Morgunblaðið - 21.06.1969, Page 4

Morgunblaðið - 21.06.1969, Page 4
4 MOBGUNBLAÐXÐ, UAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1969 bilaleigan AKBHA UT car rental service 8-23-47 sendum IWAGIMÚSAR 4kipholti21 s»mar21190 eftir lokun simt 40381 LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 13. Sími 14970 Hvfrfisjötu 193. Simi eftir lokun 31160. BÍLALEIGANFALURhf carrental service © 22*0*22* RAUDARÁRSTlG 31 HÖRÐUR ÖLAFSSON hæstar j tta rlögmaður skjalaþýðandi — ensku Austurstræti 14 símar 10332 og 35673. DAGENITE RAFCEYMAR 6 og 12 volt fyrtr benzín eða dísrlvélar R0LLS-R0YCE Garðar Gíslason h.f. bifre i Öaverzl un 0 Messan, ræðan og kvæði fjallkonunnar Kæri Velvakandi Með fyrirfram þökk ætla ég að biðja þig fyrir nokkur orð um þjóðhátíðina. Þégar gott fyrirkomulag er fundið, er slæmt að geta ekki haldið áfram með það. Miklu heppilegra er allra hluta vegna að byrja hátíðina ekki fyrr en eftir hádegi. Fólk þarf að hafa fengið góða næturhvíld, húsmæð- ur þurfa að vera búnar að búa til og sjá um góðan mat fyrir öll böm sín og heimilisfólk, sér staklega er nauðsynlegt að lítil böm borði vel áður en lagt er af stað og það verður að vera tími til að klæða allan hópinn. Aldrei hefur fólk talið eftir sér að hlýða á messu frá hátalara, þótt ekki komist allir inn í kirkj- una, þar eru þá þeir sem sízt geta staðið. Útimessa þennan dag minnir jafnvel enn meira á ó- gleymanlega messu 1944 í Al- mannagjá. Nei, aðalhátíðin er messan, ræðan og kvæði fjallkon- unnar, eftir það skiptist hópur- inn. Þannig hefur það verið. Fara þá sumir á íþróttavöllinn og í kirkjugarðinn, aðrir setjast prúð- búnir inn á snyrtilegt veitinga- hiis, það er svo sem ekki í kot vxsað. Einnig er hægt að fara á íþróttavöllinn eftir kaffi. 0 Konur og telpur ættu að vera í þjóðbún- ingum Þjóðdansasýningar ættu alls ekki að vera þennan dag, en þá um kvöldið, strax eftir kvöldmat ættu að hefjast fjölbreytilegir dans ar, sem fólkið sjálft tæki þátt í. Hér hafa verið kenndir þjóðdans ar í mörg ár og því er ekki bara fámennur hópur, sem kann þjóð- dansa. Helgi Hjörvar kenndi þjóð dansa á ungmennafélagsfundum. í Bárunni voru kenndir þjóðdans ar, sem Ásthildur Kolbeins mun hafa stýrt. Ása Hansson kenndi þjóðdansa og ég held að enginn hafi náð sporinu jafn fallega og tilgerðarlaust, enda var hún dans kennari og allar þær systur. Sig- ríður Valgeirs og stjórnendur Þjóð dansaféla.gsins hafa unnið mikið og fagurt starf, kennt almennan dans, þjóðdansa og gamla dansa, sem sumir kalla. Æskilegt væri, að allar konur og telpur, sem eiga þjóðbúninga, klæddust þeim 17. júní. FÆST í KAUPFÉLAGINU Ankið ánægjn snmarleyfisins með KEA NIDDRSUDUVðmiH Sumarleyfið er ekki fullkomið án góðs matar. KEA niðursuðuvörur eru einmitt tilvaldar í ferðanestið. 12 ljúffengar úrvals tegundir, handhægar í matreiðslu. Heildsölubirgðir: , Birgðastöð SlS. ionadaiístoð Einrert Kristiánsson & Co. hf. 0 Ófyrirgcfanlegt að raða kössum á gangstéttir Ekki get ég látið vera að minn ast á Austurstræti núna 1969. Spyr maður, hver er það, sem setur svip á bæinn, það er gott að hafa gáskafulla gleði, en það verður að vera heilbrigð hugsun á bak- við. Það má heita ófyrirgefanlegt að raða svo stórum kössum á gang stéttar, að fólkið verði að ganga ofan í rennusteinana. Ef fólk er svo illa haldið þegar það stend- ur upp frá kvöldborði, að það þurfi strax að fara að lepja eitt- hvað í sig, eða hefur kannski ekki fengið mat, vildi ég leggja, til að kassar þessir væru meira af- síðis. Á