Morgunblaðið - 10.01.1969, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.01.1969, Blaðsíða 13
MORGUN'RLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1969. 13 ÍSLAND og EFTA I UMRÆÐUM manna á með- al um Fríverzlunarbandalag Evrópu (EFTA) og Efnahags- bandalag Evrópu (EBE) gæt- ir oft þess misskilnings, að þessi tvenn samtök eru lögð að jöfnu og gjarnan litið á EFTA, sem jafn viðamikla stofnun og EBE. Hér er um gjörólík samtök að ræða. í höfuðstöðvum Efnahags- bandalagsins í Briissel starfa um 6000 manns, en í höfuð- stöðvum Fríverzlunarbanda- lagsins í Genf starfa aðeins um 100 manns. Túlkarnir í Briissel eru fleiri en allt starfsliðið í Genf. f því, sem hér fer á eftir verð- ur gerð nokkur grein fyrir skipulagi Fríverzlunarbanda- lagsins og æðstu stofnunum þess og er byggt á upplýsing- um, sem annar af aðstoðar- framkvæmdastjórum EFTA, Syisslendingurinn Alfred Wacker, gaf nokkrum blaða- mönnum frá Evrópulöndum í Genf í byrjun desembermán- aðar. EFTA-ráðið Efta-ráðið er æðsta stofnun Fríverzlunarbandalagsins. Það kemur saman til fundar einu sinni í viku á fimmtudögum. Efta-ráðið getur . ýmist verið skipað ráðherrum eða embættis mönnum. Ráðherrafundir eru haldnir . reglulega tvisvar á, ári, vor o>g haust, til skiptis í aðildar- ríkjum Fríverzlunarbandalags- ins en þess utan er ráðið skipað sendiherrum Eftaiand- anna í Genf. Aðildarríkin hafa öll fastar sendinefndir í Genf, sem raunar fjalla um ýmis fleiri mál en Efta, en hins vegar eru sérstakir fulltrúar í öllum sendinefndunum, sem fjalla eingöngu um málefni Frí- verzlunarbandalagsins. Þessir fulitrúar koma saman á þriðju- degi í viku hverri til þess að undirbúa fundi ráðsins á fiinmtu dögum. Skipt er um formann Efta-ráðsins á 6 mánaða fresti og er farið eftir stafrófsröð land anna um val á formanni hverju sinni. Ákvarðanir Efta-ráðsins eru teknar með tvennum hætti. Ann ars vegar með einróma sam- þykki allra aðildarríkja, hins vegar með meirihluta greiddra atkvæða þ. e. 4 atkvæðum minnst. Ákvarðanir með meiri- hluta atkv. eru aðeins teknar í sérstökum málum en almenna reglan er sú, að samþykki allra þurfi til. í því getur þó falizt, að einhver aðildarríkjanna sitji hjá. Þetta hefur ekki komið fyr- ir hjá Efta en hefur 'hins vegar tíðkazt hjá EBE, þar sem ákvörð un hefur verið tekin með at- kvæði eins aðildarríkis en hin 5 hafa setið hjá. Fyrir nokkr- um árum kom upp ágreinings- mál innan Efta, sem varðaði inn fluttar vörur, sem síðan voro fluttar út aftur, Ljóst var, að ákvörðun varð að taka í þessu máli, en hins vegar jafn aug- Ijóst, að samhljóða atkvæði Skrifstofur EFTA í Genf eru á neðstu hæð þessa stórhýsis. Túlkarnir í Briissel eru fleiri en starfsmennirnir í Genf — Um skipulag og starfsemi Fríverzlunarbandalags Evrópu mundi ekki fást innan E'fta-ráðs ins. Þá samþykkti ráðið, að ef það kæmist ekki að sameigin- legri niðurstöðu innan 6 mánaða mundi það afgreiða málið með meirihluta ákvörðun að þeim tíma liðnum. Svo sem kunnugt er, eru Finn ar aukaaðilar að Efta. Þessi auka aðild er þó lítið meira en orðin tóm vegna þess, að Finnar hafa nákvæmlegá sömu skuldbinding ar og önnur aðildarríki Efta. MuhUrinh er sá einn, að Finnar geta rofið tengslin við Efta inn- an 3ja mánaða en önnur aðildar- ríki innan 12 mánaða. Vegna sér stöðu Finna er hins vegar að nafninu til sérstakt Efta-ráð, sem þeir eru aðilar að en í raun eru allir ráðafundir sameiginleg ir með Finnlandi. Skrifstofa Efta Skrifstofur Fríverzlunarbanda lagsins eru sem fyrr segir í Genf eins og höfuðstöðvar sivo fjöl- margra annarra alþjóðlegra sam taka. Á skrifstofum