Morgunblaðið - 20.10.1968, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. OKTOBER 1968
hættu, jafnvel með tvenna vetl-
inga.
— Hendurnar á þér eru vit-
anlega dýrmætari, sagði Jill og
leit um leið á löngu, liðugu fing-
urna, sem voru orðnir sólbrennd
ir. — Þú verður nú að koma aft-
ur í spítalann þinn jafngóður. Og
enn er nægur tími handa þér til
að finna eitthvað merkilegt, er
það ekki? Svo hélt hún áfram:
— Hún Sandra sagði mér frá
öllu í gærkvöldi. Ég vona, að
þið verðið bæði afskaplega ham-
ingjusöm.
— Þakka þér fyrir Jill.
Varðstu hissa?
— Það má nú svara því bæði
neitandi og játandi, sagði hún.
— Það er að segja, það var al-
veg greinilegt, að þið Sandra
höfðuð áhuga hvort á öðru frá
fyrstu byrjun, og hún hefur oft
talað vel um þig við mig. En
einhvernveginn datt mér aldrei í
hug, að hún færi neitt að binda
sig svona fljótt. Ekki svona
strax. En samt er ég nú viss um,
að innst inni, þráir hún að setj-
ast að um kyrrt, jafnvel þó hún
sé stundum að segja, að sig langi
ekkert til neins annars en vera
frjáls og skemmta sér og hafa
karlmenn til að snúast í kring-
um sig. Hún gekk aftur á bak og
athugaði borðin. — Jæja þá er
víst allt tilbúið. Hvenær ætlið
þið að opinbera, Oliver? Eða ætl
ið þið kannski að halda því
leyndu?
— Alls ekki. Við ætlum ein-
mitt að tilkynna forvitnum Fall-
owmanleiðangrinum tíðindin við
kvöldverð í kvöld. Þá verða all-
ir samankomnir.
— Við gætum haldið þetta eitt
hvað hátiðlegt, sagði Jill. Ég
gæti bakað stóra köku í dag og
búið til pappírsblóm, og svo höf
um við þessi digru rauðu kerti,
sem við eigum til vara^ ef raf-
magnið skyldi bila.
— Þetta er fallega hugsað af
þér, en ég held að við sleppum
því samt. Þetta er vinnuhópur,
sem heldur sig að sínu verki.
Ég held, að hún Enid myndi al-
veg springa í loft upp af svona
tímaeyðslu, og ég held að prófess
orinn yrði ekkert hrifinn af því
heldur. Nei, við skulum bara til-
kynna það og gleyma því síðan.
Ástarævintýrin verða að bíða
þangað til við erum komin aftur
til siðmenningarinnar.
— Það var leiðinlegt, andvarp
aði Jill. — Ég hefði haft gaman
af svolítilli veizlu, svona til til
breytingar. En ég skil þiig vel.
— Þegar við erum komin úr
eyðimörkinni, höldum við al-
mennilega veizlu, Jill. Og þar
skalt þú verða heiðursgestur en
'ekki uppþvottakona, því lofa ég
þér.
— Já, þá skulum við halda
trúlofunarveizlu. Ég veit, að
hún Sandra hefði gaman af því.
Hún nýtur sín fyrst til fullnustu
þegar allir eru kátir og í há-
tíðaskapi.
Nú fór fólkið að koma. Jill
var á þeytingi að þjóna því,
fyllti könnur og föt og hlustaði
á glefsur af samtalinu, ^ftir föng
um. Svo virtist sem verkið væri
í góðum gangi. Enid Cater ljóm
aði öll, og jafnvel gullna hárið
á henni skein bjartar og andlit
ið var mýkra og með meiri á-
nægjusvip en Jill hafði séð það
áður. Fyrir Enid var starfið eins
og goð á stalli, dáð og friðhei-
lagt og þarfir þess gengu fyrir
öllu öðru. Jill tók eftir því, að
hún var að tala við Graham,
með höndina á öxl hans, er hún
lagði áherzlu á eitthvert mikil-
vægt atriði. Hvað skyldi nú Gra
ham hugsa þegar trúlofunin yrði
opinberuð?
Ýmislegt fleira fannst siðdeg-
is þennan dag og spenning-
NAfJCY-bækurnar eru eftirlætis-
bækur allra ungra stúlkna. —
■ HÚSSTJÓRNARBÓKIN
sparar yður tíma og peninga.
Jóna bjargar vinum sínum heitir
nýja bókin um Jónu. — En nýja
PÉTUR MOST-bókin heitir Pétur
stýrimaður. — Spennandi bók.
PINGOUIN-prjónagarn
Nýkomið mikið urval af gami og munstrum.
Hannyrðaverzlun Þyrí Hólm,
Hafnargötu 15, Keflavík.
PINGOUINprjónagarn
Mýkomið mikið úrval af garni og munstrum.
Verzlúíiin HOF,
Hafnarstræti 7, Reykjavík.
Sunnudagur 20. október
KVÖLDVERÐUR
Réttir þessir eru matreiddir af
austurrískum matreiðslumeistara er
mun dvelja hér um tíma og matreiða
fjölbreytta rétti ýmissa þjóða.
