Morgunblaðið - 02.08.1968, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1968
31
Aukafundi SH frestað
— Rætt áfram við ríkissljórnina
— Önnur ráðstefna
Framliald af bls. 1
leiðtogar landsins hafi verið
þvingaðir til að láta undan
kröfiun Rússa á fundinum í
Cierna.
í kvöld söfnuðust um 6.000
manns saman á gamla borg-
artorginu í Prag og hrópuðu
„Lengi lifi Dubcek, lengi lifi
Tito, lengi lifi sjálfstæðið.“
Mannfjöldinn söng tékkósló-
vakíska þjóðsönginn.
Ekki minnzt á Rúmena og Júgós
lava.
í tilkynnimguimi um viðræð-
urn.ar í Cierna var ekki minnzt
einu orði á Rúmena og Júgósl-
ava sem hafa stutt hina frjáls-
lyndu stefnu Alexanders Du
hceks. Tilkynningin um viðræð
urnar var svo óljós, að ekki er
víst hvort samkomulag hafi
náðst um mokkuð annað en fund
inn í Bratislava.
Að því er sagði í tilkynning-
uruni var skipzt vinsamlega á
skoðunum um sameiginleg áhuga
mál og upplýsingum um ástand-
ið í báðum löndunum. Sagt var,
Bð viðræðurnar hefðu farið fram
í anda fullkominnar hreinskilni
einlægni og gagrikvæms skiln-
ings og hafi þær miðað að því
að leita að leiðum til þess að
efla og styrkja enn frekar hefð-
hundi-n og vinsamleg tengsl flokk
anna og þjóðanna.
En ekkert var á það minnzt
í tilkynningunni hvort nokkrar
ákvarðanir hefðu verið teknar í
því augnamiði að bæta sam-
skipti landamna. sem hafa stöð-
ugt farið versnandi vegna ár-
óðursherferðar blaða í Sovétríkj
unum, Póllandi og Austur-Þýzka
landi og heræfinga í þessum
löndum, sem hafa leitt til bolla-
legginga um hvort Rússar muni
grípa til hernaðaríhlutunar.
Skýringa krafizt í Prag.
í sjónvarpsræðu sinni sem Svo
fooda forseti hélt eftir viðræður
nar í Cíema ítrekaði hann
tryggð Tékkóslóvaka við komm-
únistahreyfinguna og sagði: —
Við vitum hvar við eigum heima.
Einir fáum við engu áorkað. Þeir
sem vilja spilla vináttu og banda
lagi Tékkóslóva við Sovétríkin
vinna ekki að varðveizlu full-
veldis og sjálfstæðis landskis.
Um leið ítrekaði forsetinn að
ekki yrði vikið frá yfirlýstri
stefnu í innanríkis- og utanríkis
málum, sem Rússar hefðu sýnt
skilning, og sagði að í Ciema
hefði verið rætt um nauðsyn
nýrra ráðstafana til að styrkja
einingu sósíalistalandanna, Com
econ (efnahagsbandalags Aust-
ur-Evrópuríkj anna) og Varsjár-
foamdalagsinjs. Auka yrði vamar
mátt landanna til að hindra hugs
anlegri árás. Svoboda sagði, að
í Bratislava yrði rætt um mál
sem vörðuðu sameiginlega hags-
muni og málstað sósíalismans.
Um 100 ungmenni gengu í
kvöld fylktu liði frá Wenceslas-
torgi í Prag til útvarpsstöðvar-
innar og báru spjöld með áletr-
unum eins og „Við biðjum mið-
stj órnina um skýringu" og „Rúm
enar og JúgósLavar til Bratis-
lava.“ Fjöldi áhorfenda gekk í
lið með mótmælendum, sem skor
uðu á fólk að taka þátt í fundi
þeim sem síðam var haldimn
seimna um kvöldið á gamla borg
artorginu í Prag til að mótmæla
miðurstöðum viðræðnanna í Ci-
erna.
,J>etta er uppgjöf."
