Morgunblaðið - 29.08.1968, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.08.1968, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1968 £ Spurningar út í hött? ..Hneykslaður útvarpshlustandi “ skrifar Fréttamenn útvarpsins eru á stundum seinheppnir. Eftir fréttalestur á hádegi innrásarinnar í Tékkóslóvakíu heimsótti einn fréttamanna skrifstofur stjórnmálaflokkanna, og hitti þar að máli fulltrúa frá ungmennasamtök- um flokkanna og spurði um afstöðu sam- takanna til innrásarinnar í Tékkóslóvakíu. Spurningar fréttamannsins fjölluðu aUar nema tvær um það mál, sem honum var ætl að að spyrja um og sem flestum útvarps- hlustanda lék forvitni á að fá svar við. En eins og skrattinn úr sauðaleggnum hóf fréttamaðurinn síðan spurningar ,al- gjörlega óviðkomandi verkefni sfnu og sem sýndu ljóslega að hann hafði í rauninni ekki minnsta skUning á starfi frétta- manns. Manninum hafði þarna verið faUð að bera fram spumingar og fjalla urn ein- hvert sögulegasta og ef til viU afdrifa- ríkasta mál nútímasögu Evrópu, og viti menn! Spyr þá ekki íréttamaður íslenzka rfkisútvarpsins um 7 ára gamlan harmleik f Vietnam og tveggja ára gamalt einræði grísku herforingjanna. Hvaða hvatir liggja hér að baki? Úr þvf að farið var út f þessa sálma, hví var þá ekki spurt um: borgarastyrjöld í Nígerfu eða heimstyrj- öldina 1939-45. Hið siðamefnda var þó í meiri tengslum það efni sem fréttamann- inum var falið að fjalla um. Tékkóslóv- akía var þó upphaf þess hildarleiks. Hvf einræðið í Grikklandi — af hverju ekki á Haiti, Ekuador, Indónesfu eða f tugum ann arra landa. Hví var ekki spurt um það eiaræði, sem innrásinni I Tékkóslóvakíu olli? Hví einræðið, sem frelsishreyfingin i Tékkóslóvakfu hafði stofnað f voða. Rennur fréttamönnunum kannski blóðið til skyldunnar eftir hól Þjóðviljans um „sjálfstæða afstöðu" þeirra í fréttaflutn- ingi. Ef svo er, verða spurningar þessar auðvitað skiljanlegri. En ef hér er um að ræða vanþroska og flónsku þá hlýtur það mál að heyra undir yfirboðara fréttamanns ins. Hver getur imyndað sér að slíkar spumingar heyrðust nema f fslenzka ríkis- útvarpinu? Hneykslaður útvarpshlustandi. 0 Hafnarfjarðarvegurinn „Hafnfirðingur skrifar: Háttvirfair Velvakandi: Ég er einn af þeim þúsundum manna sem daglega þurfa að aka milli Hafnar- fjarðar og Reykjavíkur. Þær miklu fram- kvæmdir sem nú eiga sér stað í Kópavogi gleðja vissulega augu okkar, og sem sanni má segja að tími sé til þess kominn að einhverajr umferðarbætur séu gerðar á þess ari leið. Sú saga sem ökumenn á umræddri leið hafa að segja er þessi: Frá Mikaltorgi að Fossvogslæk, gengur umferðin greiðlega fyrir sig og vegurinn er einnig góður, enda sér Reykjavíkurborg um viðhald hans. Frá Fossvogslæfc að Kópa vogslæk sér Kópavogskaupstaður um við- hald vegarins og umferðarstjóm. f fyrra gerðust undur mikil er lagt var slitlag teppalagt frá Fossvogslæk að Kársnes- braut og í sumar var svo malbikað frá Kársnesbraut upp á Kópavogsháls. Með sama áframhaldi ætti að vera búið að teppa leggja veginn gegnum Kópavog eftir 2-3 ár. í Kópavogi annast margir lögreglu- menn umferðarstjórn. Hver