Morgunblaðið - 25.09.1968, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.09.1968, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐYIKUDAGUR 25. SEPT. 1968. íbúðir í smíðum Til sölu 3ja og 4ra herb. íb. við Eyjabakka 13 og 15. — Seljast tilb. undir tréverk. Óskar og Bragi sf. Símar 32328 og 30221. Garðeigendur — eigum á lager hinar vinsælu brot- steina í vegghleðslur, hell- ur í ýmsum stærðum, einn- ig 6 kantaða og kantsteina. Hellu- og steinsteypan sf. við Breiðholtsv. S. 30322. Sólbrá, Laugavegi 83 Úrval barnafata, sendum gegn póstkröfu um land allt. Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. Hemlastilling hf, Súðavogi 14. - Sími 30135. Loftpressur — gröfur Tökum að okbur alla oft- pressuvinnu, einnig gröfur til leigk. Vélaleiga Símon- ar Símonarsonar, sími 33544. 3ja—4ra herb- íbúð óskast til kaups í Laugar- neshverfL Tilb. sendist Mbl. merkt: „íbúð 2003“ fyrir laugardag. Gangstéttir Steypum heimkeyrslur að bílskúrum, einnig gangstétt ir við fjölbýlishús. Uppl. í síma 24497. Píanó til sölu Uppl. í síma 18114. Lítill gufuketill til sölu. Uppl. í síma 52413. Ung hjón utan af landi óska eftir íbúð, 2ja—3ja herb. Tilb. sendist Mbl. merkt: „2019“. Ung bamlaus hjón óska eftir að taka á leigu 2ja til 3ja herb. íbúð strax. UppL í síma 37319. Atvinnurekendur 27 ára gömul stúlka með Verzlunarskólam. óskar eft ir skrifstofust. i daginn. Tilb. m.: „Vön - 2004“ til afgr. Mbl. fyrir 1. ökt. n. k. Kona óskast til að sjá um heimili fyrir reglusaman sextugan mann úti á landi. Uppl. í síma 21558. J af nstr aumsmótor 25—26 hestafla, 220 volt. óskast til feaups. Tilb. m.: „DC-2018“ sendist afgr. Mbl. fyrir vikulokin. Froskmenn til sölu, búningur, sem nýr. Sími 52626. 65 ára: Þórður Andrésson f dag 25. september er 65 ára Þórður Andrésson frá Þórisstöð- um í Gufudalssveit. Þótt þessi prúði, glæsilegi maður beri ekki aldur síns merki, hefur hann háð erfiða lífsbaráttu, og ríkulega lagt fram sinn skerf til þjóðfé- lagsins. Hann er kominn af ágætum breiðfirzkum ættum. Foreldrar hans voru: Andrés Sigurðsson og Guðrún Jónsdóttir. Þau bjuggu allan sinn búskap á Þórisstöð- um, og ólu upp stóran barnahóp. Fjórtán systkini komust á legg. Aðeins 13 ára gamaM fór Þórður fyrst til sjós, og má nærri geta hvílík þrekraun sjómennska þeirra tíma hefir verið svo ung- um dreng. Sjósókn stundaði Þórð ur allt til 1934. Þá hóf hann búskap á Hjöll- um í Þorskafirði, næstu jörð við Þórisstaði. Hann kvæntist ágætri konu, Þóreyju Stefánsdóttur frá Brandsstöðum. Þau eigmuðust þrjár dætur, sem allar eru gift ar og búsettar í Reykjavík. Þórð ur brá búi 1947, og fluttist suð ur. Skömmu seinna slitu þau sam vistum. Þórður vann hér við ým- is störf en heilsa hans var tæp, og 1950 fór hann á Vífilsstaða hæli og dvaldi þar í 4 ár. En einmitt á þessum árum, þeg ar hann hafði látið af því starfi, sem alltaf verður honum kærast, landbúnaðinum, og veikindi lam að þrek hans. Þá skín honum sú sól, sem síðan hefir vermt líf hans. Frá Vífilsstöðum kom hann með endumýjaða krafta og með glæsilega konu sér við hlið, Helgu Veturliðadóttur frá Súg- andafirði. Tveimur árum síðar flytja þau að Þórisstöðwn. Þórður hófst óðara handa að stækka tún og auka ræktun. Eignarjörð sína Hjalla nytjaði hann einnig, svo ekki skorti