Kommúnistískur blaðamaður í
Prag sagði í kvöld: „Þetta er
uppgjöf. Hér var um að ræða
foeina pólitíska íhlutun í innam-
landsmál okkar. Við höfðum í
maun og veru engra kosta völ.
Ég held að þetta marki enda-
lok umfoótastefnu Dubcebs og
það mun valda sárum vonbrigð-
ium.“
En í Prag líta margir bjart-
ari augum á ástandið, og sumir
fréttaritarar telja orðalag loka-
yfirlýsingarinnar gefa til kynna
að enn hafi ekki verið tekin
endan.leg ákvörðun um hinn
mýja kommúnisma Tékkóslóvaka
í Vín er það hald margra sér-
fróðra mann-a að samkomulagið
um BratiSlava-fumdinn þurfi alls
ekki að fela í sér að tékkóslóv-
akísku leiðtogamir hafi látið í
minni pokann heldur sé hann
haldinn til að gera öðrum rétt-
línuflokkum kleift að leggja
blessun sína yfir samkomulag
milli Rússa og Tékkóslóvaka.
Þessir sérfræðingar segja, að
gera verði kommúnistaflokkum
er fylgja Rússum að málum kleift
að láta í ljós áli't sitt á viðræð-
umum við Tékkóslóvaka, því að
öðrum kosti sé ekki hægt að
líta svo á að þeir séu sjálfstæð-
ir. Ekki megi búast við sjálf-
krafa stuðningi þeirra við það
sem Rússar samþykki. Telja megi
að Rússar og Tékkóslóvakar
hafi samþykkt að draga úr iil-
deilum sínum og sú ákvörðun að
halda fundinn í Bratislava geti
gefið til kynna að Tékkóslóvak-
ar hafi ekki beygt sig fyrir hót-
unum Rússa.
Dregið úr áróðursherferð.
í fyrsta skipti í rúma viku
gagnrýndu sovézk blöð ekki í
dag nýju stefmuna í Prag, en þó
kom fram óbein gagnrýni í mál-
gagni æskulýðssambands komm-
únistaflokksims. Ekki var ljóst
hvort þetta stafaði að því að
sovézkir leitogar hefðu mildað
afstöðu sína eða vegna þess að
beðið væri eftir lokayfirlýsingu
Cierna-fundarins.
Blöð í öðrum kommúnistaríkj-
um, sem fylgja sömu stefnu og
Rússar, virðast einnig hafa tek-
ið upp hófsamari afstöðu nema
blöð í Búlgaríu, sem héldu áfram
í dag harðvítugum árásum sín-
um á Tékkóslóvaka. Pólska frétta
stofam birti í dag tilkynningu
Tass um Cierna-viðræðurnar í
heild án umsagnar.
Fundir með Tito og Ceusescu?
í kvöld hermdu fréttir frá Bel
grad, að tilkynningin um nýja
ráðstefnu kommúnistaleiðgoga í
Bratislava hefði ekki komið á
óvart í Júgóslavíu. Bent er á
að eftir Varsj ár-fundinn var
Tékkóslóvökum veittur hálfs
mámaðar frestur til að ræða við
kommúnistaflokka fylgiríkja
Rúissa hvern í sínu lagi jafn-
framt því sem þess var krafizt
að Tékkóslóvakar sæktu ráð-
stefnu æðstu leiðtoga flokkanna.
Við því hefur verið búizt að
tékkóslóvakískir Ieiðtogar skýri
málstað sinn á sérstökum fundi
um með leiðtogum amnarra
kommúnistaflokka í Prag.
í Belgrad er talið, að fyrir
fundimn í Bratislava muni tékkó
slóvakískir leiðtogar ákveða fund
með leiðtogum kommúnista-
flokka Júgóslavíu og Rúmemíu,
sem styðja nýju stefnuna í Tékk
óslóvakíu. Það er talinn þó nokk
ur sigur fyrir Tékkóslóvaka að
leiðtogafundurinn verður hald-
inn í Bratislava.
