Morgunblaðið - 10.01.1969, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1969.
Ég sá barnshönd standa
upp úr múrsteinshrúgu"
Kraftaverk bjargaði 18 mánaða barni er Boeingþota rakst á
hús við Gatwickflugvöll — Lýsingar sjónarvotta
ALL.T MEB
SVO sem kunnugt er af
fréttum fórst Boeing 727
þota frá flugfélaginu Ari-
ana Afgan Airlines við Gat
wickflugvöll í London fyr-
ir nokkrum dögum. 63
manns voru um borð og fór
ust fimmtíu manns er vél-
in lenti fyrst á trjám og
síðan íbúðarhúsi. í „Tim-
es“ frá 6. janúar er greint
ítarlega frá slysinu og til-
drögum þess, og er hér að
mestu stuðst við það, sem
„Times“ sagði þá um mál-
ið.
Flugstjóri þotunnar ákvað
að freista lendingar á Gat-
wickflugvelli eftir að honum
hafði verið tilkynnit af flug-
turninum, að skyggni á braut
um Gatwick væri aðeins 100
metrar, að því er flugmála-
yfirvöldin sögðu opinberlega.
Flugmálayfirvöld segja, að þot
an hafi komið að Gatwick-
flugvelli kl. 2.35 um nótt og
veðri og aðstæðum svo lýst:
„50 metra skyggni almennt,
frostþoka og 100 metra skyggni
meðfram flugbrautinni.1
„Þessum upptýsingúm var
komið til flugvélarinnar“ seg
ir í hinni opinberu tilkynn-
ingu, og flugstjórinn kaus að
reyna aðflug að brautinni og
gaf til kynna, að ef hann yrði
að „yfirskjóta" brautina,
myndi hann snúa til Heat-
hrow-flugvallar.
Brezk vél hefði ekki reynt
Flugmálasérfræðingur Tim-
es segir: „Ef Boeing þotan
hefði lent á Gatwickvelli, þá
hefði hún orðið fyrsta flugvél
in, sem þar lenti frá því á
laugardagskvöld, er þoka lagð
ist yfir brautirnar. Aðrar flug
vélar sem ætlað var að lenda
á Gatwick á laugardagskvöld
og sunnudagsmorgun sneru til
annarra flugvalla.
Flugumferðarstjórar loka
ekki flugvöllum í slæmu veðri
en segja flugmönnum frá því,
hvert skyggnið er, og láta
þeim eftir ákvörðunina um
lendingu.
Sérhvert flugfélag hefur sín
ar eigin reglur varðandi lág-
marksskyggni í lendingum. Ör
uggt má telja, að engin brezk
flugvél hefði reynt að lenda
í Gatwick ef skyggni framá-
við er undir 1800 fetum (um
300 m.).
Vera kann, að kassi með
skemmdri segulbandsupptöku
sem fannst í flugvélarbrak-
inu, kunni að hjálpa rann-
sóknarmönnum við að komast
að niðurstöðum um slys þetta.
Flugvélin, sem var á venju
legu áætlunarflugi frá Kabul
um Frankfurt til London, var
með 54 farþega og níu manna
áhöfn. Farþegarnir voru flest
ir Indverjar, búsettir í Eng-
landi, sem voru að koma heim
úr leyfum. Þrjú börn voru
meðal þeirra.
Sneitt af trjám og reykháf
John Roper segizt svo frá:
„Það var á 400 metra langri
logandi vítisbraut, sem lá um
tvo akra, að 50 manns biðu
bana. Hjól þotunnar sneiddu
toppinn af 10 metra háu tré .
á 'lóð húss við Peeps Brokk
Lane í Horley, sömuleiðis hluta
af skorsteininum og brutu
rúðu.
Fimmtíu metra frá þessum
stað varð upphaf ógæfunnar
ljósara. Mörg sver tré voru
brotin í um 5 metra hæð. Hlut
ar úr flugvélinni þeyttust frá
henni, og hún sjálf skall lík-
lega niður á akur og þeytt-
ist þaðan á hús William
Jones hjónanna, sem létuzt,
en Beverly, 18 mánaða gömul
dóttir þeirra, lifði ósköpin af.
Hún var flutt í sjúkrahús en
mun aðeins hafa hlotið óveru
legar skrámur.
Vélin mun fyrst hafa hitt
bílskúrinn. Þar gjöreyðilögð-
ust tveir bílar og olíutankur.
Afturhluti hinnar stóru þotu,
brotnaði frá henni, og lagðist
húsið sjálft, sem var tveggja
hæða múrsteinshús í rúst.
