Morgunblaðið - 10.01.1969, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1969.
„Þaö er góður andi í liðinu
og við stefnum að sigri“
— sögðu landsliðsmennimir sem keppa
við heimsmeistarana á sunnudaginn
'LOKAÞÁTTUR undirbúnings ís-
lenzku landsliðsmannanna í hand
knattleik stendur nú yfir. i gær
lék íiðið æfingaleik við KR, og
á æfingunni hittum við fjóra af
köppunum og fengum þá til að
ræða Iítillega við okkur um átök
'in sem fram undan eru. Allir
voru þeir bjartsýnir á úrslitin,
'en sýndist nokkuð sitt hverjum
um hvort úrslitin í Svíþjóð væri
okkur í hag eða óhag. AUir lands
’liðsmennirnir voru á æfingunni
'að einum undanskildum, Ingólfi
Óskarssyni fyrirliða liðsins, sem
legið hefur í flensunni að und-
'anförnu, en er á batavegi. Standa
Vonir til að hann geti verið með
á sunnudaginn.
Sigurður Einarsson, Fram, var
nýstiginn upp úr flensunni, og
sagðist alls ekki vera búinn að
jafna sig enn'þá. — Vonandi verð
ég þó búinn að jafna mig á sunnu
daginn, sagði Sigurður, — því
Svíttr
unnu
17:14
í GÆRKVÖLDI fór fram
landsleikur milli Tékka og
Svía í handknattleik í Gauta-
borg. Svíamir sigruðu — skor
uðu 17 mörk gegn 14.
Tékkneska liðið er hið sama
og hingað kemur og leikur hér
á sunnudag og þriðjudag.
ekki mun af veita að maður sé
í fullu fjöri. Þetta verður erfið
ur leikur. Úrslitin í Svíþjóð
breyta engu um það að Tékkar
eru engir aukvisar. Annars eru
þau úrslit að ýmsu leyti slæm
fyrir okkur, þar sem allir gera
miklu meiri kröfur til þess að
við vinnum leikinn, eftir þau.
Ég er bjartsýnn á að þetta geti
orðið góður, jafn og skemmtileg-
ur leikur og takizt okkur vel upp,
þá eigum við að vinna hann.
Geir Hallsteinsson, FH aagði:
Mér lýst mjög vel á horfurnar.
Ef dæmt er eftir úrslitum leika-
ins í Svíþjóð, þá ættum við að
vinna þessi átök. Æfingasókn hef
ur verið með miklum ágætum og
andinn í liðinu er góður. Þá er
þáttur Hilmars, landsliðsþjálfara,
ekki lítiU. Við höfum verið að
æfa upp fjórar leikaðferðir, sem
við komum til með að reyrta á
móti Tékkunum. Vonandi heppn
ast þær vel hjá okkur, þótt senni
iega finni jafn leikvanir menn
og þeir eru fljótlega svör við
þeim.
— Já, ég hef spilað á móti flest
um þessum mönnum áður, bæði
í leik á móti Dukla og lands-
liðinu. Hættulegustu mennirnir
þeirra, eru að mínum dómi Duda
og Mares og nú munu þeir komn
ir með nýjan, mjög góðan leik-
mann. Ég álít íslenzka landslið-
ið heilsteyptara nú en oft áður,
og því ættu möguleikar á sigri
að vera allgóðir.
Hjalti Einarsson, leifcur nú sinn
26. landsleik. Hann sagði að æf-
ingamar hefðu verið mjög
stembnar. — Þó er aldrei æft
um of, bætti hann við brosandi.
Leikurinn verður örugglega erf-
iður. Þeir töpuðu reyndar fyrir
Svíum, en við megum ekki
gleyma því að Svíar eru mjög
góðir handboltamenn.
— Jú, þeir hafa miklar og góð
ar skyttur, en ég vona bara
að þeir verði ekki mjög heppnir
á sunnudiaginn.
— Við eigum alltaf möguleika
á sigri, og við reynum að berj-
ast til sigurs. Ég held líka að
það sé nauðsynlegt fyrir okkur
'að álíta að sigurmöguleikar séu
fyrir hendi. Það hressir upp á
móralinn.
