Morgunblaðið - 20.10.1968, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.10.1968, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 1068 17 Stjórnarráð r Islands Réttarreglur þurfa að miðast við síbreytileg atvik, svo að þær hindri ekki eða stöðvi nauðsyn- lega þróun heldur beini henni í æskilega átt. Með þessu er ekki sagt, að ný lagasetning sé ætfð heppilegasta leiðin því að réttar- venjur staðfestar af dómstólum og stjórnarvöldum geta þvert á móti oft reynst happasælli. Um þetta gildir engin allsherjarregla, heldur verður að skoða málsat- vik hverju sinni. Þetta ber að hafa í huga, þegar menn gera sér grein fyrir, að þrátt fyrir hinar stórkostlegu breytingar, sem orðið hafa á þessari öld, þá hefur enn egin heilleg löggjöf verið sett um Stjórnarráð Is- lands. Það var stofnsett með lögum frá 1903 um aðra skipun á æ'ðstu stjórn landsins og upp á þau lög var lappað 1917 og 1938. Framkvæmdin hefur fyrir löngu sprengt þennan laga- ramma. Út af fyrir sig væri ekki um það að sakast, ef þróunin hefði að öilu leyti verið í rétta átt. En svo er ekki. Hentisemi við einstakar stjórnarmyndanir, einkum viðleitni til að skapa sæmilegt jafnvægi á milli sam- starfsflokka, hefur orðið til þess að skapa meiri glundroða í skip- un ráðuneyta og þar með starf- semi þeirri en við verði unað til lengdar. Þess vegna samþykkti Alþingi 1958 að tillögu Bjarna Benediktssonar að skora á ríkis- stjórnina að láta fara fram endur skoðun á löggjöf um Stjómarráð Islands og leggja fyrir Alþingi lagafrumvarp um þetta efni. Sú endurskoðun fór fram á næstu árum, en að athuguðu máli þótti ekki vinningur að því að leggja frumvarpið, sem var ávöxtur hennar, fyrir Alþingi. Nú hefur ríkisstjórnin tekið málið upp að nýju, látið semja frumvarp til laga um Stjórnarráð Islands og lagt þa'ð fyrir Alþingi. Ekki aukinn kostnaður Aðalmarkmið þessa frumvarps er að tryggja betri starfshætti í stjórnarráðinu. Sú venja hefur komizt á, að ný ráðuneyti væru stofnuð án sérstakrar lagaheim- ildar. Má raunar segja, að mjög sé á reiki, hversu mörg ráðu- neytin eru í raun og veru, Ætlun in er að setja um þetta fasta skipan og kveða berum orðum á um það, að ný ráðuneyti megi ekki setja nema méð beinni heim ild í lögum. Það fær þess vegna ekki staðizt, sem sumir halda fram, að með þessu sé verið að ýta undir aukinn kostnað við ríkisreksturinn. Þvert á móti er að því stefnt að Alþingi, fjár- veitingavaldið, hafi um þetta ský lausan ákvörðunarrétt áður en til útgjaldanna er stofnað. Annað mál er, a'ð stefnt er að því, að ráðuneytum verði nokkuð fjölg- að í framtíðinni. En það á ekki að gerast nema smám saman, og án þess að meiri kostnaður verði af en óhjákvæmilega leiðir af bættum stjórnarháttum, sem að lokum verða ódýrari en þar sem glundroði ræður. Retri starfs- hættir Nú er sá háttur á haf*ður, að ráðuneyti eru ekki einungis stofn uð án lagaheimildar. Talað er um sérstök ráðuneyti, sbr. sjávarút- vegsmálaráðuneytið, landbúnað- armálaráðuneytið og iðnaðar- málaráðuneytið, án þess að í raun réttri sé um sérstök rá'ðu- neyti að ræða, heldur einungis hluta af öðrum. Þessu til viðbót- ar kemur, að mál eru slitin úr réttu samhengi og fengin mis- munandi ráðherrum, þó að með- höndluð séu í ráðuneyti, sem annar ráðherra hefur aðalstjórn yfir. Þetta leiðir til þess að al- menningur á oft erfitt me@ að átta sig á undir hvern ráðherra tiltekið mál heyrir, og í hvaða ráðuneyti það er afgreitt Þetta