Morgunblaðið - 18.02.1969, Side 19

Morgunblaðið - 18.02.1969, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1969. 19 - ÞÆR HJÁLPA Framhald af bls. 5 ast örlítið af þeim um náms- tilhögun. Kalla Malmquist stundaði nám í O'sló: — Þar tekur nám ið þrjú ár. Fyrsta árið er það þóklegt, annað árið bóklegt og verklegt og lokapróf tek- ið í lok annars skólaárs. Þí-iðja árið er eins konar kandidatsár, þá er unnið und- ir handleiðslu lækna og sjúkraþjálfara og að því loknu fær viðkomandi starfs- réttindi. Skólinn er nýlega orðinn ríkisskóli og eru ár- lega teknir inn um 100 nem- endur. Fyrir fjórum árum voru um 70 teknir inn, en þá voru umsækjendur um 300. Vegna lítillar aðsóknar karl manna að skólanum hefur ekki verið unnt að veita þeim nægilega íþróttakennslu, svo að þeir þurfa að hafa íþrótta- kennarapróf, auk stúdents- prófs, til að fá inngöngu í skól ann. María Ragnarsdóttir lærði i * Kaupmannahöfn: — Skólinn í Kaupmannahöfn er einn af fjórum í Danmörku. Hinir eru í Árósum, Skodstþorg og nýstofnaður skóli í Holster- bro. f Danmörku fæst vart skólavist fyrr en eftir 2-3 ára bið. Námið tekur þrjú ár og er tilhögun þess svipuð og í Noregl, nema hvað á þriðja ári eru, auk vinnu undir hand leiðslu sjúkraþjálfara, haldnir fyrirlestrar á sjúkrahúsum og er lokaprófið tekið í lok þess árs. Cnnur Guttormsdóttir lærði í Lundi: — Skólinn í Lundi tilheyrir læknadeild háskól- ans þar og er einn af þremur slíkum skólum í Svíþjóð. Hin- ir eru í Gautaborg og Stokk- hólmi. Námið tekur aðeins 2 ár, en það stendur til að lengja það. Stúdentsprófs er ekki krafizt, en þar sem að- sókn er mikil ganga stúdentar og fólk með háskólapróf í ein- hverjum greinum fyrir. Þegar ég hóf nám fyrir 2% ári sóttu 800 um skólavist í Svíþjóð en 130 komust það, þar af 46 i Lundi. Á fyrsta misseri er námið bóklegt, en eftir það er unnið fyrir hádegi undir leið- sögn kennara á hinum ýmsu deildum sjúkrahúsanna, en siðdegis eru fyrirlestrar. Loka próf er tekið eftir 2 ár. LIFANDI, FJÖLBREYTT OG SKEMMTILEGT Það þarf ekki að spyrja stúlkurnar 'hvort þær séu ánægðar með starfsvalið. Það sést á þeim og sjúklingarnir finna það. Þær eru á einu máli um að starfið sé „lifandi, fjölbreytt og skemmtilegt — árangur sjáist og þær finr.i að þær séu að gera gagn“. Það eina, sem þær eru ekki ánægðar með er hve stéttin er fámenn. Vilja þær fyrir alla muni fjölga í stéttinni og segjast fúsar, að veita þeim, sem áhuga hafa á þessu námi, allar þær upplýsingar, sem þær geta veitt. Stúlka 20—30 ára óskast til léttra heimilisstarfa 2—3 tíma á dag, um kvöldmatartímann. Tilb., er greini m. a. aldur og at- vinnu, sendist afgr. Mbl. fyrir 20. febr. merkt „6023“. Kærleiksorðið Bróðir,. ÞAð SEM vér berjumst fyr ir opinberlega, auglýsir hugs unarhátt vorn. Verum ráð- vandir, hreinskilnir og réttvís ir. Ráðvendni skapar öryggi, vér verðum sjálfum oss sam kvæmir, og vér þurfum ekki að hræðast vora eigin blekk ingu — þar eð hún er ekki fyrir hendi. Hreinskilnir eru aðeins kjarkmiklir menn. Mæt um vér fölskum manni getum vér sagt oss, að hann er einn ig bleyða. Þess vegna getum ér vera — því þá getum vér vænst, að oss verði sýnd rétt vísi í hinum æðsta dómi. iðk- un þessarar þrenndar skapar sálarró og göfugan persónu leika. En afdrif þess, sem tem ur sér ósannsögli eru sorg- leg. Hann á aldrei miklu láni að fagna. Eins og víst er, að afleiðing fýlgir hverjum verkn aði, þá bíður ósigur þess manns, sem temur sér svik og hrekki að einhverju leyti. Ef þetta er ekki sannleikur, þá er öll tilveran byggð á ósann indum. Bróðir, Sá sem er það sem hann sýnist, efnir það, sem hann lofar og hreinskilin játning situr ávallt næst sak- leysinu. Reynum að vera hreinskilnir — í mannheimi — heimi þjáningar og von- brigða, því sannleikurinn er ljósið, sem logar að eilífu. Bróðir. Oss jarðarbörnum eru ekki allir hlutir ve'l gefnir. Þvi verðum vér að læra. Sumir ganga í langa og lærða skóla og sækja mikinn fögnuð og lærdóm. Aðrir eru þeir, sem ganga beint út í lífið ogvilja læra af eigin mistökum í lífs- baráttunni. Og þannig læra menn margt. Bezti skólinn er ekki lifið eða einhver æðri menntastofnun. Hinn bezti skóli er náunginn — bróðir vor. Af honum getum við lært margt. Og vilji maður læra af náunganum, verður maður að 'líkja eftir hinum góðu siðum hans. En það kallast ekki að læra af náunganum að