Nýliðinn í landsliðinu Bjami
Jónsson, sagðist hafa verið í senn
undrandi og ánæg'ður, þegar
hann fékk fréttina um að hann
hefði verið valinn í landsliðið.
— Þetta var auðvitað það sem
maður hefur stefnt að, sagði
hann, — og nú er að spjara sig.
Ég reikna með því að ég verði
taugaóstyrkur til að byrja með,
en vonandi verður það ekki til
baga. Ég er búinn að æfa með
landsliðinu frá í haust og er
mjög ánægur með hvað æfing-
amar hafa verið vel sóttar og
andinn góður. Ég vona bara að
æfingunum verði haldið áfram í
sumar.
— Sigurmöguleikar? — Jú,
vissulega eru þeir fyrir hendi,
og víst er að við gerum okkar
bezta.
A5 kynnast golfi
9KOZKI golfþjálfarinn Norman
Wood tók til starfa hjá Golf-
klúbb Reykjavíkur í gær. Þétt-
skipað var í alla tíma og svo er
L/ð/n valin fyrir
sunnudaginn
ÆFINGALEIKIR KSÍ verða um
næstu helgi einis og áður hefur
verið auglýst. Til viðbótar kem-
ur leikurinn sem niður féll á
sunnudaginn milli liðsins og Vesl
mannaeyinga og verði flugveður
til Eyja á laugardag fer „lands-
liðið“ þangað þá og leikur eftir
sem áður sinn leik á sunnudag-
inn sem ákveðinn er gegn Ak-
’urnesingum þar efra kl. 2.
Liðið hefur verið valið fyrir
leikinn gegn Vestmannaeyingum
— og breytist ekki ef sá leikur
fellur niður vegna samgönguleys
is. Það er þannig skipað:
Þorbergur Atlason, Fram.
Jóhann Atlason, Fram.
Þorsteinn Friðþjófsson, Val.
Halldór Björnsson KR.
Guðni Kjartansson, Keflavík.
Ársæll Kjartansson, KR.
Hreinn Elliðason, Fram.
Þórólfur Beck, KR.
Hermann Gunnarsson, Val.
Eyleifur Hafsteinsson, KR.
Helgi Númason, Fram.
Varamenn eru Guðmundur Pét
ursson, KR, Sigurður Albertsson,
Keflavík, Reynir Jónsson, Val og
Ingvar Elíasson, Val.
Unglingalandsliðið leikur á
sunnudaginn gegn 2. deildar liði
Breiðabliks. Liðið hefur enn
ekki verið ákveðið vegna veik-
indaforfalla, en verður væntan-
lega tilkynnt í blaðinu á morg-
un.
Islendingurinn vann
EINS og skýrt var frá hér á síð-
unni fóru íslenzkir þjálfarar i
knattspyrnu til Danmerkur og
sóttu þar námskeið þjálfara.
Einn liður námskeiðsins „í
gamni og alvöru“ var á þann
hátt að þátttakendur voru spurð
ir hvernig þeir myndu stilla upp
liði sínu gegn tiltekinni sóknar-
aðferð.
örn Steinsen þjálfari unglinga-
landsliðs íslands sendi sitt svar
og hljóðaði það upp á þá leik-
aðferð sem ísl. unglingalandslið-
ið lék gegn Norðurlandaliðun-
um hér sl. sumar. Flestir muna
'hve frábæra leiki unglingaliðið
'átti.
En það er einnig ánægjulegt að
svar Arnar Steinsens hlaut 1.
verðlaun á þessum vettvangi.
- NU FYRST
Framhald af bls. 20
ir erlendan markað. Þetta er
svona að komaist í gang. Þorsk-
lifrin og hrognin fara á marað
í Tékkóslóvakíu og Frakklandi og
ef til vill í Vestur-Þýzkalandi.
Það er víða markaður fyrir þorsk
lifrina.
