Morgunblaðið - 25.09.1968, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. SEPT. 1968.
21
Fréttir í niyndum
Flugslysið í Farnborough. Eins | um, hrapaði frönsk flugvél á Englandi sl. föstudag. Féll flug-
og frá hefur verið skýrt í frétt- | flugsýningunni í Fambourgh í vélin ofan á hús við flugvöllinn
og stóð stéiið upp úr eins og
myndin sýnir. Mikill eldur kom
upp, er flugvélin hrapaði, sem
loks tókst þó að slökkva, Alls
hafa fundizt lík 12 manna og
voru 5 þeirra lík áhafnarmeð-
lima vélarinnar.
Páli páfi sést hér leggja hönd að verki fyrir minnisvarða, sem
komið var upp fyrir skömmu við sjúkrahús í grennd við Róm,
er kaþólska kirkjan rekur. Gerðist þetba, er Páfi sneri aftur til
Páfagarðs, eftir 2 mánaða dvöl á sumarsetri sínu.
Um 15 km fyrir vestan Prag standa þungar fall byssur Rússa líkt og ógnvekjandi aðvarandi fing-
ur til Tékkóslóvakíu um að brjóta ekki í bága við vilja Rússa.
Þið ráðið hvort þið trúið þvi,
en staðreynd er, að um 15.000
manns söfnuðust saman í Wall
Street sl. föstudag í þeirri von
að sjá Francine Gottfried bregða
fyrir. Francine, sem er 21 árs
gömul og hefur ummálstölurnar
109-63-94 cm hafði klæðzt
þröngri gulri peysu og rauðu
pilsi, þegar hún fór til vinnu
sinnar — með þessum afleiðing-
um. Bið karlmannanna varð þó
árangurslaus, því að Francine var
gefið frí úr vinnunni. Francine
sagði um viðbrögð karlmann-
anna: Ég held þeir séu orðnir vit
lausir. Ég er bara venjuleg
stúlka.