Morgunblaðið - 13.02.1969, Side 24

Morgunblaðið - 13.02.1969, Side 24
íriVjöiwMafoíÍfo FIMMTUDAGUR 13. FEBRUAR 1969 RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA SÍMI 10.100 Nýjar viðræður um bygg- ingu olíuhreinsunarstöðvar — benda tíl hagkvæms reksturs slíkror stöðvar — Viðræðum haldið ófram í næsta mónuði AÐ undanförnu hafa dvalið hér á landi tveir Bandaríkja- menn til viðræðna um hugs- anlega hyggingu og rekstur olíuhreinsunarstöðvar hér á landi. Hafa þeir rætt við Jó- hann Hafstein, iðnaðarmála- ráðherra og nefnd þá sem áð- ur hefur fjallað um þetta mál. I fréttatilkynningu frá iðn- Kristinn böndi á Sævarenda í Loðmundarfirði. aðarmálaráðuneytinu, sem Mbl. barst í gær, segir, að áætlanir um hagkvæmni olíu- hreinsunarstöðvar, sem fyrir liggi eftir þessar viðræður bendi til jákvæðrar niður- stöðu og eru frekari viðræð- ur ráðgerðar í næsta mánuði. Fréttatilkynningin fer hér á eftir í heild: Dagana 6. til 11. febrúar dvöldust í Reykjavík til við- raeðna nm hugsanlega byggingu og rekstur olíuhreinsunarstöðvar hér á landi tveilr Bandaríkja- merm, Mr. Banroai U. Kidd frá Dallas, Texas, og Mr. Phillip W. Hawley frá ráðgjafarverkfræði- fyrirtækinu Purvin & Gertz, Inc. skrifstofu í London. Ræddu þeir við iðnaðarmálaráðherra, Jóhann Hafstein, svo og nefnd þá, sem áður hefur fjallað um þetta mál, er það hefur borið að höndum. Nefndina skii>a: dr. Jó- hannes Nordal, seðlabankastjóri, Arnbjöm Kristinsson, fram- kvæmdastjóri, Eyjólfur Konráð Jónsson, ritstjóri, Steingrímur Hermannsson, framkvæmda- stjóri og Thor Ó. Tlhors, f ramk v æm das t j ór i. Jafnframt tóku þábt í viðræ'ðunum þeár Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneyt- isstjóri, Ámi Þ. Ámason, deild- arstjóri, Hjörtur Torfason, hrl. og Indriði Pálsson, lögfræðingur. I viðræðum þessum var um það fjallað, hvort æskilegt væri og hagkvæmt að reisa olíuhreins- unarstöð hér á landi til vinnslu fyrir heimamarkaðinn. Þetta mál hefur áður verið athugað við aðna a'ðdla, án þess að leitt hafi til endanilegrar niðurstöðu. Að þessu sinni var rætt um hinar ýmsu leiðir, sem til greina gætu komið við meðferð málsins. Telja verður, að áætlanir um hagkvæmni olíuhreinsunarstöðv- ar, sem fyrir liggja eftir þessar viðræður, bendi til jákvæðrar niðurstöðu og er ráðgert, að frek ari viðræður milli sömu aðila fari fram í næsta mánuði. Ný rœkja flutt flugleiðis — frá ísafirði til Reykjavíkur TALSVERT magn af rækjum er nú flutt flugleiðis frá ísafiröi í plastfötum með þartilgerðum pækli ,sem gerir geymslu á ferskum rækjum mögulega. Eru þessar rækjur síðan frystar og fara með Gullfossi á markað á Norðurlöndum. Mbl. fékk þær upplýsingar hjá Einari Helgasyni, yfirmanni innanlandsflugsins hjá Plug- félagi íslands ,að í fyrra, eftir að þessir flutningar hófust, hefðu verið flutt með flugvélum 70 tonn af rækjum frá ísafirði til Reykjavíkur og það sem af er rækjuvertíð núna líklega um 30 tonn. Sé reiknað með að flutn ingar haldi áfram fram eftir apríl, að því er rækjuframleið- endur segja og verði svo aftur í haust. Nú hefur Hraðfrystihús Langeyrar fyrir vestan t.d. pant- að flutning á 10 tonnum, sem flytja á í þessari og næstu viku. Aðrir aðilar sem senda rækju á London 12. febr. — NTB THE London School of Econo- mics, sem lökaður hefur verið frá 24 janúar sl.. er lögregla var kvödd til þess að fjarlægja stúd- enba sem höfðu í frammi óeirð- ir, tekur aftur tál starfa 19. febr. n.k. að því er tilkynnt var af háilfu skólans í dag. Jafnframt voru stúdentar alvarlega varaðix við frekari óeirðum, sem myndu leiða til þess eins a'ð skólanum yrði tafarlaust lokað á ný. þennan hátt, eru Rækjuverk- smiðjan í Hnífsdal, Niðursuðu- verksmiðjan á ísafirði og Rækju verksmiðjan Óli Ólsen á ísafirði. Rækjan, sem þannig er flutt til Reykjavíkur, fer fryst ááram með skipi til Noregs, Danmerk- ur og Svíþjððar. Sagði Einar að komið hefði til tals að flytja hana áfram til