FRAMK V ÆMD ANEFND
hægri umferðar hefur fengið til-
kynningar úr lögsagnarumdæm-
um Iandsins um umferðarslys,
sem lögreglumenn hafa gert
skýrslur um og þar urðu í ni-
undu viku hægri umferðar.
í þeirri viku urðu 64 slík um-
ferðarslys á vegum í þéttbýli, en
29 á vegum í dreifbýli eða alls
93 umferðarslys á landinu öllu.
Þar af urðu 38 í Reykjavík.
Samkvæmt reynslu frá 1966 og
1967 eru 90% líkur á því, að
slysatala í þéttbýli sé milli 58
og 92, en í dreifbýli milli 10 og
32, ef ástand umferðarmála helzt
óbreytt. Slík mörk eru kölluð
vikmörk, eða nánar tiltekið 90%
vikmörk, ef mörkin eru miðuð
við 90% líkur.
Slysatölur voru því milli vik-
marka, þ.e. á þann hátt sem bú-
ast mátti við bæði í þéttbýli og
dreifbýli.
Af þeim sem meiddust voru 9
- STEFNUSKRA
Framliald af bls. 2
legu svið Vietnam-deiluunar, en
auka herstyrk sinn. Ennfremur
kvaðst hann þeirrar skoðunar,
að Suður-Vietnamar ættu að
taka sjálfir meiri þátt í bardög-
unum og bæði þeir og Banda-
ríkjamenn yrðu að gera sér
betri grein fyrir því, að styrj-
öldin í Vietnam væri öðru vísi
en aðrar styrjaldir háðar hingað
til og krefðust annarra aðferða.
Meðal annars yrði að leggja
meiri áherzlu á minni og sveigj-
anlegri hersveitir, upplýsinga-
öflun, að efla herinn í S-Viet-
nam og varnir einstakra staða.
Nixon sagði, að það hlyti að
vera unnt að reka styrjöldina í
Vietnam með minni mannafla
og minni tilkostnaði. Fxiðar-
samninga telur hann óhugsandi
að gera án aðildar Sovétstjóm-
arinnar. Loks telur Nixon ein-
sýnt, að ný stjórn í Washington
yrði færari en sú, er nú situr,
um að taka á Vietnam-málinu
frá nýjum hliðum.
Meðal annarra, sem létu í ljós
álit sitt á Vietnam, voru Eisen-
hower, fyrrum forseti, sem var-
aði við því, að menn létu ginn-
ast af tillögum, sem fælu í sér
dulhúna uppgjöf, og Joihn Lind-
say, borgarstjóri í New York,
sem vill, að repúblikanar taki
forystuna í baráttunni fyrir því,
að binda enda á þetta óæski-
lega stríð.
Þá var rætt um stefnu flokks-
ins, að því er varðar fátæktina
í Bandaríkjunum, hvernig taka
skyldi á henni og aðstöðu
blökkumanna og ennfremur
hvernig taka skyldi á glæpum
og óeirðum. Ronald Reagan, rík-
isstjóri í Kaliforníu ,hlaut mik-
ið lof, er hann sagðist vilja taka
upp þá stefnu gagnvart stúdent-
um í háskólum, að væri þeir
með uppsteit og óeirðir, yrði við
þá sagt: „Annað hvort hlýðið
þið reglunum eða hypjið ykkur
burt héðan“. Einnig var honum
klappað lof í lófa, er hann for-
dæmdi þá afstöðu, að í Ihvert
sinn sem framinn væri glæpur í
Bandaríkjunum, væri þjóðfélag-
inu um kennt. Sennilegt þykir,
að flokkurinn taki iþá afstöðu í
stefnuskránni að harðar verði
tekið á glæpum og óeirðum en
hingað til.
Ýmsar ráðstafanir vill flokk-
urinn gera til stuðnings kaup-
sýslu- og einkaframtaki og jafn-
framt hafa komið fram tillögur
um að gera ýmislegt til að stuðla
að því, að komið verði upp fleiri
atvinnutækjum í hverfum
blökkumanna og stuðla að hygg
ingaframkvæmdum þar.
um urðu 20 á vegamótum í þétt-
býli. Vikmörk fyrir þess háttar
slys eru 13 og 32.
