Morgunblaðið - 20.07.1968, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 20.07.1968, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1M8 Sigríður Ágústína Björnsdóttir — Minning Nú situr enginn á gula bekkn- um urtdir glugganum í eldhúsinu við lestur — og nú læðir eng- inn örlitlum mola inn á skrif- borðið mitt á kvöldin, — og kverin þín liggja óhreyfð á borð inu. Allt er heiminum hverfullt. En minningin um hana frænku mína þá elskulegustu og óeigmgjörn- ustu veru, sem ég hefi þekkt þessi 36 ár, er ég hefi fetað á lífsbrautinni, vakir í huga mín- um og svo mun verða áfram. Ég get því aðeins sagt: „Ég þakka þér Drottinn fyrir þessi ár, sem þú hefir leyft mér að njóta návistar frænku minnar.“ „Dæm svo mildan dauða, Drottinn, þínu barni, eins og léttu laufi lyfti blær frá hjarni, eins og lítill lækur, ljúki sínu hjali, þar sem lygn í leyni áður en hún gekk til hvilu á I liggur marinn svali.“ kvöldin. I Þannig kveður eitt af stór- Minning Hinrik Einarsson frá Ölvesholti F. 4. sept. 1884 —D. 12. júli 19C8. Slokkna eitt af öðm augnaljós, er skinu bjart um brautu mína Horfin er mér hjartkær, hún sem öllum veitti yl um ævi sína. Átti gnótt af gáfum, göfgi sálar ríka, l(ka þrek og þorið. Björtu voru brosin, blíðan kærleiksvafin eins og yir'.kt vor'ð öllu fögru unni, öllu góðu léð> lið af Ijúfu hjavta. Vildi böl hv«.vt bæta bar hún sjákiémsþraufir án þess aðrá og kvarta. Kveð þig nrærjj-n huga. Hef svo margt að þakka. Verr er gert en vildi. Guðs á vegimi gekkstu. Guði sértu falin, miskunn hans og mikli. Helgi Seljan. Hún var fædd á Eskifirði 4. september 1884 og hefði því orð- ið 84. ára á þessu ári, hún frænka mín, hefði hún fengið að lifa. t Eiginmaður minn, faðir okkar og sonur, Bjarni Benediktsson frá Hofteigi, andaðist í Borgarspítalanum aðfaranótt 18. júlí. Adda Bára Sigfúsdóttir, Sigfús Bjarnason, Kolbeinn Bjarnason, Geirþrúður Bjarnadóttir, Benedikt Gislason. t Systjr okkar, Sigríður Guðmundsdóttir frá Syðra-Velli, Flóa, sem andaðist að Elliheimil- inu Grund 14. þ.m. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. júlí kl. 13.30. Ingibjörg Guðmundsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Grímur Guðmundsson. t Útför, Zóphóníasar Stefánssonar frá Melabraut 39, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. júlí kl. 10.30 fyrir hádegi. Eiginkona, böm, tengdabörn og barnaböm. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Helga Kristjánsdóttir frá Hvammi í Dýrafirði, sem lézt að Hrafnistu 12. þ.m., verður jarðsungin að Þingeyri við Dýrafjörð mi'ðvikudaginn 24. þ.m. kl. 2 e.h. — Minning- arathöfn um hina látnu fer fram í Fríkirkjunni mánudag inn 22. þ.m. kl. 10.30 f.h. Börn, tengdabörn, bamaböm og barnabaraabörn. Sigríður Ágústína Björnsdótt- ir var fædd á Eskifirði. Faðir hennar afi minn — varBjöm Jónsson, bókbindari og oddviti, er bjó á Sléttu við Reyðarfjörð, en móðir hennar — amma mín — var Anna Siggerður Eyjúlfsdótt ir. Frænka mín Sigríður var elzt sinna systkina. Árið 1913, eða nánar tiltekið, 13. ágúst 1913, giftist hún frænda mínum Páli Jakob Jónssyni frá Sellátrum við Reyðarfjörð, en þar bjugguþau til ársins 1933, er þau urðu að flytja inn á Eskifjörð og því næst til Reykjavíkur en til þeás lágu ýmsar ástæður. Á páskadag 1960 kvaddi frændi minn Páll, og nú er hún frænka mín einnig horfiu úr þessum heimi. Föstudaginn 12. júlí, kvaddir þú þennan heim, kæra frænka, — um bjarta og heíða sumar- nótt. Birta og ylur var táknrænt fyrir ævi þína, þau 36 ór, er ég hefi þekkt þig. Öllum vild- ir þú gott gjöra. Á þessum degi, þegar ég kveð þig í hinzta sinn, þegar ég horfi á eftir hvítri kistu, með gyllt- um krossi á loki, hverfa niður í dökka moldina, vakna rnér