Morgunblaðið - 19.08.1969, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.08.1969, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1969 Úr Austur-Skagafirði Steinunn Lárusdóttir — Minningarorð ÞAÐ rignir og það rignir segj- um við núna. Ég minnist nú í ervip aðeins tveggja samfelldra þurrkdaga, en geri þó ráð fyrir að sums staðar sé verra en hér. Sumarið hefir einnkennzt af því að mjög marga daga hefir verið glampandi sól og ágætur þurrk- ur fyrri part dags. en svo hafa komið steypi skúrir, og það sem ekki hefir gerzt í yfir 30 ár og unga fóJkið þekkir ekki, að þrum ur og eldingar hafa komið. Þetta er svo óvanalegt að búfénaður tryllist og börnin hlaupa inn í hús og segjast aJdrei fara út aft- ur!! Þeir bændur, sem fyrstir byrj- uðu heyskáp hafa náð inn tölu- verðu af heyjum, aðrir sem ekki byrjuðu fyrr en undir mánaða- mót júlí-ágúst hafa þurrkað dá- lítið, en Iitlu náð inn í hlöður. Mest veldur þar um, að arfkm er viða, og sums staðar virðist hann vera á allt að einum þriðja raektaðs lands. Heyin, sem tekin hafa verið í sæti, eru þvi arfa blandin og því óvarlegt að setja mikið saman inn í hlöður. I Austur-Fljótum og fram til dala virðist betur hafa sprottið en nið ur um Jáglendi og við sjóinn og þar sést varla arfi. Geri ég ráð fyrir að á þessum stöðum verði mun betri heyskapur. Engar lik- ur eru þó til, eins og nú horfix að meðalheyskapur fáist, og sums staðar horfir til vandræða. Seint var sett niður í garða, víða um miðjan júní og seinna, enda var klaki í jörðu langt fram í júní. Eins og er er þó sæmilegt útlit með sprettu, og ef ekki koma frost má búast við að eitt- hvað fáist upp í haust. Berja- spretta lýtur ekki iJla út, ef ekiki koma frost. Er þegar farið að tina kraekiber. IIMFERB Á VEGITM Mér er sagt af kunnugum að aldrei hafi umferð á vegum ver- ið eins mikil og nú. Þótt nokkuð hafi rignt hefir verið frekar hlýtt. Múlavegur og Strákagöng og vegur til Sigluf jarðar eru nýir i áætVunum ferðafóBcs, enda mjög fallegt og sérkennilegt að aka báðar þessar leiðir í góðu veðri. Vegirnir á þessum leiðum eru lí'ka taldir mjög sæmilegir. SKEMMTANIR. Ekki eru vandræði að fá sér snúning eða sikemmta sér á ann- an hátt, því nóg úrval er af skemimtunum og keppast sam- komuhúsin við að auglýsa og reyna að ná sem flestum og sem mestum fjármunum af fólkinu. Fólk ekur líka eins, tveggja og þriggja ktet. leiðir til að njóta þessara dáseanda. Margir segja þó, að dagamir á eftir séu mörg- um erfiðir. Margt af eldra fóliki lætur orð falla um að allt þetta skemmtanaflóð sé þjóðinni dýrt, þegar öll kurl komi til grafar. Ég er auðvitað að verða gam- all maður og fer aðeints á eina eða tvær síkemmtanir á ári. Ég fór nýlega á samkamu Sjálf- stæðissnanna á Sauðárkrófci og hafði auðvitað gaman af, því að þar voru góð skemimtiatriði og góðar ræður fiuttar. En hellu hafði ég fyrir eyrum daginn eftir af bölvuðum hávaðanum í hljóm sveitinni. Þó eru þetta vist fræg- ir og ágætir menn. Mér var ekki nein leið að tala við þær ágætu konur, sem ég vildi gjaman ræða við. Það stendur mikið til hér í Skagafirði á næstu tfemiín. For- setinn og frú hams eru að koma í heknsókn. bistkupsvigsla á Hól- um i Hialtadal o.fl. SJÓSÓKN. Fyrri hluta sumars var góður þorslkafli á trollbáta. en hefir nú minnkað og