Morgunblaðið - 20.10.1968, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 20.10.1968, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 196« Bryn nauðsyn er: Að bæta gæði útflutningsafurðanna ségir Bergsteinn Á. Bergsteinsson, fiskmatsstjóri í viðtali við Mbl. UMRÆÐUR írm afkomu fisk- veiSa og fiskiðnaðar hafa sjald- an verið meira á dagskrá, en undanfarana mánuði. Mbl. átti nú nýlega viðtal við Bergstein Á. Bergsteinsson, fiskmatstjóra, þar eð í umræðum um framan- greint, er ekki úr vegi að taka alvarlega til athugunar, hver kostnaður við öflun hans sé t.d. með tUliti til mismunandi veið- arfæra og annarra atriða. Berg- steinn sagði: — Að mínum dómi eru þessi tvö atriði veigamikil fyrir af- komu fiskveiða og fiskiðnaðar. Fiskafurðir eru metnar til út- flutnings í mismamandi gæða- flokka, og hlutfallstala þessara gæðaflokka til útflutnings er þá hin rétta mynd af því hver séu hin raunverulegu gæði hinnar íslenzku framleiðslu. Gæða- flokkunin er byggð á ára- tuga reynslu við yiðskiptaþjóð- ir okkar, svo að útkoma þeirr- ar gæðaflokkunar verður að teljast réttur dómur á heildar- gæði framleiðslunnar. Samkvæmt langri reynslu er fiskframleiðsla til útflutnings, sem ætluð er til manneldis, flokkuð í þrjá til fjóra gæða- flokka eftir atvikum. í>að get- ur því verið um að ræða 1., 2., 3. og 4. gæðaflokk. I>ví meira sem við höfum af betri gæða- flokkum, því betri aðstöðu og hærra verð fáum við á mörkuð- um erlendis. Með betri gæðum náum við líka sambandi við bá kaupendur og neytendur, sem spyrja fyrst og fremst um gæði en ekki verð. — Hvernig skiptist útflutn- ingsverðmætið í flokka? — Ef gera ætti þessari spurn- ingu skil að fullu yrðu upplýs- ingarnar alit of yfirgripsmiklar, en hlutföll gæðaflokka á þorski og síld. ættu að gefa nokkuð góða mynd af ástandinu. Þessi tafla hér er frá árinu 1966 og að mínum dómi hafa þau hlut- föll ekki batnað síðan: Tegund framleiðslu: TiL skýringar við töfluna er rétt að geta þess, að viðkom- andi frystum þorski eru neyt- endapakkningar taldar 1. flokk- ur, nema óhapp komi til. Hins vegar eru „vinnslupakkningar" (blokkir) taldar til 2. flokks af því að við framleiðslu á þorsk- blokkum ér venjulega notaður sá þorskur, sem hefur það sund- urlaust hold, að hann telst ekki hæfur í neytendapakkningar, þótt hann sé efnislega óskemmd ur. Slíkur fiskur myndi því heldur ekki vera 1. flokks fisk- Hlutföll gæðaflokka: Nr. Skreið (þorskur): Fryst síld Meðaltal % I II III IV 51,45% 44,90% 3,65% = 100% 47,99% 24,26% 19,49% 8,26% = 100% 2,26% ,16,27% 24,9*8% 56,49% = 100% 72,14% 18,20% 9,66% = 100% 43,46% 25,91% 14,45% 16,18% — 100% ■ I «5. ' , . | | CAMEL FILTER CAMEL REGULAR AUÐVITAÐ CAMEL CAMEL CAMEL CAMEL ur við aðrar verkunaraðferðir. — Hverjar eru ástæður fyrir því að ástandið er svona? — Fyrir þjóð, sem byggir af- komu sína á sjávarafurðum í jafn miklum mæli og íslend- ingar, verður þessi hlutfallstala gæðaflokka að teljast alvöru- mál og er það raunar algjör- lega óviðunandj verði hún það ekki. Til þess að svara spurn- ingunni verður að taka hverjar veiðar út af fyrir sig og athuga þær nokkru nánar. Við netaveiðar hamla oft vél- . arbilanir, veður, veikindi skips- hafnar eða aðrar ástæður því að t.d. þorsknet séu dregin úr sjó daglega. Geta þau því oft og tíðum legið um tíma í sjón- um. Þegar þau eru svo dregin eftir mismunandi langa legu í sjó er fiskurinn oft lélegur eða má að hluta til teljast ónýt vara. Engar hömlur eru á notkun þessara veiðarfæra mið- að við árstíðir og hefur það í för með sér að yfir þá mánuði ársins, sem sjósókn er hættuleg- ust og erfiðust liggja netin lenigur í sjó. Þá er það orðið algengt, sé talið „tregfiski", að sjómenn hafi þá aðferð að vitja neta t.d. annan hvern dag, og til munu vera reglur um að veiðiskip skuli ekki hafa fleiri en 90 net í sjó eða svokallaðar 6 trossur, þar sem hver trossa hefur 15 net. Þegar líður á vertíð mun ekki óalgengt að fiskiskip leggi í sjó 10 til 15 tross-ur í einu, sem engin skipshöfn getur ann- að á einum degi, auk þess sem hér er um algera sóun veiðar- færa að ræða. — En línufiskur. Er hann ekki ljósi punkiturinn? — Jú, veiðar með línu eru mjög hagstæðar fyrir alla fisk- verkun, einkum vegna góðra gæða fisksins og minni maign- breytinga frá degi til dags. Það virðist ekkert vandamál, að verðmunur á línu- og neta- veiddum fiski er þó ekki næg- ur. Togveiðarnar ihafa hins veg- ar reynzt hagstæðar frystiiðn- aði, einkum vegna fjölbreytni í fisktegundum, en þó sérstak- lega vegna jafnveiði. Ennfrem- ur vegna þess að togbátar eru jafnan með sín veiðarfæri inn-, anborðs, þegar þeir eru ekki að veiðum, svo að jafnan er vitað um væntanlegan afla þeirra til AUTAF FJÖLGAR V01KSWAGEN Volkswagen varahlutir tryggja Volkswagen gæði með Volkswagen fagmönnum HEKLA hfl

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.