ýmsar hugsanir i brjósti og minn ingarnar sækja að. Hún hafði ávallt þann sið hún frænka mín, að lesa örlrtið í kverunum sínum — Nýjatesta- menntinu og Bænabókinni sinni t Systir okkar og mágkona, Margrét Ólafsdóttir Háteigsvegi 25, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju mánudaginn 22. júlí kl. 3 síðdegis. Þórunn R. Ólafsdóttir, Lúðvík Nordgulen, Óskar K. Ólafsson, Sigurlaug Ólafsdóttir, Páll Þ. ólafsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Sigurður S. Ólafsson. t Hjartkær móðir okkar, tengda móðir og amma, Ingigerður Þorsteinsdóttir Langholtsvegi 158, verður jarðsungin frá Foss- vogskapellu mánudaginn 22. júlí kl. 10.36. Böm, tengdaböm og barnabörn. t Alúðarþakkir færum við öll- um sem sýndu okkur samúð og vinarhug á margvíslegan hátt við andlát og jarðarför mannsins míns, fö'ður okkar og afa, Kristjáns G. Þorvaldssonar frá Súgandafirði. Amfríður Guðmundsdóttir, Kristín Krist.jánsdóttir, Þorvaldur Kristjánsson, Þnríður Ingibergsdóttir, Kristján Öra Ingibergsson. Fæddur 22. júni 1892 Dáinn 4. júlí 1968 Á SÓLBJÖRTUM sumarmorgni í byrjun túnasláttar vaknar lít- ill drengur í rúminu fyrir ofan ömmu sína. Geislar sólarinnar leika um kvistina í skarsúðinni yfir rúminu, og með fersku morg unloftinu berst margraddaður söngur sumarfuglanna inn um opnu rúðuna í litla sexrúðu glugganum á baðstofugaflinum. Hann hefur vaknað við samtal foreldranna: Móðirin komin á fætur, faðirinn liggur veikur með sóttihita og taki undir síðu. Hefur einnig spýtt blóði, þoldi ekki að slá bæinn úr grasi í vik- unni sem leið. Það er einhver spenna í rödd móðurinnar og drengnum framandi. — Það er heldur betur kominn gestur í túnið — segir hún, og dregnum bregður í brún. Á 'hann sök á þessu? Hefur hann gleymt að loka túnhliðinu í gærkvöldi og hross komizt í slæjuna? Hann skilur ekki hugarástand hinna fullorðnu á þessum sumar morgni, þó að hann nú, nær f]ór- um áratugum seinna, geti buðið í grun, hve alvarlegar horfur það hafa verið fátækjum einyrkja með fimm börn í ómegð að leggj- ast veikur um hásláttinn, þegar ekkert er hægt að leita til bjarg- t Þökkum innilega auðsýnda ?amúð og vinarhug við andlát og jarðarför elsku litla drengs ins okkar, Þorláks. Svala Veturliðadóttir, Richard Þorláksson. t Þökkum hjartanlega öllum þeim, er auðsýndu samúð og vinarhug við fráfall og jarð- arför, Guðmundar Gunnlaugssonar prentara. Ingibjörg Einarsdóttir, Guðríður Guðmundsdóttir, Sveinn Helgason, Þóra Sigurðardóttir, Jóhannes Guðmundsson, Erla Þórðardóttir, Richard Jónsson, Þórdís Guðmundsdóttir, og barnaböra. ar, ekkert 'hægt að greiða og aJl- ir eiga nóg með sig og sína. En nú hefur eitthvað skeð, og öllum í baðstofunni er innan stundar ljóst, hver óboðni gestur inn í slæjunni er. Það er ná- granninn, Hinrik í ölvesholti. Áður en fólkið brá bJundi, hef- ur hann komið með orfið sitt og er búinn að slá drjúgan teig fyr- ir framan kálgarðinn, þegar sam tal foreldranna á sér stað. — Þarna er honum rétt lýst — seg- ir faðirinn, og drengurinn man enn að móðirin svarar: Það veit ég, að Stefanía hefur ekki latt hann til þessara morgunverka. Og drengurinn flýtir sér á fæt- ur út í slæjuna til að horfa á Hinrik slá. Þarna stendur hann á nærbol og brók einni saman, herðabreiður og miðmjór. Svart hárið, svitastorkið, liggur í lokk- um fram á breitt ennið. Augun lítil, móbrún og snör liggja nærri nefinu, nokkuð háu og þunnu með lið á, en kjálkarnir eru sterk legir og útstæðir. Fölgulur litur húðarinnar heldur sér óskertur fyrir veðrun sólar og vinda. Hann veifar ekki orfinu hátt, en ljárinn rennur mjúklega fyrir sterkri sveiflu armanna gegnum döggvott grasið með snöggu sláttuhljóði, sem lætur vel í eyr- um drengsins. Hinrik