dragnótaveiði er nú einnig treg. Einn handfærabátur rær frá Hofsósi og hefir hann aflað mjög sæmilega. Þriðjudag- inn 12. þ.m. var sjósettur frá Stálvík syðra nýr bátur, eem Hofsósingar og nærliggjandi sveitir létu byggja. Einnig er nú tekið til starfa hlutafélag um frystihús á Hofsósi. Er ráðinn frairtkvæmdastjóri fyrir bæði þessi fyrirtæki, Pétur Jóihanns- son frá Glæsibæ í Fellsthreppi. Nokkur silungsveiði og um- ferð silungs mfun hafa verið í sjó í sumar, en silungsveiði í vötnum hefir verið minmi. í Höfðavátni veiðist ekfci mikið meðan bjart er, en það sem fæist eru 2-8 punda bleikjur. Marfló og annað lostæti fyrir silung er í vatninu og vill hann þvi ógjarn an líta við agni stangarveiði- manna. Heilsufar hefir verið mjög sæmilegt enda má enginn vera að þvi, nema í neyðartilfellum, að verða veikur. Þeir, sem svart- sýnir eru, bölva dýrtíðinni, veðr áttunni og ýmsu, sem öðruvísi ætti að vera og vilja gjarnan kenna stjórninni um allt öng- þveitið, en hafa þó enga trú á að Pétur eða Páll úx öðram flofck- um myndu stjórna betur eða gera svo vel að öllum lílkaði. Bæ, 11. ágúst 1969 ■— Bjöm. FRÚ Steinunn Lárusdóttir and aðist í Borgarsjúkrahúsinu að- faranótt 12. þ.m., aðeins 54 ára að aldri. Hún var Rangæiragur, fsedd að Fitjatmýri undir Eyja- fjöllum 17. sept. 1914, dóttir Lár usar bónda Björnssonar og Sig- ríðar Bergsteinsdóttur, Steinunn ólst upp í föðurgarði til tvítugs aldurs. Hún var glæsileg kona, fékk snemima að kynnast harðri lífsbaráttu, en hún var þróttmi'k il og bauð jafnan erfiðleikunuim byrgin. Systkini Steinurmar voru sex: Björn bóndi að Fitjamýri, Vil- hjálmur verfcamaður í Reýkja- vík, Ólafur Pálsson jámsmiður í Reýkjavík . fóstursonur foreldr- anna, Anha ekkja, var gift Lár- usi Hjálmarssyni sjóimanni, Vig dís ekkja, var gift Þorkeli Guð- mundssyni og Guðrún María, dá- in, en eiginmaður henroar var Kjartan Bjömsson sjómaður. Það kom fljótt í ljós í fari Steinunnar, að hún vildi hjálpa og gleðja þá, sem voru olnboga börn lífsins eða áttu á eirrn eða annan hátt við vanheilsu að stríða. Þegar hún fluttist til Reýkja- víkur 1940, varð hún fyrst vöku kona á sjúkrahúsi, en átta árum siðar hóf hún störf hjá Körfu- gerðinni. Þeir, sem kynmtust henni þar, miraiast þeas, hve hún var dugleg, fljótvirik og vand- virk. Þar vann hún í eitt og háift ár. Árið 1950 hófst sá þáttur í lífi hennar, sem henni var kærastur. Hún kynntist Ólafi Ögmundsisyni húsasmið. Þau felldu hugi saman og gengu í hjónaband 17. febr. 1950. Ætíð síðan var hún maraai sín um ástúðleg eiginikona. Þá kom í ljös> hverisu góð og mikilhæf kona hún var, enda veitti hún honum mikilsverðan stuðning í lífi hans. Hún skapaði honum aðlaðandi heimili. Þangað var alltaf ánægjulegt að fcoma, og hinir mörgu vinir þeirra geyma minningu um margax yndisstund ir hjá þessum gestrisnu og glað lyndu hjónum. Hinir góðu eiginleikar Stein- unnar, umhyggja og fórnfýsi komu bezt í Ijós í veikindum Birgis, sonar Ólafis frá fyrra hjónabandi, þá sást sannarlega, að Steinunn var vinux í raun. Hún geklk bonum algjörlega í móðurstað. Birgir var 7 ára, þeg ar þau gengu í hjónaband, en þessi efnispiltur fétek heilablóð- fall og dó 18 ára. Árið 1952 getek Steinurvn í þjónustu Blindravinafélags ís- lands sem leiðbeinandi og verk- stjóri í tvö