Morgunblaðið - 06.09.1968, Qupperneq 18
u
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMÐER 1968
Konráð Sigfússon
Fæddur 6/9 1950.
Dáinn 12/6 1968.
Kveðja frá foreldrum.
Elskiulegi son/uir
nú Lauga tárim brá
því þú eirt etoki lengur
otokur heknia hjá.
Þegair að vi/ð lítuim
lífs, yfir faónn veg
finnium þair allit fegwrst
það, sem að prýddi þig.
Heita hjartað hireiina
hrausta og styrka mund
igöf ug mennsfcu og góðvíld
og glaða æskukmd.
Systursonur minn
Ingólfur Patrick Sullivan
lézt af slysförum í New York
29. ágúst sL
Svava Aradóttir.
Hjartkæri sonur okkar og
bróðir miim
Heimir Freymóðsson
andáðist 31. ágúst síðastlið-
inn. Jarðarförin hefur farið
fram.
Jóhanna Freysteinsdóttir
Freymóður Jóhannsson
Berglind Freymóðsdóttir.
Útför
Margrétar Júlíönu
Sigmundsdóttur,
frá Skógum,
verður gerð frá Staðarfells-
kirkju laugardaginn 7. þessa
mánaðar kl. 14. Farið verður
frá Umferðarmiðstöðinni
sama dag kl. 7 f.h.
Börn hinnar látnu.
Jarðarför mannsins míns,
Guðjóns Einarssonar
Berjanesi, Landeyjum,
fer fram frá Akureyjarkirkju
laugaxdaginn 7. sept. kl. 2 e.h.
Guðríður Jónsdóttir.
Við þökikiuim leilki ljúfa
lífs þíns bros og tár
og altar gfleði gjafia-
í gegnium seytjén áir.
Guð eiinn ölliu ræðtur
hains gæska alidrei dvín
hans lí’knairhandin ljúfa
þér launi störfin þín..
Hann geymi þiig uim edlífð
og igæti þín hjá sér
í ofckair hiug og hjanfca
þín heilög minning er.
Sigurunn Konráðsdóttir.
Jón Þorsteinsson, alþingismaður:
Einhamarsliiii
lætur undan síga
ENN á ný hefur mér borizt
kveðja frá vinum mínum og vel-
unnurum í Einhamri, sbr. grein
í Morgunhlaðinu 29. ágúst s. 1.
Nú fullyrða þeir að ég sé hlaup
inn úr Breiðholtsvirkinu og kom-
inn á flótta. Sýnist svo sem þeir
skilji ekki Iþað undirstöðuatriði
í allri herstjórnarlist að nauð-
synlegt er að yfirgefa virkið til
þess að fylgja eftir undanhaldi
umsátursliðsins. Einhamarsmenn
ættu nú að hætta þessu her-
falaupi og reyna að taka gleði
sína á ný með þvi að rifja upp
sína gömlu, góðu meistaradaga,
sem ef til vill koma aldrei aftur.
Þá þurftu menn ekki að hafa
áhyggjur af því, að misfarið
væri með almannafé vegna þeas
að byggingarkostnaður væri
óþarflega mikill e ða söluverð
nýrra íbúða of hátt og þá var
heldur ekki verið að sóa pen-
ingum í gagnslausar tilraunir á
sviði byggingarmála. Gott er að
rifja upp gamlar og góðar end-
urminningar en Eirihamarsmenn
geta vitanlega ekki unað við
það eitt, íþegar til lengdar lætur.
Næst ættu þeir að gera þjóð-
Þökkum hjartanlega auð-
sýnda samúð við fráfall
Vilhjálms Jónssonar
frá Ýmastöðum.
Sérstakar þakkir viljum við
færa lækni og hjúkrunarliði
fjórðungssjúkrahússins á Nes-
kaupsstað, og séra Kolbeini
Þorleifssyni.
Guð blessi ykkur öll.
Þóra Guðnadóttir
Hallur Guðmundsson
og synir.
Alúðar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát
og jarðarför
SIGFÚSAR HALLDÓRS FRÁ HÖFNUM,
Þorbjörg Halldórs frá Höfnum,
Þuríður Halldórs frá Höfnum, Jóhannes Brandsson,
Sigfús, Guðrún, Stefán, Helgi,
Ilalldór Halldórs frá Höfnum, Sigríður Jóhannesdóttir,
Jóhann, Sigfús, Helgi.
Öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hluttekningu
við andlát og jarðarför
JÓHANNS ÁSGRÍMSSONAR
frá Ólafsfirði,
þökkum við hjartanlega. — Guð blessi ykkur ölL
Herdís Þorleifsdóttir, Sólveig Ásgrímsdóttir,
Ragna Jóhannsdóttir, Sigurður Ásgrímsson,
Bjarni Jóhannsson, Einar Ásgrímsson,
Margrét Jóhannsdóttir, Æunnar Ásgrímsson,
Helgi Ásgrímsson.
inni grein fyrir því, hvers vegna
Einhamar var stofnaður og
hvernig þeir ætla að inna það
hlutverk sitt af hendi að lækka
byggingarkostnaðinn. Þar dugir
ekki það eitt að hafa vakandi
auga með byggingarframkvæmd
um ríkisins og Reykjavíkurborg
ar í Breiðholtinu og viljafrelsa
FB frá ýmis-konar vitleysum og
mistökum líkt og Rússar vilja
frelsa Tékkóslóvakíu frá marg-
víslegum villukenningum, sem
þar hafa skotið rótum.
Glögglega kemur fram í Morg
unblaðsgreininni að Einhamars
menn láta nú undan síga. Því
til staðfestingar bendi ég á eftir
farandi atriði:
1. Einihamarsmenn halda því
ekki lengur fram, að FB gleypi
megin/þorrann af því fé, sem val
ið er til byggingarlána.
2. Skrifin um byggingarvísi-
töluna og „getsakir" mínar í
garð Hagstofunnar eru orðin
mjög hógvær.
3. Því er ekki haldið til streitu
að unnt sé að fullgera fjögurra
herhergja íbúð, sem er tilbúin
undir tréverk, fyrir tæpar 150
þúsund krónur.
4. Fallið er frá fyrri fullyrð-
ingum um sérréttindi FB varð-
andi undirbúning byggingarsvæð
is.
Hvað síðast talda atriðinu við
kemur telur Einhamar nú að FB
og byggingarmeistararnir hafi
búið við jafna aðstöðu, en þetta
er ekki rétt. FB hóf fram-
kvæmdir í aprílbyrjun 1967 en
meisatrarnir í júlí og ágúst sama
ár. Á tímabilinu frá apríl til
ágúst 1967 var ýmislegt gert af
hálfu borgaryfirvaldanna til að
bæta aðstöðuna á svæðinu, svo
sem með því að ljúka vegagerð,
leiða þangað vatn og loka hol-
ræsaskurðum. FB bjó því mun
lengur en aðrir við ófullnægj-
andi byggingaraðstöðu í Breið-
holtinu.
Einhamarsmenn halda ekki und
an í allra augsýn. Þeir reyna að
fela undanháldið með ýmiskon-
ar sjónihverfingum og tilburðum.
Nú bera þeir það fram, að FB
Þökkum innilega sýnda sam-
ú'ð og vinarhug við andlát og
útför dóttur minnar, móður
og tengdamóður okkar
Guðfinnu Ármannsdóttur
Nóatúni 24.
Guðný Jónsdóttir
Asgreir Pétursson
Solveig Pétursson
Ólöf Pétursdóttir
Bjarni Amason
Runólfur Pétursson
Ruth Sörensen
Armann Fétursson
Kristín Dagbjartsdóttir
Helga Pétursdóttir
Kristján Jónsson
Pétur Pétursson.
sé hætt við flestar þær nýjung-
ar, sem nefndin tók upp, er ég
hafi hrósað sem mest. Vitna þeir
þessu til staðfestingar í viðtal,
sem tveir tæknimenn FB áttu við
dagblaðið Vísi. Sennilega er
skuggsýnt í hamrinum og lestrar
skilyrði ekki ákjósanleg. Á ann
an hátt verður þessi firra naum
ast skýrð. Við næsta áfanga
verða í grundvallaratriðum not-
aðar sömu byggingaraðferðir, þ.e.
stálmót og forsteyptar útveggja
einingar, þótt lögun íbúðanna
verði önnur. í Vísis-viðtalinu
kemur skýrt fram, að yfirstand-
andi byggingaráfangi hafi veitt
dýrmæta reynslu eins og líka til
ætlunin var.