Efta vinna 95 starfsmenn frá aðalfram- kvæmdastjóra og niður úr. Starfsliðið kemur frá öllum að- ildarríkjum Efta og eru engar reglur um skiptingu starfsmanna milli þjóða. Efta-ráðið kýs aðal- framkvæmdastjóra samtakanna en hann velur síðan að vild að- stoðarmenn sína og annað starfs lið. Aðalframkvæmdastjóri Efta er nú Bretinn Sir John Coulson, gamaireyndur brezkur embættis maður, sem m.a. hefur gegnt sendiherraembætti fyrir land sitt í Svíþjóð. Honum til aðstoð- ar eru tveir aðstoðarfram- kvæmdastjórar og er annar Svíi en hinn Svisslendingur. Þessir þrír æðstu starfsmenn Efta halda daglega fundi til þess að skipuleggja starfsemi skrifstof- unnar. Skrifstofunni er skipt í 6 deildir og tvær sjálfstæðar stofn anir innan höfuðstöðvanna. Deildirnar eru þessar: 1. deild, sem fjallar almennt um stefn- una í viðskiptamálum (Trade Policy) 2. Lagadeild (General and Legal) 3. Efnahagsmála- deild (Economic) 4. deild, sem fjallar um samræmingu á starfseminni og þróunarmál- efni (Cöordination and Dev- elopement) 5. Upplýsinga- deild (Press and Information) og 6. Stjórnunardeild (Administ rative). Loks er svo sérstök skrif stofa fyrir Efta-ráðið og sérstök fjármálastofnun Efta (Finance Service). 1 hverri deild er forstöðumað- ur og sérstakur aðstoðarmaður hans ásamt 2—10 meiriháttar starfsmönnum, auk aðstoðar- fólks. Um helmingur starfs- manna er með háskólamenntun eða aðra sérmenntun, hagfræð- ingar, lögfræðingar o.s.frv., en hinn helmingurinn er aðstoðar- fólk. Hluti starfsliðsins er „lán aður“ frá hverju aðildarríkjanna en ‘hinn hlutinn er ráðinn á hin um almenna vinnumarkaði. Þeg ar sagt er, að hluti starfshðsir.s sé fenginn að „láni“ frá aðild- arríkjunum er átt við það, að t.d. annar aðstoðarframkvæmdastjór inn, Alfred Wacker, er í sviss- nesku utanríkisþjónustunni en hefur fengið leyfi frá störfum þar, meðan hann vinnur hjá Efta en hverfur síðan til utan- ríkisþjónustu lands síns á nýjan leik að loknú þessu starfi. Yfir- leitt starfa menn hjá Efta í 3-4 ár og mest í 5 ár en hverfa síð- an til fyrri starfa. Þessir fyrr- verandi starfsmenn Efta búa yf- ir mikilli þekkingu á málefnum Efta, þegar þeir hverfa til sinna fyrri starfa, og hafa þeir reynzt mikilvægir tengiliðir fyrir aðal skrifstofurnar gagnvart hinum einstöku aðildarríkjum. Aðrir þættir í starfi Efta Þar sem starfslið Efta er svo fámennt, sem raun ber vitni um, rtarfa fjölmargar nefndir og vinnuhópar á vegum samtalc- anna. Munu um 60—70 slíkar nefndir og hópar starfandi nú. Þessar nefndir starfa á þann veg, að sérfræðingar frá hinum ein- stöku aðildarríkjum koma sam- an til fundar og með þeim starfa 2- 3 starfsmenn skrifstofunnar í Genf. Þeir starfsmenn flytja •'íðan fastaráðinu skýrslu um störf viðkomandi nefnda, þannig að Efta-ráðið fylgist stöðugt með því starfi, sem unnið er á veg- um nefndanna, og getur tekið ákvarðanir á grundvelli þess. Nefndirnar starfa skv. sérstöku umboði en hinar þýðingarmestu eru nefnd sérfræðinga í við- skiptamálum og nefnd um tolla- mál. Fundir þingmanna Efta-land- anna Þingmenn frá Efta-löndunum 1'ramtial ! á bls. Z'\ ÞEIRRA ríkja, er ekki teljasit með öllu í flokki vanþróaðra, munu íslendingar einna hastar- legast ofurseldir einhæfni sinni. Og eins og allir vita, þjakar þetta ástand okkur nú mjög, og meðal annars vegna þess, að á mörgum sviðum, og oft að á- stæðulausu hefur verið frá því horfið að þjóðin „búi að sínu svo sem skynsamlegt er, og einn ig tíðkast með öllum háþróuðum þjóðum. Þetta nýja v andamál, gæti leitt til fullkomins vand- ræðaástands í fiskleysis og haf ísárum, og er verðlækkanir á