Morgunblaðið - 08.08.1968, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.08.1968, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. AGUST 1968 £ Rannsóknin sýndi, að börn spilltust ekki af Keflavíkur- sjónvarpinu Guðmundur Matthíasson, pol. stud., skrifar: „Kristófer Þorleifsson, stud. med., dreg- ur algerlega rangar ályktanir af þvl, sem ég skrifaði hér uín daginn um rannsókn >á, er gerð var á ungmennum á sjónvarps- svæðinu og utan þess. Rannsókn þessi fókkst ekki við neina athugun á skoðunum almennings á Keflavíkursjónvarpinu eða á skoðunum „sextíumenninganna". Þegar ég sagði, að skoðun„sextíumenninganna“ væri afsönnuð, þá var ekki á neinn hátt átt við fjölda þeirra, er væru með eða móti Kefla- víkursjónvarpi. Ég sagði í „tölfræðilegri og félagslegri rannsókn". Hér er átt við félags lega rannsókn, sem byggð er upp eftir stat- istiskum reglum. Þessi rannsókn beindist eingöngu að því, hversu mikil áhrif Kefla- vikursjónvarps hefur verið á börn á sjón- varpssvæðinu. Sýndi rannsókn þessi, að á hrif sjónvarpsins eru hverfandi, og í þeim fáu tilfellum, sem einhvem mismun mátti greina, var hann ívið hagstæðari börnum á Sj ónvarpssvæð inu. Það er að vísu rétt hjá Kristófer, að slík rannsókn verður aldrei gerð svo fullkomin, að f öllu megi treysta. Ég tel þó ekki, að það myndi breyta neinu um heildamiður- stöður, þótt víðtækari rannsókn yrði fram- kvæmd. Skoðanir mínar um að meirihluti fólks á sjónvarpssvæðinu, hafi verið andvígur lokun Keflavíkursjónvarpsins, byggi ég á athugun eins dagblaðs hér í borg, og er það eina rannsókn mér vitanleg, sem gerð betfur verið í þessu sambandi. Og við slíka rannsókn eru uppeldisfræðingar, læknar, sálfræðingar og íslenzkufræðingar með öilu óþarfir. Vil ég mælast til þess að lokum, að áður en Kristófer Þorleifsson næst ræðst fram og vill mótmæla því, sem aðrir hafa að segja, að hann reyni að einhverju leyti að kynna sér, hvað um er verið að ræða. Með þökk fyrir birtinguna. Guðmundur Matthíasson, pol. stud.“. 0 Gæzla strætisvagna Guðrún Jónsdóttir skrifar: „Kæri Veivakandi! Getur þú frætt mig um það, hvort strætis vagnastjórar eigi að gæta vagna sinna, meðan þeir bíða á Lækjartorgi, Kalkofns- vegi o.s.frv., eð ekki? Mér þykir skrítið, að þeir Skuii hlaupa út úr vögnunum, um leið og þeir nema staðar, hleypa þeim inn, sem fyrir bíða, og hverfa síðan iran í aðset- urstaði sóraa. Vagninn blðiu- svo gæzlulaus, en læstur, svo að enginn kemst inn, hvemig sem viðrar. Fólkið kemst ekki inn í vagn- ana, fyrr en stjórunum þóknast að koma aftur (á sömu mínúndu og vagninn á að leggja af stað). Og enginn kemst heldur út þótt fólk gæti' bráðlegið á af mörgum ástæð um. Fólkið er harðlæst inni í vagninum. Eru mennimir ekki á kaupi þennan tíma? Með ósk um skýr svör, Guðrún Jónsdóttir". P.S. Og hvað, ef kviknar í vagninum, og allir eru innilokaðir? G. J. Velvakandl skilur vel, að okkar ágætu strætisvagnastjórar vilji fá smáhvíld í kunningjahópi milli ferða, ef tfmi vinnst til, sem áreiðanlega er ekki alltaf. Kaffi- sopi hressir þá líka og gerir þá HVÍLD- ARI OG ÖRUGGARI í AKSTRI EN ELLA Hitt er svo annað mál, að með öllu er óþarfi að læsa vögnunum, þótt skroppið sé inn í skýli. Engum dettur í hug að ganga inn í vagn, án þess að láta gjald (faraaiða eða krónkalla) detta ofan í tunnuraa viS dyrnar, enda horfa áður komnir farþegar á hvern nýliða. Velvakanda finnst því sjálfsagt, að „stjórarnir", eiras og frú Guðrún raefnir þá, skjótist inn í skýli, en honum finnst llka eins sjálfsagt, að vagninn sé haíður opinn á meðan, bæði vegna þeirra, sem inni sitja, og hinna, sem úti bíða. £ „Álftin og unginn“ Steinþór P. Árdal dkrifar: „Góði Velvakandi! Ég sá fyrir nokkm, að það urðu smá vegis skrif í Velvakanda um kvæðið ,Álftin og unginn". Bið ég þig visamleg- ast að koma eftirfaradi á framfæri við H-elga Bjarnason Sogavegi 152, Rvík, og fleiri, en það var haran, sem langaði að vita með vissu, eftir hvern kvæðið væri. Það er rétt, sem konan skrifaði honum, að nefnt kvæði er eftir Pál Jónsson Árdal, kennara á Akureyri, og kom xit 1905 — Ljóðmæli eftir Pál Jónsson, en þá var faðir minn ekki búinn að taka ættarnafnið Árdal, — líka rétt að hann kvað það 1901. Þetta kvæði, sem mörg önnur, hefur komið í öllum útgéfum kvæðabóka föður míns, og nú síðast í LjóðmæU og leikrit eftir Pál J. ÁrdaL Annars er systurdóttir mín, dótturdóttir Páls í Sogavegi 224, — sömu götu og Helgi býr í, — en hún er Álfheiður Guðm- undsdóttir, kona séra Emils Björnssonar. Ef Helgi vill, gæti hann haft tal af Álfheiði og fengið þetta rétt staðfest. Reykjavík, 16. JÚLÍ 1968 Steinþór P. Árdal“. 