Morgunblaðið - 10.01.1969, Side 4

Morgunblaðið - 10.01.1969, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1969. Simi 22 0 22 Rauðarársfíg 31 ::::::::::::: :i . > émJmÁ 1 iííprfíííí 0 % lliiiiiiiii^i. ~ . : ÍÉ liip Hverfisgötu 103. Siml eftir lokun 31160. BILA LEIGfl MAGIMUSAR 4kiphoui21 «mar21190 eftir lokun slmi 40381 * 'BIRGIR ÍSLGUNNARSSON1 HÆSTARÉTTARLOGMAÐUR LÆKJARGÖTU 6B SÍMI22120 Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar púströr o. fl. varahlutir í margar gerðir bifreiða. Bílavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168. . Simi 24180. BfLAlLOTIB & » fij Rafmagnshlutir í Xlestar gcrðir biia. BRISTINN GUÐNASON h.f. Klapparstíg 27. Laugav. 168 Sími 12314 og 21965 Vélapakkningar De Soto BMC — Austin Gipsy Chrysler Buick Chevrolet, flestar tegundir Dodge Bedford, dísil Ford, enskur Ford Taunus GMC Bedford, dísil Thomas Trader Mercedes-Benz, flestar teg Gaz ’59 Pobeda Volkswagen Skoda 1100—1200 Renault Dauphine Þ. Jónsson & Co. Sími 15362 og 19215. Brautarholti 6. £ Sannarlega þörf áskorun Ólafur Stephensen skrifar: Kæri Velvakandi, Það var sannarlega þörf áskor un, sem „einn saddur" sendi öll- um landsmönnum í dálkum þín- um I dag. Ekkert væri æskilegra en að hinum mörgu hjálparstofn unum væri gert kleift að hjálpa þeim sem svelta í Biafra, en því miður hefur hver hindrunin á fætur annarri verið lögð I veg þeirra, sem vilja hjálpa hinum bágstöddu Biafrabúum þegar í stað. Genfarsáttmálinn hefur hvað eftir annað verið þverbrot- inn. Hlutlaus svæði, flugvellir sjúkrahús, flóttamannabúðir og birgðastöðvar merktar Rauða Krossinum hafa orðið fyrir sprengjuárásum, og hlutleysi al-. þjóðanefndar Rauða Krossins ekki verið virt. í júní síðastliðnum hóf Rauði Kross íslands söfnun til kaupa á íslenzkum afurðum til dreifingar meðal sveltandi íbúa Biafra. Söfnunin, sem hafin var fyrir til mæli alþjóða Rauða Krossins, var fyrsta almenna söfnunin fyrir Bi- afra, sem gerð var á Norðurlönd unum. Árangur þessarar söfnun- ar var einstakur. Skreiðargjafir, lýsisgjafir, peningagjafir til kaupa á skreið og undanrennu- dufti, námu samtals um 7 mill- jónum krónia. Rlkisstjómin gaf öll flutningsgjöld og útflutnings- gjöld Islenzku afurðanna til Bi- afra. í júlí og ágústmánuði fóru rúmlega 206 tonn matar óleiðis til Biafra. RKÍ hefur, eins og öll dagblöðin hafa skýrt frá, fengið staðfestingu alþjóða Rauða Kross ins á móttöku þessarar sendingar, og persónulega staðfestingu full- trúa samtakanna I Biafra um dreifingu þeirra meðal bág- staddra £ Halda áfram vopnasendingum Þann 20. desember s.l. höfðu flugvélar Rauða Krossins flogið 643 ferðir með mat og lyf til Biafra. f þessum ferðum var flog ið með samtals 6,038 tonn. Starfs fólk Rauða Krossins hefir þann- ig getað úthlutað matarskammti daglega til 650.000 manns I Bi- afra, og til 800,000 manns á yfir- GRfNSÍSVEH 22-24 »30280-32262 LITAVER % VYMVBA Vinyl - veggfóður B (! Js L tr O Ð S/u/o Skrifstofustólar 13 gerðir enn á gamla verðinu Póstsendum myndir og verðlista. BUSLOÐ HÚSGAGNAVERZLUN VIÐ NÓATÚN — SÍMI 18520 róðasvæðum sambandshersins. Það er hörmuleg staðreynd, að báðir styrjaldaraðilar hafa stað- ið í vegi fyrir því, að hægt sé að hjálpa bágstöddum í landl þeirra. „Vinveittar" rikisstjórnir halda stöðugt áfram vopnasend- ingum til landsins, en á meðan deyja þúsundir af næringarskorti. 