Morgunblaðið - 24.12.1969, Síða 8
8
MOHiGTJTíBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUíR 24. DES. l!96Ö
Sjötugur i dag;
Sigursteinn
Magnússon
aðalræðismaður
SIGURSTEINN Magnússon gerð
iist nítján ára gamall, að loknu
gagnfræðaprófi, starfsmaður í
Kaupfélagi Eyfirðinga á Akur-
eyri, setn er fæðingarbær hans.
Bftir nám í Vezlunarskóla Niels
Brocks í Kaupmannahöfn vann
hann í síkrifstotfum SÍS í Khöfn
og Reykjavík frá 1922 til 1930.
Þá tók hann við atf Guðmundi
Vilhjáknssyni sem fraimíkvæmda-
stjóri gkrifstofu Sambandsáms í
Leith. Síðustu árin hatfa störf
hans í þjónustu SÍS einkanlega
beinzt að sölu íslenzkra afurða
erlendis.
Þessi starfsferill ber hvoru
tveggja vitni, fastlyndi Sigur-
steins sjáitfs, sem hefðu verið
margir vegir færir, og því trausti
forráðamanna Sambandsins, er
hamn vann sér þegar á unga aldri
og hetfur notið óskoraðs alla tíð.
Elkki er eg heldur í vatfa uim, að
honuim hafa farið viðskiptamál-
in prýðilega úr hendi og atf þeim
geti þeir sagt milkla sögu, sem
akynbærir eru á slíka hluti.
Sigursteinn var árið 1940 skip
aður íslenzkur ræðismaður og
tíu árum síðar aðalræðiamaður
með starfsumdæmi í öllu Skot-
landi. Þessi staða hetfur alltaf
verið ólaunuð, en vegna sérstöðu
Skotlainds að ýmsu leyti samsvar
að því, að hann hefði verið sendi
herra í þessu grannlandi voru og
höfuðstað þess. Hamn er fyrir
löngu orðinn aldurstforseti í hópi
erlendra ræðismanna í Edinborg
og nýtur miikillar virðingar
startfsbræðra sinna, sem hafa
haft margt til hans að sæikja
vegna fjölbreyttrar þekkingar
hans og langrar reynslu.
Mér er óhætt að segja, að Sig
ursteinm sameini svo sem bezt má
verða tvennt atf því, sem er einna
æskilegast fyrir fulltrúa smárx
ar þjóðar erlendis. Hann er ágæt
lega heima í öllu, sem verðmæt
ast er í íslenZkum menntum og
menmingu, fróður um sögu þjóð
arinnar og hagi, bæði að fomu
og nýju, og mikill áhugamaður
um að kynna öðrum það, sem
honum finnst eiga erindi til
þeirra. f aranan stað hefur hon-
um verið sérstaklega lagið að
eiga samneyti við þá menn, sem
mestur slægur var í að þetokja,
að tala við um áíhugamál sín og
leita liðsinnis hjá, þegar til slíks
kom. Hann átti meðal annars
drjúgan þátt í stofniun íslenzka
lektonsembættisins í Edinborgar
háskóla, sem enn í dag er eina
þess háttar staða handa ísiend-
ingi í Bretlandi. En menkilegasta
dænni um persónuleg áhritf hans
er samt liklega, er hann kom því
áleiðds, að hið mikla útgáfufyrir
tseki Thamas Nelson and Sons í
Edinborg hótf útgátfu íslenzkra
fornrita með frumtextanum á
annarri hverri blaðsíðu og einskri
þýðingu á fainni, svipað hinum
alkunnu útgáfum gríúkra og
latneskra fornrita í Loeb Classi-
cal Library. Forstjóri Nelson's,
gamli dr. Morison, var í senn lær
dómsmaður og hagsýnn og gæt-
inn forleggjari, vissulega enginn
veifiskati. Það er ekiki ofmælt,
að þær mætur, sem hainin hafði
á Sigurtsteini, og það traust, sem
hann bar til hans, hafi riðið
baggamuninn, að Nelson’s Ice-
landic Texts’ var hleypt atf stökk
um. Þótt þessi útgáfa færi hægt
af stað (þrjú bindi koimu á ár-
unum 1957—1962), enda mjög til
hennar vandað, var tilætlunin,
að megin íslenzkra fomrita
kæmi smám saman út með sama
sniði. En þá gerðust þau ótíð-
indi að Thomison, hinm óseðjandi
blaðajötfur frá Kanada, gleypti
hið fomtfræga Nelsons-fyrirtæki
með húð og hári í einum munn
bita. Nú var ek!ki framar um
annað hugsað en gróða og helzt
sam fljótteknastan. Með þessum
umskiptum voru Nelson’s Ice-
lamdic Texts úr sögunni, að
minnsta kosti um stundar sakir
og á sama útvegi. En þau bindi,
sem komin eru, munu halda
áfram að rninma á, hvílíkt verk
er hér að vinna. Og a.m.k. ætti
hlutur Sigursteins Magnúissonar
í þessu framtaki ekki að falla í
gleymslku, þó að hanm vildi sjálf
ur halda honum sam minnst á
lotft.
