Morgunblaðið - 08.08.1969, Síða 10

Morgunblaðið - 08.08.1969, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1960 tMMMMMMMMMMM GfSLI HALLDÓRSSON * Aðstaða til íþróttaiðkana í vaxahdi borg er nauðsynlegt að öll íþrótta- og æskulýðsstarf- semi sé vel skipulögð. svo að bver og einn geti stundað alls konar íþróttir og almenna líkamsrækt i frístundum sínum. Á undanförnum árum hefur því borgarstjórn lagt aukna rækt við íþrótta- og útivistar- svæði í og við borgina. Skipuleg samvinna er við öll íþróttafélög borgarinnar, iþróttabandalag Reykja- víkur og sérráð þess til þess að ná sem beztum árangri í þessari skipu- lagningu. Þá hefur borgarstjórn komið á fót fþróttaráði, sem fer með stjórn íþróttamála og skipað sérstakan íþróttafulltrúa borgarinn- ar, sem fylgist með hinu marg- þætta íþróttastarfi borgaryfirvalda á hverjum tíma. Ráðið er þannig skipað að fþróttabandalag Reykja- víkur tilnefnir tvo af fimm fulltrú- um, sem eiga sæti í ráðinu, en borgarstjórn hina þrjá. Á undanförnum árum hefur fþróttaráðið samið áætlanir um ár- legar framkvæmdir, en jafnframt gert heildaráætlanir fram í tímann. Er þar lögð áherzla á að íþrótta- og útivistarsvæði verði í hverju hverfi til alhliða íþróttaiðkana, ekki ein- ungis fyrir íþróttamenn, heldur fyr- ir alla borgarbúa, yngri sem eldri. Víða í hinum eldri borgarhverfum hefur verið erfitt um vik að koma sliku fyrir, en við gerð aðalskipu- lags Reykjavíkur voru iþróttasvæði hinna stærri félaga, eins og KR, Vals, Ármanns og Víkings ákveðin sem framtiðarstaður þessara félaga og hverfanna. Fram, Þróttur og 1R fengu svo um sama leyti ákveðin ný svæði. I nýjum hverfum er hægara um vik, þar sem landrými er ekki eins takmarkað og í gömlu hverfunum. Hefur því verið ákveðið að i Arbæ og Breiðholti verði rúmgóð svæði til íþrótta og útivistar fyrir íbúana, og þau félög er þar verða stofnuð. 1 eldri hverfunum hafa hin einstöku félög haslað sér völl, að mestu hverfisbundið. Er það ágætt fyrir- komulag, sem borgaryfirvöldin hafa styrkt mjög mikið með því að út- hluta félögum eigin svæðum, og styrkja þau fjárhagslega til þess að byggja íþróttahús og velli, ásamt félagsheimilum. Þá er rekstur þess- ara félagsmiðstöðva styrktur, enda hafi hinn almenni borgari aðgang að svæðunum. öðru máli gegnir um nýju hverf- in, þar eru engin rótgróin félög fyrir hendi, sem staðið geta fyrir slíkri uppbyggingu, þar verður íþrótta- ráðið að tryggja uppbyggingu á íþróttamannvirkjum í samvinnu við skóla og borgaryfirvöld. Verður lögð áherzla á að slík uppbygging geti átt sér stað um leið og hin einstöku hverfi byggjast. * Sundstaðir Að undanförnu hefur sérstök áherzia verið lögð á að byggja upp sundaðstöðu í borginni, enda má segja að sundíþróttin hafi hér nokkra sérstöðu eftir að hin al- menna sundskylda var tekin upp, en með henni á hver einasti upp- kominn borgari að kunna að synda. Jafnframt því sem sundið er ágætis íþrótt fyrir alla yngri sem eldri borgara, þá er það ein bezta íþrótt til alhliða hreyfingar og heilsurækt- ar. Sundið hefur því átt miklum vinsældum að fagna. Með tilliti til þess hefur borgar- stjórnin varið miklu fé á undan- förnum árum til að fjölga sundr stöðum og bæta aðstöðuna á öðr- um. Stærsta áfanganum á þessu sviði var náð er sundlaugin í Laugardal var tekin í notkun á sl. ári. Þá voru gömlu sundlaugarnar lagðar niður, en þær höfðu þá ver- ið starfræktar í 61 ár frá því að þær voru hlaðnar