Alþýðublaðið - 25.07.1920, Síða 1
Greíið tít aí Alþýðnflokknum
1920
Mánudaginn 25. júlí
168. tölubi.
€rknð simskeyti.
Khöfn 24. júií.
Pólvorjar beiðast vopnahlés.
Símar er frá Warschau, að
Pólland hafi beðið bolsivfka um
vopnahlé.
Pýzkaland hlutlanst.
Símað frá Berlín, að Þýzkaland
hafi lýst yfir hlutleysi sínu í
stríðinu milli Póiverja og Rússa.
Bela Kun.
Símað frá Berlín, að Ungverja*
’iand og Sovjet-Rússland krefjist
bæði að Þýzkalaud framselji Bela
Kun. [Ungverjaland til þess að
lífláta hann, en Rússland til að
hafa hann í hávegum]. Málið
óútkljáð.
Erassin bannaður aðgangur að
Englandi.
Krassin er kominn til Stokk-
/hólms og er honum bannað að
kotna til fíngiands, vegna afstöðu
ibolsivíka ti! Póliands.
Khöfn 25. júlf.
Bndainenn veita Pólverjum lið!
Símað er frá London, að Þýzka-
iand sé því andvígt, að banda-
menn flytji her yfir Þýzkaiand til
Póllands. (Er svo að sjá af þessu,
að bandamenn vilji veita Pólverj-
um lið.)
Oiíusamningar Breta ogFrakka.
Sfmað frá London, að samning-
ar hafi nú tekist með Bretum og
Frökkum um oifuna, ná þeir til
oiíulinda uru alian heim.
Litháar og bolsivíkar.
Símað er frá Kovno, að Lithá
sé iýst í umsátursástandi vegna
athafna boisivíka þar í landi.
Ásælni Gfrikkja.
Símað frá Aþenu, að Grikkir
haldi áfram hernaði sínum í Þrakíu.
fiskhringnrinn.
— Frh.
Hringur nr. 2.
Hringur sá er kaupir verkaða
fiskinn og flytur út til Spánar, er
firmaskráður, og áður er getið
hvaða herrar eru í honum, En svo
eru önnur samtök, sem ekki verða
beinlínis kölluð hringur (trust)
heldur samlag (cartell). Og þetta
samlag kaupir fiskinn óverkaðan.
Þeir hafa ekki firmaskráð félag,
en í samtökum þessum eru aliir
sömu mennirnir sem eru f hringn-
um. Þannig er hringurinn kominn
alveg að veiðinni. Ekki nóg með
að hann kaupi fiskinn verkaðan
til útflutnings, heidur upp úr sjónum.
Takmark flskhringsins.
Ætlun eigenda hringsins með
því að koma sölunni tii útlanda
og kaupunum hér innaniands á
eina hendi er:
x. Sprengja upp verðið á Spáni.
2. halda verðinu niðri hér á ís-
Iandi.
3. að flytja flskinn á eigin skip-
um eftir þörf til Spánar á mark-
aðinn, til þess að hafa ekki birgð-
ir liggjandi þar sökum þess að
bæði er hætta á að fiskurinn
skemrnist þar, og að það hafi
áhrif á fiskverðið ef birgðirnar
liggja þar.
- Þessar aðfarir hrings þessa sanna
að það er rétt sem jafnaðarmenn
halda fram, að atvinnureksturinn
hljóti að færast á færri hendur.
Hin frjálsa samkepni er þegar
horfin úr sögunni á þessu sviði.
Það sem hefir unnist er stórat-
vinnurekstur (í þessu falli verzlun)
fram yfir smáan, og hann getur
haldið uppi verði afurðanna.
Ea arðurinn rennur bara í vasa
„hriugormanna“ í staðinn fyrir að
renna í vasa þjóðarinnar sjálfrar.
En ekki nóg með það. Væri
þjóðarrekstur á fiskverzlun Iands-
ins myndi engum detta f hug að
kosta 5% upp á Copland og þann
spanslca, stjórn fslenzku fiskisöl-
unnar mundi selja spönsku stjóra-
inni milliliðalaust.
Sú hliðin á hringnum, seni
snertir verðhækkun útávið væri
þó þolanleg með eftirliti stjórnvald-
anna, ef ekki væri þegar stofnaður
Hringur nr. 3
á Spáni. íslenzki hringurinn setti
svo hátt verð á fisk þann er hantt
flutti til Spánar í fyrra, að gróða-
ffkn eigenda hringsins varð þess
valdandi að spanskir fiskikaup-
menn stofnuðu hring til þess a&
vinna á móti íslenzka hringnum.
Hugsar sá hringur sér að skáka
f þvf skjólinu að íslenzki hringur-
inn á geysimikið af fiski liggjandi
á Spáni. Reikna Spánverjarnir
þannig að Islendingar fari varta
að flytja sinn fisk heim aftur og
að þeir séu því neyddir til að
selja þeim fiskinn fyrir hvað lágt
verð sem er.
Það verður einnig að athugast
í þessu sambandi, að Norðmenn,
sem eru nær einu keppinautar
vorir á þessti sviði, hafa í ár
fiskað fyrir 50 miljónir kr. við
Lofoten á móti 5 milj. í fyrra.
Má vel vera að Spanski hringur-
inn hafi fisk Norðmanna á bak
við eyrað, þótt ekki sé eins góð
vara og vor fiskur. En það eitt
er víst, að mikið af fiskinum frá
f fyrra liggur ennþá óseit á Spáoi
fyrir aðgerðir hringsins. Þetta
bindur aftur tugi miljóna í bönk-
unum, hefir iækkandi áhrif á gengi
krónunnar. Það er nú öllum kunn-
ugt orðið að peningavandræði
vor stafa af aðgerðum sfldar-
spekúlantanna og fiskihringsins og
að nokkru en litlu ieyti kjötsölu-
Sláturfélags Suðurlands o. fl. fé-
laga. Af peningavandræðunurri
stafar svo aftur húsnæðiseklan
hér í Reykjavík o. fl. og það
m. a., sem mest er tjónið að, að
framleið'slan í landinu verður að
minka, en það er auðvita stór-
kostlega viðsjárverður hlutur og
ófyrirsjáanlegt hverjar afleiðingac
slíkt getur haft.