Morgunblaðið - 19.01.1969, Page 24

Morgunblaðið - 19.01.1969, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1969 vinsamlega bendingu, hvað hana Joy snertir, sagði Joe. — Taktu ekkert mark á því, sem þessi kjaftaskur segir, greip Benny fram í. — Þú ert ágæt- og kannt að meðhöndla fólk, og það er meira en hægt er að segja um þessa montnu og for- skrúfuðu ljósku. Og ef þú lítur á hana með öðrum eins grimmd- arsvip og á mig núna, þá hræð- 'rðu hana svo, að hún fær aftur sinn eðlilega lit. En nú skulum við fara að gefa á jötuna fyrir mannskapinn. Erum við tilbúin? Ég skal sjá um pylsurnar og þú um fleskið. Á svipstundu voru allir bakk arnir tilbúnir til að bera þá fram, og Lísatók tvo í einu, gekk síðan lengst fram eftir, en Joe kom á eftir henni með te- og kaffikönnurnar, svo að far- þegarnir gætu valið um. Benny varð eftir í eldhúsinu að ganga frá seinustu bökkun- um. Flestir farþegarnir voru bún- ir að þvo sig og snyrta og voru með ánægjusvip, en nokkrir voru þó kyrrir undir teppunum sínum og afþökkuðu bakka sem þeim voru boðnir. Þegar Lísa kom til litlu dökk hærðu konunnar, sem hafði verið svo vesæl um nóttina, varð hún hissa að finna hana málaða og brosandi. - Þetta var fríð kona á austurlenzka vísu, með ofurlítið bogið nef og ekki lengur sér- lega ung. En við nánari athug- un virtist hún enn eitthvað á- hyggjufull. — Góðan daginn frú. Gengur það ekki betur? Má bjóða yður ofurlítinn morgunverð? Þetta tíndi Lísa út úr sér á frönsku. — Bara ofurlítið kaffi, þakka yður fyrir, svaraði konan og brosti blíðlega. Nú kom að kon unni að snerta við kinninni á Lísu og segja: — Þakka yður Ldtbragðsskóli LÁTBRAGÐSKEKLA fyrir börn 7—12 ára og ungl- inga hefsit í Lindarbæ í næstu viku. Upplýsingar og innritun í síma 21931 kl. 3—5 í dag og næstu daga. Teng Gee Sigurðsson. kærlega fyrir, stúlka mín. Nú er ég orðin skárri. Áður en lent var í Damask- us, en þangað ætlaði hún, þessi frönskumælandi kona vera orð- in alveg jafngóð. Hún var vel búin og snyrt með mikið af skartgripum á unliðum og brjósti, og talaði nú fjörlega við sendimann ríkisins. Hún var í svo áköfum sam- ræðum, að hún varð næstsíðust að fara út, og áður en hún fór leitaði hún Lísu uppi í eldhús- inu, skýrði nú frá því hikandi og svo vesældarleg, að Lísa hélt að hún ætlaði að fara að gráta, að nýfædda barnið hennar hefði dáið í London, en þangað hefði hún þurft að fara vegna erfiðr ar fæðingar. Þessvegna væri hún svona aum. En nú væri þetta afstaðið og hún tekin að hressast. Maðurinn hennar og hin börnin myndu bíða hennar með óþreyju í Damaskus. Og hann myndi lengi syrgja barn- ið sem dó. — Það var drengur, skiljið þér, og við eigum þrjár stúlk- ur fyrir. Svona er lífið. Það leik- 10 ur ekki alltaf við mann! Svo vaggaði hún burt á pinna hælunum og beint í fangið á gildum manni kringluleitum. Lísa hugsaði með sér, að vafalaust mundi hún reyna að friðþægja við eiginmanninn og gera aðra tilraun. Flugvélin tæmdist og hrein- gerningamennirnir tóku að tín- ast um borð. Lísu fannst það einkennilegt, að flugstjórinn, sem hafði verið svo vingjarnleg ur við hana, skyldi þjóta frá borði án þess að kveðja — en ^ ÁLFTAMÝKI 7 LÓMAHÚSIÐ simi 83070 Opið alla daga öll kvöld og um helgar. Blómin, sem þér hafið ánægju af að gefa, fáið þér í Blóma- húsinu. UTSALA Allt oð 70°/o afsláttur Kjólar — kápur síðbuxur — buxnadragtir pils — apaskinnsjakkar — greiðslusloppar margir lifir, allar stærðir. Nú er tækifærib að eignast góðan fatnað á gjafverði Bílastæði við búðardyrnar. Tízkuverzlunin uönm Rauðarárstíg 1. — Sími 15077. þá birtist hann allt í