upp. En sund- kennsla hafði farið þar fram í yfir 80 ár. Nýju sundlaugarnar voru því verðugur arftaki gömlu lauganna, er þær tóku við á þeim stað, sem vagga sundmenntar borgarbúa stóð. Sundlaugarnar gömlu voru ávallt vel sóttar, og margir af fastagest- um höfðu tekið ástfóstri við þær og töldu að varla mundi aðsókn verða betri í nýjum laugum. En það var hér eins og víða annars staðar, að hið gamla varð að víkja fyrir nýjum líma og auknum kröfum um bætta aðstöðu og meira hreinlæti. Nú pegar hægt er að bera saman aðsókn að gömlu laugunum á fyrsta hálfa árinu er ánægjulegt að sjá, að þótt margir hafi sótt gömlu laug- arnar þá hafa helmingi fleiri komið í þær nýju á sama tíma. Auk sundlauganna í Laugardal hefur sundlaug verið byggð í Vest- urborginni, og komið hefur verið upp kennslulaug í Breiðagerðis- skóla. Sundstaðir eru því nú 5 að tölu, sem allir eru vel sóttir af borgar- búum. Tveir af þeim eru útisund- laugar, tvær kennslulaugar í skól- um og Sundhöllin. Otilaugarnar eru reknar allt árið, og er það engin ný- lunda hér, en þessu er ekki svo farið annars staðar. T. d. vil ég geta þess til fróðleiks að nýverið var einn borgarstjóri Kaupmanna- hafnar á ferð í Moskvu. Var honum m. a. sýnd þar ný fullkomin úti- sundlaug og gestgjafinn sagði hon- um með nokkru stolti, að hún yrði rekin allt árið. Þá sagði borgar- stjórinn frá fyrri heimsóknum sjn- um til Reykjavíkur og tjáði þeim að hér hefðum við lengi rekið úti- sundlaugar allt árið. Vegna ágætrar aðsóknar í sundlaug Vesturbæjar, verða búningsherbergi stækkuð og bætt til muna á næstu árum. í Breiðholti er þegar ákveðið að byggð verði sundlaug fyrir fþrótta- fólk, skólana og almenning, en í Árbæjarhverfi er þegar verið að byggja skólasundlaug, sem verður opin fyrir íbúa hverfisins á vissum tímum. Vegna hinnar bættu aðstöðu til sundiðkana, hefur baðgestum farið ört fjölgandi eins og sjá má á eftir- farandi: Árið 1962 voru baðgestir á öllum sundstöðunum um 500 þús., árið 1966 voru þeir orðnir um 600 þús. og allt bendir til þess, að nú í ár verði þeir yfir 700 þúsund. stóraukið alla innanhússstarfsemi á næstu árum, en á því hefur verið mikil þörf. íþróttahús Aðsókn að innanhússíþróttum hefur vaxið hröðum skrefum á und- anförnum árum. Hefur verið unnið markvisst að þvií að bæta þá afstöðu með því að byggja fleimi íþróttahús. En þau eru dýr í byggingu og þess vegna eru aðeins tvö félög, sem hafa haft bolmagn til að ráð- ast í svo fjárfrekar framkvæmdir. Til þess að hraða byggingu iþrótta- húsa, hefur verið gert samkomulag milli iþróttahreyfingarinnar, skóia- og borgaryfirvalda, að íþróttahús skólanna verði byggð stærri en áð- ur, svo að þau komi að fullum notum fyrir kvöldstarfsemi fþrótta- félaganna. Hefur þetta borið góðan árangur, sem þegar hefur gefið góða raun, með byggingu íþrótta- húss Réttarholtsskóla. Þar hefur hið hverfisbundna félag Víkingur fyrst og fremst fengið aðsetur með sína starfsemi. En að öðru leyti ráð- stafar ÍBR lausum tímum í húsinu til annarra félaga. Bygging íþróttasala hefur gengið mjög vel á undanförnum árum, sem sjá má á eftirfarandi: Árið 1930 voru hér aðeins tveir iþróttasalir 300 ferm að stærð. Á árunum 1930—1940 voru byggðir tveir salir í viðbót, sem voru 348 ferm að flatarmáli. Næsta áratuginn voru fjórir salir byggðir er voru 800 ferm að stærð. Frá 1950—1960 eru enn byggðir fjórir salir, sem eru 1056 ferm samanlagt, og frá 1960 hafa