Morgunblaðið - 13.02.1969, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. FERRÚAR 1969.
Undirbúningur að verkefnum
frjálsíþróttafólks hafinn
stjórn F.R.Í. skrifar íþróttafólki
og hvetur til œfinga —
STJÓRN Frjálsíþróttasambands
tslands hefur nú hafið undirbún-
ing þeirra verkefna sem fram-
undan eru hjá íslenzku frjáls-
íþróttafólki næsta sumar. Ber
þar hæst landskeppni er fram
fer í Danmörku, Norðurlanda-
meistaramótið í tugþraut,
Evrópumeistaramótið og auk
þess er ætlunin að frjálsíþrótta-
fólk fari í keppnisferðir og taki
þátt í mótum, sem FRÍ er boðið
að senda þátttakendur til.
Hefur stjóm FRÍ nú sent 50
körlum og tæplega 40 konum
bréf, þar sem m.a. segir, að ár-
angur viðkomandi hafi vakið
athygli stjómarinnar, og hún
vonist til að róðurinn verði hert-
ur fyrir næsta keppnistímabil.
Stjóm FRÍ hefur í hyggju að
gefa nokkmm íþróttamönnum
og konum kost á dvöl í æfinga-
miðstöð ÍSf að Laugarvatni viku
fyrir Meistaramót íslands, sem
mun verða haldið á Laugarvatni
síðustu helgi júlí-mánaðar.
Þá gefur stjórn FRÍ þeim sem
ekki eiga kost á leiðsögn þjálf-
ara að hafa samband við Guð-
mund Þórarinsson (pósthólf 1099
Reykjavík) og mun hann veita
viðkomandi þá tilsögn, sem ósk-
að er eftir bréflega.
Vonandi er ,að frjálsíþrótta-
Sundmól ÍR
SUNDMÓT ÍR verður haldið 27.
febrúar í Sundhöll Reykjavíkur
kl. 8.30. Keppt verður í þessum
gTeinum: 100 m fjórs. kvenna,
100 m skriðsundi karla, 100 m
baksundi stúlkna f. 1953 og síðar,
50 m bringusundi pilta 12 ára og
yngri, 200 m bringusundi karla,
100 m flugsundi karla, 200 m
bringusundi kvenna, 100 m skrið
sundi kvenna, 100 m skriðsundi
sveina f. 1955, 100 m bringu-
sundi drengja f. 1953, 4x100 m
fjórsundi kvenna, 4x100 m fjór-
sundi karla.
Þátttaka tilkynnist til Ólafs
Guðmiundss., Sundhöll Reykja-
víkur, eða í gíma 50953, fyrir
25. febrúar.
[seldur
FYRIR
23 milljónir
LUNDÚNAFÉLAGIÐ Totten-
ham Hotspur hefur fest kaup
á útherjanum Roger Morgan
frá nágrannafélaginu Queensí
Park Rangers fyrir 110 þús. /
pund, eða rúmlega 23 milljón 1
ir króna. Morgan, seim er að-1
eins tuttugu og eins árs, kost- (
aði QPR ekki neitt, því hann?
kom til félagsins ásamt tví- J
burabróður sínum, Ian, þegar 1
þeir voru aðeins 15 ára skóla-i
drengir. Roger hefur leikið l
í unglingalandsliði Englands 7
(yngri en 18). Tottenham hef-1
ur verið eitt af litríkustu \
knattspyrnufélögum Englandsl
undanfarna tvo óratugi, en er /
nú „aðeins" í 8. sæti í fyrstu 7
deild og hefur fallið í skugg-1
ann fyrir nágrannafélaginu (
Arsenal, Liverpool, Everton /
og Leeds á þessu leiktknabili /
og framkvæmdastjóriinn Bill 1
Nicholson er sannfærður um i
að Morgan muni blása nýju í
lítfi í framlínu félagsins. /
fólk bregðist vel við áskorun
stjómar FRÍ og hefji æfingar
fyrir sumarið, því að það em sí-
gild sannindi að æfing skapar
meistarann.
