Morgunblaðið - 23.04.1969, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1969
t
BÍLALEÍfiANFALUR1
car renta! service
____ 22*0*22*
RAUÐARÁRSTlG 31
Ilverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
MAGIMÚSAR
skiphou»21 s*mar21190
eftirlokunstmi 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sími 14970
—ntmir—
Framarar, knattspyrnudeild.
Æfingar verða sem hér segir
á næstunni:
Merstara- og 1. flokkur
Mánudaga kl. 19-20,30.
Miðvikudaga kl. 19,30-21.
Föstudaga kl. 20-21,30.
Laugardaga kl. 14.
2. flokkur:
Mánudaga kl. 20,30-21,30.
Þriðjudaga kl. 20-21,30.
Föstudaga kl. 19-20.
3. flokkur
Þriðjudaga kl. 19-20.
Fimmtudaga kl. 19,30-21.
Föstudaga kl. 18-19.
4. flokkur
Þriðjudaga kl. 18-19.
Fimmtudaga kl. 18-19,30.
Laugardaga kl. 13-14.
5. flokkur:
Mánudaga kl. 17-18 C-lið.
Mánudaga kl. 18-19 A, B-llð.
Miðvikudaga kl. 17,30-18,30
C-lið.
Miðvikudaga kl. 18,30-19,30
A, B-lið.
Sunnudaga kl. 10,30-12 A,
B-lið.
Æfingataflan gildir frá 25.
apríl. Athugið að æfingar falla
niður þegar meistaraflokkur
Fram keppir. Stjórnin.
0 Sjónvarp í Suður-
Þingeyjarsýslu enn
Gísli G. Atiðunsson skrifar:
„Velvakandi góður!
Sunnud. 13 apríl birtir þú í
dálkum þínum bréf frá Brim G.
Jónssyni á Laxamýri, þar sem
harm lýsir þeim ugg sínum, að
ekki verði staðið við þá áætlun
að dreifingarkerfi sjónvarps nái
til megijxhluta S—Þin.geyjarsýslu
og Húsavíkur á þessu ári. Þú
hnytir smápistli aftan við bréf
Björns, og segir að þetta séu
„venjulegar róg- og Gróusögur,
og væri fróðlegt að vita hverjir
séu höfundar þeirra og hverjir
slefa þeim út“. Og til frekari
áréttirgar bendir þú á frétt í
Morgunblaðinu frá 10. apríl sl.
En kæri Velvakandi! Þú ert svo
óheppinn, að í þessari frétt er
uggur Björns og annarra hér
einmitt staðfestur. Þar segir að
byggja eigi aðalstöð á Fljóts-
heiði fyrir Þingeyjarsýslur og
Húsavík árið 1970. Það hefði því
mátt sleppa orðum eins og „róg-
sögur“ og „Gróusögur".
Það er rangt hjá menntamála-
ráðherra, að unnt verði að fylgja
fyrri áætlun um dreifingu sjón-
varps, verði því ekki komið til
Húsavíkur og meginhiuta S-Þing
á þessu ári. Sl. sumar sendi
menntamálaráðherra bæjarstjóm
Húsavíkur — með sérstakri
kveðju sinni — áætlun um dreif-
BRONCO
Vil kaupa vel með farinn og lítið keyrðan Bronco. Æskilegt er
að samí maður hafi átt og keyrt bílinn.
Tilboð merkt: „Staðgreiðsla — 2682" sendist Mbl. fyrir
sunnudag.
Félagosamtökin VERND
halda aðalfund i Ingólfskaffi uppi laugardaginn 26. apríl nk
kl. 15.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRIMIN.
Törring’s
Special
Góður og gildur smávindill til daglegra nota. Vinsæl
millistærð milli vindla og smávindla. Bragðið er
indælt og milt aromabragð. Reynið 10 stykkja SPECIAL í dag
og yður verður Ijóst hversvegna Törring’s
smávindlar eru taldir meðal þeirra albeztu í Danmörku.