landrýmið. Þessaor jarðir eru frábærar til sauðfjárhalds, og Þórður var líka sérlega heppinn fjárbóndi. Hann hafði alltaf einstakt lag á að eiga fallegt, hraust og afburða- gott sauðfé. Það var alltaf gestkvæmt á Þórisstöðum og oft ótrúlegt hvað margir gátu komizt fyrir í litla bænum. Gestrisið fólk og hjartahlýtt þarf ekki alltaf mikið húsrými, til að láta fara vel um þá, sem að garði bera. Og mörg eru þau orðin börnin og ungl- ingarnir sem dvalið hafa þar, lengur eða skemur. Það væri á litlegur hópur ef öll væru sam- an komin. Auk bústarfanna, hlóðust fé- lagsstörf alla tíð að Þórði. Odd- viti var hann í 20 ár, í skatta- nefnd í 20 ár, forðagæzlumaður 1 17 ár, og formaður brunabóta- félags í 5 ár. Póst og bréfahirð- ingu annaðist hann einnig í mörg ár, og fleira mætti telja. Það er mikið starf, sem þetta kyrr- láta prúðmenni, hefir innt af S O F N Þjóðminjasafn fslands er opið sunnudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl 1.30 Ásgrnnssafn Bergstaðastræti 74 er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga ira Kl. 1.30-4. Þjóðskjalasafn fslands Opið sumarmánuðina júni, júlí og ágúst kl. 10-12 og 13- 19 alla virka daga nema laugar daga: þá aðeins 10-12. Listasafn Einars Jónssonar. Er opin sunnudögum og mið vikudögum kl. 1.30-4. Gengið inn frá Eiríksgötu. Bókasafn Sálar- rannsóknafélags íslands Garðastræti 8, sími 18130, er op- ið á miðvikud. kl. kl. 17.30—19. Skrifstofa SRFÍ og afgreiðsla „MORGUNS" opin á sama tíma. Bókasafn Kópavogs í Félagsheimilinu. Útlán á þriðjudögum, miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum. Fyrir börn kl. 4.30—6.00 Fyrir fullorðna 8.15—10.00. Barnabóka útlán 1 Kársnesskóla og Digra- nesskóla auglýst þar. imi ±ra jzjII ik hendi, ekki sízt fyrir sveitina sína. Þótt hann hafi brugðið búi og sezt að í Reykjavík, sem skrif stofumaður, hugsum við sem þekkjum hann, ávallt um hann sem breiðfirzkan bónda trúan átt högum sínum landi og þjóð. Halldór Stefánsson. Því að Drottinn þekkir vegi rétt- látra, en vegur óguðlegra endar I vegleysu. (Sálm. 1.6.) f dag er miðvikudagur, 25. sept., er það 269 dagur ársins 1968. Firm- inus. Tungl næst jörðu. Árdegishá- flæði kl. 6.54. Eftir lifa 97 dagar. Upplýsingar um læknaþjónustu í borginni eru gefnar í síma 18888, símsvara Læknafélags Reykjavík- ur. Læknavaktin í Heilsuverndarstöð- inni hefur sima 21230. Slysavarðstofan í Borgarspítalan um er opin allar sólarhringinn. Aðeins móttaka slasaðra. Sími 81212 Nætur- og helgidagalæknir er í síma 21230. Neyðarvaktin svarar aðeins á virkum dögum frá kl. 8 til kl. 5 sími 1-15-10 og laugard. kl. 8-1. Keflavíkurapótek er opið virka daga kl. 9-19, iaugardaga kl 9-2 og sunnudaga frá kl. 1-3. Næturlæknir í Hafnarfirði aðfara- nótt 26. sept., er Eiríkur Björns- son, Austurgötu 41, sími 52315. Kvöld og helgidagavarzla er í Ingólfs Apóteki og Laugar- nes Apóteki. Næturlæknar í Keflavík. 21.9. og 22.9 Arnbjörn Ólafsson 23.9 OG 249 Guðjón Klemenzson. 25.9. og 269 Kjartan Ólafsson. Ráðleggingarstöð Þjóðkirkjunnar um hjúskaparmál er að Lindar- götu 9. 2 hæð. Viðtalstími læknis miðvd. 4-5, Viðtalstími prests, þriðjudag og föstudag 5.