Eftirtöldu íþróttafólki hefur
stjórn FRÍ nú skrifað:
50 MANNA I.ANDSLIB:
Valbjörn Þorláksson, KR,
Jón Benónýsson, HSÞ,
Reynir Hjartarson, ÍBA,
Gissur Tryggvason, HSH,
Þorvaldur Benediktsson, ÍBV,
Bjarni Stefánsson, KR,
Guðmundur Jónsson, HSK,
Þórarinn Ragnarsson, KR,
Sigurður Jónsson, HSK,
Jón Þ. Ólafsson, ÍR,
Páll Dagbjartsson, HSÞ,
Guðbjartur Gunnarsson, HSH,
Trausti Sveinbjörnsson, UMSK,
Karl Stefánsson, UMSK,
Sigurður Hjörleifsson, HSH,
Þorsteinn Þorsteinsson, KR,
Gestur Þorsteinsson, UMSS,
Finnbjörn Finnbjömsson, ÍR,
Höskuldur Þráinsson, HSÞ,
Elías Sveinsson, ÍR,
Jóhann Friðgeirsosn, UMSE,
Rúdolf Adolfsson, Á,
Friðrik Þór Óskarsson, ÍR,
Haukur Sveinsson, KR,
Erlendur Valdimarsson, ÍR,
Páll Eiríksson, KR,
Ólafur Þorsteinsson, KR,
Þórarinn Arnórsson, ÍR,
Lárus Guðmundsson, USAH,
Halldór Guðbjörnsson, KR,
Þórður Guðmundsson, UMSK,
Stefán Jóhannsson, Á,
Sigurður Lárusson, Á,
örn Agnarsson, UÍA,
Jón ívarsson, HSK,
Jón H. Sigurðsson, HSK,
Þórir Snorrason, UMSE,
Marteinn Sigurgeirsson, HSK,
Sigvaldi Júlíusson, UMSE,
Gunnar Kristinsson, HSÞ,
Gunnar Snorrason, UMSK,
Þórir Bjarnason, UÍA,
Sigfús Jónsson, ÍR,
Rúnar Ragnarsson, UMSB,
Vilhjálmur Ingi Árnason. ÍBA,
Hróðmar Helgason, Á,
Halldór Matthíasson, ÍBA,
Halldór Jónsson, ÍBA,
Agnar Levý, KR,
Bergþór Halldórsson, HSK,
Dónald Jóhannesson, UMSK,
Halldór Jónasson, HSH,
Hreiðar Júlíusson, ÍR,
Ólafur Guðmundsson, KR,
Sigurður Friðriksson, HSÞ,
Sigurður Viðar Sigmundsson, UMSE,
Kjartan Guðjónsson, ÍR,
Skúli Amarson, ÍR,
Þorvaldur Jónasson, KR,
Bjarni Guðmundsson, USVH,
Haukur Ingibergsson, HSÞ,
Pétur Pétursson, HSS,
Guðmundur Jóhannesson, HSH,
Guðmundur Guðmundsson, UMSS,
Guðjón Magnússon, ÍR,
Guðmundur Hermannsson, KR,
Jón Pétursson, HSH,
Sigurjón Hjörleifsson, HSH,
Hallgrímur Jónsson, HSÞ,
Arnar Guðmundsson, KR,
Þorsteinn Alfreðsson, UMSK,
Erling Jóhannesson, HSH,
Guðni Sigfússon, Á,
Jón H. Magnússon, ÍR,
Guðmundur Hallgrímsson, HSÞ,
Sigmundur Hermundsson, ÍR,
Björgvin Hólm, ÍR,
Magnús Þór Sigmundsson,- ÍS,
Friðfinnur Finnbogason, ÍBV,
Óskar Sigurpálsson, A.
KONl’R:
Kristín Jónsdóttir, UMSK,
Þuríður Jónsdóttir, HSK,
Björk Ingimundardóttir, UMSB,
Kristín Þorbergsdóttir, HSÞ,
f GÆR var lagt fram á Alþingi
stjórnarfrumvarp um innlheimtu
ýmissa gjalda með viðauka. Ger-
ir frumvarpið ráð fyrir að inn-
heimta tiltekin gjöld á árinu
1969 með sömu viðaukum og ver
ið hefur undantfarin ár.
