Morgunblaðið - 10.07.1969, Side 12
12
MOKGUNIBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 11900
Úitgeíandi H.f. Árváfcur, Reykjaviik.
FramlavÆöidiaisitjóri Haraldur Sveinsaon.
•Ritistjórar Sigur'öur Bjam'aaon frá Vigjuir.
Mattkias Jdhanníeasten.
Eyjólfur Konráð JTónsaon*
Bitstjómarfulltrúi Þorbjöxn Guðmiundssoih
Fréttaistjóri Björn Jóhamissom,
Auglýsinga&tjóri Áxni Garðar KristínsBon.
Eitstjórn og afgreiðsla AðaMrætl 6. Simá 10-100.
Auglýsingaa* AfMstræti 6. Sími 22-4-BO.
Aisifcriiftargj'ald kr. 150.00 á mánuði innanlands.
í lausasíölií fcr. 10.00 eintafcið.
UNGLINGA VINNA
OG UPPELDI
¥ gær var frá því skýrt í
Mbl. að 11—13 ára gaml-
ir unglingar annist alla
vinnslu hörpudisksins, sem
Bolvíkingar hafa veitt og
unnið frá því í vetur. í sömu
frétt kom fram, að unglingar
á sama reki hafa með hönd-
um verkstjóm við vinnsluna
og ennfremur, að komið
hefði í ljós, að afköst þessa
unga fólks væru sízt minni
en hinna fullorðnu.
Það hefur jafnan verið sið-
ur á íslandi að gefa ungling-
um tækifæri til að komast í
tengsl við atvinnulífið í land-
inu að sumarlagi, þegar skól-
ar starfa ekki. Og tvímæla-
laust er það mikilsverður
þáttur í uppeldinu. Því miður
er nú minna um það en áður,
að börn og unglingar komist
í sveit á sumrin og er ekkert
við því að gera. Lífið í sveit-
unum hefur breytzt ekki síð-
ur en í bæjmium. En þeim
mun meiri áherzlu verður að
leggja á að finna unglingun-
um verkefni við hæfi, og er
aðstaða að mörgu leyti betri
til þess í tiltölulega fámenn-
um sjávarplássum eins og Bol
ungarvík en í þéttbýlinu hér
á Suðvesturlandi.
I sambandi við unglinga-
vinnuna er nauðsynlegt að
leggja ríka áherzlu á hinn
uppeldislega þátt hennar.
Það þarf að aga unglingana,
venja þá á stundvísi og vinnu
semi og gera þeim ljóst að
ekkert fæst án þess að eitt-
hvað sé á sig lagt. Þær radd-
ir hafa komið fram í blöðum,
að stundum megi sjá vinnu-
brögð meðal unglinga, sem
til lítillar fyrirmyndar séu.
Unglingarnir í Bolungar-
vík vinna hörpudiskinn sjálf-
ir, verkstjórar eru úr þeirra
hópi og afköstin eru jafn mik-
il og hjá þeim ful’lorðnu.
Þetta er dæmi um dugnað og
atorku íslenzks æskufólks,
sem mætti verða mörgum til
eftirbreytni.
Allt umhverfis landið þarf
að leggja aukna áherzlu á
leit að hvers kyns skelfiski,
sem nýtanlegur er, því að
vinnsla hans er einmitt hið
ákjósanlegasta verkefni fyrir
skólaæskuna að sumarlagi og
margt færi hér betur, ef
ffleiri sýndu jafn mikinn
dugnað og framsýni og at-
hafnamennirnir í Bolungar-
vík, sem hófu veiðar og
vinnslu hörpudisksiins.
KVISLINGAR
HERÐA TÖKIN
F’kki fer á milli mála, að
Moskvukommúnistarnir í
Tékkóslóvakíu eru að hefja
lökaátakið í þeirri viðleitni
að afmá síðustu leifar af
frjálsræðisstefnu Dubceks og
félaga hans. Nú hefur verið
skýrt frá því, að helzti leið-
togi afturhaldssinnanna í
Tékkóslóvakíu, Strougal að
nafni, hafi enn fengið aukin
völd í hendur, og er þess nú
greinilega ekki langt að bíða,
að Husak verði vikið til hlið-
ar.
