenda þess að verkamenn geti hætt störfum á þessum aldri er sú, að þjóðfélagið sjái fyrir fjárhagslegum þörfum þeirra, en eins og nú er ástatt í þeim éfnum, vantar mikið á, að það sé gert, Það vita allir, að ellilífeyrir Almannatrygging- anna er nú fjarri því að nægja mönnum til framfæris, en verka- menn hafa ekki að öðru að hverfa. Méðan þjóðfélagið ekki sér Helgi „Mogginn" er prýðisblað, við höfðum 5 síður í honuim til prófs. —• Það er greinilegt að Mbl. þykir hagstætt námsefni í Nor- egi, því Skarstad tjáði mér, að að hann með hjálp vinar síns hafi fengið send 200 eintök af blaðinu til að nota við kennsl- una. Það kann því að eiga fyr- ir þessu viðtali að liggja að verða prófverkefni í Kennara- skólanum í Stavanger — Hvað hafið þið hafzt að hér á íslandi? Helgi verður fyrir svörum, og segir hópinn hafa safnað fyrir farinu í frístundum og slegið lán fyrir því sem upp á vant- aði til að komast hingað. — Við erum búin að ferðast um allt landið, frá Dyrhólaey vestur á Snæfellsnes og frá Siglufirði austur á Seyðisfjörð. —■ Þetta hafa verið dásamleg ir dagar segir Helga. Við Mý- vatn klifum við upp á fjall og horfðum á sólarlagið, við vorum djúpt snortin af fegurð. —• Á Siglufirði var líka gam an, segir Helgi, þangað komum við meðan á hátíðarhöldunum stóð og skemmtum okkur kon- unglega. Ekkf var það heldur verra, að við höfðum annan eins fyrirmyndar fararstjóra, bíl stjóra, leiðsögumann og kenn- ara (stundum lika túlk, skal við urkennast), sem Skarstad. Hópurinn fer nú að ókyrrast dálítið. Það kemur þá upp úr kafinu að meiningin er að mæta til landsleiksins á Laugardals- vellinum, milli íslendinga og Norðmanna. — Að lokum segir Skarstad.: Við viljum þakka innilega allar móttökur hér og þá sérstaklega Brodda Jóhannessyni skólastjóra og Kennaraskólanemendunum, sem hafa af mikilli rausn hýst okkur. Ég vona, að við getum endurgoldið þeim í framtíðinni, ef hópur íslenzkra kennaraskóla nemenda kemur til okkar. Við munum aldrei gleyma þessum sólskins og gleðidögum, og ég veit að héðan munu þau öll halda sem einlægir íslands- vinir, og þá er tilganginum líka náð. Hópurinn stillir sér nú upp til myndatöku, og Sveinn ljósmynd ari biður þau að horfa á sig. Þá gellur við í hópnum: — Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig. Við botnum slagarann. — Þegar út er gengið á lands- leikinn, spyrjum við að lokum. Með hverjum haldið þið í kvöld? Skarstad svarar: — í kvöld hrópum við áfram Noregur, en á íslenzku. öldruðum verkamönnum fyrir sómasamlegum lífeyri, verður að líta svo á, að atvinnurekendur hafi skyldum að gegna gagn- vart þeim, enda hafa þessir verkamenn í flestum tilvikum eytt beztu árum ævi sinnar í þjónustu þeirra. Atvinnurekend- ur geta því ekki fleygt verka- mönnum frá sér eins og notuðu verkfæri, þótt starfsorka þeirra sé eitthvað farin að minnka. Þessi nýja stefna atvinnurek- enda gagnvart öldruðum verka- mönnum knýr á um, að lífeyris- sjóðsmáj verkamanna verði tek- in föstum tökum til úrlausnar, og því skorar fundurinn á stjórn arvöld að hraða sem mest undir- búningi og framkvæmd laga um lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn. Jafnframt heitir fundurinn á almennu verkalýðsfélögin a'ð taka þessi mál til meðferðar, því að lífeyrissjóður fyrir verkafólk þarf nú að verða í fremstu röð baráttumála þessara félaga.“ Mannskaðar \ Dacca 18. júlí NTB. _ Að minnsta kosti 136 manns hafa drukknað í gífurlegum flóð um sem urðu í Austur-Pakistan, við skyndilegt skýfall þar í gær. Öll hrísgrjónauppskera héraðs- ins er eyðilögð. Ný flóð virðast í aðsigi og óttast menn frekari mannskaða og eyðileggingu. -J

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.