Morgunblaðið - 08.08.1968, Side 2
2
MORjGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 196:8
Góðar sölur ísl. síld-
veiðiskipa í Þýzkalandi
— Jón Kjartansson mun hafa selt alls
tyrir rúmar 5 milljónir ísl. króna
fSLENZK síldveiðiskip hafa
svo sem kunnugt er stundað
síldveiðar í Norðursjó í sumar
og hafa þau selt síldina, sem þeir
ísa, í Þýzkalandi og hlotið gott
verð fyrir. Frá 14. júní til 22.
júlí hafði Jón Kjartansson frá
Eskifirði t.d. selt 328 lestir fyrir
um 3.5 milljón krónur, sam-
kvæmt upplýsingum Ingimars
Einarssonar, fulltrúa hjá LÍÚ.
Ingimar tjáði blaðinu enn-
fremur, að sama skip hefði selt
29. júlí 70.6 lestir fyrir 57.313
mörk og nokkru síðar aftur fyrir
40 til 50 þúsund mörk, en sú
sala er þó óstaðfest. Sé sú sala
hins vegar sannleikanum sam-
kvæm lætur nærri að Jón Kjart-
ansson hafi selt alls fyrir röskar
5 milljónir króna á tæpum
tveimur mánuðum.
Jón Garðar selti í Þýzkalandi
25. júlí 28.2 lestir fyrir 27.700
mörk og Guðrún Þorkelsdóttir
33.2 lestir degi síðar fyrir 35.125
mörk. >á seldi Hólmanes 30.5
lestir fyrir 31.480 mörk.
Hinn 31. júlí seldi síðan Jón
Garðar aftur 37.3 lestir af síld
ísaðri í kassa fyrir 38.630 mörk
og 12.1 lest af síld isaðri í stíur
Nýtt inmerki,
sérstakur
póststimpill
FÓST- og símamálastjórnin hef-
ur ákveðið að gefa út nýtt frí-
merki hinn 5. september næst-
komandi að verðgildi 10 krónur.
Á merkinu verður mynd af
styttu Sigurjóns Ólafssonar af
séra Friðriki Friðrikssyni, er
>
»
*
»
-------———____—,—
lik áÍAl +
stendur í Lækjargötu í Reykja-
A myndinni er séra Friðrik svo
sem kunnugt er með lítinn dreng.
Stærð merkisins er 25 sinnum
36 mm, prentað hjá Courvoisier
S/A í Sviss með sólprentunarað-
ferð. Efst á merkinu stendur
„Friðrik Friðriksson 1868 — 25.
maí — 1968.
Þá ber þess að geta að dagana
26.—28. ágúst 1968 verður opið
sérstakt pósthús í Reykjavík
vegna Norræna byggingadagsins.
Verður þar notaður sérstakur
póststimpill.
fyrir 5.419 mörk. Verðmunurinn
sýnir, hve mikla áherzlu síldar-
kaupmenn leggja á merðferð sild
arinnar. Þá seldi Börkur 35.5
lestir af ísaðri síld í stíu fyrir
20.800 mörk.
Af þeim fréttum, sem borizt
hafa, er ekki Ijóst, hvort síldin
er tolluð, en gera má ráð fyrir,
að kostnaður við löndun, um-
boðslaun, lestarþvott o.s.frv. auk
hafnargjalda sé um 15 til 17%.
5 skip hófu veiðarnar í Norður-
sjó í sumar, en síðan hafa nokk-
ur bætzt við. Síðustu daga hef-
ur verið góð veiði á miðunum
og er búizt við að framboð á
markaðinum aukizt.
Hussein Jórdaníukonungur, fyrir miðju á myndinni, kom á vettvang, skömmu eftir að Israelar
höfðu gert árásir á Salt-svæðið á sunnudaginn.
Sí/darvertíðin:
Heildaraflinn tæplega 30
þúsund lestir
Kristján Valgeir og Gígja aflahœst
FISKIFÉLAG fslands hefur sent
frá sér síldarskýrslu — yfirlit
yfir veiðamar norðanlands og
austan vikuna 28. júlí til 3. ágúst
1968. í vikunni bárust á land
ljS.682 lestir og hæsta skipið
Kristján Valgeir frá Vopnafirði
hafi þá fengið 1511 lestir og
Gígja frá Reykjavík fylgdi fast
á eftir. Alls höfðu 56 skip fengið
einhvern afla.