ár. Um tíma bjuggu þau hjónin í húsi Blindravina- félagsins í Ingólfsstræti og síðar að Bjarkargötu 8. Steinimn sá um matseld fyrir sumt af þessu blinda fólki, sem hún hafði kynnzt, enda vissi það, að hjá henni átti það alltaf öruggt at- hvarf. Steinunn starfaði síðar alltaf meira og minna hjá félag- inu og fylgdist atf heifum huga með startfseminni, þótt hún ynni jafnframt á öðrum sföðum, svo sem Uilarverilosmiðjunm Fram- tíðSrmi, Ötgehð Egils Sfcallagríms- scmar og Þvottahúsi SuncBialIar innar. Fómfýsi, umhyggja og dugn-að ur þessarar góðu konu lifir í endurminningum blinda fólks- ins í bor'ginni. Við fráfall hennar er hanmur að morgum kveðinn, sérstaklega eigimmanni. Hún var enn á góð wm aldri, er hún lézt og til hinztu stúndar ung í anda. Hún treysiti Drottni, vildi vinna að eflingu Guðsríkis og sýndi það í verki. Með þökik fyrir ánægjulega saimfylgd og vel unnin störf kveð ég góða fconu og öllum ástvinum hennar sendi ég innilegar sam- úðarkveðjur. Sverrir Sverrisson. S. Helgason hf. SÍMl 36177 Súðarvogi 20 Nauðungaruppboð sem augtýst var í 67., 68. og 69. tbl. Lögbirtingablaðs 1968 á hl í Hraunbæ 60, talin eign Þórðar L. Björnssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar, á eigninni sjálfri, föstudag 22. ágúst 1969, kl. 14.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavík. N auðungaruppboð sem auglyst var í 16., 19. og 22. tbl. Lögbirtingablaðs 1969 á h>. í Rauðalaek 22. þingl. eign Haralds Ágústssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar, á eigninni sjálfri, föstudag 22. ágúst, kl 11.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 53., 55. og 56. tbl. Lögbirtiogablaðs 1968, á Ránargötu 12, þingl. eign Helga Oddssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Guðm. Ingva Sigurðssonar hrl., Kristíns Einarssonar hdi. og Sveins M. Valdimarssonar hrt., á eigninni sjálfri, föstudag 22. ágúst 1969, kl. 10.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 12., 14. og 18. tbl. Lögbirtingablaðs 1969, á bl. í Átftamýri 40, þingl. eign Sigríðar Ásgeirsdóttur, fer fram eftir kröfu Hafþórs Guðmundssonar hdl. á eigninni sjálfri, föstudag 22. ágúst 1969, kl. 15.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 72. og 74. tbl. Lögbirtingablaðs 1968 og 2. tbl. 1969 á Selásdal, SuðurlandsbrauL þingl. eign Gunnars Jenssonar, fer fram eftir kröfu Ág. Fjeldsted hrl. og Gjakl- heimtunnar í Reykjavík, á eigninni sjálfri, föstudag 22. ágúst 1969, kl. 13.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Netamann á togbát Netamann vantar á m.s Lóm KE 101. Báturinn er með kælda lest og fer í siglingar. Upplýsingar í síma 2190 í Keflavík og 21894 í Reykjavík eftir klukkan 7 eftir hádegi. HÆTTA A NÆSTA LEITI eftir John Saunders og Alden McWilliams DANNY y... IT'S WENDY,. AND I...CSNIFF)...t NEED HELP, BIG BROTHER...SOMETHINS TERRIBLE HAS HAPPENED TO LEE ROY a — Hr. Raven, br. Daniel Ravenl Vin- samlegast komið að upplýsingamiðstöð Trans-Orient. — Það er ég, ungfrú. — Símirm til yðar, herra. Klefi nr. 1. — Það er landssíminn til yðar frá Washington, br. Raven. Andartak og þér fáið samband: — Danrty? Þetta er Wendy...og ég þarfnast hjálpar, stóri bróðir. Það hefur hræðilegur hlutur komið fyrir Lee Roy!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.