Það er ekki hægt að segja
anmað en að samkeppnisaðstað-
an fyrir útflutning hefur batn-
að við síðustu gengisbreytingu.
Aginn hertur í Evrópu
KNATTSPYRNUMENN sem
ráðast með írafári að dómara
eða upphefja slagsmál á leik-
vellinum geta átt það á hættu
að verða útilokaðir frá
keppni fyrir lífstíð, segir í
tilkynningu frá alþjóðasam-
bandi knattspyrnumanna. Til-
kynningin er liður í baráttu
sambandsins fyrir betri og
skemmtilegri knattspyrnu.
Tilkynnt er að hegning fyr
ir brot verði æ þyngra refsað
eftir því sem brot er oftar
framið og tilkynnt er um á-
kveðin atriði sem þegar eru í
gildi talin. Þannig getur sá
leikmaður sem vísað er af
velli í leik sem gildir milli
„Evrópuliða" ekki tekið þátt í
næsta leik með liði sinu í
sömu keppni. Og hendi það
Ieikmanninn að brjóta af sér
aftur þannig að dómarinn visi
honum öðru sinni út af velli,
þá má hann ekki leika næstu
tvo leiki með liði sínu í Ev-
rópukeppni.
Leikmaður sem hefur í hót-
unum við dómara eða línu-
verði eða mótmælir með orð-
um dómum þeirra fær ekki
að leika næstu tvo Ieiki með
liði sínu. Endurtaki hann
slíka hegðun á leikvelli er
hann brottdæmdur í 4 leiki.
Ef leikmaður er sendur af
velli fyrir að hafa móðgað
eða ráðizt á dómara eða línu
vörð á hann það á hættu að
vera útilokaður frá Evrópu-
leik junum allan sinn feril.
Ef lið fer af leikvelli eða
neitar að halda áfram leik get
ur það átt á hættu að verða
útilokað frá þátttöku í keppni
um Evrópubikarana um alla
eilífð.
marga daga, en kennsla Woods
hefur líkað svo vel að margir
segja, að betri þjlálfari hafi ekki
til landsins komið. Hér er Wood
að kenna Valgerði Guðmunds-
dóttur en hún var að kynnast
golfi í fyrsta sinn í þessum tíma.
Gísli Theódórsson forstjóri hjá
Matvælaiðjunni h.f. á Bildudal
sagði eftirfarandi um ástandið
hjá þeim vestra:
— Rækjuvinnslan var stöðvuð
15. des. sl. samkvæmt nýju reglu
gerðinni um það, en hún segir að
rækjuveiði skuli liggja niðri á
tímabilinu 15. des. — 15. jan.
Hefst því veiðin aftur værrt-
anlega um miðjan mánuð. Við
höfum aðallega soðið niður græn
meti að undanförnu og sjóðum
niður sex teguindir.
— Um 30—40 manns hafa unn-
ið í verksmiðjunni að staðaldri,
en um miðjan mánuð fara 8 eða
9 rækjubátar á veiðar fyrir verk
smiðjuna, en hverjum bát er
leyfilegt að veiða 600 kg. af
rækju á dag.
— Við flytjum megnið út af
rækjunni. Aðallega til Bretlands.
Rækjan er núna mest seld í plaat
pokum. Við gerum ráð fyrir að
útflutningur okkar af rækju á
þessari vertíð verði ekki undir
100 tonnum, en vertíðinni lýkur
1. maí n.k. Útflutningsverðmæti
þessara 100 tonna verða væntan-
lega á milli 17 og 18 milljónir
róna. Matvælaiðjan hefur ver-
ið aðalaitvinnugrundvöllur Bíl-
dælinga að undanförnu, en inn-
an tíðar fer Hraðfrystihúsið af
stað aftur og þá er spurning um
hvort að mannafli verður næg-
ur til þess að sinna því sem sinna
barf.
— Fjárhagsgrundvöllurinn til
útflutnings afurðanna hefur batn
að mikið eftir síðustu gengis-
breytingu, en nýtt rækjuve/ lígj
ur ekki fyrir ennþá.