Þróunin í Tékkóslóvakíu
hefur stöðugt stefnt í þessa
átt síðustu mánuði. En það
vekur vaxandi eftirtekt, að
kommúnistar hér á ísilandi
láta sér þetta vel líka. Þeir
virða atburðarásina í Tékkó-
slóvakíu fyrir sér með vel-
þóknun. í blaði þeirra sést
ekki styggðarorð um uppgang
kvislinganna þar í landi.
Jafnframt sjá kommúnistar
ekki lengur ástæðu til að
leyna því, að þeir þverbrjóta
nú fyrri flokkssamþykktir
um að rjúfa samskipti við
innrásarríkin. Kommúnista-
leiðtogarnir valsa um A.-Ev-
rópu að vild á þessa sumri.
FRÆÐSLULÖG-
GJÖFIN END-
URSKOÐUÐ
\ stæða er til að fagna þeirri
yfirlýsingu menntamála-
ráðuneytisins, sem birt var í
fyrradag, að sérstök nefnd
hefði verið skipuð tiil þess að
endurskoða fræðslulögin frá
1946 og ennfremur til þess
að kanna möguleika á að
opna fleiri námslei ðir í skóla
kerfinu þegar í haust.
í hinum víðtæku umræð-
um um skólamál, sem fram
hafa farið sl. tvö ár, hefur sú
skoðun oft verið sett fram,
að óþarfi væri að setja nýja
fræðslulöggjöf, nauðsynlegar
umbætur gætu rúmazt inn-
an ramma núverandi fræðslu
laga. Yfirlýsing menntamála-
ráðuneytisins er staðfesting
á því, að ráðuneytið hefur nú
fallizt á skoðun þeirra, sem
jafnan hafa haldið því fram,
að nauðsynlegt væri að end-
urskoða sjálfa löggjöfina.
Það vekur nobkra athygli,
að nefndir þær, sem ráðu-
Danskt skip með tóbaksfarm frá Rhodesíu til Austur-Þýzkalands?
Goodwill, áður en skipið sigldi fyrir Jótlandsskaga.
Haldiö ókunnugum í burtu
Myndin var tekin af
þegar ég leggst að
ÁRÍÐAN'DI tilkynning: „(Hald
ið 91‘luim ólkunnuguim í burtu,
þegar ég leggst að bryggju“
heyrðis't frá danslka slkipinu
„Goodwill“ sl. laugardag.
Brezkir loftslkeytaimenn
'heyrðu þessa til'kynningu, en
hún var aetluð öðnuim. Hún
var send til umboðteimanna
slkipsinis í austur-þýzku hafn-
arborginni Rostodk, þar sem
talið er að, slkipið muni verða
affermt nú allra næistu daga.
Þesisi tillkynning hefur enn orð
ið til þess að ýta undir grun
uim, að farimur Skipsins þoli
illa dagsins ljós, en talið er,
að slkipið flytji um 1000 tonn
af tóbalki frá Rlhodesíu og
þarna sé verið að brjóta gegn
fyririmæluim Saimedniuðu þjóð
anna um rafsiiaiðganðir gegn
Bhodesiíu, sem einikuim felast
í bannd við verzlun við land-
ið.
Engin slkýring var gefin á
til'kynningu síkipsinis og uim-
boðsimennirnir í Roistoek
sendu ákveðin fyrirmæli um,
að síkipið skyldi endurtaka til
kynningu sína en efklki fyrr en
það væri ’komið nær Roötodk.
Eftir það heyrðist elklkert til
Goodwill allan þennan dag.
I tvær viíkur hefur verið
fylgzt nákvæmlega með ferð-
um slkipsin's af brez/kum yfir-
völdurn. Framangreind til-
kynning, sam dkipið sendi, er
það var á leið út úr Enmar-
sundi, inn á Norðursjó, varð
mjög til þesis að auka á þann
leyndardóim, sem hvíiir yfir
ferð slkipsins. Það hefur einn
ig orðið mjög til þesls að
styrikja þann grun, að skipið,
seim fór úr ihöfn í Beira í Moz
ambique 31. maí sl. flytji tó-
baik frá Rlhodesíu, sem að
framan greinir. Tillkynntog
Skipsdns sl. laugardag er í sam
ræmi við annað, sem ein-
'kennt hefur ferð isfldpsims, en
hún hefur einlkum valkið þrjár
sp'umingar:
Hvers vegma neitaði sikip
ið að svara kalli frá Niton
stöðinni á brezlku eynni
Wiglht?