Þá var lagt fram stjórnörfrum-
varp um heimild til llántöku
vegna Vestfjarðaáætlunar og
Norðurlandsáætlunar. Er það til
staðfestingar á bráðabirgðalög-
um, er gefin voru út 3il. des.
1968.
9 þingmenn Framsóknartflokk«
ins flytja þingsályktunartillögu
um stórvirkjanir og hagnýtingu
raforku.
Jóhann Friðgeirsson,
einn hinna ungu og efnilegu
frjálsíþróttamanna er stjóm FBÍ
hvetur til æfinga.
Þorbjörg Aðalsteinsdóttir, HSÞ,
Sigríður Þorsteinsdóttir, HSK,
Ingibjörg Guðmundsdóttir, HSH,
Unnur Stefánsdóttir, HSK,
Guðrún Jónsdóttir, KR,
Alda Helgadóttir, UMSK,
Bergþóra Jónsdóttir, ÍR,
Lilja Sigurðardóttir, HSÞ,
Linda Ríkharðsdóttir, ÍR,
Ingunn Vilhjálmsdóttir, ÍR,
Sigrún Sæmundsdóttir, HSÞ,
Margrét Jónsdóttir, HSK,
Valgerður Guðmundsdóttir, ÍR,
Ingibjörg Sigtryggsdóttir, ÍBA,
Barbara Geirsdóttir, ÍBA,
Hafdís Helgadóttir, UMSE,
Sigurlaug Sumarliðadóttir, HSK,
ína Þorsteinsdóttir, UMSK,
Þuríður Jóhannsdóttir, UMSE,
Elísabet B. Bjargmundsdóttir, HSH,
Fríða Proppé, ÍR,
Emilía Baldursdóttir, UMSE,
Guðrún Óskarsdóttir, HSK,
Sigurlína Hreiðarsdóttir, UMSE,
Kristjana Guðmundsdóttir, ÍR,
Ólöf Halldórsdóttir, HSK,
Hildur Hermannsdóttir, HSK,
Ragnheiður Pálsdóttir, HSK,
Jenný Guðjónsdóttir, HSH,
Ingibjörg SigUrðardóttir, HSK,
Ásta Finnbogadóttir, ÍBV,
Arndís Björnsdóttir, UMSK,
Erla Adolfsdóttir, ÍBV.
Badmintonmót
KR
BADMINTONDEILD K.R. held-
ur opið mót í tvíliðaleik karla í
K.R.-'húsinu, laugardaginn 15.
feibrúar, og mæta þar til keppni
allir beztu badmintonmenn
landsins. í fyrra sigraði í þessu
móti þeir Óskar Guðmundsson
og Reynir Þorsteinsson í únslita
leik við þá Jón Árnaison ag Viðar
Guðjónsson. Verða framannefnd
ir menn meðal þátttakenda í
mótinu nú.
Badmintondeild K.R. hefur
tíma fyrir unglinga á laugardög-
um og tfer þá fram kennsla undir
stöðuatriða íþróttarinnar. Kenn-
ari er Reynir Þorsteinsson. Eru
tímarnir á laugardögum kl. 5-6
fyrir unglinga til 14 ára aldurs.
Framlengt
Ieyii Vöru-
happdrætti SÍBS
í GÆR var lagt fram á Alþingi
stjórnarfrumvarp um toreytingu
á lögum um Vöruhappdrætti
SÍBS. Miðar frumivarpið að því
að framlengt verði leytfi SÍBS
til að reka vöruhappdrætti í 10
ár til viðbótar. Leyfið var fyrst
gefið út 1949 og gilti þá í 10 ár,
en var framlengt 1959 í tíu ár í
viðbót.
NÝ MÁL
Athugasemd menntamdloróðherra
um veitingu bókafulltrúastarís
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
hefur hinn 6. þ.m. ritað Bóka-
varðafélagi íslands eftirfarandi
bréf:
„Ráðuneytið hefur móttekið
torétf Bókavarðafélags íslands.
dags. 21. janúar, varðandi skipun
í starf bókafulltrúa ríkisins.