skapar einnig hættu á togstreitu milli samstarfsmánna í ríkis- stjórn, skort á yfirliti og sundr- ung í starfi, því að æðsta yfir- stjórn sumra ráðuneyta er í hönd um margra ráðherra og þó að mjög misjafnlega miklu leytL Ofan á þetta bætizt, að ráðherr- ar hafa oft tilhneigingu og raun- ar ríka ástæðu til þess að kve'ðja til starfa í ráðuneyti sínu sér- staka trúnaðarmenn, af því að þeir telja sig ekki hafa nauðsyn- lega stoð í starfsmönnum, sem þar eru fyrir. Þessa nauðsyn er nú ætlunin að viðurkenna ótví- rætt, en þó þannig, að slíkir trún aðarmenn þurfi ekki að verða fastir starfsmenn heldur hverfi úr rá'ðuneytinu samtímis því sem ráðherra sá, ér kvaddi þá til, lætur af störfum. Því fer fjarri að þetta horfi til aukins kostn- áðar. Til óþurftar? Orðaskipti, sem áttu sér stað í útvarpsþætti hinn 21. sept sl., þar sem útvarpsmaður ræddi við unga menn um hugmyndir þeirra, eru þess virði, að þeim sé haldið til haga. Árni Gunnars- son beindi þeirri spurningu til í óveðrinu aðfaranótt laugardags ins sópaðist litríkt haustlaufið af trjánum og lá víða í gærmorg un í flekkjum á götum og gang- stéttum borgarinnar. (Ljósm. M bl. Sveinn Þorm.). því eftir sjónvarpsþátt þeirra Gylfa, að þar hefði hinn gamli Eysteinn aftur verið kominn. Þar á móti fannst mönnum töluvert bera á hinum nýja Eysteini í fréttaþættinum; ekki sízt í þess- um Oirðaskiptum: „Fréttamaðurinn spurði: „Hefð uð þér kannski ekkert fjárlaga- frumvarp lagt fram, hefðuð þér verið fjármálaráðherra?" Eysteinn svaraði: „Það er vandasamt að svara svona spurningu, en ég held, að ég mundi nú í sambandi vi’ð það vilja benda á, að ég veit að fjár- málaráðherra hefur verið í vanda staddur varðandi þetta málefni. En ég mundi vilja segja það, til að skýra myndina, að ég tel, að ríkisstjórnin hefði annað hvort átt að segja af sér í sumar, eða drífa sig í það að gera heildar- dæmið upp á þahn hátt, í tæka tíð fyrir þinghaldið, að hægt væri að leggja fram fjárlagafrum varp, sem eitthvað væri nærri raunveruleikanum. Ég vil ekki álasa fjármálaráðherranum pers- ónulega í sambandi við þetta, því að hann hefur sýnilega verið í klípu, því að í þingsköpunum segir, að það skuli leggja fjár- lagafrumvarp fyrir í þingbyrj- un“. Áður fyrr var ann- að hljóð REYKJAVÍKURBRÉF þátttakenda, „hvernig þeir stjórn málamenn, sem lengst hafa verfð við völd,“ og þátttakendur segðu „í rauninn staðnaða gagnvart nýjum hugmyndum og aðferð- um,“ tækju þessari byltingu, sem mönnum fyndist nú vera að hefjast. Baldur Óskarsson, for- maður Sambands ungra Fram- sóknarmanna, svaraði spurning- unni eitthvað á þessa leið: „Innan Framsóknarflokksins þá er komin alveg ný forysta, sem saman stendur af mönnum, sem hafa mjög litla pólitíska reynslu, ef svo má að orði kom- azt, því að fjórir æðstu menn Framsóknarflokksins hafa styttri þingsetu heldur en ráðherradóm- ur Bjarna Benediktssonar er. En ég hef að vísu ekki starfað í Framsóknarflokknum mjög lengi en mér finnst, að þeir menn, sem þar eru fyrir og eru í forusbu, hafi tekið hugmyndum okkar ungra Framsóknarmanna mjög vel.“ Þessi ummæli verða trauðlega skilin á annan veg, en þann, að hinn ungi maður telji pólitíska reynslu vera til óþurftar, og þá væntanlega vegna þess að þeir, sem hana hafa „staðni gagnvart nýjum hugmyndum og aðferð- um.