Einhamarsmenn láta mjög drýg
indalega yfir þvottahúsakomp-
unum, sem eru til staðar í íbúð-
um þeirra, og mega þeir gjarn-
an miklast af. f fjölbýlishúsum
FB eru sameiginleg þvottahús,
þar sem allar vélar fygja en að
auki er þvottaaðstaða í baðher-
bergjum, því baðh'erbergin eru
mjög stór og með innstungu fyrir
þvottavélar.
Margt ætti nú að vera farið
að skýrast í þessum málum en
samt eiga sér stað dularfullir at-
burðir, sem Einhamarsmenn ku
ekki skil á þrátt fyrir „þekkingu
og reynslu". fbúðir FB hafa að
sögn stækkað um marga fer-
metra frá því í maí 1967 og til
jafnlengdar á þessu ári. Er þetta
næsta yfirnáttúrulegur fyrirburð
ir, sem ég skal þó reyna að skýra.
Fermetrafjölda íbúða má reikna
út á marga vegu og um þetta
gilda engar fastar reglur. Ýmist
er reiknað brúttómál eða nóttó-
mál. Stundum er sameign sleppt
eða einungis reiknaður hluti
hennar. Stundum er sérgeymsla
reiknuð með en í öðrum tilfellum
er henni sleppt. f maímánuði
1967 reiknuðu starfsmenn FB út
fermetrafjölda íbúðanna á marga
mismunandi vegu. Síðan
var nettómálið eitt birt án
þess þó að taka það fram að
um nettómál væri að ræða en
þess getið að aukalega fylgdi 8
fermetra sérgeymsla hverri íbúð.
Síðar kom í ljós að þessi reikn-
ingsaðlferð var yfirleitt ekki not
uð aif öðrum t.d. nota fasteigna-
salar að jafnaði hæstu fáanlegu
femretratölu, en almennast er þó
að nota brúttómál íbúðar að stiga
palli meðtöldum en reikna ekki
með sameign og isérgeymslu.
Þessi siðastgreinda' reikingsað-
ferð var tekin upp þegar FB
birti fréttatilkynningu sína í maí
mánuði 1968, en þar var skýrt
tekið fram hvernig fermetramir
væru reiknaðir. Ég tel naumast
unnt að gagnrýna FB fyrir það
að kaupendur íbúðanna kynnu í
upphafi að hafa ástæðu til að
ætla að íbúðirnar væru minni en
raun bar vitni. því þeir áttu þess
ávalt kost að fá gleggri upplýs-
ingar á skrifstofu FB eða hjá
húsnæðismálastjórn. Þannig er
þá allur leyndardómurinn auð-
skýrður, ef hlutirnir eru skoð-
aðir í réttu ljósi.
Þá skal vikið að verðsaman-
burði íbúða. Fyrst vil ég spyrja
Einbamarsmenn, hvort þeir geti
ekki nefnt eitt einasta dæmi um
verðlag á nýrri meistaraífaúð í
fjölbýliáhúsi í Reykjavík, sem
seld hefir verið fullfrágengin að
utan og innan á árinu 1968? Sé
iþetta ekki unnt má reyna að
gera verðsamanburð á fullgerð-
um íbúðum FB og íbúðum Ein-
hamarsmanna eða annarra meist
ara tilhúnum undir tréverk. En
til þeiss að þetta megi gera á viðun
andi hátt og af fullri vand-
virkni, þurfa ýmsar upplýsing-
ar um meistaraíbúðirnar að
liggja fyrir, sem ég hefi ekki
undir höndum nú. Því vil ég
leyfa mér að biðja Einhamars-
menn um teikningar að húsun-
um og fá heimild til að skoða
fbúðirnar, þegar þær eru afhent
ar. Ennfremur vildi ég fá í hend
ur afrit af kaupsamningum varð
andi íbúðirnar, tþví mig grumar
að þar sé ekki ávalt notað sama
orðalag og Einhamar notar i
Morgunhlaðinu, þ.e. „öll sameign
fullfrágengin“. Þegar þessar upp
lýsingar liggja fyrir, skal égfúis
lega taka þátt í samanburði á
verði og þurfa Einhamarsmenn
ekki að óttast að neinum kostn-
aðarlið verði sleppt.