Mér er það bæði ljúft og skylt
að gera Bókavarðafélaginu grein
fyrir þeim meginsjónarmiðum,
sem ég hefi fylgt við embætta-
veitingar og fylgi enn við veit-
ingu emtoættis bókafulltrúa rík-
isins.
Fyrst þarf að taka afstöðu til
þess, hvort umsækjandi fullnægi
skilyrðum, sem vera kunna í lög-
um, reglugerðum eða auglýsingu.
Ennfremur þarf að meta, hvort
umsækjandi verði almennt tal-
inn hæfur til þess að gegna stöð-
unni. Velja þarf síðan milli
þeirra umsækjenda s'em full-
nægja báðum þessum skilyrðum.
Við það val tel ég, að fyrst eigi
að athuga, hvort umsækjandi
hafi nægilega menntun og starfs-
reynslu til að gegna starfinu. Ef
um tvo eða fleiri að ræða, sem
einnig fullnægja þeim skilyrð-
um, tel ég að taka eigi tillit til
starfsaldurs, þannig að sá, sem
að öðru jöfnu hefur þjónað
lengst með óaðfinnanlegum
hætti, eigi að hljóta söðuna.
Séu þessi sjónarmið höfð í
huga, tel ég, að veita beri Stefáni
Júlíussyni stöðuna. í þessu til-
felli er ekki um það að ræða,
að í lögum, reglugerðum eða
auglýsingu séu sett ákveðin
skilyrði, sem umisækjanda toefi
að fullnægja. Ekkj verður held-
ur dregið í efa, að Stefán Júlíus-
son sé hæfur til þess að gegna
þessari stöðu. Þá kemur mennt-
un hans og starfsreynsla til at-
hugunar. Stefán Júlíusson hefur
kennaraprótf og B.A.-,próf í toók-
menntum frá Carleton College
í Bandaríkjúnum auk tramhalds-
náms í nútíma bókmenntum við
Cornell háskóla. Hlýtur þessi
menntun að teljast nægilegur
undirbúningur undir það starf,
sem hér er um að ræða. Varð-
andi starfsreynsluna er það að
segja, að Stefán Júlíusson hefur
gegnt störfum kennara, yfir-
kennara og skólastjóra og nú
undanfarin tæp sex ár verið for-
stöðumaður Fræðslumyndasafns
ríkisins, en þar er um að
ræða almenna menningarþjón-
lustustofnun, sem starfar að
ýmsu leyti á svipuðum grund-
velli og almenningsbókasöfn,
nema hvað segja má, að starf-
semi Fræðslumyndasafnsins sé
meiri en í venjulegu bókasafni,
þar eð stofnunin þjónar öllu
landinu, flytur inn mikið af
myndaefni og hefur með hönd-
um mikla útgáfu. Varðandi
þekkingu Stefáns Jjúlíussonar á
toókasöfnum og starfsreynslu
'hans á því sviði er það að segja,
að hann var starfsmaður í Bóka-
safni Hafnarfjarðr árin 1938—41
og bókavörður síðasta árið. Enn-
fremiur hefur hann átt sæti í
stjórn bókasafnsins í Hafnar-
firði síðan 1950 og var forrnað-
ur stjórnarinnar 1954—62. Starfs
reynsla hans verður því að telj-
ast meira en nægileg.
Þá er að síðustu að líta á
starfsaldur Stefáns JúlíUssonar.
IHann er annar af tveim opin-
toerum starfsmönnum, sem um
istarfið sækja, og er starfsaldur
'hans í þágu íslenzka ríkisins
•lengri, þar eða hann hefur starf-
«ð í þágu ríkisins síðan 1936.
'Starfsaldur allra hinna í þágu
þeirra aðila, sem þeir hafa þjón-
að, er og styttri en starfsaldur
Stefáns.
Að síðustu er á það að líta,
hvort einhver hinna umsækj-
endanna hafi þá yfirtourði yfir
Stefán ' Júlíusson á einhverju
sviði, sem rnáii skiptir, að taka
ætti hann fram yfir Stefán atf
þeim sökum. Kemur þá til athug
•unar, að Kristín H. Pétursdóttir
hefur einnig lokið B.A.-prófi í
ensku og bókmenntum við
iBrenau College í Bandaríkjun-
úm og auk þeSs prófi í bóka-
safnsfræðum frá Háskóla íslands
iog Pratt Institute í New York.