“ Engin ástæða er að ætla, að þessi hugsanagangur sé tak- markaður við unga Framsóknar- menn eina. Óróleiki ungs fólks víðsvegar um lönd nú kemur einmitt af þessu, að því finnst hinir eldri vera staðnaðir gagn- vart nýjum hugmyndum og að- ferðum. Þessi tilfinning er raun- ar ekki áður óþekkt nútíma fyrir bæri. Hún hefur löngum verið fyrir hendi og lýst sér í andstöðu kynslóða á milli. Engan veginn skal þó véfengt, að sú andstæða sé meiri, eða sýnist vera meiri, nú en oft áður. Orðin voru Mussolínis Miklar andstæður hafa oft verið áður. Nýlega bar það t.d. við í háskóla einum, að ræðumað ur fékk sérstakt klapp og ákafar undirtektir, þegar hann án þess að vitna í höfund tók sterkléga til orða um nauðsynina á fram- sækinni æsku gegn stöðnun hinna eldri. Þegar lengra leið á Laugardagur 19. okt. mál ræðumannsins, varð hins vegar ljóst, að hann hafði leitt tilheyrendur sína í gildru því að með hinum tilvitnuðu orðum hafði hann einmitt lesið upp orð Mussolínis en engan splunkunýj- an boðskap. Lífsreynslan er ein- mitt nauðsynleg til þess að forða mönnurn frá samskonar gönu- hlaupum sem leitt hafa til mests ófarnaðar áður, þegar ófyrirleitn ir lýðæsingamenn notuðu sér óeigingirni og góðar hugsanir saklausra æskumanna. Þess vegna er á engu frekar þörf en að sameina ákefð og hugsjónaeld æskulýðsins lífs- reynslu hinna, sem rosknari eru og kunna að varazt faguryrði viðsjálla manna. Óhreina barnið? Ungir og gamlir ættu að geta sæzt á það, að því fer jafn fjarri, að æskan sé til lýta á nokkrum manni eins og a'ð lífsreynsluna eigi að leggja nokkrum til lasts. -Þarna sker eðli hvers og eins úr, hvernig honum notast af æsku sinni á annan veginn og lífsreynslu á hinn. Viðbúfð er, að í þessum efnum verði ætíð einhverjir árekstrar og skoðanamunur. Því ber að taka með ró, án þess að halda að það sé í fyrsta skipti í veraldar- sögunni, sem slík vandamál ber að höndum. Hitt er athyglisvert, að þegar hinn ungi Framsóknar- maður talar um lífsreynslu á þann veg, sem hann gerir, þá minnist hann einungis á stjórn- málaandstæðing sinn, en ekki suma aðra, sem þó mætti ætla að stæðu huga hans nær. Þess vegna er e'ðlilegt, að mönnum komi til hugar sagán af Evu og óhreinu börnunum hennar. Hún skammaðist sín fyrir að láta nokkurn sjá þau, en fyrir bragð ið breyttust þau í álfa eða huldu fólk. Á sama veg fer formanni ungra Framsóknarmanna. Af hverju minnist hann ekki á hinar öldnu kempur í sínu eigin liði? Af hverju þegir hann um þá mikilsvirtu þingmenn Framsókn ar, sem hefur hlotnazt það traust að sitja á þingi nærri heilum áratug lengur en Bjarni Bene- diktsson? Af hverju vitnar hann í lengd ráðherradóms hans eins, en hliðrar sér hjá að nefna þann, sem lengst allra íslendinga hefur gegnt ráðherraembætti? Víst er, að allir Framsóknar- menn eru ekki á þetta sáttir. Allra sízt Eysteinn Jónsson. Hann notaði þá stutta stund, sem hann birtist í fréttatíma sjón- varpsins nú í vikunni, til að rifja það upp, að hann hefur verið öllum öðrum lengur ráð- herra hér á landi, eða í 19 ár, að því er hann sagði. Eðlilegt er að Eysteinn kæri siig ekki um, að þetta gleymist. Hann vill ekki, að með sig sé farið eins og óhreinu börnin hennar Evu og unir því ekki, að vera talinn í hópi álfa eða huldumanna. 