skóli þeirra er veit ég ekki, en kynlega kemur það manni fyrir sjónir þegar þeir stanza bíla til að hleypa einum manni yfir veginn, jafnvel þótt svo vilji til að enginn annar bfll sé nálægur. Stundum hefur mér dottið f hug að þessir ágætu lögreglumenn gætu mikið lært í umferðarstjórn af kollegum f Reykja vik. Síðan skal vikið að þeim kafla Hafnar- fjarðarleiðarinnar sem Vegagerð Rikisins sér um. Hann er frá Kópavogslæk að Engi- dal. Fyrir tveimur árum var vegur þessi allur teppalagður og þótti þá okkur heldur betur munur á. En dýrðin stóð ekki lengur. Fyrir einhver mistök vegalagningarmanna að mér skilst, er nú þetta malbik að mestu gufað upp í hjólförunum en á miðju vegar ins og í köntunum eru háir hryggir. Þurfa menn að viðhafa mikla aðgæzlu til þess að hafa stjórn á ökutækjum sínum á þessum kafla. Ég las það í MbL, að mig minnir, að það mundi kosta um 2 millj. kr., að leggja nýtt slitlag á þennan vegarspotta. Slikt er mikið fé á þrengingartimum, en þó lítið meira en kostar að byggja veg- lega brú handa einum afdalabæ sem er um það bil að fara í eyði. En hvað um það við verðum sennilega að sætta okkur við „skóbætumar" — en hvernig verður þessi vegur þegar hálka og ísing er komin? Þá er eftir kaflinn frá Engidal og inn 1 Hafnarfjörð. Einn ágætur maður komst þannig að orði að það væri sem ekið væri inn i miðaldimar þegar komið væri á þerm an veg. Og víst er um að vegurinn er af- leitur, enda hef ég aldrei orðið var við neina viðgerðartilburði í þau ár sem ég hefi búið í Hafnarfiðri. Á slíku er heldur varla von, þar sem Hafnarfjarðarbær mun leggja meiri áherzlu á að gera varanlegar og góðar götur innanbæjar. Hafnfirðingur 0 „Eftirmæli“ Friður sé með þér, Velvakandi. Þegar timi gefst til frá daglegri önn, fletti ég oft dagblöðum, skyggnist eftir, hvað sé fréttnæmast, hvar kommamir hafi nú orðið sér mest til skammar síðasta sólarhringinn, hverjir standi fremst í sviðs ljósinu og hverjir hafi verið af heimi kall- aðir síðastL daga. í því sambandi renni ég oftlega augunum yfir æviminningar manna og læt þá ekki sitja á hakanum þær dapurlegu tilraunir til ljóðagerðar, sem við nefnum tíðast „eftirmæli". Hinn 30. dag júlímánaðar skeði þó það undur, að á leir- brotasíðu .Morgunblaðsins" birtist gullkorn, völundarsmíð snillings, svo að jafn fögur kveðjuorð munu ekki hafa sézt 1 því blaði frá upphafi þess: Heyri ég himinblæ heiti þitt amda ástarrómi, fjalltouna þylur hið fagra nafn glöð í grænum rinda, og þannig áfram fjögur erindi, hvert öðru ljúfara .Og undirskrift þessa dýrlega ljóðs er N.M. Merkilegt, að menn skuli ekki reka minni til að hafa heyrt svo mikið sem eitt einasta ljóð áður eftir slíkan höf- uðsnilling. En ég þarf vlst ekki að segja þessa sögu lengur. Hafi menn á annað borð nokk urntíma blaðað I ljóðum Jónasar Hallgrims sonar getur það varla hafa dulizt þeim við lestur þessara erinda, að þau eru tekin úr hinu gullfagra ljóði Jónasar, „Söknuður" Man ég þig, mey, er hin mæra sól hátt 1 heiði blikar o.s. frv. Nú skyldu menn ætla, að ég hneykslist mest á því dæmalausa smekkleysi N.M að stela hluta úr ljóði Jónasar og birta