Morgunblaðið - 29.08.1968, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1968
Formaður F.B. flúinn
úr Breiðholtsvirkinu
Svar við rangfœrslum og ósannindum
r ,,kveðjuorðum44 Jóns Þorsteinssonar
alþingismanns
Þegar Jón Þorsteinsson alþingis
maður , formaður Framkvæmda-
nefndar byggingaráætlunar, svar
aði fyrstu grein Einhamars um
störf hennar, lét hann svo um
mælt af einstakri hógværð, að
hann og hans lið hefði sterka
vígstöð og góðan málstað, svo
að ekki mundi reynast erfitt að
hrinda því, sem hann kallaði
„meistaraáhlaupið á Brefðholts-
vígstöðvunum.“ Við lestur kveðju
örða“ hans í MbL 10. þessa mán-
aðar verður hins vegar ljóst,
að kappinn er flúinn úr hinu
sterka virki sínu. En ,,kveðju-
orðin" eru svo full af rangfærsl-
um, blekkingum og ósannindum,
að ekki verður hjá því komizt
að veita honum enn eina ráðn-
ingu, þótt erfitt kunni að reynast
að hlaupa hann uppi á flóttan-
um.
í fyrstu málsgrein segir J. Þ.
m.a. ,,Sfðan (framkvæmdir hóf-
ust 1 Breiðholti) hafa þessir
naenn aldrei getað litið starfsemi
framkvæmdanefndarinnar réttu
auga . . .“
Hér er um ósvikin ósannindi
að ræða, því að byggingarmeist-
arar hafa einmitt gætt þess að
láta FB hafa fullkominn starfs-
frið.o g það var fyrst þegax
reynslan fór að sýna, að þarna
var illa farið með almannafé, að
byggingarmeistarar gátu ekki
orða bundizt lengu • og tóku að
benda FB og almenningi á sitt-
hvað, sem betur hefði mátt fara.
Mætti miklu fremur álasa bygg-
ingarmeisturum fyrir að hafa
ekki tekið til máls fyrr, því að
þá hefði FB kannske getað forð-
azt sumar af vitleysum sínum
og leiðrétt aðrar á miðri leið.
Verður að því vikið hér á eftir.
Þá segir J. Þ., að vegna þess
að FB hafi verið fyrsti aðili er
hóf framkvæmd: - í Breiðholti,
hafi hún fengið „í ríkum mæli
að kenna á framangreindum örð-
ugleikum (vatnsleysi, rafmagns-
leysi o. s. frv.), en úr ýmsu var
búið að bæta, þegar byggingar-
meistarar hófu sínar framkvæmd
ir á svæðinu.“
Þetta er alger rangfænsla, því
að J. Þ. veit mætaveL að þegar
byggingarmeistarar fengu sitt
svæði afhent, var þar engu betri
aðkoma, en þegar FB fékk sitt
svæði.
J. Þ. kemur aftur að fréttatil-
kynningu FB í maí í vor, „þar
sem verði'ð á Breiðholtsíbúðun-
um var borið saman við verð
samkvæmt byggingarvísitölu. J.
Þ. segist ráðleggja greinarhöfund
um að lesa allan þennan kafla.
tilkynningarinnar. Það gerðu
höfundar í byrjun og sýndu síð-
ar fram á, að FB lét að því
liggja, að útreikningar Hagstof-
unnar væru næsta hæppnir. Vildi
FB vitanlega fegra hlut sinn
með þessu, en ef J. Þ. telur um
fölsun hjá Einhamri að ræða,
ætti hann að birta þennan um-
rædda kafla tilkynningarinnar.
Enn segir J. Þ., að í maí 1967
„gat FB ekki áætlað vexti á
byggingartímanum vegna þess,
að vaxtafóturinn hafði þá ekki
verið ákveðinn af þeim, sem á-
kvörðunarvald höfðu um það
mál.“
Þetta er svo hlægilegur kattar
þvottur, að annað eins mun
aldreih afa sézt á prenti hér á
landi. Hvað hindraði FB í að
reikna með almennum vöxtiun?
Það hefði þá bara lækkað íbúða-
verðið, ef raunverulegir vextix
hefðu reynzt lægri. En þetta sýn
ir — með mörgu öðru — hvað
þeir ipenn, sem þama eru að
verki, eni gersneyddir þekkingu
á frumstæðustu atriðum fram-
kvæmda og atvinnulífs.
Þá kemur J.Þ. að framkvæmda
hraðanum, sem hann telur hafa
verið með eindæmum hjá FB.