LEVERANOOR TIL DET KONGELIGE DANSKE HOF
N. T0RRING CIGARFABRIK
ingu sjónvarps til S-Þing ogHúsa
víkur, þar sem sagði, að sjón-
varpið næði til þessa héraðs 1969.
Þetta hef ég kynnt mér frá fyrstu
hendi.
0 Hvers á Húsavík að
gjalda?
Menntamálaráðherra mun einn
ig hafa lýst yfir því áður, að
sjónvarp næði til allra landshluta
áirið 1969. Og nú hefur hann upp-
lýst, að austfirzku bæirnir munu
njóta sjánvarps áður en þetta ár
er liðið. Það er því engin furða
að Lúðvík Jósepsson þakki hon-
um sérstaklega fyrir góða fram-
göngu í þessu máli. Hins vegar
finnst okkur Húsvíkingum þessi
yfirlýsing ráðherrans bera nokk-'
um keim af yfirlæti, úr því að
sjónvarpsgoislanum verður skotið
fram hjá okkur til Austfjarða og
ekki staðið við fyrri yfirlýsing-
ar að koma sjónvarpi til okkar.
Það er hægt að slá um sig og
segja: Sjónvarpið verður komið
til allra landshluta ‘69. En glans-
inn fer af, þegar fórna á öðr-
um héruðum.svo þetta hégóma-
atriði nái fram að ganga.
Við Húsvíkingar eigum að sjálf
sögðu að óska Austfirðingum til
hamingju með sjónvarpið, því að
yfirieitt hafa Austfirðir verið hafð
ir útundan um ýmis þjónustumál.
En það er engin furða, þó ánægja
okkar fyrir þeirra hönd sé svo-
lítið beizkju blandiin. Húsavík
verður nefnilega eini bærinn á
landinu, sem ekki fær sjónvarp
fyrr en 1970. Við verðum látnír
bíða ári lengur, en íbúar allra
annarra bæ’a og langflestra þorpa
og þéttbýiissvæða á landinu.
Gísli G. Auðunsson
Ketilsbraut 20,
Húsavík
RJ. Skrifar frá Húsavík:
„í Momgunblaðinu dags. 13.
apríl s.i., skrifar Björa G. Jóns-
son á Laxamýri um sjónvarp,
hvað líði dreifingu þess og hverj-
ir hefðu mesta þörf fyrir sjón-
varpið Ég ætla ekki að rita nán-
ar um þessi atriði, en aðeins taka
undir umrædd skrif Björns G.
Jónnsoriar, hins vegar vil ég upp
lýsa Veivakar.da um, að fyrir
liggur endurskoðuð áætlun um
kostnað og dreifikerfi sjónvaps,
sem menmtamálaráðherra sendi
hingað norður til Húsavikur á síð
astliðnu ári, þar sem gert er ráð
fyrir að S.Þingeyjarsýsla og Húsa
vik fái sjórrvarp 1969 frá stöðv-
um, sein byggðar yrðu á Fljóts-
heiði og Húsavík.
Þannig að þær róg- og gróu-
sögur um að áætlun um dreifikerfi
sjónvarps fái ekki staðizt, sem Vel
vakandl nefnir að menn hér fyr-
ir norðan séu að slefa með, hafa
við rök að styðjast, þar sem
menntamálaráðherra hefur nýlega
upplýst að tvær umræddar stöðv
ar verði byggðar 1970.
Virð ingairfy llst,
R.J.,
Húsavík".
Já, Velvakandi hetfur svo sann
arlega verið óheppinn að fara
nokkuð að skrifa um sjónvarps-
mál Þingeyinga. Hann hefur það
sér þó til afsökunar að hafa ein-
ungis farið eftir því, sem hanin
g»t lesið út úr þingræðum, en eft-
ir því að dæma áttu allar áætl-
anir að standast. Og hvað felst
anoars í orðunum „til allra lands
hluta“? Þarf orðalagið að þýða
hið sama sem „heim á hvert
byggt ból“?
Annars er nær að Húsvíking-
ar deili um þetta við mennta-
málaráðherra og skipulagsstjóra
sjónvarpsdreifingar en vesaling
minn.
