Morgunblaðið - 08.08.1969, Side 4

Morgunblaðið - 08.08.1969, Side 4
4 MORGIWBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 196« * 22-0-22- RAUDARÁRSTlG 3; 1-44-44 Kvérfiscötu 103. Simi eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 13. Sími 14970 Eftir lokun 81748 eða 14970. bilaleigan AKBBA VT car rental serrice 8-23-47 sendum JÖHAIMIMES LARJSSON, HRL. Kirkjuhvoli, sími 13842. InnhQimtur — verðbréfasala. GUSTAF A. SVEINSSON hæstaréttarlögmaður Laufásvegi 8. — Sim: 11171. ^UBIJNAÐARBANKINN <-r banki fölksinw < 1ALLÍ n t / jfe, Vélapakkningar De Soto BMC — Austin Gipsy Chrysler Buick Chevrolet, flestar tegundir Dodge Bedford, disil Ford, enskur Ford Taunus GMC BedforJ, dísil Thomes Trader Mercedes Benz, flestar teg. Gaz '59 Pobeda Volkswagen Skoda 1100—1200 Renault Dauphine Þ. Jonsson & Co. Skerfan 17. Simar 84E15 og 845 16. © Heilsuhæli Náttúrulækningafélags íslands í Hveragerði Ámi Ásbjamarson, forstjóri Heilsuhælis N.L.F.Í. í Hveragerði, skrifar: „Kæri Velvakandi! Bréf Margrétar Jónsdóttur í dálk um þínum 31. júlí gefur mér til- efni til að koma á framfæri fá- einum ábendingum varðandi starf semi Heilsuhælis Náttúrulækninga félags íslands í Hveragerði. Hælið var stofnað sem almennt hressingar- og hvíldarheimili fyr ir heilbrigða og sjúka, og fyrst í stað greiddu allir dvalargjöldin úr eigin vasa. Fljótlega viður- kenndi heilbrigðisstjórnin hælið sem gigtlækningastofnun og síðan hafa sjúkrasamlög greitt nokk- um hluta daggjalda gigtarsjúkl- inga, síðustu árin yfirleitt %. Enda þótt gera hefði mátt ráð fyrir, að margir vildu dvelja í hælinu í sumarfrium, fremur en í dýrum sumargistihúsum, hefir eftirspurn eftir slíkum plássum jafnan verið lítil, vafalaust vegna þess, að fólk í sumarfríum sættir sig ekki við að búa innan um sjúklinga eða við þær takmark- anir á fæði og frjálsræði, sem hæl- isgestum eru settar. 0 Aðsókn eykst Aðsókn að hælinu hefir aukizt ár frá ári. Sumarið 1968, meðan dvalargestir greiddu enn Vt hluta daggjalda, voru þannig langir biðlistar, og urðu margir frá að hverfa með öllu. Ástæðan til þess, að eftirspum er mest að sumr- inu er augljós: Fyrir marga er það eini tími ársins, sem þeir eiga heimangengt, húsmæður frá heimilum sínum, meðan börnin em í sveit, og aðrir vilja held- ur nota sumarleyfi sitt til að fá nudd- og æfingameðferð, leirböð o.s.frv., fremur en að biðja vinnu veitanda sinn um veikindafrí á öðrum tímum árs, og fæstir þess- ara sjúklinga eiga kost á tilsvar- andi meðferð annars staðar. Það er rétt hjá Margréti, að sjúkrahús hafa í vaxandi mæli beðið um pláss fyrir sjúklinga í hælinu, og verður okkur varla legið á hálsi fyrir að láta þá sitja fyrir ýmsum öðrum, m.a. með til- liti til þess að í sjúkrahúsum í Reykjavík, en þaðan koma flest- ir þessir sjúklingar, verða sjúkra samlög að greiða allt að þre- falt hærri daggjöld, og jafnvel þar yfir, en í hælinu. Er þetta því mikili sparnaður fyrir sjúkra samlögin. Auk þess þarfnast flest ir þessir sjúklingar sjúkraþjálf- unar og annarrár meðferðar, sem hælið hefir upp á að bjóða. 