Morgunblaðið - 08.08.1968, Blaðsíða 12
12
MORGUNiBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 19«8
Útgefandi
Framkvæmdas t j óri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltriu
Fréttastjórx
Auglýsingast j óri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
Askriftargjald kr 120.00
1 lausasölu.
Hf Arvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthias Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Bjöm Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
á mánuði innanlands.
Kr. 7.00 eintakið.
SNÚUM ERFIÐLEIKUN-
UM OKKUR í HAG
lllikið er nú rætt manna á
meðal um áframhaldandi
örðugleika þjóðarinnar í efna
hags- og atvinnumálum og
skiljanlega gætir nokkurs
kvíða meðal fólks um það,
sem framtíðin ber í skauti sér
í þessum efnum. Það hefur
verið meginverkefni ríkis-
stjórnar og Alþingis sl. tvö
ár að bregðast við aðsteðjandi
vandamálum og fyrirsjáan-
legt er að svo verður einnig
í náinni framtíð.
Aðalatvinnuvegur þjóðar-
innar hefur orðið fyrir hverju
áfallinu á fætur öðru að und-
anförnu og virðist ekkert lát
ætla að verða á þeirri öfug-
þróun. Hraðfrystiiðnaðurinn
stendur frammi fyrir nýju
verðfalli á Bandaríkjamark-
aði og að auki vaxandi sölu-
tregðu a.m.k. á þeim verðum,
sem haldið hefur verið fram
að þessu, samfara mjög harðn
andi samkeppni frá öðrum
þjóðum. Illa horfir enn á síld
veiðum og fyrirsjáanlegt að
hagur síldarskipanna og síld-
arverksmiðjanna verður
mjög erfiður á þessu ári.
Helzti skreiðarmarkaður
landsmanna í Biafra er enn
lokaður og allt í óvissu um
framvindu mála þar í landi.
Það er því lítið um góðar
fréttir í sölu- og markaðsmál-
um sjávarútvegsins.
Þetta eru staðreyndir, sem
horfast verður í augu við,
þótt þær séu ekkert gleðiefni.
Á síðustu tveimur árum hafa
landsmenn smátt og smátt
verið að herða mittisólina
vegna aðsteðjandi erfiðleika
og þótt menn hafi fyrst í stað
gert sér vonir um að þessir
erfiðleikar væru aðeins tíma-
bundnir, þýðír ekki lengur
að halda í það hálmstrá. Fyr-
irsjáanlegt er, að undirstöðu-
atvinnuvegir þjóðarinnar
þurfa á aukinni aðstoð að
halda og er þá nauðsynlegt
að ríkissjóður geri ráðstafan-
ir til þess að spara á öllum
sviðum, svo sem verða má, en
að öðru leyti að þess verði
gætt að auknar byrðar skipt-
ist sem jafnast á þjóðfélags-
þegnana og verði léttbærast-
ar þeim sem minnst mega sín.
Reynsla síðustu tveggja
ára og aðstæður nú sýna
glögglega, að sVeiAlur í af-
komu sjávarútvegsins hljóta
að hafa rík áhrif á lífskjör
fólksins í landinu. Með stór-
virkjun við Búrfell og bygg-
ingu álbræðslu var stigið
fyrsta skrefið til þess að hag-
nýta aðra mestu auðlind
þjóðarinnar, fossaaflið og
gera landsmenn þannig óháð-
ari neikvæðri þróun í sjávar-
útveginum. Við hljótum að
draga þann lærdóm af að-
stæðum nú, að því starfi,
sem hafið var með stórvtrkj-
un og álbræðslu beri að
halda áfram og gera ráðstaf-
anir til þess, að þetta verði í
síðasta sinn, sem miklar
sveiflur í afkomu sjávarút-
vegsins hafi alvarleg áhrif á
lífskjör þjóðarinnar. Jafn-
hliða ber að sjálfsögðu að
efla útgerð og fiskiðnað eft-
ir fremsta megni-
Þess eru fjölmörg dæmi úr
okkar eigin sögu og annarra,
að erfiðleikum er hægt að
snúa þjóðinni til hags, ef rétt
er á haldið. Löndunarbannið
í Bretlandi á sínum tíma
varð t.d. til þess að flýta upp-
byggingu hraðfrystiiðnaðar-
ins, landsmönnum til mikilla
hagsbóta þegar fram í sótti
og með sama hætti hljótum
við nú að leggja áherzlu á að
nýta þær auðlindir landsins
aðrar, sem við höfum of lengi
látið ónotaðar að mestu.
