Morgunblaðið - 20.10.1968, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 196«
BÍLALEIGAINi
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
350,- kr. daggjald.
3,50 kr. hver kílómetri.
Simi 22-0-22
Rauðarárstíg 31
^siM' I-44-44
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
MAGIMÚSAR
skiphoiji21 «*»ar21190
ettif lokun ■ 403S1
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaffastræti 11—13.
Hagstætt leigugjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 effa 81748.
Sigurður Jónsson.
GtlSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögnu ður
Laufásvegi 8 - Sími 11171
Schannongs minnisvarðar
Biðjið um ókeypis verðskrá.
ö Farimagsgade 42
Kdbenhavn 0.
Hlllllllllllllllll
Bifreibakaupendur:
Erm bjóðum við notaða
Rambler Classic bíla — án
útboa-gunar — gegn fast-
eignaveði:
Arg. 1963, blár, sjálfskiptur
Árg. 1966, grár.
Tveir hafa komið á sölu-
skrá síðustu dagana:
Árg. 1965, blár.
Árg. 1965, hvítur.
Sýningarsalir okkar, Hring
braut 121 eru opnir í dag
frá kl. 2—5.
■rUI Rambler-
uUll timboðið
LOFTSSON HF.
Hríngbraut 121 — 1Ö600
0 Örorkulífeyrir —
Ellilífeyrir
HÉR FER á eftir bréf frá Trygg-
ingarstofnun ríkisins. Velvak-
andi þakkar það kærlega, og þær
nytsömu upplýsingar, sem þar
eru veittar.
„Bréf „lífeyrisþega" til Velvak
anda sem -birtist í Morgunbiað-
inu hinn 13. þ.m., veitir Trygg-
ingastofnun ríkisins tækifæri til
kynningar á einum þætti starf-
semi stofnunarinnar en of marg-
ir og jafnvel blaðamenn vita of
Utið um hana, iíka þau atriði,
sem snúa beint að þeim.
Efnisatriði bréfs lífeyrisþega er
rétt að því leyti, að örorkulífeyr
ir er aðeins greiddur fólki á aldr
inum 16-67 ára sbr. 13. gr. al-
mannatryggingalaganna.
Það er ekki Tryggingastofnun
in, sem ákvarðar lögin heldur A1
þingi, en þetta atriði ætti flest-
um að vera kunnugt, því það er
25 manna fjallabíll til sölu
Upplýsingar Úlfar Jackobsen, sími 13499.
svo alþekkt í lífeyrissjóðum, að
örorkulífeyrir, þ.e. Ufeyrir, sem
greiddur er vegna þess að menn
verða óvinnufærir fyrir aldur
fram, fellur niður, þegar þeir ná
elliUfeyrisaldri, en i stað hans
kemur ellilífeyrir. Fyrir öryrkj-
ann á sér í rauninni engin breyt-
ing stað við 67 ára aldur. Hann
fær áfram sömu greiðslur og áður
en þær nefnast nú ellilífeyrir en
ekki örorkulífeyrir.
Það virðist heldur ekki vera
þetta atriði, sem bréfritari hefur
raunverulega í huga, heldur
hvernig fer, þegar ástæður versna
hjá manni, sem þegar nýtur elli-
lífeyris“.
Q Lífeyrir hækkar við
frestun á töku hans.
„Af þessu tilefni er rétt að
taka upp tvær greinar almanna-
tryggingalaga, sem mörgum eru
sennilega ekki kunnar.
GLUGGA OG DYRAÞÉTTINGAR
Tökum að okkur að þétta opnanlega glugga og hurðir
með VARANLEGUM þéttilistum, sem veita nær 100%
þéttingu gegn dragsúgi, vatni og ryki.
Upplýsingar
í síma 83215.
HAGSÝN
HÚSMÓÐIR
NOTAR
f 12. gr. segir:
Árlegur ellilífeyrir einstakl-
ings skal vera sem hér segir:
Ef lífeyrir er fyrst tekinn frá 72
ára aldri eða síðar kr. 61.472,00
Ef frá 71 ára aldri kr. 55.180,00
Ef frá 70 ára aldri kr. 49.129,00
Ef frá 69 ára aldri kr. 44.531,00
Ef frá 68 ára aldri kr. 39.933,00
Ef frá 67 ára aldri kr. 36.786,00
Um þetta er rétt að taka fram.
Maður, sem enn heldur fullum
tekjum 67 ára, ætti-að íhuga ræki
lega, hvort ekki sé skynsamlegra
að fresta töku lífeyris meðan
tekjurnar ekki skerðast og eign-
ast þá sjálfur hærri rétt seinna
eða ekkja hans, ef hann fellur
frá, því síðast í sömu grein seg-
ir:
„Nú andast maður, sem frestað
hefur töku lífeyris fram yfir 67
ára aldur, og iætur eftir sig maka
á lífi, og skal þá hinn eftirlif-
andi maki til viðbótar eigin líf-
eyri eiga rétt á þeirri hækkun,
sem hinn látni átti rétt á vegna
frestunar, sem átt hafði sér stað
eftir 1. janúar 1961“.
f báðum tilvikum er hér um
rétt að ræða, sem maður hefur
áunnið sér við það að afsala sér
tekjuhækkun við 67 ára aldur".