0 Vantar orð fyrir
orðabastarð
„Kári“ skrifar:
„Kæri Velvakandi:
Gerðu það fyrir mig að bann-
lýsa orðið ,pop-messa“. Þetta
hryllilega orðskrípi hlýtur að fæia
alla menn frá athöfn þeirri, sem
það á að tákra. Bæði er orðið
frámunalega ljótt, hvort sem er á
prenti eða í munni, og svo er
orðið „messa“ notað þama í kol
vitlausum skilningi. Við skulum
ekki afbaka merkingu gamals og
góðs orðs, — nógur er málrugl-
ingurinn orðinn samt. Og því er
þá ekki skrifað „popp“ fremur
en „pop“? Ég þekki ekki til
þeirrar athafnar, sem þessi orða-
bastarður á að merkja, svo að
ég er alveg hlutlaus í því efni,
en orðið er óþolandi.
Kári“.
Gaman væri að heyra tillögur al
mennings um nýtt orð fyrir þessa
athöfn, en kannske er þetta bara
stundar- og tízkufyrirbæri, sem
hverfur fljótlega og þarfnast þá
ekki skrautlegri orðabúnings en
„popp-messu“.
0 Trúir á guð en
ekki Guð
Birgir Sigmundsson skrifar:
„Heiðiaði Velvakandi!
Undanfarið hefur mikið verið
rætt og ritað um guð, vegna hinn-
ar svokölluðu popmessu. Meðal
annars hefur komið fram sú spum
ing, hvort guð sé til? Mín skoðun
á tilveru guðs er einfaldlega sú,
að guð er hið góða í hverjum
maimi, en djöfullinn hið illa. Sam
kvæmt þessu skil ég ekki, hvers
vegna fólk er að deila um aðferð
ir við guðsdýrkun. Það er sama,
hvað fólk nefnir guð þann, er
það trúir á, allt er þetta sami
guðiivn. Hvort sem það er sá guð,
er Kristur boðaði, Allah eða
Budda. Engum heilvita manni
dettur í hug að trúa bókstaflega
því sem í biblíunni stendur. Bibl
ían er tákn fyrir trú kristinna
manna, og kóraninn fyrir trú Mú
hameðstrúarmanna. Maðuinm er
nú einu sinni þannig gerður, að
hann verður að hafa rök fyrir
öllu, sem hann á að trúa, og
þess vegna er biblian og helgi-
sagnir allra trúarbragða til.
Jesús Jósefsson hefur sennilega
verið til, og hefur verið leiðtogi
þess söfnuðar, er frá greinir í
biblíumni. Eftir dauða hans hafa
farið að myndast um hann þjóð-
sögur, og afleiðinrgin er Nýja
testamentið.
En, svo að ég víki aftur að
messu þeirri, sem ég minntist á
í upphafi, þá finnst mér sjálfsagt
að Lúterstrúarmenn breyti þessu
gamla o-g leiðinlega formi, sem
hefur verið á guðsþjónustu þeirra
síðan lúterski siðurinn komst á.
Trúartjáning manna verður að
fylgja tíðiarandanum. Hún má
ekki vera fullkomlega stöðnuð
einhversstaðar i fornöld.
En það er ekki nóg fyrir fólk
að sækja þá helgu staði, er trú
þeirra viðurkennir, menti verða
að sýna trú í verki. En það ger-
ir fólkið í heiminum í dag einmitt
ekki. Alltaf er einhvers staðar
stríð. Þess vegna ætti fólk, í stað
þess að deila um tjáningarform
við dýrkun guðs, að láta hinn
eiria sanna guð, hið góða í mann-
imim ráða.
Virðingarfyllst,
Birgir Sigmundsson“.
Carðeigendur
Tek að mér lagfæringu eldri lóða, skipulagningu, teikningu
og standsetningu nýlóða. Undirbúum heimkeyrslur og bíla-
stæði. Trjáklippingar.
Þór Snorrason skrúðgarðyrkjumeistari.
Sími 18897.