ÆSKULÝÐSSTARF
fTm þessar mundir er að
hefjast samkeppni um
æskulýðsheimili við Tjarnar-
götu á vegum borgarstjórnar
Reykjavíkur. Þessi sam-
keppni er merki þess, að borg
aryfirvöld hyggjast nú leggja
mjög aukna áherzlu á að
skapa æsku borgarinnar
bætta aðstöðu til heilbrigðs
tómstunda- og skemmtana-
starfs.
Slíkt starf hlýtur jafnan
að byggjast fyrst og fremst
á unga fólkinu sjálfu og fé-
lagssamtökum þess. Fjölmörg
æskulýðssamtök eru starfandi
í borginni og halda uppi þrótt
miklu starfi og má þar nefna
t.d. skátahreyfinguna, bind-
indisfélög og kristileg félög
ungs fólks og raunar fjöl-
mörg önnur. Forustan í starfi
meðal ungs fólks hlýtur að
liggja hjá félagssamtökum
þess, en eðlilegt er að borg-
arfélagið leggi sitt af mörk-
um til þess að skapa unga
fólkinu starfsaðstöðu í sam-
ræmi við þær kröfur, sem
gerðar eru til slíks nú á tím-
um. Að því marki m.a. á starf
semi Æskulýðsráðs Reykja-
víkur að beinast. Fyrr á ár-
um, þegar fjölmennið var ekki
jafn mikið og nú í Reykjavík
var þetta viðfangsefni ekki
jafn stórtækt og það er orðið
nú með vaxandi fjölda í borg
inni. En nú er fjöldi unglinga
Sumarhús úr plastí.
Notkun plasts í by ggingar-
iðnaiinum fer vaxandi
stofubyggingu við verksmiðju
byggingu hjá Brezka Raf-
magnsfyrirtækinu í Liver-
pool. Brúin var teiknuð og
smíðuð í plastverksmiðju
sama fyrirtækis og segja for-
ráðamenn þess að nýjung
þessi hafi g^fið mjög góða
raun og stórlækkað bygging-
ar og viðhaldskostna'ð.
Síðara atriðið er sumarhús
úr plasti, sem teiknað er af
tveimur finnskum arkítekt-
um og þykir mjög hagkvæmt
með tilliti til hraðra bygging-
arhátta og góðrar nýtingar
landrýmis. Húsið er allt nýst-
árlegt í útliti, en slíkt segja
arkítektarnir nauðsynlegt
vegna gerðar og eiginleika
trefjaglersins sem notað er.
Húsið er sett saman úr sjálf-
stæðum hlutum og kallast
byggingarmátinn „samloku-
bygging". Fullgert verður þáð
tæp tvö tonn. Um fjórtán 1
daga tekur að framleiða efnið I
í húsið og að fullgera það. i
Húsið er 8 metrar í þvermál /
og samanlagt rými um 90 m2. J
Verðið er áætlað um 490 þús. »
ísl. kr. og eru þá húsgögn
innifalin. Sýningarhús verð-
ur á finnskri vörusýningu í
Lundúnum í október n.k.
.... ................ 'l
' .
Á UNDANFÖRNUM árum
hefur notkun plasts í bygging
ariðnaðinum vaxið hröðum
skrefum og er nú notað við
æ stærri framkvæmdir. I
brezka stórblaðinu „The Fin-
aneial Times“ fyrir skömmu
er skýrt frá tveimur nýjung-
um í þessu sambandi. Hið
fyrra er að sögn bláðsins lík-
lega fyrsta göngubrú fyrir
vegfarend.ur úr plasti í heim-
inum. Brúin er um 10 metrar
að lengd og stendur á steypt-
um stólpum. Allt annað er
gert úr plasti og stryktu trefja
gleri. Brúin tengir nýja skrif-
orðinn svo mikill og aldar-
andinn sá, að borgarfélagið
hlýtur að leggja jafn mikla
áherzlu á heilbrigt æskulýðs-
starf eins og hvern annan
málaflokk sem beinist að upp
eldi æskunnar.
En jafnframt því, sem for-
ustan hlýtur að vera í hönd-
um unga fólksins sjálfs með
öflugum tilstyrk borgarinnar
er nauðsynlegt að nýta sem
bezt starfskrafta þeirra
mörgu, karla og kvenna, sem
hafa mikinn áhuga á æsku-
lýðsstarfi og vinna nú þegar
mikið og gott starf í kyrrþei í
æskulýðsfélögum, íþróttafé-
lögum, sóknarfélögum og öðr-
um félagssamtökum, sem láta
þessi mál sig nokkru skipta.