0 Grunsemdir og getsakir Sjúklingar em teknir í hælið eftir tilvisun eða beiðni frá heim ilislækni eða öðrum lækni, sem ferðaskrifstofa bankastræti 7 símar 164 00 12070 Einstaklingsferðir Höfum ó boðstólumog skipuleggjum einstaklingsferðir um ollan heim. Reynið Telex ferðaþjónustu okkar. örugg ferðaþjónusta: Aldrei dýrari enoftódýrari en annars staðar. \mmi ferðirnar sem folkið velnr íbúð — Hafnarfjörður Til sölu falleg 6 herb. íbúð á 2. hæð í nýlegu tvíbýlishúsi T Hafnarfirði. 3 svefnherb., samliggjandi stofur, eldhús og bað á hæðinni, ásamt sérþvottahúsi, geymslu og innbyggðum bíl- skúr á jarðhæð. Lóð fullfrágengin. Fallegt útsýni. Skip og fasteignir Skúlagötu 63. Sími 21735, eftir lokun 36329. Fró skiposkoðunorstjóra Að gefnu tilefni skal vakin athygli á, að óheimilt er að breyta opnum trébátum í þilfarsskip án þess að samþykki Skipa- skoðunar ríkisins sé fyrir hendi áður en breyting hefst. Til samþykktar verður að skila til Skipaskoðunarinnar teikningu og lýsingu ásamt efnismálum af bát og breytingu. Tekið skal fram að ekki verður leyft að setja þilfar á báta nema styrk- leiki þeirra uppfylli styrkleikakröfur þær sem gerðar eru ! reglum um smíði tréskipa eða reglum um smíði skarsúð- aðra báta. Skipaskoðunarstjórinn. stundað hefir sjúklinginn. Reynt er að velja úr eftir þeim upp- lýsingum, sem frá læknunum ber ast. Það er erfitt verk og óvin- sælt að velja og í mörgum til- fellum illa hægt að gera sér grein fyrir því, hverjum er mest og brýnust þörf á að komast á hælið. Og það er skiljanlegt, að mörg- um sem komast ekki í hælið fyrr en eftir dúk og disk, eða alls ekki, sárni og telji sig órétti beitta. Viljandi er það ekki gert að meina neinum dvöl á hælinu. En það er eðlilegt og mannlegt, að hjá þeim óánægðu skjóti upp kollinum ýmsar grunsemdir og getsakir, sem er jafnerfitt að sanna og afsanna, og útilokað að elta ólar við slíkt. Hveragerði 4. ágúst 1969, Árni Ásbjarnarson, forstjóri Heilsuhælis NLFÍ“ 0 Vegamerkingar „Velvakandi ferðaiangur“ skrifar: „Kæri „nafni“! Ég er einn fjölmargra, sem eyði fríhelgi verzlunarmanna gjarnan í ferðalög. Nú í þetta sinn varð svæðið norðan Galta- lækjarskógar, sunnan Tungnaár, austan Þjórsár og vestan Land- mannalauga fyrir valinu. Þetta svæði var til skamms tíma uppi á öræfum, en er nú komið í þjóð- braut. Vegir eða bílabrautir á þessu svæði eru færar flestum bíl- um, en þó varasamar fyrir mjög lágar bifreiðar, þótt þær skríði að komast. En það, sem fær mig til að drepa niður penna í þetta skiptið, er fyrst og fremst það, hversu vegavísun er þama fálmkennd, ruglingsleg og sums staðarpíbein- línis villandi, enda vorú þeir margir, sem námu staðar, er þeir mættu öðrum, og spurðu til veg- ar. Þegar búið er að fá yfirsýn yfir svæðið, er rötun þama ekki afskaplega