0 íslenzkukunnátta Kona, sem raefnir sig Útvarpshlustanda, skrifar: „Góðan dag herra Velvakandi! _ Var einhver að segja, að Ragnlheiður Ásta læsi of hratt i útvarpinu? Ef svo er, er það af þvl að haran öfundar. Hún les alveg prýðilega. Einhver tónlistargagnrýn andi í Tímanum var einhvem tíma að setja út á söng Sigrúnar Harðardóttur. Hann hefur rangt fyrir sér. Hún syngur vel Mér hefði fundizt, að Sigfús Halldórsson hetfði sjálfur átt að syngja lögin sín í út- varpið um daginn. Hann er okkar vísna- söngvari númer eitt og það þótt víðar væri leitað. Með Tryggva Gíslasyni held ég ein- dregið og finnst íslenzku kunnáttunni hafa hrakað mjög á síðustu árum og margt ungt fólk, sem hefur mjög nauman orðaforða, getur aðeiras gert sig skiljanlegt með al- gengustu orðum sbr. maður sem er búinn að læra ensku í nokkra mánuði getur jú gert sig skiljanlegan á ensku en kann ekki málið. VirðingarfyUst Útvarpshlustandi". Velvakandi hefur því einu við að bæta, að þetta „jú“ HJÁ BRÉFRITARA („GET- UR JÚ GERT“) er afar óíslenzkulegt, svo að ekki sé meira sagt. — Annars þakkar hann bréfið. 0 Víst bændi klerkur sig Baldur Pálmason hjá útvaipinu skrifar: „Velvakandi". Morgunblaðinu. Einhver miðlungi „bænheitur morgunhani" SPYRST FYRIR UM ÞAÐ í Velvakanda- pistli á dögunum, hvort prestum, sem flytja morgunbænir í útvarpið, beri ekki skylda til að flytja bæn, samkv. dagskrárheiti þáttarins. Ég þafeka Velvakanda fyrir að bjóða okkur útvarpsmönnum saaratimis rúm fyrir svar. Það þarf ekki að vera langt. Útvarpið hefur ekki geíið beina forskrift að etfnisinnihaldi þáttarins, en hetfur talið nægja, að lesin væri ritningargrein og flutt ’áein bsenarorð. En hverjum og eiraum hefur verið þetta í sjálfsvaid sett, enda hatfa prest arnir haft þáttinra með ýmsu móti, og hefur auðvitað verið að því tilibreytni. Aftur á móti hefur útvarpið sett tímaskorður, u.þ. b. 5 mín. hverju sinni að meðtöldum organ leik á undan og etftir, þvi að álitið er, að fólk almennt s-é fremur timanaumt að morgni dags og fái ekki komið því við að hlusta á langar hugleiðingarorð yfir dag- inn. Ég held að bænarorð hafi ætíð verið fólgin í þessum þáttum, og ekki hefur presturinn, sem sinnt hefur morgunþjónustunni síðustu vikurnar, sleppt þeim. Hann hefur ætíð lagt áherzlu á markverðar hugleiðingar sínar með bæn. Virðingarfyllst, Baldur Pálmason“. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu ~7====*BlUUL£fGJkM S'imi 22-0-22 Raubarárstig 31 SVIAGIMÚSAR SKIf?HOLT» 21 SÍM AR 21190 eftir lokun simi 40381 ” LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 11—13. Hagstætt leigugjald. Sími 14970 Eftir lokun 14970 eða 81748. Sigurður Jónsson. BÍLALEIGAN AKBRAUT SENDUM SÍMI 82347 P.^ SÍH'1-44-44 WMtrn Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. Fjaðrir, fjaðrablöff, hljóðkútar púströr o. fl. varahlutir í margnr gerðir bifreiða Bilavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegj 168 . Sími 24180 LOFTUR H.F. LJÓSMYNDASTOFA Ingólfsstræti 6. Pantið tíma í síma 14772. BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundlaugavegi 12. Sími 35135. Eftir Iokun 34936 og 36217. ARMULI 3 SIMi 38500 Ungur maður óskast strax til starfa á söluskrifstofu vora í Bankastræti 7. Umsækjandi þarf að hafa verzlunarskólamenntun eða aðra hliðstæða menntun. Nánari uppl. gefur Skrifstofuumsjón og liggja um- sóknareyðublöð þar frammi. Upplýsingar em ekki gefnar í síma. SAMVIN NUTRYGGINGAR BÍLAR Cortina 67. Volkswagen 67, 1500, vél ekin 16 þús. Volkswagen 65, út’borgun 60 þús., eftirstöðvar samkomu- lag. Saab 67, 4ra cyl. Volkswagen 66, kr. 110 þús. Saab 63. BMC Gloria 67. Willys 66, Egilshús. Toyota 66. bllaaeilq GUÐMUNDAR Bergþórugötu 3. Simax 1S032, 20070. Erum að taka heim eikarsvetnherbergissett, teaksvefnherbergissett, hvít svetnherbergissett. Selst stakt eða í settum. %s Vitjið pantana sem fyrst. t-?ol 1 í rv ___ nol » » Simi-22900 Laugaveg 26

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.