Hann telur litíu skipta, að FB
fékk ló'ðir sínar 15 mánuðum
á undan meisturum, og segir svo:
„Þó ber að hafa 1 huga, að nýjar
byggingaraðferðix krefjist lengri
undirbúningstíma en hinar
gömlu."
í sambandi við þetta verður
að benda á, að þann 23. júli
íbúð til sölu
4ra herb. 100 ferm. íbúð til sölu.
Upplýsingar í síma 34636.
Skiifstofustúlka óskost
Heildverzlun vill ráða skrifstofustúlku frá 1. okt. n.k.
Þarf að vera vön vélritun og og öðrum skrifstofustörf-
um. Eiginhandarumsókn er tilgreini menntun og fjrrri
störf sendist afgreiðslu blaðsins, merkt: „Miðbær —
6945“.
Hestamonnafélagið Andvari
í Garða- og Bessastaðahreppi.
Hin árlega hópreið félagsmanna verður farin laugar-
daginn 31. ágúst kl. 1.
Félagsmenn eru beðnir að mæta tímalega.
birti Vísir viðtal við tvo tækni-
menn FB, Björn Ólafsson verk-
fræðing og Ólaf Sigurðsson arki
tekt, og er það einkar fróðlegt.
Rúmsins vegna er ekki unnt að
taka neitt upp úr viðtali þessu,
en meginefni þess er það, að FB
sé hætt við flestar þeirra nýj-
unga sem hún tók upp og J. Þ.
hefir einmitt talið henni helzt
til lofs. En af leiðtogar FB hefðu
verið kunnugir þessum málum
eða leitað sér upplýsinga, hefðu
þeir orðið þess áskynja, án þess
að sóa milljónum í tilraunir sín-
ar, að margar af þessum „nýj-
ungum“ hafa verið reyndar hér
en hætt við þær, af því að þær
hentuðu ekki. Þar er almannafé
kastað á glæ gersamlega að á-
stæðulausu. Er vissulega gleði-
legt, að FB virðist ætla að sjá
að sér, en hvað skyldu mistök
hennar við næsta áfanga kosta
margar milljónir?
En nóg um það, því að nærtæk
ara er að spyrja um önnur atriði
á þessu stigi málsins, og vonandi
staldrar J. Þ. við á flóttanum til
að upplýsa eftirfarandi:
Hve miklu fé hafði FB eytt
í undirbúning, áður en fram-
kvæmdir hófust? Og í hvaða
undirbúningsatriði var þeim
milljónum, sem þar er um að
ræða, eytt svo og á hve löngum
tíma?
J. Þ. kunni því illa, er Ein-
hamar gerði samanburð á verði
íbúða FB og íbúða hjá meistur-
um og benti á, að hinar síðar-
nefndu yrðu talsvert ódýrari,
þegar reiknað væri með því verði
á innréttingum og ýmsum bún-
aði, sem FB hefir fengfð þessa
hluti fyrir. J. Þ. mótmælir þessu
í þrem liðum, sem hér skulu
teknir fyrir:
„1. Verðið er miðað við verð-
tilboð gerð veturinn 1966—67
með áskilnaði um hækkanir, ef
breyting yrði á gengi krónunnar
eða kaupgjald hækkaði. Þessum
hækkunum sleppir Einhamar.
2. Einhamar reiknar ekki með
kostnaði við útboð og samninga-
gerð né heldur kostnaði við eftir
lit með framleiðslunni, eftirliti
á byggingarstað og yfirverkstjóm
og samræming á störfum undir-
verktaka.
3. Nokkrum kostnaðarliðum
virðist alveg vera sleppt.“
Skulu þessi atriði þá tekin til
athugunar hvert af öðru:
1. J. Þ. til lítillar þægðar skal
hér birt verðlag á tveim helztu
magnvörum, sem notaðar eru við
byggingar — steypustyrktarjárni
og mótatimbri — á síðustu árum.
Einingarveið á 10 mm jámi, sem
algengast er að nota, hefir verið
þetta:
I júní 1965 kr. 8.35.
I júní 1966 kr. 8.10.
í júní 1967 kr. 7.80.
Fet af mótatimbri, kvinta, var
á sama tíma sem hér segir (1x6”
borð):
23. júní 1965 kr. 4.90.
14. júni 1966 kr. 4.75.
8. júní 1967 kr. 4.50.