Hér fer á eftir skýrsla Fiski
félagsins:
Síðastliðna viku var veiði-
Rauðvarðliðar drepnir
ENN hefur dregið til blóðugra
átaka í Kanton í Kína, að því
er fréttaritari AP í Hong Kong
greinir frá. t fréttinni segir, að
herinn hafi drepið nokkur hundr
uð Rauðvarðliða þegar bardagar
og götuóeirðir blossuðu þar upp
fyrir fáeinum dögitm. Sagt er,
að allmargir háttsettir embættis
menn borgkrinnar hafi verið
dregnir um göturnar og fest á
þá spjöld með áletrunum um and
byltingarstarfsemi þeirra.
Ferðamenn frá Kan-ton segja,
ísroelar
harðorðir
New York, 7. ágúst — NTB —
Á FUNDI Öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna í kvöld varaði full-
trúi ísraels öryggisráðið við því,
að ísraelar kynnu að neyðast til
að grípa til róttækra ráðstafana
upp á eigin spýtur, ef samtökum
Sameinuðu þjóðanna tækist ekki
að stöðva „árásarstefnu Araba-
landanna gegn ísræl“, Ambassa
dor ísraels sagði, að frumskilyrði
fyrir því að friður kæmist á, væri
meðal annars að Arabar hættu
hryðjuverka- og skemmdarstarf-
semi sinni.
að herinn virðist nú hafa tögl og
hagldir í borginni og séu á verði
nætur sem daga, og fjölmargir
Rauðvarðliðar hafi verið hand-
teknir.
Kvikmynda-
sýning INIátt-
úrufræðifé-
lagsins í kvöld
í KVÖLD kl. 20.30 verða sýndar
í Tjarnarbæ tvær kvikmyndir
um jarðfræði Japans á vegum
Hins íslenzka náttúrufræðifélags.
Fyrri myndin fjallar um jarð-
sögu Japans og sýnir hún, hvern
ig jarðlög hafa orðið til á ýms-
um skefðum jarðsögunnar, og
þau siðan bylzt til og máðst.
Þá er og sýndur þáttur eld-
fjalla í sköpunarsögu Japans.
Siðari myndin fjallar um jarð-
fræði og náttúru Hokkaidós, en
hún er nyrzt Japanseyja og talin
um margt svipa til íslands, þótt
auðvitað sé nokkur munur á
landslagi og gróðri.
(Frá Hinu íslenzka
náttúrufræðifélagi).
Samhoma Borðstrendinga-
félagsins í Bjarkarlundi
BARRÐSTRENDINGAFÉLAG-
IÐ í Reykjavik efndi að venju
til samkomuhalds í Bjarkarlundi
um verzlunarmanniahelgina. Fjöl
mermir dansleikir voru baldnir
á laugardags- og sunnudagskvöld
og útisamkoma um miðjan dag á
sunnudaig.
Guðbjartur Egilsson, formað-
ur Barðstrendingafélagsins, setti
samkomuna og stjórnaði henni,
Sigurður Bjiarnason, ritstjóri frá
Vigur flutti ræðu og Guðmund-
ur Guðjónsson, óperusöngvari
söng við undirleik Skúla Hall-
dórssonar, tónskálds. Veður var
gott þar vestra um helgina og
mikil umfenrð um staðinn.
svæðið frá 75° til 75° 30'n.br. og
á milli 10° og 13° a.l. Veður var
yfirleitt gott, en afli tregur. í
vikunni bárust á land 12.682 lest,-
ir. Söltun nam 5.396 tunnum og
til bræðslu fóru 11.728 lestir.
Auk þess lönduðu nokkur skip
Norðursjávarafla í Þýzkalandi,
samtals 166 lestum.
Heildaraflinn er nú 30.987 lest-
ir og hagnýting hans á þessa
leið:
Framhald á bls. 23
Brigitte
skilivi
Saint Tropez, 7. ág. NTB.