verið byggðir 6 salir, sem eru 2928 ferm að stærð. Nú eru 5 íþróttahús í smiðum með 9 sólum og verða þeir 2362 ferm að stærð. Allir þessir salir verða teknir í notkun fyrir árslok 1970, samtals verða þá byggðir 15 salir á þessum áratug, sem verða að flatarmáli 5290 ferm. Þessar stórstigu framkvæmdir munu létta undir starfsemi iþrótta- félaganna, um leið og þau geta UPPBYGGINGU ÍÞRÚTTAMANNVIRKJA Sýninga- og íþróttahús Fyrir nokkrum árum var sýn- inga- og íþróttahúsið í Laugardal tekið í notkun. Var það byggt upp- haflega af Reykjavíkurborg, Sýn- ingasamtökum atvinnuveganna og ÍBR. En vegna þess að einn aðilinn hafði ekki bolmagn til þess að greiða tilskilinn byggingarkostnað, þá stöðvaðist bygqingin áður en hægt var að Ijúka henni að fu'lu. Nú hefur sú breyting orðið á, að Reykjavikurborg hefur keypt eign- arhluta Sýningasamtakanna og á nú 92% af húsinu en ÍBR 8%. Um leið og þessi eignaskipti fóru tram var ákveðið að hefjast handa við að fullgera húsið og verður vinna nú hafin við það ó þessu sumri. Verður því verki haldið áfram, þar til húsinu er fulllokið, þó þannig að íþtóttaæfingar, kappleikir og sýn- ingar geta farið fram eftir því sem nauðsynlegt er. Þó að húsið hafi ekki verið full- gert þá hefur það komið að fullum notum sl. 3 ár fyrir íþróttaæfingar og kappleiki félaga á kvöldin, en á daginn hafa skólarnir notað salinn. Hefur það verið mikil lyftistöng fyrir allt íþróttalíf i borginni, en einkum hefur handknattleiksíþróttin notið þar góðs af og þá sérstak- lega Handknattleikssamband fs- lands. Hefur það getað boðið til margra landsleikja við ágæt skil- yrði, en af þeim hefur orðið mikill íþróttalegur ávinningur; þá hefur húsið einnig orðið til þess að bæta mjög fjárhag sambandsins. * Laugardalsvöllur Nú er verið að stækka og end- urbæta Laugardalsvöllinn, en 1. áfangi hans var tekinn í notkun fyrir 12 árum. Þá rúmaði hann 13.000 áhorfendur, þar af 1100 í sætum. Það var strax í upphafi ætlunin að fiölga sætum í stúkubyggingu og byggja yfir þau síðar. Nú eru fram- kvæmdir við þennan áfanga hafnar fyrir nokkru og lýkur þeim í byrjun næsta árs. Þá verða sætr fyrir um 3630 manns og byggt þak yfir þau öll, en stæði fyrir um 11.400 manns. Um leið og þakið verður byggt, verður útbúin sérstök aðstaða fyrir íþróttafréttaritara, útvarps- og sjón- varpsmenn. Verður það í upphit- uðu rými með sérsímum og öðrum þægindum, sem tilheyra fyrir þessa starfsemi. Siðan verður hægt að auka rými fyrir áhorfendur, svo að vötlurinn rúmi 25.000—30.000 manns. f framhaldi af þessum byggingar- framkvæmdum verður haldið áfram við að innrétta stúkubygginguna. En þar verða gerð fleiri búningsher- bergi og betri aðstaða fyrir þjálfara og dómara. Þá verður sköpuð sér- stök aðstaða fyrir frjálsíþróttamenn, með því að byggja 60 m innanhúss- hlaupabraut. í sumar er einnig ákveðið að bæta þar aðstöðu fyrir hástökkvara og verður þar sett „Tartan" á uppstökksbraut, en það er sams konar gerviefni og notað var á Ólympíuleikvellinum í Mexíkó. Nú er Lauga rdalsv ö H ur inn eim- göngu fyriir frjátsar íþróttiir og knattspyrnu, en síðar er ætlazt til að hand'knattlei'kur fái þar ernnig aðstöðu með því að byggja tvo úti'velli. Verða þeiir byggðiir upp á sérstaikan hátt, þar sem gúmkennt efni verðuir lagt ofan á asfalt'undi>r- Framhald á bls. 11 VERÐUR HALDIS AFRAM i^NNNNN^^^^^NNNNNHNNí^## ^^Hfr^NNNN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.