Norðurlanida með flugvélum, en það væri ýmsum vandkvæðum bundið, sem ekki hefur verið leyst úr. Mólma- og benzínþjóinaðír — í Hafnaríirði HAFNARFJARÐARLÖGREGL- AN hefur náð piltum 15 ára til tvítugs, sem hafa stundað benzín þjófnað og stolið kopar, eir og blýi, til að selja sem brotamálm. Piltar þessir höfðu stolið smám saman upp undir tonni af blýi frá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og Jóni Gíslasyni, og höfðu selt það hingáð og þangað. Þá höfðu þeir stolið rafköplum og skxúfu úr kopar, koparhringum af snurpinótum o. fl. Loks höfðu piltar þessir tekið til við að stela benzíni og tappað því af vinnuvélum Hafnarfjarð- arbæjar. Voru þeir í yfirheyrsl- um í gær. SJÓMENN FÁ 85-100 KRONUR A DAG í FÆÐISKOSTNAD — Aðild að lífeyrissjóði, sem tekur — til starfa í ársbyrjun 1970 — Ýmis nýmœli eru í samningunum t SAMKOMULAGINU, sem undirritað var í fyrrinótt milli fulltrúa útgerðarmanna og undirmanna á fiskiskipa- flotanum eru helztu atriði þessi: 0 Aflatryggingarsjóður greiðir 100 kr. á dag 4 bændur liggja við með 600 fjár í Loðmundarfirði FJÓRIR bændur úr Borgar- firði eystra liggja í vetur við í Loðmundarfirði með 600 fjár, vegna kals og lítils hey- fengs heima fyrir sl. sumar. Þá heyjuðu þeir í Loðmundar firði og eiga þar því heybirgð ir Loðmundarfjörður er nú í eyði, nema hvað þar var að- eins einn maður sl. ár, Krist- inn bóndi Halldórsson á Sæv- arenda. Þegar hann fékk þennan óvænta félagsskap í upp í fæðiskostnað sjó- manna á bátum sem eru 151 brúttólest eða stærri en 85 kr. á dag til sjó- manna á bátum undir 151 brúttólest. £ Til þess að standa straum af þessum kostn- aði hlutast ríkisstjórnin til þess að lagt verði 1% almennt útflutnings- gjald á FOB-verðmæti fiskafurða þeirra, sem nú eru útflutningsgjald- skyldar. 0 Bátasjómönnum verður tryggð aðild að lífeyris- sjóði sem tekur til starfa í áföngum frá 1. janúar 1970. í samkomulaginu er gert ráð fyrir að bátasjómönnum verði með lögum tryggð aðild að Líf- eyrissjóði togarasjómanna og und irmanna á íarskipum en náist ekki samkomulag úm það, verði stofnaður sérstakur lífeyrissjóð- ur bábasjómanna. Iðgjaldagreiðslur skulu vera 10%, þ.e. 6% frá útgerðarmönn- um og 4% frá sjómönnum. Á árinu 1970 greiðist 40% iðgjalda, 1971 80% og 1972 full iðgjöld. Iðgjaldagreiðslurnar eru miðað- ar við ákveðna launaupphæð fyr ir hvern starfshóp á bátunum. Öllum bátasjómönnum er skylt að vera aðilar að sjóðnum þó ekki í fyrstu 4 mánuði, sem við- Framhald á bls. 23 Togarasölur fyrir 6.4 uiillj. TOGARINN Júpiter seldi í gær og fyrradag í Hull 257 lestir af fiski fyrir 20.500 sterlingspund eða 4,3 millj. ísl. króna og er meðalverð á kg. þá 16,75 kr. Þá seldi Úranus 132 lestir fyr- ir 10.252 sterlingspund eða 2,1 millj. kr. og er meðalverð kr. 16,30 á kg. vetur, hætti hann við að flytja burt og er þar á búi sínu með fé sitt. Fréttamaður Mtol. hringdi til Kristins á Sævarenda í gær. Hann sagði, að allir mennirnir fimm, sem hafa vetursetu í Loðmundarfirði hefðu verið hraustir og færi ágætlega um þá. Borgfirðing- arnir fjórir, sem eru frá Hóli Hóllandi og Hvannstóði, tveir bræður frá síðasttalda bæn- um, hefðust við í gamla bæn- um í Stakkahlíð. En þeir hefðu ekki frekar en hann sjálfur kvenmann að hugsa um sig, það væri nú meinið. Ekkert kvenfólk fengist í slíka einangrun eins og þarna væri. Þegar í Ijós kom hve mikil brögð voru að kali á túnum í fyrrasumar, tóku Borgfirðing- arnir það til bragðs að koma Framhald á bls. 23 Smygl í togurum ■ HafnarfirðS ÞEGAR togarinn Maí kom frá Þýzkalandi úr söluferð, og kom í heimahöfn í Hafnarfirði, gerðu tollverðir leit í skipinu og fund- ust um 170 flöskur. í fyrrinótt var svo einn maður tekinn með nokkrar flöskur á leið í land. Áttu tveir s'kipverjar áfengið. Þegar Röðull kom til Hafnar- fjarðar á laugardag fundu toll- verðir 174 flöskur, sem 3 menn gengust við að eiga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.