einu aftur með stjórnarsendimanninum og tveim sýrlenzkum drengjum. Ný sjálendingurinn taldi alla ó- hreinu strigapokana, sem voru líkastir því sem óhreinn þvott- ur væri í þeim, og bar saman við skrá sem sendimaðurinn hafði meðferðis, og drengirnir skelltu þeim upp í skrautlegan bíl, sem beið fyrir neðan. Þegar Peter Fraser hafði séð á eftir pokunum í skottið á bíln um, kom hann í loftköstum um borð aftur og sagði: — Jæja, þá er maður laus við eitthvað af þessu drasli, sem er að þykjast vera ríkisleyndarmál. Það er enginn friður fyrir þessum ó- þverra. Ég er nýbúinn að fá boð þér vel. Æ, það var alveg satt. Hann roðnaði og dró upp eilt- verndargripur, sagði hann og hvað úr vasa sínum. — Þetta átt þú — það er þrýsti einhverju loðnu í hönd hennar. Svo veifaði hann hendi og var þotinn. Eins og tryppi á vor- degi, niður landbrúna. Þjónarn ir komu um borð í sama bili, svo að Lísa varð að stiriga þessu loðna í vasa sia v. Það var ekki fyrr en hún kom í gistihúsið að gista vegna vélarb lunar, að Basra, þar sem þau urðu óvænt henni datt það i hug aftur. En svo athugaði hún það og bjóst við að finna kanínulöpp eða þá fiðrildislirfu, en þá fann hún í staðinn ofurlítinn Koala- björn. Hann var vel gerður, úr ósviknu loðskinni og hvort- tveggja í senn skrítinn og snilld arvel gerður. Hann var ekki glæ nýr heldur leit hann miklu frem ur út fyrir að hafa verið bor- inn í vasa og handfjatlaður tals vert. Jafnvel örsmáa hálsbandið á honum var ofurlítið slitið. Hún kyssti ósjálfrátt litla flata trýnið, sneri höfðinu til beggja hliða og setti hann svo á borð- ið. Hvað haifði komið Nýsjálend- ingnum til að fara að gefa henni hlut, sem var sýnilega dýrmætur verndargripur? hugsaði hún með sér. Hún hafði áreiðanlega gam- an af þessu og það kom henni til að hugsa til hans. Var það kannski tilgangur hans með þessu? Hún skyldi vissulega hafa hann með sér á flugferð- um sínum. Hann hafði sagt, að hann færði hamingju. Og það hafði hún fulla þörf fyrir. Lausl starf Starf deildarfulltrúa í borgarbókhaldi er laust til um- sóknar. Æskilegt er að umsækjandi hafi viðskipta- fræðipróf eða áþekka menntun. Umsóknir sendist skrifstofu borgarstjóra, Austurstræti 16, fyrir 24. janúar 1969. 19. JANÚAR Hrúturinn 31. marz — 19. apríl Sinntu venjulegum sunnudagsstörfum og hvílstu síðan. Nautið 20. apríl — 20. maí Gefðu einhver jum greiða ... án endurgjalds. Tvíburarnir 21. maí —20. júní Bezt er að tala hreint út, til að valda ekki misskilningi. Krabbinn 21. júnf — 22. júlí Þegar þú hefur lokið skylduverkunum, skaltu vinna afrek i bréfaskriftum. Ljónið 23. júlí — 22. ágúst Haltu friðinn, hvað sem það kostar. Hlustaðu vel á maka þinn, Meyjan 23. ágúst — 22. september Að loknum störfum, skaltu hvila þig og hugsa málið. Vogin 23. september — 22. október Það kostar misskilning að blanda sér í mál, sem manni koma ekki við, þótt kallað sé á fólk til ráðagerða! Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember Fástu ekki við viðgerðir, nema þú sért þaulvanur. Varastu slysin. Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. de„ember Reyndu að hugsa ráð þitt vandlega, þótt allir vilji ráðleggja þér. Steingeitin 22. desember — 19. janúar Mikil áherzla er lögð á fjölskyldumálin. Taktu misskilningi með þolinmæði, þvi að hann lagast fljótt. Haltu þér við létt störf. Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar Allt fer vel, og hvildin er holL Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz Vertu ekki að þeysa neitt. Vertu á þínum stað. Farðu varlega! rJ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.