sem sitt eigið verk. Nei, það er ekki fyrst og fremst það, sem gengur fram af mér: það sýnir þó að N.M. hefur þrátt fyrir allt lesið ljóð Jónasar og kann að meta fegurð þeirra, þar sem hann (eða hún) finnur ekki neitt fegurra til að gera að hinztu kveðjuorðum sínum til látins vinar, heldur á ég efcki til orð yfir þá yfirþyrmandi staðreynd, að blaðamenn „Morgunblaðsins" skuli sleppa öðru eins og þessu framhjá sér. Og nú er mér spurn, þekktu þeir ljóð Jónasar og létu þó þessa smekkleysu við- gangast, eða á ég að trúa því, að þeir hafi ekki þekkt handbragð „listaskáldsins góða"? Fyrir alla muni, spurðu hann Matt hías, hvort honum finnist að annað eins og þetta megi eiga sér stað I blaðinu, sem hann stjórnar. Torfi Ólafsson Velvakandi hefur .^spurt hann Matthías" hvað hann segi um þetta. Hanin segir að ljóðið sé eitt af þvi fyrsta sem hann lærði og svo fagur og mikill skáldskapur að það ætti ekki að vera eftir neinn sérstakan frekar en Völuspá. Og hann er glaður yfir að N.M. skuli hafa kvatt vin sinn með þessu ljóði, þó uppsetningin hafi verið mis- tök. Óskandi að öll minningarljóð væru svo góð, sagði „hann Matthias" að lokum. BILALEIGAM - VAKUR - SundUugavegl 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. Sími 22-0-22 Rauðarárstíg 31 SÍM'1-44-44 mnimiR Hverfisgötu 193. Simi eftir lokun 31166. BÍLALEIGAN AKBRAIJT SENDUM SÍMI 82347 IMAGNUSAR 4KIPHOU121 «ma»21190 -Hif loVun ';33ol LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 11—13. Hagstætt leigugjald. Simi 14970 Eftir lokun 14976 e«a 31748. Sigurður Jónsson. Balastore gluggatjöldin j Balastore gluggatjöldin eru í senn þægileg og smekkleg. Uppsetning er afar auðveld, og létt verk að holda þeim hreinum. Fóanleg í breiddum fró 40-260 sm (hleypur ó 10 sm). Margra óra ending. Vindutjöld Fromleiðum vindutjöld í öllum stærðum eftir móli. Lítið inn, þegar'þér eigið leið um Laugaveginn! Húsgagnaverzlun KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF. Laugavegi 13, sími 13879 LOFTUR H.F. UróSMYNDASTOFA Ingóifsstraeti 6. Pantið tíma í sima 14772. Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar púströr o. fl. varahlBtb í margar gerðir bifreifta Riiavörubúðin FJÖÐRIN Kennara vantar að hamaskólanurn í Neskaupstað. Húsnæði fyrir hendi. Skólastjóri verður til viðtals í síma 10508 milli kl. 5—7 í dag. Fræðsluráð Neskaupstaðar Laugavegj 168 - Simi 24186 Barnastólor kr. 560, körfur fyrir óhreman þvott frá kr. 635. Vöggur og brúðuköörfur fyrirliggjandi. KÖRFUGERÐIN Ingólfsstræti 16. 1 Atvinnca Ungur maður með verzlunarskólapróf eða hliðstæða menntun getur fengið atvinnu strax við bókhald o fl. hjá stóru útflutnings- fyrirtæki. Umsóknir sendist afgreiðslu Morg- unblaðsins fyrir n.k. mánudagskvöld merkt: 6048“ Handklæðasldr Handklæðahringir Snagar Sápuskólar Pappírshöld Tannburstahöld /&\ J. Þorláksson 6 Norðmann M. íbúðaskipti Góð 6 herbergja íbúð eða einbýlishús óskast keypt. Skipti á stórri 3ja herbergja íbúð á bezta stað í Vesturbænum innan Hring- brautar koma til greina. Tilboð merkt: „íbúðaskipti — 6949“ leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.