Leith og Edinborg voru lemgi
áfangastaður á leið flestra fs-
lendinga, sem utan fóru, þótt
síður sé nú eftir tilkomu flug-
vélanma. Saimt eiga margir land
ar þar enn leið um, og ísdenzkir
stúdemtar hafa meir og meir sótt
til Edinborgardiáskóla á seinní
árum. Fjöldi landa hetfur fyrr og
síðar notið leiðbeininga og margs
konar fyrirgreiðslu af hálfu Sig-
ursteins og rausnar og alúðlegr-
ar gestrisni á heianili þeirra
hjóna.
Hátíð er til heilla bezt, segir
gamalt máltæki. Eftir því ættu
elkki aðrir dagar ársins að vera
heillavæmlegri til að fæðast inn
í þessa viðsjálu veröld en sjáltf-
ur aðfangadagur jóla. Eg hika
ekki heldur við að kalla Sigur-
stein Magnússon óvemjulega mik
inn heillamann og það fyrir
fleiri hluta sakir en sagðir verða
í fáum orðum. En fyrst og síðast
mumdi eg telja heianilisgæfuna.
Okkur getur og hefur greint á
um nógu margt, bæði í fomum
fræðum og dægurmálum, til þess
að hafa gaman af að skrafa sam-
an. En um eitt veit eg með vÍ3su,
að við komumst ekki hjá að vera
hjartanlega sammála, — þótt
hvor okkar líti á það frá sínu
sjónarmiði: að frú Ingibjörg
Magnússon hatfi allt til að bera,
sem bezt megi konu prýða,
hvort heldur er í sjón eða raun.
Eimi skugginn ,sem ég veit til að
borið hatfi á farsæld þessa heim
ilis, hefur verið tæp heilisa hús-
freyjunnar um nokkurt skeið.
En jafnvel þeir ertfiðleikar hafa
borið með sér sína birtu. Þeir
leiddu til hlítar í ljós andlegt
þre*k þessarar fíngerðu konu og
nálkvæma umíhyggjusemi hins
vikingslundaða eiginmanns, —
og síðan hefur batnandi heilsa
henraar orðið sífelld uppspretta
nýrrar gleði. Þá hefur mikið
barnalán, sem er öllum foreldr-
um dýrmætasta ástgjöf örlag-
anna, ekki brugðizt þekn hjón-
um. En um þau fjögur systkin, —
sem vitanlega eru tvemn óska-
börn, svo að unnt var að koma
upp bæði afa- og ömmunöfnum!
— vaeri fleira sfloemmtilegt að
segja en blaðið rúmar. Því Skal
staðar numið með þeim einlægu
árnaðaróskum til þessara vina
minna, afmælisbarrasins, frú Ingi
bjargar, bama og bamabama,
sem eina erimdið iraeð þessum
linum var að bera fram.