-6. Framvegis verður tekið á móti þeim, sem gefa vilja blóð í Blóð- bankann, sem hér segir: mánud. þriðjud., fimmtud. og föstud. frá kl. 9-11 f.h. og 2-4 e.h. Miðviku- daga frá kl. 2-8 e.h. og laugardaga frá kl. 9-11 f.h. Sérstök afaygli skal vakin á miðvikudögum vegna kvöldtímans. Bilanasimi Rafmagnsvetta Rvík- ur á skrifstofutíma er 18-222 Næt- ur- og helgidagavarzla 18-239. A.A.-samtökin Fundir eru sem hér segir: í fé- lagsheimilinu Tjarnargö n 3c: Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21. Langholtsdeild, í Safnaðarheimili Langholtskirkju, laugardaga kl. 14. Orð lífsins svara í síma 10000. I.O.O.F. 8 = 15092581%= RMR-25-9-20-VS-A-FR-HV IOOF 9 = 1509258% = IOOF 7 = 1509257 = 8 Rk FRÉTTIR Kristniboðssambandið Almenn samkoma í kvöld kl. 8.30 í kristniboðshúsinu Betaniu. Barbara Havba kristniboði frá Mal- aysíu talar og sýnir litskuggamynd ir frá starfinu þar. Allir velkomn- ir. Sunnukonur Hafnarfirði Munið fundinn í Góðtemplarahús inu þriðjudaginn 1. okt. kl. 8.30. Frá Tónlistarskólanum I Reykja- vík. Inntökupróf verða fimmtudaginn 26. sept. kl. 4-6 síðdegis. Skólastjóri. Hjálpræðisherinn Heimilissambandsfundur 1 kvöld kl. 8.30. Systrafélag Keflavíkurkirkju Munið saumafundina á fimmtu- dagskvöldum í barnaskólanum við Sólvallagötu. Frá Náttúrulækningafélagi Reykja víkur Félagsfundur Náttúrulækninga- félags Reykjavíkur verður haldinn I matstofu félagsins, Kirkjustræti 8, föstudag 27/9, kl. 21. Fundarefni erindi, gigtlækningar, Björn L. Jónsson læknir, félagsmál, veiting- ar, allir velkomnir. Háteigskirkja Dagiegar kvöldbænir eru X kirkj- unni kl. 6.30 síðdegis. Séra Arn- grímur Jónsson. Kvenfélag Neskirkju Aldrað fólk í sókninni getur feng ið fótaaðgerð í félagsheimilinu á miðvikudögum frá kl. 9-12 Tíma- pantanir í síma 14755 á mánudög- um og þriðjudögum kl. 11-12. Geðverndarfélag íslands. Geðverndarþjónustan nú starf- andi á ný alla mánudaga kl 4-6 síðdegis að Veltusundi 3, sími 12139. Þessi geðverndar- og upplýsinga- þjónusta er ókeypis og öllum heim iL TURN HALLGRÍMSKIRKJU Útsýnispallurinn er opinn á laug ardögum og sunnudögum kl. 14-16 og á góðviðriskvöldum þegar flagg að er á turninum. Spakmæli dagsins Það eru ekki til neinar framfar- lr nema þær, sem leiða upp á við. G. Scott. Áheit og ajafir Áheit og gjafir á Strandarkirkju afh. Mbl. S.S. 100.-, A.S.B. 250.-, SK 65-, Áslaug 50-, G.HH 450-, NN 100-, Rúna 50-, H.J. 100.-, V og H. 200.-, S.J. 300- Jón Karlsson 400-, ó- nefnd 100,- G.H. 500- Hallgrímskirkja í Saurbæ afh. Mbl. A.J. 200.-, Hrönn 200.-. Sólheimadrengurinn afh. Mbl. S.K. 65.- Veika konan afh. Mbl. N.N. 200.-. N.N. 1000- SV 200.-, ES 200-, G 200.- afh. af sr. Áre- líusi Níelssyni 3.400.-. Vegna heyrnardaufra barna. Sverrir Kristinsson 10.000.- Mar- grét og Haraldur 2.000.-. VÍSLKORN Að þú verðir ærulaus ekki það ég segi. En þjófs eru augu á þínum haus, það bregzt mér samt eigi. Síra ögm. Sigurðsson. sú NÆST bezti „Beiskur ertu, Drottinn minn“, er orðtæki, sem flestir munu kannast við, en hitt munu þó færri vita, hvernig það er til komið upphaflega. En sagan er þessi: Vigfús Helgason hét prestur, sem var í Brei’ðuvíkurþingum á 17. öld. Hann hafði eitt sinn í víneklu notað brennivín í stað messu- víns við altarisgöngu. Þegar kerling ein hafði bergt á kaleiknum, varð henni að orði: „Beizkur ertu Drottinn minn“. PS. Framhald í næstu flösku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.