0 Gaf 2700 fyrstadags- umslög Skömmu fyrir jólin sendi ís- lenzk kona, búsett I Bandaríkj- unum, Rauða Krossi fslands 2700 tölusett fyrstadagsumslög að gjöf. Gjöfinni fylgdi sú ósk, að Biafra söfnuninni yrði haldið áfram á þann veg, að umslög þessi yrðu seld og ágóðanum varið til kaupa á skreið fyrir börnin, sem svelta í Biafra. Eins og „einn saddur“ veit, þá eru allir með hugann við jólin og jólagjafir, góðan mat og sælgæti, á þessum tlma árs. Sennilega er það þess vegna, að umslögin seldust ekki upp. Væri nú ekki þjóðráð, að „einn“ og „aðrir saddir" tækju höndum saman og stuðluðu að þvl að fyrstadagsumslög R.K.f. seldust upp hið fyrsta, þannig að hægt væri að nota andvirði þeirra til frekari kaupa á Islenzkum af- urðum fyrir bágstadda í Biafra. Með beztu kveðju, Ólafur Stephensen. £ Hvað var Fréttastofan að afsaka? P.M. skrifar: Kæri Velvakandi. Ég var I hópi þeirra, sem fylgd ust með „Reykj avíkurgöngunni" svokölluðu sl. sunnudag. Virtist mér þátttaka I henni lítil, en þar sem mig langaði til að komast sem næst hinu sanna um fjölda þátttakenda, hafði ég tal af lög- reglumanni, sem fylgzt hafði með göngunni og fundinum, og spurði hann um fjölda þátttakenda. Hann sagði mér, að lögreglu- menn hefðu talið göngumenn öðru hverju og einnig kastað tölu á þá, sem á fundinum voru. Sam- kvæmt þeirra tölum hafa þátt- takendur I göngunni verið 3-400 og ekki hefðu verið fleiri á fund inum, nema síður væri. Mér kom því spánskt fyrir, er ég heyrði frásögn af þessari göngu I fréttum Útvarpsins. Þar sagði á þá leið, að því er mig minnir, „að allmargt hefði verið I göngunni, en margt á fundin- um, þrátt fyrir kuldann". Á þessa leið var fréttin, en vænt þætti mér um, Velvakandi, ef þú vild- ir komast eftir því hjá Frétta- stofu Útvarpsins, hvernig þetta var orðað nákvæmlega. Og mér er spum: Hvað var Fréttastofan að afsaka, þegar hún sagði, að margt hefði verið á fundinum, þrátt fyrir kuldann? Vinsamlegast, P.M. Velvakandi vísar spurningum P.M. til Fréttastofunnar og mun góðfúslega gefa henni rúm hér í dálkunum til að birta orðrétt um rædda fréttaklausu. 0 „Þú sem aðra atar saur“ Stefán Rafn, rithöfundur, skrif- ar: Heill og sæll Velvakandi góð- ur. Þó nafn mitt sjáist oft í Morgunblaðinu þá er samt langt síðan ég sendi þér línu síðast og vildi þá byrja á þvi að árna þér og öðrum kunningjum hjá blaðinu ár,s og friðar. Tilefni þess að ég skrifa þenn- an pistil er greinarkom I sendi- bréfsformi til Sigurjóns Sigurðs- sonar, lögreglustjóra, sem birtist í dagblaðinu „Tíminn" laugardag inn 4. janúar s.L Höfundur þess er einhver Stefán Jónsson. — Ég veit að það er ekki Stefán Jóns- son, prentsmiðjustjóri, ekki held ur Stefán Jónsson fréttamað- ur, og þaðan af siður Stefán Jónsson námsstjóri. Hann þekki ég af drenglyndi. — Þessir þrír síðasttöldu nafnar eru heiðurs- menn. En víkjum þá ögn að Tíma- greininni. Það er þá fyrst að Stef- án höfundur Tímagreinarinnar er illa sendibréfsfær. Málvillurn- ar og ambögumar vega salt. Væri honum nær að læra betur móðurmálið, áður en hann geys- ist fram á ritvöllinn næst. Um efni greinarinnar er það að segja, að hún er eitthvert það mesta óhróðursbull og persónuníð sem lengi hefur sézt I íslenzku dagblaði, og er þá nokkuð sagt. Enginn heilvita maður trúir því að götulögreglan berji menn til óbóta, eftir fyrirmælum lög- reglustjóra. Meira prúðmenni til orðs og æðis heldur en Sigurjón lögreglustjóra þekki ég ekki. Enda er hann af góðu fólki kominn. Ég harma það að dagblaðið Tíminn, sem hálfbróðir minn Kristján Benediktsson, kennari og borgarfulltrúi er framkvæmda stjóri fyrir, skuli hafa léð slíkum þvættingi rúm. En vitaskuld skrif ast það á reikning ritstjóranna, Og greinin sjálf eingöngu á reikn ing höfundar síns, — enda hæfir þar skel kjafti. Hér er svo nýort vísa, sem hljóðar þannig: Þú sem aðra atar saur, athuga þig I spegli. Þá sérðu falskan fant og gaur, sem fjandinn geymdi — I legli. Reykjavík á þrettándanum 1969. Stefán Rafn. Stýrimann og 11. vélstjóra vantar á 250 lesta bát til netaveiða. Upplýsingar í síma 8250 Grindavik. Veizlumatur, veizlusalir Utbúum veizlumat og útvegum veizlusali fyrir minni og stærri samkvæmi. KJÖTBÚRIÐ H.F. sími 37140. FÉLAGSHEIMILI FÁKS sími 33679.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.