einum þessum kassa sá ég nafn skóla. Hafi skólar feng- ið söluleyfi þetta kvöld, vildi ég benda þeim á að hafa ekki bara gosdrykki og pylsur, heldur líka skyr með rjóma í litlum ísdoll- um og ekta ósaltaðar hverabrauðs samlokur, litlar með smjörhnúð og kannski steiktan fiskbita á milli. í útlendum höfnum sést stundum komið með sölukassa niður á bryggju með eitthvað smávegis, en þeir kassar eru miklu minni, jafnvel bara hólf. O Tekur sig út úr stúd- entahópnum par Ég var að minnast á gáskafulla gleði og Austurstræti. Fólk þarf ekki að klæðast skrípabúningi til að njóta gleði í unglingahópi. Ei ættu dx-engir að hafa vín- flösu í öðrum vasa og gos í hin- um, Það er sorgarsjón á þjóðhátíð, með dömu i ljótum strandföt- um með axlabreiðan hatt með há um kolli eins og fólk í heitustu löndum notar til að fá ekki sól- sting. Síðan er kórónað með að selja í kössum skegg, blöðrur og rauðar kúlur til að gera sig ó- þekkjanlegan með því að troða því á andlitið. Nei strikum nú þetta alveg út og lítum í annað horn sama dag. Þar hefur hópur unglinga mynd að hring og stíga brot úr þjóð- dönsum. Þar nærri er stór hóp- ur af stúdentum, sem dansa. Þá tekur sig út úr stúdentahópnum par og smeygir sér inn í þjóð- dansahringinn eða hringdansa- hringinn, hvað það skal nú heita, og dansar með af mikilli kæti. Úr þessu varð geysilega mikil lukka, því að enn njóta stúdent- ar okkar virðingar. Þannig ætti þjóðhátíðin að enda, fólkið mynd ar hringinn, svo koma stúdentar- nir í heimsókn í hringinn til að setja fjörið í dansinn. En þá þarf hljómsveitin að vera eftir því, frá íslenzku bergi brotin, til að skilja þjóðina til fulls. Við viljum njóta þess að hafa stúdentana hjá okk u? þennan dag, líka við messur- nar. B.E. C Illgresið blómstrar í fegrunarvikunni í fegrunarvikunni sendi „Hlíð- arbúi“ þetta bréf til Velvakanda, sem vonandi er ekki orðið úrelt, þó það hafi beðið birtingar nokkra daga. Kæri Velvakandi. Nú stendur yfir fetgrunarvika og ástæða til að vekja athygli á eft irfarandi. Þegar gengið er eftir Reykjanesbraut hlýtur það að vera þyrnir í augum hvers veg- faranda að þar hefur illgresi víða náð algjörum yfirtökum á veg- brúninríi. Ástæðan er sú að mold- arbörð liggja með brautinni og þar þrífst illgresi þetta ár eftir ár, og nær ótrúlegri hæð og verð- ur síðan að sannkallaðri ryksugu, þegar á líður sumarið. Einkum er þetta áberandi hjá húsinu nr. D Við Eskihlíð. Ekki er ég með þessu að gera því skóna að hús- ráðendur þar hirði ekki lóð sína, heldur er „frumskógur" þessi ut- an lóðarinnar og því í verka- hring borgarinnar að láta til skar ar skríða gegn illgresinu á þess- ari fjölförnu leið. Sami gróður blasir við manni, þegar í Mjóuhlíð er komið. Á moldar- og rykþörðum sem hlað- izt hafa upp í þeirri götu trón- ar nú 50 cm hátt illgresi og virð- ist blómstra nú mitt í hreinsun- arvikunni. Af þessu að dæma, er líka jlóst að nefndar götur hafa ekki komizt í kynni við hreins- unardeild Reykjavíkurborgar til þessa. Er ekki seinna vænna að nokkur kynni takist þar á milli. Hlíðarbúi. Jarðýfa óskast Viljum kaupa jaiðýtu í gangfæru ástandi, stærð 9 til 14 tonn. Sími 41113 og 41757. Vélritunarstúlho óskost Opinber stofnun vill ráða vel færa vélritunarstúlku sem fyrst. Umsóknir með uppí. um aldur og menntun og annað er méli skiptir ásamt meðmælum sendist blaðinu fyrir næstu mánaða- mót merktar: „Framtíðarstarf — 356". Kaupum hreinar og stórar léreftstuskur prentsmiðjan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.