Sigurður NordaL
Óskum viðskiptavinum vorum
Cfle&itecjra jó(a
LJÓS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
simi 84488
INGOLFS - CAFE
Áramótafagnaður á gamlárskvöld.
GÖMLU DANSARNIR.
Aðgöngumiðasala frá 2. í jó’em. — Simi 12826. ^
INGOLFS - CAFE
BINGÓ annan jóladag kl. 3 e.h.
Spilðar verða 13 umferðir.
Borðpantanir í síma 12826.
INGOLFS - CAFE
GÖMLU DANSARNIR annan jóladag.
Dansað til kl. 2.
Hljómsveit GARÐARS JÓHANNESSONAR.
Söngvari: BJÖRN ÞORGEIRSSON.
Aðgöngumiðasala frð kl. 5. — Sími 12826.
INGÓLFS - CAFE
GÖMLU DANSARNIR laugardaginn 27. des.
HLJÓMSVEIT AGÚSTS GUÐMUNDSSONAR.
Aðgöngumiðasala frá kl. 5. — Sími 12826.
BiNGO - BINGO
BINGÓ í Templarahöllinni Eiriksgötu 5 kl. 3 laugardaginn
27. desember. — Aðalvinningur eftir vali.
Borðpantanir frá kl. 1. Sími 20010. 14 umferðir.
TEMPLARAHÖLLIN.
(jíeklecj jál
iariæít nýtt ár
þökkum viðskiptin á liðnu ári.
GISTIHEIMLIÐ HÖFN.
Þingeyri.
Orðsending um lífeyrissjóbi
Alþýðusamband Islands og Vinnuveitendasamband Islands
hafa orðið sammála um eftirfarandi reglur um iðgjaldagreiðslur
til lífeyrissjóða þeirra, sem samið var um 19. maí 1969.
1. Iðgjald skal greitt af ðllum tekjum starfsmanna á mánuði
hverjum þar til samanlagt iðgjald hefur náð þeirri upphæð,
sem svarar til iðgjalds fyrir 191 klst., miðað við 44 klst.
vinnuviku, eða þann dagvinnustundafjölda annan, sem við
á í hlutaðeigandi starfsgrein, miðað við útborgað tíma-
kaup viðkomandi starfsmanns í dagvinnu. Þ6 skal draga
frá þessari tölu þá tíma, sem starfsmaður er frá vinnu
án kaupgreiðslu. nema það stafi af verkefnaskorti. Um
reglubundna vinnu hluta úr degi gildir sama regla hlut-
fallslega.
2. I fastri vinnu, þar sem dagvinnukaup mótar ekki einvörð-
ungu fastar tekjur, skal greiða iðgjald samkvæmt tölu-
lið 1. Heimilt er að greiða allt að 10% til viðbótar.
3. Sé unnið á föstu mánaðarkaupi í vaktavinnu skal greiða
iðgjald af vaktakaupinu.
Reglur þessar breyta ekki ákvæðum gildandi reglugerða eldri
lífeyrissjóða um iðgjaldagreiðslur fastráðinna starfsmanna.
Iðgjaldagreiðslur hefjast 1. janúar 1970.
Vinnuveitendur skulu á því ári greiða 1|% iðgjald, en laun-
þegar 1%.
Frá og með 1. janúar 1970 ber vinnuveitendum því að halda
eftir iðgjaldshluta launþega 16 ára og eldri og gera skil á
honum ásamt eigin iðgjaldshluta í byrjun febrúar n.k.
ALÞÝÐUSAMBANDS ISLANDS.
VINNUVEITENDASAMBAND ÍSLANDS.
(jtetitecj jót ÍBÚÐA- SALAN INGÓLFSSTRÆTI GEGNT GAMLA BÍÓI SÍMI 12180. HEIMASÍMAR CjLkLy jól
þökkum viðskiptin. GISLI OLAFSS. ARNAR SIGURÐSS. 83974. 36349. þökkum viðskiptin.