Einíhamarsmenn hafa eitthvað
ruglast í ríminu varðandi verð-
stöðvunina. Hér var alrmenn verð
stöðvun á tímabilinu frá því í
ágústmánuði 1966 og fram í okt-
óber 1967. Þessi verðstöðvun
náði þó ekki upp í sjálfan helgi
dóminn til byggingarmeistaranna,
því þeim var frjálst að selja
íbúðir sinar á þvi verði, sem
þeim sjálfum þóknaðist. Hitt skal
enn einu sinni áréttað, að verð-
ið á íbúðum FB gildir fyrir íbúð
ir afhentar á tímabilinu frá maí
1968 til febrúar 1969. FB naut
því verðstöðvunarinnar skamma
hríð. Það er öllum kunnugt að
kaupgjald hefir nú hækkað um
allt að 10 prs. frá því haustið
1967, að sement hækkaði um 20
prs. snemma á þessu ári, að
margvíslegar erlendar bygging-
arvörur hækkuðu um 25-30 prs.
við gengisfellinguna í nóvem-
ber 1967.
Svo mikill er ákafi þeirra Ein
hamarsmanna, að jafnvel prent-
villa er gerð að meginádeilu-
efni. f grein þeirri, sem ég ritaði
í Morgunblaðið 10. ágúst s.l., heí
ir átt sér stað ruglingur ogbrott
fall við prentun einnar málsgrein
ar. Niðurlag hennar hljóðarþann
ig í blaðinu: „helur er verðið
án vaxta“ en þarna átti að
standa „heldur er verðið kr.
7.097.000.00, þ.e, kr, 1,063,000,oo
án vaxta“ Auðvelt var að átta
sig á því, að þarna vantaði nið
urlagið einkanlega fyrir þá
menn, sem höfðu lesið fréttatil-
kynningu FB, sem oft heifir ver-
ið gerð að umræðuefni. En Ein-
hamarsmenn voru fljótir til að
túlka þetta á sinn hátt. Um þessa
villumálsgrein segja þeir orðrétt:
„Þessi málsgrein sýnir betur en
flest annað að J.Þ. er orðinn
gersamlega ruglaður — röksemd
arvirki hans hefir ekki reynzt
fokhelt, hvað þá meira, þegar til
kastanna hefir komið.“
f lok Morgunblaðsgreinarinn
ar beina Einhamarsmenn til mín
nokkrum spurningum. Ég vil taka
það fram að það er ekki hlut-
verk FB að fylgjast með því,
hvaðan ríkið og Reykjavíkurborg
útvega fé til starfsemi nefnd-
arinnar. Að öðru leyti vísa ég
til þess, að þegar núverandi bygg
ingaráfanga lýkur skömmu eftir
áramótin, verða reikningar birt
ir og ætti þá Einhamar að fá
svör við öllum sínum spurning-
um. Nefndin hetfir ekki aðstöðu
til að láta bókhaldsuppgjör fara
fram oft á ári. Starfsemi nefnd
arinnar er opinber og þar verð-
ur ekkert undan dregið. Hitt
undrar mig, að Einhamar skuli
leita til mín um heimildaöflun,
þar sem Einhamarsliðið telur
mig beran að „rangfærslum og
ósannindum", auk þess sem ég
sé „gersamlega ruglaður" og
„gersneyddur þekkingu á frum-
stæðustu atriðum framkvæmda-
og atvinnulífs" og þar við bæt-
ist svo að ég „kann ekki mann-
ganginn í þessu byggingarmála-
tafli“ og að í gegnum skrif mín
„skíni gremja þess, sem finnur
vanmátt sinn og vanþekkingu á
þeim málum, sem um er fjallað"
Og svo þykjast Einhamarsmenn
faafa unnið mikinn sigur með því
að reka slíkan vesaling á flótta.
Yfirlæti Eihhamarsgarpanna er
slíkt, að þeir skynja ekki sína
eigin sneypuför.
Jón Þorsteinsson.
Hjartans þakkir til allra, sem glöddu mig með stór-
gjöfum, skeytum og fjölda hlýrra hantaka á 75 ára
afmæli mínu þann 25/8. s.l. Ennfremur fyrir atfmælis-
grein, er birt var í Morgunblaðinu, etftir J. Þ., Akranesi.
Guð blessi ykkur öll. — Lifið heil.
Magnús Gunnlaugsson, Akranesi.