Morgunblaðið - 31.07.1969, Síða 17

Morgunblaðið - 31.07.1969, Síða 17
f MORGUNBLAÐEÐ, FIMMTUÐAGUR 31. JÚIif K969 17 ■*=r Rafknúnar klukkur í háum, hvítum stöpli kalla börn Stóra- dalssóknar undir Eyjafjöllum til messu í einum nýtízkulegasta helgidómi landsins. Hann var vígður af hr. biskupnum í mildu vorveðri við mikið fjölmenni þ. 18. maí í vor. Þá var mikil hátíð í Stóradals- sókn. í>á hafði bygging þessarar nýju Stóradalskirkju staðið yfir s.a.s. nákvæmlega í hálfan áratug, því byrjað var að grafa fyrir henni 24. maí 1964. Nú stendur hún þatrna fullbúin og vígð til helgra nota og hefur kostað mikla og fórnfúsa trú á sigur góðs málefn is, fastheldna rækt við fornan ihelig’iataið og 3 mfflj. knónia í pen- ingum. Þetta er mikið verð frá hvaða hlið sem það er skoðað. Og svo segja menn og láta hafa það eftir sér í útlöndum: íslend- ingar eru tómlátir um trúmál og vilja lítið gjöra og litlu fórna fyirir kirfeju síne. Stóra-Dalssókn var einu sinni sérstakt brauð en heldur þótti Iþa/ð tieikijiurýrt (V4 á við Hiotlit) og voru prestar þar sjaldan lang- dvölum. Einn dvaldi þar þó í 20 ár (1769-—89), fyrst aðstoðar- prestur. Það var sr. Páll Magnús son. Hann þótti „vel gefinn mað- ur, kennimaður góður, hraust- ’ menni og starfsamur“. (Ævi- skrár). Hann var afi sr. Páls Matthiesen í Arnarbæli, föður sr. Jens í Görðum. Sr Páll í Stóradal vildi ekki hlýða konungsboð- Skap um styttingu helgihalds á stórhátíðum um einn dag og vildi halda þríheilagt eins og áður hafði verið venja frá ómunatíð. Kvaðst sr. Páll ekki afleggja messugjörð á þessum gömlu helgi dögum meðan Eyfellingar vildu sækja kirkju sína. En það hafa sóknarmenn í Stóradal löngum gert af mikilli alúð og gera enn í dag. Er það í samræmi við fyrrgreinda fórn- fýsi þeirra og fjárframlög til byggingar sinnar nýju kirkju. Sóknarniefnd Stóradalssóknar er skipuð þeim Eysteini Einars- syni vegaverkstjóra á Brú, ólafi Kristjánssyni á Seljalandi og Símoni Oddgeirssyni í Dalsseli. Með þeim voru í byggingarnefnd þeir Hallvarður Kristófersson í Stóradal og Ólafur Sveinsson í Stóru-Mörk. Hvíldi á þessum mönnum öll forusta um fjáröflun og framkv'æmdir. Hin nýja Stóra-Dalskirkja er teiknuð af Ragnari Emilssyni en yfirsmiður hennar var Þorsteinn Jónsson í Draimg=ihlliðairdiail. Af ótta við að einhver verðugur gleymist, skal ekki lagt út í það að telja hér upp alla verktakana, sem séð hafa um ýmsa þætti bygg ingarinnar. En auðséð er á öllu, að þar hafa verið að verki hinir fær- ustu menn hver á sínu sviði að verkhyggni og vöndugleik, sem er þeim til sóma, því að svo sem ætíð er, að verkið lofar sinn meistara. Það gæti sjálfsagt verið efni í merka sögu, að segja frá því hvernig tæplega 100 — eitt hundrað — gjaldendur, hvar af enginn er umfram bjargálna mann, geta komið upp um þriggja milljón króna húsi, sem ekki á að gefa annan arð en gleði hjart- ainis. En það er saga sem igætd bor- ið nafnið: Mikið má ef vel vill, eða Samtaka sigrum vér alla örð ugleika (jafnvel gengislækkanir) eða eitthvað því um líkt. Ýmisir gáfu háair upþhæðir. Dæmi: Einar Bergsteinsson frá Fitjamýri arfleiddi kirkjuna að eignum sínum, sem námu um 160 þúsund krónum. Og enn eru gjafir að berast, nýlega ein upp Biskup og sóknarprestur ganga i kirkju vigsíudaginn. Ljósm. Ottó Eyfjörð. G. Br. skrifar: I DAL UNDIR FJÖLLUM Biskup fyrir aitari í Stóradalskirkju. Gamla og nýja kírkjan í Stóradal. í 40 þúsund krónur. Þá skal þess getið, því að það mun nokkuð sérstakt, að á sínum tíma eign- aðist kirkjan dráttarvél, sem hún gat leigt út og hafði af drjúgar tekjur. Sýnir það, eitt með öðru, hve fundvísir aðstandendur kirkjubyggingarinnar hafa verið í leit sinni að tekjuöflun til fram kvæmda þessu hugðarmáli sínu. Af gjöfum, sem kirkjunni hafa borizt í öðru en peningum skulu þessar nefndar: Predikunarstóll- inn er gefinn til minningar um Auðium í ValiBeli, af etakju h'aws og börnum, skírnarfontur til minn inlgar um Kriatján á Seljallaimdi o. fl. af ekkju hans, sem nú er látin, kirkjuklukkurnar gaf Eysteinn á Brú, frú Hanna frá Holti gaf biblíupúlt, kiross yfir altari er gjöf frá fyrirtæki því í Þýzka- landi, sem seldi glerið í glugg- ana, ljósatæki gaf fólkið í Stóra- dal og allir bændur í sókninni gáfu ull af fé sínu í teppi á kinkjuigóMið. Eins og fyrr segir, fór vígsla hinnar nýju og nýstárlegu Stóra dall'dkinkj'U fram þainin 18. miaS. Vair þar mikið fjölmenni. Biskup framkvæmdi vígsluna en pastor loci, sr. Halldór Gunnarsson í Kolti prédikaði. Vígiglui voibtair voru þau frú Hanna Karlsdóttir og sr. Jón M. Guðjónsson, sem bæði eru tengd tryggðarböndum við Eyjafjallasveit frá veru sinni í Holti. Ennfremur voru vígslu- vottar þeir sr. Sigurður Haukdal á Bergþórshvoli og Eysteinn Ein arsson formaður sóknarnefndar. Að vígslu lokinni var haldið að Hvoli, þar sem um 250 manns sátu boð sóknarnefndar í tilefni þessa hátíðlega atburðar. Eyjafjöllin hafa löngum þótt bera af flestum sveitum að feg- urð og tign. Vissulega er þar margt að skoða af dásemdum nátt úrunnar. Nú hefur henni bætzt við eitt af mannanna verkum, sem vert er að leiða auga að, þar sem er Stóradals-kirkja hin nýja. Hún kemur manni skemmtilega á óvairt þegar ekið er fyrir Dalsás- inn og horft er heim að þessu óðali Runólfs Úlfssonar aurgoða, sem kunnur er af Njálu. Hann var vinur Þráins mikill. Úr boði hans var Þráinn á heimleið, er fundur þeirra Skarphéðins vairð á ísum Markarfljóts svo siem frægt er. Þegair Flosi kom aust- ain til eftimmá'l'ainna eftiir víig Höskulds, reið hann í Dal til Runólfs til að hafa af honum sannar sögur um vígið. „Ert þú maður sannorðuc . . . og mun ég því trúa öllu er þú segir mér frá.“ Þetta er fögur mannlýsing og vissulega er þess vert að sækja \ þann stað heim þar sem slíkur maður bjó. Nú er Runólfur í Dal löngu genginn til feðra sinna. En í dag má koma á óðal hans til að hafa þair „sannar sögur.“ Kirkjurnar tvær, sú gamla og sú nýja standa þar og' tala svo kiriöiftuigu máli að enigin orð flá lýst um þær stórbreytingar, sem eru að gerast í byggingu helgra húsa á íslandi. Inni á milli leið- anna í kirkjugarðinum stendur hið aldna hús og mun nú brátt hverfa af sjónarsviðinu. En uppi á hólnum austan við það gnæfir hið nýja svo ólíkt og nýsköpun- arlegt að enginn hlutur úr gömlu kirkjunni mun þykja eiga þar heima. í kirkjugarðinum í Stóradal eru hávaxin, vöxtuleg reynitré. í skugga þeirra er nýorpin gröf með krönsum bleikra blóma, en inni í laufmiklum krónum þeirra glymur söngur þrastanna sem koma fljúgandi utan úr sólbjört- um geimnum með æti til unga sinna. x

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.