erfið, ef vel er verið á verði og sum skiltin tekin með varúð en víða em engin skilti. En engin regla er án undan- antekninga eða öllu heldur í þessu tilviki, engin óregla er án undan tekninga. Þarna er verið að leggja nýjan veg, Þórisvatnsveg, frá stíflu Búrfelísvirkjunar inn að brúnni á Tungnaá, og svo víst áfram að Þórisvatni. Þar sem nú verandi braut sker hinn nýja veg norðan Valafells, var skilti, þar sem stóð á, auk nafns vegarins, að verktakafélögin Hlaðbær, Mið fell og Völur væru að leggja þennan veg, og eigandi hans (verk kaupi) væri Landsvirkjun. Varfrá þeim stað auðvelt að rata inn að hinni nýju brú á Tungnaá, enda að vísu fáar hliðarslóðir til glepj unar. 0 Vegagerð boðin út En það, sem sérstaklega vakti furðu mína, var, að Landsvirkj- un væri eigandi að þessum mynd arlega vegi. Hafa ekki orðið hausavíxl á þessum tveimur op- inberu fyrirtækjum, Landsvirkj- un og Vegagerð ríkisins, og má maður kannski eiga von á því, að Vegagerð ríkisins fari að snúa sér að smíði raforkuvera? íþessu sambandi fannst mér mjög at- hyglisvert að vegagerð þessi skyldi vera boðin út gagnstætt því, sem við höíum átt að venj- ast. Er þarna um framfarir að ræða, og vonandi, að vegir eða vegkaflar verði í auknum mæli boðnir út af þeim opinberu að- ilum, sem standa munu fyrir vega gerð á íslandi. Skilst mér, að reynsla Reykjavíkurborgar af út- boðum í gatnagerð hafi yfirleitt verið mjög góð, og borgin hafi hagnazt á viðskiptunum. Hvi ætti ekki hið sama að gilda um gatnagerð í strjálbýli eða á þjóðvegum yfirleitt? í góðri von um, að ábyrgir aðilar bæti hið fyrsta úr þessu og t.d. Ferðafélag íslands skeri upp herör ásamt Vegagerð rík- isins eða vegamálastjóra, kveð ég að sinni. — Megi allir ferðalang- ar á fyrrgreindu svæði hafa að lokum ratað rétta leið og skilað sér glaðir í bragði og úthvíldir til síns heima. Rvík, 5.8. 1969, Velvakandi ferðalangur". 0 Róbert og tindátar Steins „Kæri Velvakandi! Mig langar til að biðja þig að koma eftirfarandi ósk á framfæri: Væri unnt áð dagskrárstjórn út varpsins léti endurtaka upplest- ur Róberts Arnfinnssonar á kvæð inu Tindátunum eftir Stein Stein arr, sem flutt var í þættinum Léttum réttum á sunnudagskvöld ið? Ég heyrði aðeins niðurlag þessa ágæta kvæðis, (sem var flutt með tónlist), vegna þess að ég horfði á sjónvarp, en þess var ekki getið að Róbert læsi þetta kvæði í dagskránni. Ég veit, að ég er ekki ein um að hafa misst af þessu, eða er ekki svo Vel- vakandi ágætur? Hlustandi.“ Verzlun til sölu Húseignir verzlunarinnar Borg á Skagaströnd ásamt lager, oru til sölu nú þegar. Væntanlegir kaupendur snúi sér til Þorfinns Bjarnasonar, Skagaströnd, eða Magnúsar Konráðssonar. Drápuhlíð 29, Reykjavík, sími 11287, sem gefa nánari upplýsingar. ELDTRAUSTIR SKJALASKÁPAR 3ja og 4ra skúffu. SÆNSK GÆÐAVARA E.TH.MATHIESEN H.F.^ SUÐURGT. 23 — HAFNARFIRÐI — SÍMI 50152

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.