Hefir því verið um nokkra
lækkun að ræða á þessum vörum
á þessu tímabili, og FB vitanlega
notið góðs af því, þar eð hún
hófst ekki handa fyrr en vorið
1967. Að vísu varð dálítil hækk-
xm á vinnulaunum, en engan veg
inn stórkostleg, því að á tíma-
bilinu, sem J. Þ. vitnar í, var
verðlag bimdið í landinu. Hafi
formaður FB ekki vitáð síðasta
atriðið, gæti hann t.d. beðið Jón
Þorsteinsson alþingismann um
upplýsingar þar að lútandi.
2. Þótt byggingarmeistarar
sundurliði ekki nefnd atriði í
byggingarkostnaði, verða þeir
vitanlega að greiða þessa liði,
svo að FB er ekki ein um það.
Hér er því einungis um ómerki-
legan útúrsnúning að ræ’ða, og
væri formanni FB sæmra að
leggjast ekki svo lágt að reyna
að blekkja almenning á þennan
hátt.
3. Vill J. Þ. ekki nefna þá liði,
sem hann gefur í skyn að sleppt
hafi verið? Og viU hann ekki
jafnframt geta þess, hversu háir
þeir eru? Er skorað á hann að
staldra við á flótta sínum og gera
grein fyrir þessu eða heita minni
maður ella.
Enn segir J. Þ., að það sé vill
andi að gefa í skyn, að einstak-
lingur, sem kaupi meistaraíbúð
tilbúna irndir tréverk og máln-
ingu, geti fengið innréttingar á
f j öldaframleiðsluverði.“
Hér er enn ein blekkingin hjá
J. Þ. Enginn hefir haldið þessu
fram, en hitt er fullyrt óhibað,
á grundvelli fróðlegrar reynslu
af starfsemi FB, að ef meistarar
fengju sömu aðstöðu og fyrir-
greiðslu og FB, gætu þeir út-
vegað þessa hlutl með sömu kjör
um.
Þá segir J. Þ., að ekki sé
hægt að bera saman verð á íbúð
um FB og meistaraíbú’ðunum við
Hraunbæ 18—20 og Eyjabakka
2—6, því að stærð hinna síðar-
nefndu vanti. Skulu stærðir
þeirra því birtar hér, svo að J.
Þ. geti áttað sig á þessu atriði,
en ekki er víst, að hann taki
gleði sína eða hætti- flóttanum
eftir þann samanburð, sem hann
getur nú gert.
íbúðir að Hraunbæ 18—20:
4 herb. 108,4 ferm.
3 herb. 96,0 ferm.
3 herb. 92,3 ferm.
Ibúðir að Eyjabakka 2—6:
4 herb. 98,0 ferm.
3 herb. 88,0 ferm.
2 herb. 68,0 ferm.
öllum íbúðunum fylgir
geymsla og önnur sameign í kjall
ara.
Þar fær J. Þ. þær upplýsingar,
sem hann kvartar um, áð hann
vantaði til samanburðar. Þessar
tölur sýna, svo að ekki verður
hrakið, að meistarar standa eng-
an veginn höllum fæti í saman-
burði við FB, og hefir þó ekki
náðarsól yfirvaldanna skinið á
þá, eins og almenningur veit.
í sambandi við þetta atriði er
lika rétt að spyrja J. Þ. um hina
dularfuilu stækkun, sem varð á
íbúðum FB frá því í maí 1967,
er skýrt var frá fyrirætlunum
FB, og til jafnlengdar á þessu
ári, þegar boðuð var afhending
íbúðanna. I fyrra voru minnstu
íbúðirnar sagðar 56—66 fermetr
ar, en í ár voru þær allt í einu
orðnar 68—78 fermetrar. Og aðr
ir íbúðarflokkar stækkuðu sem
hér segir: Þriggja herbergja íbúð
ir, sem fyrst voru sagðar 70—78
fermetrar, urðu skyndilega 83—
9’2 fermetrar, og 4ra herbergja
íbúðir stækkuðu úr 83—90 fer-
metrum í 97—104 fermetra.
Hvers konar útreikningar höfðu
verið viðhafðir? Eða „týndist“
eitthvert herbergið — eins og
vextirnir áður? VUl J. Þ. ekki
svara þessu?
Nú kemur að þeirri fullyrð-
ingu J. Þ., sem hann telur líklega
bezta vopn sitt á undanhaldinu.
Hann segir um meistaraíbúðirn-
ar hér að framan:
,,Þá heldur Einhamar leyndri
þeirri mikilvægu staðreynd, að
íbúðirnar í Hraunbæ 18—20 voru
fokheldar, þegar byrjað var að
grafa fyrir fyrstu blokkunum í
Breiðholtinu, og eru því byggð-
ar á öðru og hagfelldara verð-
lagstímabili en Breiðholtsíbúð-
irnar. Einhamar lætur sér nægja
að segja án allra skýringa, að FB
selji 4ra herbergja íbúð á kr.