Á vegum í dreifbýli urðu 12
umferðarslys við það, að bifreið
ar ætluðu að mætast. Vikmörk
fyrir þá tegund slysa eru 2 og
21.
Alls urðu í vikunni 13 um-
ferðarslys, þar sem menn urðu
fyrir meiðslum. Vikmörk fyrir
tölu slíkra slysa eru 3 og 14.
Af þeim sem meiddust voru 9
ökumenn, 10 farþegar og 3 gang
andi menn, eða alls 22 menn.
Þessar þrjár tegundir umferð
arslysa, sem sérstök ástæða hef-
ur þótt til að fylgjast vel með,
eru allar milli vikmarka í ní-
undu viku hægri umferðar og
eru því á þann hátt sem búast
mátti við með 90% líkum, ef
ástand umferðarmála hefðihald
izt óbreytt.
(Frá framkvæmdanefnd hægri
umferðar)
SÖLUMEÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna efndi tii framhaldsauka-
fundar í Reykjavík hinn 31. júlí
s.l. vegna framleiðslu- og sölu-
erfiðleika hraðfrystiiðnaðarins.
Gunnar Guðjónsson, formaður
stjórnar S.H., skýrði frá viðræð-
um við ríkisstjómina, sem fram
hafa farið eftir aukafundinn 23.
júli s.l.
Vegna hinna miklu örðugleika
í framleiðslu- og sölumálum,
óskaði hraðfrystiiðnaðurinn eftir
við ríkisstjórnina að veitt yrði
verð- og sölutrygging á öllum
frystum bolfiskafurðum eftir 31.
júlí 1968, auk annarra ráðstaf-
ana, er tryggðu stöðu hraðfrysti-
húsanna.
Formaður sagði, að enn hefðu
RAUÐI kross íslands hefur nú
tilkynnt að söfnun hérlendis
fyrir bágstadda í Biafra ljúki
þriðjudaginn 6. ágúst. Biafra-
söfnuninni hafa borizt höfðing-
legar gjafir, eins og getið hef-
ur verið um i blöðum og út-
varpi og berast daglega góðar
gjafir í söfnunina, — m.a. bár-
iust skrifstofa RKÍ í dag kr.
(60.000 frá Akureyrardeild Rauða
krossins.
Þá hefur Ríkisstjórnin ákveð-
ið að standa straum af flutn-
inigskostnaði í samibamdi við
flutninig íslenzkra afurða til hjálp
arstarfs alþjóða Rauða krosisins
í Biafra, skv. áætkm Rajuða
Kross fslainds.
Eins og áður hefur veriið getið,
fór fyrsta sending afurða til Bi-
aifra með Skógafossi, þann 5. júlí
sl., áleiðis 'til Hamlborgar, þar sfim
umskipað var í fyrstu mögulegu
skipsferð til St. Isabel. Næsta
Reglusemi og
góð umgengni
UM næstu helgi þ.e. verzlunar-
mannahelgina efna fjölmörg sam
tök æskufólks til ferðalaga og
útiskemmtana víðs vegar um
landið.
Þessi helgi er vafalaust mesta
ferðahelgi landsmanna, og hefur
þá oft borið einna mest á hóp-
ferðum unglinga á ýmsa
ákveðna staðL
Útisamkomur þær er auglýst-
ar hafa verið á vegum æskulýðs
samtakanna, eru vel undirbúnar
og allt gert sem unnt er til þess
að fólk geti notið útivistar á
fögrum stöðum og skemmt sér á
heilbrigðan hátt.
Æskulýðsráð Reykjavíkur vill
því hér með skora á allt ferða-
fólk ungt sem gamalt að koma
til móts við áðurnefnd samtök
iheð því að virða óskir þeirra
um reglusemi og góða umgengni.
Búið ykkur vel undir ferðalög-
in og gætið varúðar í akstri og
gönguferðum.