19 ára ráðherradómur og 35 ára þingmennska koma ekki af því, a’ð flokksmenn Eysteins Jónsson- ar hafi hingað til skammast sín fyrir hann, heldur af því að þeir hafa metið hann sem einn sinn ágætasta mann, eins og hann vissulega er. Þá lætur það einnig kynlega í eyrum, að sjálfur for- maður þingflokks Framsóknar skuli ekki talinn meðal „fjögurra æðstu manna Framsóknarflokks- ins“, þeirra, er þingsetu hafa. Af hverjii er reynt að fela Evstein? Eysteinn Jónsson er áreiðan- lega alls ekki sjálfur á því að láta skjóta sér undan eða vera hafður í felum. Hann grípur þvert á móti hvent tækifæri til þess að birtast sem talsmaður flokks síns. Svo var t.d. í sjón- varpsþætti með Gylfa Þ. Gísla- syni á dögunurri og í fréttum sjónvarpsins í þessari viku. En orð og framkoma Eysteins Jóns- sonar í þessi skipti kunna a'ð gefa nokkra skýringu á viðleitni hans ungu flokksmanna. í Bandaríkjunum er það helzt haft á móti Richard Nixon, for- setaefni Repúblikana, að hann tali tungum tveim. Þess vegna fjölyrða menn um hinn nýja og gamla Nixon. Hinn gamli Nixon er sagður hafa verið hrekkjóttur og út undir sig, kallaður „tricky Dick“, „Rikki bragðarefur", en hinn nýi Nixon talinn að sama skapi ábyrgur og aðgætinn. Ýmsum hefur þótt þetta með öfugum hætti um Eystein Jóns- son. Áður fyrri hafi hann verið ábyrgur og tillögugóður en nú sé oftast á honum allur annar svip- ur. Þess vegna höfðu menn orð á Þegar menn heyrðu þetta og önnur ummæli Eysteins Jónsson- ar nú, minntust áreiðanlega sum ir a.m.k. þeirra, sem lífsreynslu hafa, ummæla hins gamla Ey- steins, er hann viðhafði í athuga semdum vi'ð fjárlagafrumvarpið, sem hann lagði fyrir þingið haust ið 1957. Þar segir m.a.: „Ríkistekjur hafa, það sem af er árinu, brugðizt verulega frá því, sem Alþingi áætlaði þær í f jár- lögum þessa árs. Er því sam- kvæmt þessari reynslu sýnt, að ekki er hægt að áætla tekjur næsta árs jafnhátt og gert er á gildandi fjárlögum. Ríkisútgjöld samkv. gildandi lögum hækka árlega, og gripið hefur verið til aukinna nfður- greiðslna á vöruverði innanlands, til þess að halda verðlagi niðri, Ríkisútgjöld á fjárlagafrumvarp- inu verða því óhjákvæmilega hærri en á gildandi fjárlögum, þótt nokkuð sé dregið úr fjár- festingarútgjöldum og staðið fast gegn útþenslu á starfrækslukostn aði ríkisins. Þessar ráðstafanir valda því, að fjárlagafrumvarpið fyrir 1958 er nú lagt fram með miklum grei'ðsluhalla. Samkvæmt stjórnarskrá ber að leggja fram fjárlagafrumvarpið í upphafi Alþingis. Ríkisstjórnin telur sér engan veginn fært að ákveða það, án náins sam§tarfs þið þingflokka þá, sem hana styðja, hvernig leysa skuli þann vanda, sem við blasir í efnahagsmálum landsins, þ. á m. hvemig mæta skuli þeim mikla halla, sem fram kemur á f j árlagaf rumvarpinu. Ríkisstjórnin hefur ekkert tæki færi haft til þess að ráðgazt við stuðningsflokka sína á Alþingi um fjárlagafrumvarpið né við- horfið í efnahagsmálunum eins og það er nú eftir reynsluna á þessu ári. Þess vegna er fjárlagafrumvarp fð lagt fram með greiðsluhallan- um, en ríkisstjórnin mun, í sam- ráði við stuðningsflokka sína á Alþingi, taka ákvarðanir um það á hvern hátt tryggð verði af- greiðsla greiðsluhallalausra fjár- laga. Niðurstöður frumvarpsins gefa á hinn bóginn glöggt til kynná, að slíkt er ekki auðvelt viðfangs efni“. Beri menn nú saman það, sem Eysteinn segir þarna við orð hans og kröfur nú. Hið vægasta, sem sagt verður um þann samanburð er, að Eysteinn ,geri allt aðrar og meiri kröfur til annarra en sjálfs sín, og vilji alls ekki láta aðra njóta neins af sinni lífsreynslu. Út af fyrir sig er skiljanlegt, þegar forustumað- urinn fer þannig a'ð, að þá meti ekki fylgismennirnir, allra sízt hinir ungu, lífsreynsluna mikils.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.