1.132.000.00. Af þessu vertii eru
þó kr. 35.000 vextir á byggingar
tímanum, sem ekki eru reiknað-
ar með, þegar íbúðirnar við
Hraunbæ og Eyjabakka eru verð
lagðar. A hinu leytinu getur Ein
hamar þess ekki, að meirihlut-
inn af 4ra herbergja íbúðunum
hjá FB er ekki seldur á kr.
1.132.000.00 heldur er verðfð án
vaxta“ (!)
Þessi málsgrein sýnir betur en
flest annað, að J. Þ. er orðinn
gersamlega ruglaður — röksemda
virki hans hefir ekki reynzt fok
helt, hvað þá meira, þegar til
kastanna hefir komið. Hið „hag
felldara verðlagstímabil”, sem J.
Þ. þykist hafa uppgötvað, kem-
ur ljóslega fram í þeim verðlags
upplýsingum, sem birtar eru hér
að framan. Enn ein sönnun þess,
að J. Þ. veit harla lítið um þau
mál sem hann fjallar um.
Ekki er betri sú vitleysan, sem
fram kemur í þeirri fullyrfiingu,
að vextir hafi ekki verið reikn-
aðir af íbúðtmum við Hraunbæ
og Eyjabakka. Vitanilega verða
allir að reikna með vöxtum, þótt
reikningsheilar FB týni þeim
stundum niður!
Loks er svo síðasta tilvitnaða
setningin. Einhamar neyðist til
að biðja um nánari skýringu á
henni, því að menn með venju-
lega greind geta ekki áttað sig
á því, sem formaíður FB á þar
við.
J. Þ. viðurkennir, að sólbekki
hafi FB ekki í sínum ibúðum,
en hann heldur því hins vegar
fram, að „þegar samanburður er
gerður .... þarf líka að reikna
sitthvað, sem FB leggur af mörk
um, en aðrir láta hjá líða. Ég
nefni sem dæmi málningu utan-
húss, grasþökur á lóð og sam-
eiginlegar þvottavélar. Eru þá
sólbekkimir fullbongaðir."
Hér segir J. Þ. ósatt — kannske
af vanþekkingu, því að skrif
hans einkennast mjög af henni.
Framliald i bls. 17
Hvað hefur komið yfir
dr. Þóri Kr. Þórðarson?
HVAÐ hefur komið yfir Frétta-
stofuna? spyr Þórir Kr. Þórðar-
son I þriggja dálka feitletraðri
fyrirsögn í Morigunblaðimu í
morgun. Þórir Kr. Þórðarson er
doktor og prófessor, borgarfull-
trúi og gegnir auk þess mörgum
öðrum ábyrgðarstörfum, meðal
annars er haim einn af uppal-
endum prestsefna þjóðarinnar,
slíkur maður hlýtur að vilja hafa
það sem sannara reynist.
Það er erfiþt að finna svar við
því í grein hans hvað hafi, að
hans dómi, kornið yfir Frétta-
stofuna. Ber að Skilja orð ba/ns
svo að Fréttastofan hafi sagt of
mikið frá hernámi Tékkósló-
vakíu og viðburðum þar, sem
hafa verið helzta umræðuefni
manna um allan heim?
í fræðum Þóris Kr. Þórðarson-
ar segir frá því að miklir spá-
menn hlutu gjarnan 'hugljómun
með því að fara einir út í eyði-
mörkina og komu svo forkláraðir
þaðan með mikil sannindi að
boða lýðnum.
Dr. Þórir segist hafa verið í
heyskap.
Þegar hann hafi komið heim
miðvikudaginn 21. þessa mánað-
ar segir hann: „að nú bregður
svo við .... að Fréttastofa Ríkis
útvarpsins við Skúlagötu er allt
í einu farin að birta fréttir af
'heimsviðburðum....“.
Það er að sjálfsögðu ekki satt
að Fréttastofan sé „allþ í einu
farin að birta fréttir af heimsvið-
burðum".
Fréttastofan hefur ávallt leit-
ázf við að flytja þjóðinnd sem
sannastar og áreiðanlegastar
fréttir af heimsviðburðum. Svo
mun verða meðan ég 'gegni starfi
fréttastjóra. Það er keppikefli
allra gem þar vinna að hafa það
sem sannara reynist í hverju
máli enda á þjóðin heimtingu á
því.
Reykjavfk, 28. ágúst,
Margrét Indriðadóttir.