Olla Podrida
(spönsk grænmetissúpa)
—0—
Escalope de Renn Mirza Se. Poirrade
(hreindýrakjötsréttur)
—0—
Cótes de pork a la Tyrolienne
(svinak j ötsr éttur)
—0—
Cogau Vin
( kj úklingaréttur )
—0—
Coupe Espaignole
—0—
Sérréttir:
Bouillabaisse a la Marseillaise
(frönsk fiskisúpa)
—0—
Paélla Valenciana
(spánskur réttur)
—0—
Hirtenspies
(kjötréttur hjarðmannsins)
— B.jóddu ömmu góðan daginn aður en þú kastar þér á kara-
mellupokann.
urinn komst á hámark. Þegar
dimmdi voru stóru boglamparn-
ir settir í samband við rafal-
inn, til þess að geta haldið verk-
inu áfram klukkustundinni leng
ur en venjulega. Jill fór og skoð
aði bakkana sem stóðu á hellis-
gólfinu, fullir af allskonar ó-
hreinum og illþekkjanlegum hlut
um.
— Við erum áreiðanlega kom-
in að aðalmúrnum, sagði frú
Fallowman við hana. Þetta virð
ist vera úr einhverju efni, sem
líktist steinsteypu. Merkilegt,
finnst yður ekki?
Jill jánkaði því. En þegar
hún kom út aftur með Davíð,
sem hafði líka verið að skoða
þetta, spurði hún, hvað frúin
hefði eiginlega átt við.
— Þau eru búin að finna must
erisbygginguna, góða mín. Hún
hlýtur að hafa staðið þarna
uppi á hæðinni. En svo hrundi
hún í jarðskjálfta og grjót og
hraun rann yfir hana, svo að
hún fór alveg í kaf. Svo seig
þetta saman eftir því sem ald-
irnar Jiðu og varð að þessu
klettanefi. En sem betur fór var
þarna sprunga, sem smávíkkaði
og varð að helli, og því komust
þau að rústunum.
— En ekki geta þau rutt
klettanefinu burt og grafið upp
musterið?
— Nei, en þau geta náð í alla
lausa muni, sem í musterinu
voru. Og þegar búið er að rann-
saka þá, er fyrst hægt að segja,
hvernig þessi gamli Khalidan-
heimur hefur verið. Og það
verður mikill uppsláttur fyrir
þennan leiðangur. Þessvegna
eru þau öll að verða vitlaus.
Viltu bara sjá hana Enid þarna.
Hún er alveg að springa af
monti.
Christie læknir heyrði eitt-
hvað af því sem Davíð var að
segja.
— Já, þessi áhugi hennar á
verkinu er næstum sjúklegur,
sagði hann.
— Svona mikill áhugi er ekki
hollur, ekki sízt fyrir konu á
hennar aldri.
— Hún slær sér nú talsvert
upp á þessu, sagði Davíð.
— Kann að vera, sagði lækn-
irinn. — Sjálfur er ég nú bara
2«. OKTÓBER.
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
Næg eru verkefnin sem bíða, gakktu bara vel frá. Fáirðu
einhverjar fáránlegar rugmyndir, er ekki svo fráleitt að hag-
nýta þær. Hafðu ættingjana gjarnan með í ráðum.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Það er eitt og annað í fari þínu, sem mætti betur fara, svo
að þú skalt hefjast handa með lagfæringarnar strax. Lestu mik-
ið og farðu snemma í rúmið, svo að undirmeðvitundin nái að
fylgjast með.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní.
Þú skalt gjarnan sinna tómstundaiðju og skemmtistörfum. Þú
getur heimsótt vini þína. Það er langt síðan þú hefur átt svona
skemmtilegan dag.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
Staðfestu áform fjölskyldunnar. Gestir færa þér góðar fréttir.
Farðu út í kvöld, en snemma í rúmið.
Ljónið 23. júll — 22. ágúst.
Þú hefur reynst trúr, og vekur það mikla ánægju. Notaðu
andlegt atgerfi þitt út í æsar, farðu vel í smáatriðin.
Meyjan 23. ágúst — 22. september.
Gerðu ráð fyrir smávonbrigðum. Einhverjum er ekki sama
um góðgerðarstarsfemi þína. Sökktu þér niður í lesturinn, sem
þú hefur ætlað að fást við, en ekki haft tíma til.
Vogin 23. september — 22. október.
Gestirnir gáfu eða gefa meir en þeir þiggja, ef þú tekur með
í reikninginn, hvað græðzt getur andlega á þeim. Ekki er rétt
að meta allt til fjár.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember.
í dag skeður eitthvað skemmtilegt. Annað hvort færðu góða
gesti, eða heimsækir. sjálfur skemmtilegt fólk. Andleg málefni
þrífast vel. Farðu eftir hugboði og gerðu þér grein fyrir því,
hvað þú sleppur við.
Bogamaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
Reyndu að komast að einhverju, það margborgar sig. Hreyfðu
ur þig eitthvað, og farðu snemma I rúmið, það verður erfiður dag-
ur á morgun.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
Þér vinnast verkin vel í dag. Reyndu að gera þér dagskrá
til að vinna eftir. Þetta verður góður dagur.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar.
Þetta verður andlega erfiður dagur. Legðu áherzlu á samninga
við fjölskylduna og tengdafólk. Byrjaðu að skipuleggja áfram.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz.
Styddu kirkjuna þtna á einihvern hátt í dag. Athugaðu svo
þinn gang, framtíðarhorfur og eigurnar. Útkoman ætti aC vera
þér meir en lítið gleðiefni. Hvíldu þig og lestu í kvöld.