Foreldrar og aðstandendur
ungiinga.
Unga fólkið er oft illa búið og
viðleguútbúnaður þess ófull-
nægjandi. Fylgist því vel með
ferðaáætlunum þeirra og undir-
búningi ferða.
Stuðlum öll að því að úti-
skemmtanirnar verði me'ð
skemmtilegum menningarblæ.
Verum samtaka um góða um-
gengni, reglusemi og slysalausa
verzlunarmannahelgi.
(Frá Æskulýðsráði
Reykjavíkur).
viðræður þessar ekki leitt til
neinnar niðurstöðu. Með tilliti til
þess samþykkti fundurirui svo-
hljóðandi ályktun:
„Framhaldsaukafundur S.H„
haldinn að Hótel Sögu þann 3L
júlí, samþykkir að kjósa S
manna nefnd til framhalcLsvið-
ræðna við ríkisstjórnima um kröf
ur þær, sem settar hafa verið
fram við hana varðandi verð- og
íölutryggingu og leiðréttingu á
núverandi starfsgrundvelli, sem
og endurskoðun á lánsf j ármálum
hraðfrystihúsanna".
Samþykkt var að fresta fund-
inum, þar til niðurstöður af vfð-
ræðum við ríkisstjórnina liggja
sending er nú á leiðimni með m.s.
Rangá til Harruborgar og fer scmd
imgin þaðan mieð fyrstu mögtu-
legu fexð tii Calabar. Síðasta
sendingin £er svo væntanlfiga
sömu 'lieið með ms. Skógafossi
imman skamms.
Rauði Kross íslands mun birta
fufljlnaðaruppgjör Biafrasöfniumar
innar mjög hráðlega.
(Frá Biafrasöfnun
Rauða Krossins).
Tryggvi Gísloson
lektor í Bergen
Tryggvi Gíslason, mag. art.
er á förum til Noregs, þar sem
hann verður lektor í íslenzku
við háskólann í Beergem næstu
3 ár. Tryggvi er landsmönnum
kunnur af störfum sínum við
ríkisútvarpið, hefur m.a. haft
með höndum þátt um íslenzk mál
að undanförnu og unnið i frétta
stofunni síðain 1962. Hættir hann
nú hvoru tveggja og einnig
kennslu í Menmtaskólanum
Tryggvi lauk magisterprófi í ís-
lenzkum fræðum við Hóskóla ís
lands í janúar í vetur.
Tryggvi fer til Bergen 20. ág-
úst. Þar hefur verið lektor í ís-
lenzku síðan 1954. Hafa ýmsir
fslendingar starfað þar, svo sem
Hreinn Benediktsson, prófessor
og nú síðast Magnús Stefáns-
son.
--------------------- r
— Skæruliðaforingi
Framhald af bls. 32
metra frá herstöðinni í Da
Nang og kallaði þá til and-
stæðinga sinna: „hjálpið mér,
hjálpið mér“. Fótgönguliðun-
um, sem frá þessu skýrðu,
voru síðan sýndar myndir af
bandarískum hermönnum,
sem skráðir eru sem ,,týndir“
og fjórir þeirra bentu á
mynd af fótgönguliða, sem
ekki hefur til spurzt frá 1965,
en hann var þá átján ára að
aldri. Málið var rannsakað
frekar og eru taldar líkur á
því, að fótgönguliðarnir hafi
rétt fyrir sér, skæruliðafor-
inginn hafi verið bandarísk-
ur.
VEÐRIÐ
Sunnan og suðvestanátt,
víða þokuloft og skúrir í dag.
augardag er spáð sunnaní
eða suðvestan átt, rigningu
öðru hvoru á Suður- og Vest-
urlandi ,en þurru og hlýju
veðri á Norðausturlandi.
Umferðarslysin
ekki óvenjuleg
í níundu viku H - umferðar
fyrir.
(Frá S. H.)
Ríkisstjórnin greiðir
flutningsgjöld
Biafrasöfnun lýkur á þriðjudag