taka til fyrirmyndar mann inn í heild — og hósta og hrækja eins og hann. Höfum í huga að af annarra brest- um getum vér lært að bæta oss. Bróðir. Enginn getur fundið æðra eða betía en það, sem hann hefur aflað sér sjálfur með hugsun sinni. Allt er undir því komið, hvað hver og einn“ hefur sjálfur hugsað, en ekki undir því, sem hann hefur láf* ið aðra hugsa fyrir sig. Efn- islitlir menn og innantómir gína opnir fyrir öllum áhrif- um þeir eru nokkurskonar hljóðaklettar, sem bergmála hvert hljóð, sem berst þeim. Ef til vill er þetta ekki vegna vöntunar — heldur til komið vegna æfingaleysis. Það er — þessir bergmálsmenn hafa aldrei gert tilraun til að láta hljóma frá eigin brjósti og vita ekki hvað þeir geta. Það er því skydla vor — bróðir í mannfélagi — að leiðbeina þessum mönnum, svo að þeir vgeti öðlast sjálfstæða ham- ingju. Vér skulum hafa fyrir reglu að dæma aldrei gildi manns eftir stutta viðkynn- ingu. Ef til vill sjáum vér ekki perlurnar á botninum fyrir gárunum á jrfirborðinu. Svo sem sérkenni hvers manns þroskast, því meira virði verður hann sjálfum sér — og því meiri þýðingu hef- ur hann fyrir aðra. Og þeg- Eir maðurinn getur verið til gagns og innur, að hann hef- ur hæfileika til að vera það, mannfélagi — á sinni réttu hillu í lífinu. Vegtams ' Ak’X. (Sbr. Rondeau eftir J. H. Leigh Hunt). Hvenær sem við hittumst, hún hljóp í fang mér, vafði örmum, lyfti skuggum, létti brún, leysti sál frá öllum hörmum. Nú gerist hljótt um hugarborg, hallar degi — flest varð tál mér. — En í gegnum gremju og sorg geislar minning ljúf í sál mér. Bragi Sigurjónsson. H0RNAUGAD Boom Boom er byggð á einu af lélegustu leikritum Tennessee Williams, Teh Milk Train Doesn't Stop Here Any More og þetta er í áttunda sinn, sem Elizabeth Taýlor og Ric- hard Burton leika saman í fjallar um deyjandi konu, sem kvikmynd. Þessi nýja mynd eftir að hafa verið gift fimm iðnjörfum á ekki aðeins morð fjár heldur einnig skrautlega eyju, skammt undan strönd- um Sardiníu. Þessarar eyju er gætt af varðhundum ogein um dverg (Michael Dunn, upprunalega). Burton er í hlutverki kristins fræðimanns sem þekktur er undir nafn- inu engill dauðans, vegna þess að hann leggur mikla rækt við konur, sem ekki eiga langt eftir af þessum heimi. í Boom fylkja þau liði í leik- húslegu arnarhreiðri, sem stað sett er mitt á mi'lli gaman- leiks og mikilla átaka. Liz er fleygari aðilinn í hreiðrinu, svolgrar -ósköpin öll af svörtu kaffi, pillum og koníaki,ö skr ar þangað til að hún fær sprautu og spýtir út úr sér meinfyndni Williams, sem oft um alltaf háðugleg. Þegar Liz dregur sig í hlé birtist á tíðum er hlægileg og næst- Noél Coward í hlutverki norn arinnar frá Capri, sem blygð- unarlaus gömul skessa og setn ingarnar, sem henni eru lagð- ar í munn eru mikið í ætt við þessa: I was os exited. I shout ed a silent hallelujah. Leik- stjórinn Joseph (The Servant) Losleyt lætur löngun sína eft ir fegurð hlaupa í allar áttir og kippir oft vélinni frá aðal leikurunum til að sýna okkur bláan sæinn, hvítar pipsmynd irnar, þegar sólin endurspegl- ast í mosaic — gólfunum og þegar silfurtauið glitrar. — að síður mjög fallegaur hræri grautur. Ræktun og borgarprýði Slagpressa fyrir má!miðnað um 40 tonna óskast til kaups. H.F. OFNASMIÐJAN Einholti 10 — Sími 21220. Takið eitir — tahið eitir Hausta tekur í efnahagsli.fi þjóðarinnar þess vegna sikai engu fleygit en allt nýtt. Við kaupum alls konar gerðir húsgaigna og húsmuna þó þaiu þurfi viðgerðar við, svo sem búffetskápa, borð, stóla, klukkur, spegla, blómasúlur, rokka, prjóna og snældustokka og margt fl. FORNVERZLUNIN, Laugavegi 33 bakhúsið, sími 10059, heima 22926. Hei stóra íbúð til umráða í nýja Miðbænum, get leigt 1—2 herb. og eldhús. Hentugt fyrir heiðarlega stúlku með barn eða börn. Uppl. sendist afgr. Mbl. fyrir 1. marz merkt „Hagkvæmt — 3.500 — 6109“. íbúð óskast til koups Vil kaupa góða 2ja — 3ja heirbengja íbúð á hæð. Tilboð óskast send til Morgunblaðsins fyrir föstudag 21. febrúar, merkt: „Góð íbúð — 6108“. TIL LEIGI7 7 herbergja íbúð á tfveimur hæðum á góðum stað í Vestuirborginni. Einnig fjögunra herbergja íbúð í Vestur- borginni. Engin fyrirframgreiðsla. Báðar íbúðirnar eru í góðu ástandi. — Tilboð merkt „Vesturborgin — 6157“ sendist Morgunblaðinu fyrir 23. þ.m.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.