heimsmarkaði dynja yfir okkur fyrirvaralaust, eins og m? hefur gerzt. Það kann ýmsum að Þykja barnalegt að tala um þessa ó- gæfu, eins og líkt hefði aldrei yfir okkur dunið, en í reynd höfum við ekki átt því óláni að venjast, með þvílíkum regin- þunga, né verið jafn vanbúnir að mæta því. Hér gæti verið yá fyrir dyrum, jafnvel á þessu ári, ef t.d. „landsins forni fjandi“, legðist með ofurþunga sínum um landið. Ég held því að einmitt núna sé rétta stundin, mér liggur við að segja komið að elleftu stundu að einbeita vilja allra hug- kvæmrá og þjóðho'llra fslend- inga að þessum málum, og að þeir setjist á ráðstefnur, eða leggist undir feld, hver í sínu fleti, að hugleiða, hvað til ráða sé, að mæta hugsanlegri efna- hagskreppu, atvinnuleysi og öðr- um ytri vanda, ásamt tilheyrandi upplausn og óáran í sálarlífinu. Safna þarf uppástungum ráð- snjallra manna, og blöðin að birta ritgerðir, þar sem fjallað væri af raunsæi um þetta þjóð- arvandamál, en ekki sem einka- má'l eða úrlausnarefni eins flokks eða trúfélags, heldur of- ar hagsmunum einstakra manna og flokka. Ekki er þörf að endurtaka, að aðalorsök vandamála okkar er fá breytni atvinnuveganna, þó ó- ljóst sé enn að nokkru hvað í þeim orðum felst. En mestur hluti viðskipta okkar, er við aðrar, meira og minna ókunnar þjóðir, í viðskiptalegu tilliti. Enn sem komið er, sárfátt ann- arra útflutningsvara en fiskaf- urða um að ræða. Aðrar þjóðir skifta nær eingöngu við sjálfa sig, út og innflutningur aðeins lítið brot af neyzlunni. Þetta þarf að breytast hér ef vand- ann á að leysa. En gjaldeyrir sem sparast við það að varan er framleidd í landinu sjálfu, í stað þess að kaupa hana erlend- is frá, er jafnmikils virði, og í vissum skilningi verðmeiri. Ekki má í gjaldeyrisöfluninni einblína á verðmæti útfluttrar vöru, held ur og engu. síður það, sem næst með því að framleiða vöruna í landinu. í þessu greinarkorni verður aðeins minnst á tvennt: aukna neyzlu landbúnaðar og sjávar- afurða í landinu sjálfu og skó'la og þjóðbúninga. Óþarft er að fara um það mörgum orðum, að hér er á ýms- um sviðum um fullkomna of- neyzlu að ræða, glysgirni og græðgi, sem beinllínis er ógeð- feldur löstur með þjóðinni hin síðari árin, og er þar ekki ein- vörðungu um óþarfa að ræða, heldur kornvörur, sykurvörur og allskonar lyf ásamt töluverðu magni fiskafurða, landbúnaðar- vara, einkum ótaldar tegundir af grænmeti, sælgæti og kaffi- brauði. Mætti án efa í staðinn auka neyzlu fisks og land- búnaðarvara, og hefja þarf at- hugun á því, með hverjum hætti þessu mætti breyta öllum til á- vinnings. Mér finnst t.d. vel athugandi að gefa spítölum, uppeldisstofn- unum og öðrum opinberum aðil- um tækifæri til að kaupa það kjöt, sem nú er flutt út og veru- legur hlutinn greiddur úr ríkis- ■ sjóði. Þannig mætti án efa auka 1 til muna kjötneyzlu, og sjálfsagt meira en það. sem þessum út- flutningi nemur. Og hvað segja læknarnir um þjóðarlyf íslend- j inga, Þorska- og upsalýsið. Gæti það ekki komið í sfaðinn fyrir geigvænlegt magn af rándýrum pillum, sem haugað er inn í land- i ið, og sumt af því ekki ákaf- lega þarfur varningur, að sagt er. Mjög varhugavert held ég að sé, að láta framleiðslu landbún- j aðarvara dragast verulega sam- • an, og ef sjá á um að ávallt sé til J yfirfljótanlegt magn af þessum nauðsynjum í 'landinu, mun tæp j 'ega önnur leið fær, en að tryggja með einhverjum hætti ! örugga sölu svokallaðrar um- framframleiðslu þeirra að vissu 1 marki. En umfram allt að finna I leið til að auka sölu þeirra á Framhald á bls. 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.