er mikill sláttumaður, ljáförin fet á breidd og öll vinna virðist leika í hönd- um hans án sýnilegrar fyrirhafn- ar. Hann er sterkur og hefur lyft „Fjallsteininum", sem aðeins fær ustu menn gátu gert. Þetta veit drengurinn og fyllist lotningu fyrir manninum, sem kominn er til að slá túnið hans pabba. Þetta handtak var alldrei greitt með gjaldi jarðneskra fjármuna, enda var Hinrik ekki þannig far- ið, að hann gerði góðverk með, kröfu til gjalds. Undir 'hrjúfu yfirborði og gustmiklu fasi, sem drengnum t Alú'ðarþakkir til ættingja og vina fyrir auðsýnda vinsemd og virðingu við andlát og jarðarför, frú Vigdísar Magnúsdóttur, frá Meðalholtum. Ennfremur til lækna og hjúkr unarfólks á Handlækninga- deild Landsspítalans fyrir jóða hjúkrun síðustu dagana. Aðstandendur. skáldunum. Og þau orð vildi ég gera að lokaorðum mínum, — ef mér leyfist. „Dæm svo mildan dauða, Drott inn, þínu barni.“ Björa G. Eiríksson, kennarl Hættur uf hdvuðu Sérfræðingar hafa á vegum Evrópuráðsins í Strassbourg lagt fram tillögur um alþjóð- lega samvinnu um ráðstafanir til að hefta heilsutjón af völdum hávaða og um rannsóknir og upplýsingarstarfsemi á þessu sviði. Tillögurnar eru um hljóð- deyfingu við heimilisstörf, að- allega með útbúnaði á heimilis- tækjum, um útbúnað á bifreið- um, xrm flugvelli og flugleiðir og um ráðstafanir við húsbygging- ar og skipulagsstörf. Tillögur þessar munu nú lagðar fyrir rík- isstjórnir hinna 18 ríkja í Ev- rópuráðinu. (Frá Evrópiu-áði) stóð stundum stuggur af, sló gott hjarta. Hann sagði einu sinni, er hann kom úr réttum, ör af víni: — Verið ekki hrædd við mig, skinnin mín, ég ræðst aldrei á börn né gamalmenni. — (Þá var ekkert að óttast, og öryggiskennd fyllti brjóst drengsins. Því Hin- rik var barngóður og börn hænd ust að honum, og ávallt tók hann málstað lítilmagnans. Með línum þessum er ekki ætl- un mín að skrifa æviágrip Hin- riks Einarssonar frá Ölves'holti, ekki heldur minningargrein í venjulegum skilningi þess orðs. Aðeins ein morgunstund af morgnum sjötíu og sex ára ævi þessa manns hefur þó mótazt fastar í minningu bernskudag- anna, en aðrar samverustundir með gamla grannanum okkar, og hana vildi ég Ieysa úr læðingi þagnarinnar, — draga hana fram í dagsljósið. Hún er hvati þakkar minnar til hans nú, þegar leiðir eru skildar og fortjald lífs og dauða dregið fyrir milli þeirra, sem kveðja, og hinna, sem enn eru eftir á veg- inum. Ég veit hún Stefanía og börn- in hennar skilja þessa kveðju mína og þökk. Ég sendi þeim blessun mína og bæn, að minn- ingin um góðan eiginmann og föður veiti þeim styr-k til að lyfta sínum „Fjallsteini“ á reynslunn- ar stund. Ólafur Öra Árnason. — New York - Moskva Framhald af bls. 3 ir 10,5 klst. með viðkomu í Kaup mannahöfn til þess að taka elds neyti lendir flugvélin í Moskvu kl. 1.50 eftir hádegi á þriðju- degi. Flugvélin flýgur til baka til Bandaríkjanna hvern þriðjudag kl. 4.00 eftir hád. Fargjaldið er frá 548 upp i 1.109 dollara og fer það eftir farrými og hvern- ig ferðinni er hagað. Ef farþegar vilja ferðast með sovézka flugfélaginu geta peir farið hvern þriðjudag kl. 2 55 e. hád. með þotu af gerðinni Tlyu- sin-62, sem rússneska fyrirtækið Aeroflot starfrækir. Þessi flug- vél nemur staðar í Montreal til þess að taka þar eldsneyti, en heldur síðan áfram til Moskvu. Flugið með henni tekur 11,5 klst. Til New York snýr sovézka flug vélin hvern mánudagsmorgun og lendir í New York kl. 4.39 e. hád. Innilegt þakklæti færi ég börnum mínum, tengdabörn- um og barnabömum, svo og öðrum ættingjum og vinum, sem aýndu mér vinsemd á 75 ára afmæli mínu 26. júná sL Jústa Benediktsdóttir Melabraut 7, Hafnarfirði. N

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.