Morgunblaðið - 06.09.1968, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMiBER 196«
13
leik í svart-hvítum höggmynd-
um. Eftirtekt vöktu einnig sál-
rænar teikningair eftir Porzano.
Eftir öðru man ég lítið £rá hendi
ítala, enda deild þeirra mjög í
rústum. í listrænu hámarki er
Marisol, sem er ein með allan
skála Venezúela og einnig á
svæði utan hans. Myndir hennar
líkjast stóru og furðudegu brúðu
leikhúsi fyrir fullorðna. I>ær eru
allt í senn, höggmyndir í tré af
fyrirmyndum í fullri stærð, út-
skurður, málverk, rauniverulegir
hlutir t.d. föt, reiðhjól, hattar,
wiskíglös, blóm o.fl. Oft heill-
andi samruni sem kveikir gott
skap áhorfenda vegna þess hve
faiglega er spilað á mannlega
strengi. Marisol kemur hér betur
búin til dyra en á „Dokumenta",
þar sem hún átti 2 myndir á heið
urssal, en í þeim þótti mér kenna
ósannfærandi öfga. ísrael hefur
einnig tekið þann kost að hafa
aðeins einn ful'ltrúa í sínum
skála, en það er málarinn Ardon.
Gæði mynda hans réttlæta það
val fullkomlega þótt hann sé mis
'tækur. Litir hans geta virzt
íburðarmiklir, en hann hefur
miklar og sannar tilfinningar
fyrir málverkinu og tæknilega
hlið hans er nær óaðfinnanleg.
Bandaríkin hafa í ár tekið þann
kost að vera ekki jafn róttæk
og þau voru á tveim síðustu sýn-
ingum, en þau vöktu þá mesta
athygli og Umtal allra deilda fyr
ir byltingarkenndar hugmyndir
í list. 1964 Rauschenberg og aðrir
POP-listamenn. 1966 Kelly og
Lichtenstein. Þetta er mjög
hyggilegt hjá þeim því þeir
sanna þarmeð að þeir geta verið
sterkir án ,,sensasjóna“. Að
nokkrum undantekningum er
sýning þeirra helguð „fígúra-
tívri“-erfðavenju í amerískri
list. í anddyri skála þeirra eru
höggmyndir eftir Frank Gallo,
Nútímaform í hægindastólagerð.
glæsileg verk djúpra kennda fyr
ir hinu dularfulla og fíngerða í
mannverunni. Ricard Dieben-
korn byrjaði sem abstrakt mál-
ari, en hefur smám saman þró-
azt í átt að „fígúratívri" list.
Hann er fágætur kóloristi. Byr-
on Burford á mynd í slunginni
útfærslu, sem hann nefnir „Há-
degisverðux". Ég þekki ekki fer-
il þessa málara, en þessi mynd
hans er mér mjög minnisstæð.
Ennfremur má nefna þá Leon-
ard Baskin og Fairfeld Porter,
sem eftirtektarverða listamenn.
Lítt skiljanlegt er hvernig stór-
veldi eins og Rússland getur
sýnt annað eins samansafn og í
skála þeirra gat að líta, þess
hlutur er jafnan hinn sami órask
anleiki, en handverkið stendur
fyrir sínu. Það sem Rússar sýndu
í Rostock í fyrrasumar gat þó
talizt nútímalegt miðað við bylt
inga-rrealisma þeirra á þessari
sýningu. List á að geta þróazt í
sósialisku ríki en svona list er
**fEYK*JÁVÍIt
gmát gi-gn tékkaþessum <Vvo<'í
“ j: rr~: L ■ -i
áLLj' "■
Nútíma leik- og almennur skóli. Mannheim. Að utan er bygg-
ingin mjög látlaus en að innan er hún mjög fjölbreytt. Áherzla
er lögð á stöðuga breytingu í formum til að auka ósjálfrátt
formskyn nemenda. Miðdepill skólans er nokkurs konar mark-
aðstorg, þar sem nemendur hittast og forráðamenn skólans geta
hagnýtt í hverskonar tilefni. Hver skólastofa er teiknuð sam-
kvæmt þörfum þeirrar námsgreinar er þar á að kenna. Kennslu
stofuskólarnir einuhæfu eru orðnir að ömmusögum í evrópskri
byggingariist — vel að merkja.
einkenni einræðisríkis. Aftur á
móti komu aðrar Austantjalds-
þjóðir á óvart. Sósíalrealisminn,
sem var á sýniragu þeirra 1954
og 1966 er að mestu horfin og í
staðinn komnar margvíslegar til
raunir, sem stundum samnfæra
þægilega, t.d. hjá Júgóslavanum
Miroslav Sutej. Tékkar eiga hinn
ágæta myndhöggvara Prechlin,
sem er ungur að árum og á vafa-
lítið eftir að frægja raafn sitt ef
list haras fær frjálsa farvegi.
Framhald á bls. 20
17/ leigu
Einbýlishús
Rúmgott einbýlishús, á Flötunum (Garða-
hreppi), ásamt bílskúr og ræktaðri lóð, er
til leigu frá 1. október n.k.
Lysthafendur leggi inn tilboð, er greini frá
fjölskyldustærð fyrir mánudagskvöld, merkt:
„Fallegur staður — 2359“.
íbúð í Vesturbœnum
Til sölu er nýleg íbúðarhæð á góðum stað við Meistara-
velli. íbúðin er 1 stór stofa, 3 svefnherbergi, eldhús,
bað o. fl. Vönduð íbúð. Suðursvalir. Teikning til sýnis
á skrifstofunni.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími: 14314.
Kvöldsími: 34231.
Ferðatékkar Útvegsbankans
/eysa vandann
í ferða/ögum innan/ands.
Þérþurfið ekki að bera á yður mikía peninga.
Þér getið breytt ferðatékkunum í peninga,
hvenær sem er.
ÚTVEGSBA NKI ÍSLANDS