FRANSKA kvikmyndaleikkonan
Brigitte Bardot staðfesti í dag
þrólátan orðróm um sambúðar-
slit hennar og eiginmannsins
Gunter Sachs. Leikkonan var
stödd ásamt nýjasta vini sínum
í danshúsi í Saint Tropez, og er
hún sagði blaðamönnium frá
ákvörðuninni. Sachs mun hafa
leitað eftir skilnaði vegna ann-
arlegrar afstöðu Bardot til hjóna
bandsins.
Forsetohjónin
til Osló
f MBL. í gær var þess getið að
forseti íslands og kona hans yrðu
við brúðkaup Haralds ríkisarfa
Norðmanna. í gæir barst Mbl.
svohhljóðandi fréttatilkynning
fná skrifstofu forseta fslands:
„Forseti íslands og kona hans
hafa þekkzt boð um að vera
viðstödd brúðkaup Haralds, ríkis
arfa Noregs, og Sonju Haraldsen,
er fram á að fara í Osló hinn 29.
þ. m. f för með forsetahjónunum
verða Birgir Thorlacius, ráðu-
neytisstjóri og kona hans.“
Brunaútkall
að Verzlunar-
bankanum
SLÖKKVILIÐIÐ var í gærkvöld
kvatt áð húsi því, sem Verzlun-
arbankinn er í við Bankastræti.
Er á staðinn kom, reistu slökkvi
liðsmenn stiga að húsinu og réð-
ust þegar til uppgöngu á þakið.
Kom fljótlega í ljós, að um bruna
var ekki að ræða.
Blaðamaður Morgunblaðsins
hitti húsvörðinn stuttlega að
máli í gærkvöld og sagði hann,
að hann kveikti venjulega í bréfa
rusli úr bankanum áð lokinni
sýningu í Gamla Bíói á kvöldin
og myndi það sennilega vera það,
sem hefði valdið brunaútkallinu.
Oslo Cup ’68
Leikir ísl. flokkanna
Osló, 7. ágúst.
Einkaskeyti til Mbl.
HINUM ungu íslenzku íþrótta-
mönnum, sem þátt taka í Oslo
Cup 1968 voru mjög sigurstrang
legir á fyrsta degi handbolta-
keppninnar, einkum þó piltarnir,
en Fram-stúlkurnair urðu að láta
sér nægja jafntefli.
Úrslit:
C-flokkur Fram vann með
4:3 danska liðið Testrup, en Dan
irnir höfðu forustuna í hálfleik,
2:3. Þá vann Málmeyjarklúbbur-
inn IFK-Maló FH c-flokk með
7:3 og hafði náð öruggri forustu
í hálfleik, 4:1. C-flokkur KR
vann yfirburðarsigur yfir Östre-
Borgerdyd með 11:0 og þá vann
b-flokkur FH þýzka liðið Witt-
ingen með 8:4 og var staðan 5:1
í hálfleik.
Fram-stúlkuranr í e-flokki
gerðu jafntefli við Stonby, 4:4
og Fram-stúlkurnar í f-flokki
gerðu jafntefli við Bækklegests
Sportsklubb. — Á.
Fjölmenn útför
Jóns Leifs
ÚTFÖR Jóns Leifs, tónskálds,
var gerð frá Dómkirkjunni í gær
að viðstöddu miklu fjölmienni.
Hófst athöfnin kl. 2, með því
að Ragnar Björnsson lék orgel-
forleik eftir Jón Leifs. Þá söng
Kristinn Hallsson óperusöngvari
„Vertu Guð faðir, faðir minn“,
við Iag eftir Jón Leifs.
Séra Jón Auðuns dómprófastuT
flutti ræðu, þar sem hann minnt
ist sérstaklega hins þróttmikla
listastarfs hins látna tónskálds.
Að henni lokinni léku Björn
Ólafsson og félagar „Mors et
vita“ eftiir Jón Leifs. Að lokum
lék blásarakvintett úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands, „Allt eins og
blómstrið eina“, í útsetningu
Jóns Leifs.
Úr kirkju bár.u menntamála-
ráðherra ,og fulltrúar frá sám-
tökum listaananna, en síðasta
spölinn að gröfinni báru félagar
úr Tónskáldafélagi fslands og
nánustu frændur og vinir.