Þá hetfur hún ennfremur starfað
‘við bókasöfn.
Löggjafinn hefur ekki litið
þannig á, að nám eða próf í
toókasafnsfræðum sé nauðsynlegt
•til þess að gegna stöðu þeirri,
sem hér er um að ræða, þótt það
geri umsækjanda auðvitað að
öðru jöfnu hæfari til þess að
gegnia starfinu. En mieð hliðsjón
af því, að Kristín H. Pétursdóttir
ihefur ekki starfað í þjónustu
vríkisins og starfsaldur hennar í
þágu þeirra aðila sem hún hef-
'ur unnið fyrir, er miklu styttri
en starfsaldur Stefáns Júlíusson-
iar, verða menntun hennar og
.störf á sviði bókasafnsmála ekki
italin geta valdið því, að taka
'beri hana fram yfir Stefán
Júlíusson, þar eð menntun hans
og starfsreynsla hlýtur að teljast
d fu-llu samræmi við þær kröfur,
isem rétt er og eðlilegt að gera
til þess, sem gegnir starfi bóka-
fulltrúa ríkisins.“
Menntamálaráðuneytið,
12. febrúar 1969.
Orgelsnillingur
heimsækir ísland
JEAN-LUC Jaquenod er talinn
vera í fremstu röð organleikara
hinnar yngri kynslóðar og túlk-
,un hans á franskri orgeltónlist
þykir vera til fyrirmyndar. —
Skólastjóri tónlistarskólans í
Amsterdam (Amsterdamsch Con
servatorium), Jan Odé, telur
hann hvorki meira né minna en
einn af fremstu listamönnum
heims nú á dögum, enda á hann
óvenju glæsilegan feril að baki,
þótt aðeins sé 35 ára að aldri
Hann gerðist bróðir í Taizé-
reglunni árið 1956 og er organ-
leikari þeirra bræðra. Þar held-
u hann vikulega orgeltónleika
ásamf hinu venjulega organleik-
arastarfi og þangað koma menn
hvaðanæva úr veröldinni til
þess að kynnast reglunni og
hlýða á organleik hins unga
meistara.
Guðjón Guðjónss. cand. theol.
og organleikari, sem dvaldist um
tíma með bræðrunum í Taizé og
kynntist Jean-Luc, segir m.a.:
„Menn finna ferskt, franskt
loft leika um orgelpípurnar í
túlkun (hans), sem gæti haft
ytfirskriftina „gleði“. í annan
stað þykir markvert það líf, sem
Jean-Luc hefur helgað sér. —
Hann er meðlimur (bróðir) í
samfélagi, sem kennt er við
Taizé 1 Frak'klandi. Það er fé-
lag mótmælenda, en var þó
nefnt af Jóhannesi páfa 23.
„Vorið í kirkjunni". Meðlimir
(bræður) hafa þann eina tilgang
með lífi sínu að vera vottar að
elsku Krists. Þeir vilja gera aUt
líf sitt að predikun fagnaðarer-
indisins. Þeir heita t. d. því að
lifa í algjöru eignaleysi til að fá
sterkan hljómgrunn toeiðninnar
um hjálp til handa nauðstödd-
um. — Hljómleikaför Jean-Luc
er farin til að lofa Guð og safna
fé til góðgerðarstartfsemi."
Jean-Luc Jaquenod hefir hald-
ið fjölda tónleika víða um lönd
og leikið á hljómplötur. Koma
hans hingað til Reykjavíkur er
„stop over“ á leið til Vestur-
heims, en þar mun hann víðs-
vegar halda tónleika og er það
önnur för han® vestur um haf.
Hér mun hann halda tvenna
orgeltónleika, í dómkirkjunni nk.
föstudag kl. 21 og í Laugarnes-
kirkju á laugardag kl. 16. Á efn-
isskrá verður þýzk og frönsk
tónlist. Efnisskráin verður að
hluta til önnur á síðari tónleik-
unium. — Allur ágóði rennur til
góðgerðarstarfsemi.
(Fréttatilkynning frá
Fél. ísL organleikara).