Hvers vegna sigldi gkip
ið meðflram strönd Frakik
lands á leið sinni norður
Ermansund og virbi þannig
að vettugi þá venju (sem
þó er e'klki sttcylda), að
dkip haMi sig ákveðnu
megin á sundinu, eftir því
hvort þau eru á suðurleið
eða norður, en samlkvæmt
því heifði Goodwill átt að
sigla meðtfram strönd Eng
lands.
Hvers vegna brá sttcipið
út af þeirri almennu venju
áð taflca um borð Norður-
sjávar leiðsögumann, er
siglt var gegnum Dover-
sund?
Hvers vegna fór slkipið
eklki um Kielarsflcurðinn á
leið simni til Rostodk í
stað þess að fara norður
fyrir Jótlandgslkaga, sem
er miklu leng.ri leið? Var
það gert til þass að firra
sig þeirri hættu, að vestur-
þýzflc yfirvöld myndu
leggja hald á sflcipið og láta
nannsaflca farm þess?
Þetta hefur orðið til þess
að lengja siglingu slkipsins um
5—6 daga, en á þennan hátt
fer slkipið eklki út af alþjóða
siglingaleiðum, sem þýðir, að
eiklki er unnt fyrir neitt ríflci
að láta sflcoða farm þess, svo
að löglegt sé.
„Það er augljóst", lét einn
brezkur strandvörður hafa
eftir sér, „að sikipið er að iforð
ast athygli".
En einhver helzta spurning
in í saimbandi við ferð dkips-
ins er þessi: Hvað gera yfir-
völd í Austiur-Þýzkalandi, ef
reynt veriður að losa sflcipið
við tóbaflcstfarim í Riostodk?
Löndin austan járntjalds
eru jafn slkuldbundin isem önn
ur til þess að virða refsiað-
gerðir Sameinuðu þjóðanna
gegn Rlhodesíu og fara að í
samræmi við þær. Ef leyft
verður að afferma tóbattcið í
höfn í Auistur-Evrópu, yrði
það til þasis að spilla mjög
fyrir slkiptum og sambúð milli
koimimúnistarikjanna og
þeirra mörgu landa í Afrílku
og Asiíu, sem snúizt hafa svo
öndverlð gegn Rhodesíu.
Hin opinbera fréttastofa
Austur-Þýzlkalands hetfur neit
að því eindregið, að nofldkurt
slkip, ’sem flytti tóbalk frá Rlhod
esíu væri væntanlegt til
Rostodk.
Vera ttcynni hins vegar, að
Austur-Þjóðverjar hefðu ver
ið bleik'ktir, að því er snertir
farm Goodwill með fölsuðu.m
slkjölium eða þá hitt, að ytfir-
völd í Aust ur -Þýzkaia n d i
væru reiðubúin til þesis að
lottoa augunum fyrir slílku.
Brezk yifirvöld, sem sflcýrt
hafa Sameinuðu þjóðunum frá
öllu, sem þau hafa komiizt á
snoiðir um varðandi ferð Good
will, eru þeirrar slkoðunar, að
einhverjar vörur frá Rhodes
íu faafi flcomizt til landa A-
Evrópu með tilstilli falsflcra
slkilrlkja, þar sem teflcið er
fram, að þesisar vörur hafi
verið framleiddar í einhverju
öðru landi.
Eigandi Goodwill, A. H.
Basse, sem er dansflcur, hef-
ur lýst því yfir í Kauponanna
höifn, að leigutaflci sflcipsinis,
sem er sflcipafélag í Nicosiíu á
Kýpur, hafi sýnt ákilríflci, þar
'Sem tekið er fram, að tóbaJkið
sé frá Zambíu og Mozambi-
que. Til þeæa hefur engin til
kynning fcoimið fram varðandi
ferð dkipsins af háfltfu leigu-
tafcans, sflcipáfélagsins í Nic-
osíu.
neytið heíur sett á fót, eru í
ríkum mæli skipaðar sömu
mönnutm. Vissulega er nauð-
synlegt að hafa náin tengsl á
milli nefndanina og sitarfa
þeirra, en æskilegra hefði
verið að leitað hefði verið
eftir starfskröftum úr fleiri
áttum en rauri hefur orðið á.
En hvað sem um það má
segja er þess að vænta, að
þetta nýja framtak í skóla-
málum beri ríkulegri ávöxt
en margar fyrri nefndaskip-
anir á þessu sviði.