Stjórnklefinn og framhluti far
þegarýmis, nam loks staðar
50 metrum frá húsinu eftir að
hafa skilið eftir sig slóð málm
ins, þeirra á meðal flugstjór-
inn.
Lögregla, slökkvilið og
sjúkrabílar voru komnir á vett
vang eftir örfáar mínútur.
Keith Simmons, lögregluþjónn
24 ára gamall fékk tíðindin
um talstöð eftirlitsbíls síns og
var ásamt samstarfsmanni sín
um kominn á staðinn eftir eina
eða tvær mínútur.
Kraftaverkið
Er hann stóð á rústum húss
Þessi mynd sýnir Beverly litlu Jones, sem lifði af slysið í
fangi móður sinar, Anne. Myndina tók faðirinn, William, er
Beverly var 16 mánaða. Joneshjónin fórust bæði, en krafta-
verk bjargaði Beverly litlu.
hluta og annars braks. í þess
um helmingi þotunnar voru
þeir, sem af komust, 18 tals-
Hér stóð hús þriggja manna fjölskyldu, og var tvær hæðir. Þetta er það
og í þessari múrsteina- og brakhrúgu fannst stúlkubarn á lífi. Barnastóll
fremst.
sem eftir stendur
Beverly litlu sést
ins, fölur af skelfingu, sagði
hann: „Ég heyrði grát, sem
mér heyrðist vera barnsgrát-
ur. Einn af hreyflum þotunn-
ar lá í miðri rúst hússins.
álelda. Um tvo metra frá sá
ég barnshönd standa upp úr
múrsteinshrúgu, og sömuleiðis
leifar brotins barnsrúms. Rúm
ið var þakið múrsteinum og
heill gluggakarmur lá ofan á
öllu saman. Það var hann, er
e.t.v. bjargaði barninu.
Aðstoðarmaður minn var að
draga mann í burtu frá brak
inu. Fætur mannsins voru al-
elda. Ég heyrði sprengingar
al'lt umhverfis. Mér tókst að
ná barninu út úr hrúgunni,
og koma því í sjúkrabíl".
Um tvo metra frá þeim
stað, er Simmons lögreglu-
þjónn ræddi við fréttamann-
inn, lá brunninn og svartur
hreyfili þotunnar eins og
skrímsli sitjandi á rústum
hússins. Skammt frá lá brúða,
og innan um svart og sviðið
brakið lá barnaþvottur, tand-
urhreinn. Á milli tveggja múr
sfeina var klemmd barna-
hringla og allt umhverfis voru
leifar þess, sem eitt sinn til-
heyrði heimilislífinu í þessu
húsi; slitinn hægindastóll,
hrúga af tímaritum, prjóna-
dót, skór, hluti af sófa og
barnsstóll.
10 metra frá lá svartur og
Framhald á bls. 23.
EIMSKIP
Á næstunni ferma skip voi
tii fslands, sem hér segir:
ANTWERPEN
Skógafoss 13. janúar
Reykjafoss 20. janúar
Skógafoss 30. janúar *
Reykjafoss 10. febrúar.
ROTTERDAM
Skógafoss 14. janúar
Reykjafoss 21. janúar
Skógafoss 31. janúar *
Dettifoss 7. febrúar.
Reykjafoss 1'2. febrúar.
HAMBORG
Skógafoss 16. janúar
Reykjafoss 24. janúar
Hofsjökull 27. janúar.
Skógafoss 3. febrúar *
Dettifoss 10. febrúar.
Reykjafoss 15. febrúar.
LONDON
Askja 14. janúar
Mánafoss 24. janúar
Askja 3. febrúar *
HULL
Askja 16. janúar
Mánafoss 27. janúar
Askja 6. febrúar *
LEITH
Askja 18. janúar
Mánafoss 29. janúar
Askja 8. febrúar *
GAUTABORG
Laxfoss 23. janúar
Tungufoss 6. febrúar *
KAUPMANNAHÖFN
Gullfoss 18. janúar.
Laxfoss 24. janúar
Gullfoss 1. febrúar
Tungufoss 7. febrúar *
Gullfoss 15. febrúar
KRISTIANSAND
Laxfoss 22. janúar
Tungufoss 4. febrúar *
GDYNIA
Fjallfoss 10. janúar
Fjallfoss 4. febrúar.
KOTKA
Fjallfoss 31. janúar *
VENTSPILS
Fjallfoss 2. febrúar.
* Skipið losar í Reykja
vík, ísafirði, Akureyri
og Húsavík.
Skip, sem ekki eru merkl
með stjörnu. losa aðeins i
S Rvík.
\ s
ALLT MEÐ
EIMSKIP