0 Heimilt að greiða
uppbót
„Hin grein alganna er 21. gr.
og hljóðar hún svo:
Heimilt er að greiða uppbót á
elli- og örorkulífeyri, ef sýnt
þykir, að lífeyrisþegi geti ekki
komizt af án hækkunar.
Tryggingastofnunin ákveður
uppbót samkvæmt grein þessari
að fengnum tillögum sveitar-
stjórnar, og greiðist hún að %
af Tryggingastofnuninni, en að
% af sveitarsjóði. Er stoínun-
inni heimilt að verja í þessu
skyni upphæð, sem nemur allt að
10% af heildarupphæð elU- og
örorkulífeyris siðastliðins árs.
Hlutur Tryggingastofnunarinnar
greiðist því aðeins, að hluitur
sveitarsjóðs sé jafnframt greidd
ur.
Þessi grein er heimildargrein,
það veltur bæði á samþykkt sveit
arsjóðs og Tryggingastofnunar
innar, hvort henni verður beitt,
og fé það, sem verja má í þess-
um tilgangi er takimarkað, svo
aðilum er stakkur skorinn við
notkun heimildarinnar.
f þessari grein er ekki um ein-
hliða rétt bótaþega að ræða og
því óhjákvæmilegt að taka tillit
til þess, hve miklu fé má ráð-
stafa, og hvernig aðstaða bóta-
þega er.“
0 Leitazt við að bæta
„Að síðustu þetta:
Það er öllum ljóst og starfs-
mönnum Tryggingastofnunarinn-
ar ekki síður en öðru fólki, að
það, sem taiið er fullur lífeyrir,
án annarra tekna eða aðstöðu,
nær skammt tii þess að veita við
unandi lífsviðurværi. Þess vegna
er stöðugt leitazt við' að bæta
tryggingalögin. Starfsmenn
Tryggingastofnunarinnar eru oft
kvaddir til ráðuneytis við þær
endurbætur, en valdið er löggjaf-
ans. Það er því mjög nauðsyn-
legt, að almenningur láti til sín
heyra um það, sem hann telur,
að betur megi fara, bæði við
framkvæmd laganna og setningu,
og enginn þarf að furða sig á
því, að skoðanir manna á þess-
um málum séu nokkuð marg-
breytilegar, því flestum mun hug
stæðast það, sem að sjálfum
kreppir.
Tryggingastofnun ríkisins,
Sverrir Þorbjörnsson."
0 „Eru þeir í vandræð-
um með peningana?“
Húsmóðir í Laugarneshverfi
skrifar eftirfarandi bréf:
„Kæri Velvakandi. — Oft hef
ég verið að því komin að skrifa
þér, en ekki látið verða af, en
nú ofbýður mér svo, að ég fæ
ekki orða bundizt. Og auðvitað
eru það mjólkurmálin, sem eru
efst á baugi. 1 hverfinu, sem ég
bý i, er ein mjóikurbúð og mat-
arkjörbúð við hliðina á. Nú hef-
ur þessi mjóllpirbúð verið lokuð
í heilan mánuð vegna viðgerða.
Mjólkin hefur verið seld í kjör-
búðinni á meðan (þar sem ágæt
aðstaða er til mjólkursölu). Og
viti menn, í morgun opnar svo
mjólkurbúðin, og það er búið að
mála þennan flöt ca. 20 fermetra.
Þetta hefur tekið heilan mánuð
á málarataxta efa ég ekki. Á
meðan hækka mjólkurafurðir
upp úr öllu valdi, eða það finnst
mér að minnsta kosti með sjö
manna fjölskyldu. Ég er nú ekk
ert hissa á að fólk máli sjálft
sínar íbúðir, ef vinnubrögð fag-
manna eru alltaf slík, og mér er
spurn er ekkert eftirlit hjá
Mjólkursamsölunni með þelm
verkum, sem þeir láta vinna, eða
eru þeir í vandræðum með pen-
ingana? Ef svo er, hvernig væri
þá að láta Kassagerðina fram-
leiða fernurnar frægu og styðja
íslenzkan iðnað í leiðinni?
Húsmóðir í Laugameshverfi".
Jeppokeppni! Jeppokeppni!
Torfæruaksturskeppni B.K.R. verður haldin við
Vífilfell (Sandskeiði) sunnudaginn 20..október kl. 2.00
stundvíslega.
Keppendur maeti kl. 1.30 til skráningar.
Keppt verður um veglegan bikar .
Bifreiðaklúbbur Reykjavíkur.
ÚTBOÐ
Óskað er eftir tilboðum um endurtryggingu á bruna-
tryggingum húseigna í Reykjavík, frá I. janúar 1969.
Útboðsskilmálar og nánari uplýsingar fást í afgreiðslu-
stofu Húsatrygginga Reykjavíkur, (skrifstofu bygg-
ingarfulltrúa), Skúlatúni 2.
Tilboð verða opnuð mánudaginn 18. nóvember kL
16.00 í fundarsal borganstjómarinnar, Skúlatúni 2,
Reykjavík.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
18. október 1968.