Morgunblaðið - 03.01.1970, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 03.01.1970, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUE 3. JANÚAR 1970 €) Að kaupa jólin Velvakandi hefir fengið ágætt bréf frá G.G. og biður höfund- ur um það i upphafi bréfs síns að fá að segja nokkur orð. Vissu- lega er jafn hógværum bréfrit- ara velkomið að leggja orð í belg. Hann segir: „Um nokkurra ára bil, hef ég hlustað á hluta hinnar islenzku klerkastéttar, og reyndar marga aðra, sem komnir eru yfir miðj- an aldur, og halda því fram, að við, sem alizt höfum upp við raf- ljós og góð húsakynni, aetlum okk ur „að kaupa jólin“ (sbr. þátt sr. Sveins Víkings, Um daginn og veginn, 22. des. s.l.). Að mínu áliti gerir þetta fólk okkur rangt til. Við, sem lifum við velmegun hinnar líðandi stundar, fögnum jólun-um engu síður en þeir, sem fyrr bjuggu við fátækt. Ein af röksemdunum fyrir hin um góðu gömlu jólum er sú, að ekki hafi verið til jólagjafir, ekki kótilettur eða svínasteik, em var það ekki vegna þess, að hin íslenzka þjóð var fátæk og gat þess vegna ekki veitt sér þeitta? Jú vissulega, því er ástæðulaust hjá mönnum að henda þetta á lofti, enda lítil rök fyrir hátíðleik jóLanna. Þá er því gjarnan haldið fram, að allir á bænum hafi farið til kirkju eða hlustað í baðstofunni MAGMUSAR iKiPHom21 simar21190 eftir lokun >Ími 40381 25555 {^14444 mmim BILALEIGA HVERFISGÖTU 103 VW Sendiferðabifreíð-VW 5 manna-VW svefnragn VW 9 manna - Landrorei 7 manna á jólaguðspjallið. Ekki dreg ég i efa, að svo hafi verið, en er það ekki gert emn f dag? Jú vissu- lega. Ég, sem þetta rita, hef ástæðu til að halda, að flestir menn, fyrr og nú, er kirkju sækja, flytji bæn sína, er þeir hafa í guðshús gengið. Ekki vil ég heldur gleyma þeim mörgu, sem af hinum ýmsu ástæðum geta ekki komið þangað. Ég er sann- færður um það, að þeir flytja bæn sína, upphátt eða í hljóði um dýrð guðs og frið með mönn um, þótt þeir séu fjarverandi. Þá vil ég minna á allt það fólk, sem starfar I hinum ýmsu líknar og menningarfélögum. Það starfar ekki eingöngu fyrir jól til þess að kaupa sér friðþæg- ingu. Nei, það er að starfa flesta daga ársins til þess að reyna að skapa birtu og yl. Þess vegna er ástæðulaust að klifa á því, að fólk sé að kaupa jólin, eins og hverja aðra óþarfa vöru. Maðurinm verður sjálfur að leita jólanna. Þau koma ekki sjálf. Ég held, að þetta hafi fyrr verið gert og sé nú gert. G.G.“ Velvakamdi vill taka undir þessi orð G.G. Þetta sífellda karla- og kerlingavæl um ókristi legt jólahald nú á dögum er orð- ið ósköp þreytandi. Hitt er svo annað mál að jólin hafa orðið sumum erfið fjárhagslega vegna mikillar kröfugerðar um voldugt jólahald. En það þarf ekki nein jól til að lifa um efni fram. Aðalatriðið er að taka með bljúgu hjaxta móti jólunum og það geta menn engu síður þótt þeir hafi til hnífs og skeiðar. Mig grunar jafnvel að þeir, sem það hafa, þakki ekki síður en aðrir fyrir þá guðs gjöf að hafa nóg að bíta og brenna. Ég hygg að það kunni að vera svo fyrir sumum okkar vandlæturum, að þeir séu að afsaka að þeir eiga nú málungi matar, það hafi held- ur verið munur á jólumum þegar sultardropinn lak úr nefi þeirra. Við skulum hins vegar líta til okkar gömlu fræðara með þolin- mæði þótt þeir kunni ögn að þusa. Takmark okkar á hins veg ar að vera það, að berjast fyrir því að allir geti fagnað jólum og helgað þau fæðingarhátíð frelsar- ans og hafi jafnframt nóg fyrir sig að leggja. Velmegun og bljúgt hjarta fara vel samam. Hin gamla saga, að enginn geti verið lítillátur nema sá sem á ekki málungi matar er löngu úrelt plata. 0 Ótætis hymumar Aldrei finna húsmæður sárar til þess hve óhentugar mjólkur- hyrnurnar eru heldur en um stór- hátíðar, þegar mikið þarf að kaupa af mjólk í eimu. Húsmóðir bað Velvakanda að koma þvi á framfæri við Mjólkursamsöluma að hún færi nú að manna sig til þess að hafa ferhyrmur á boðstól um svo ekki sé beðið um meira. Hún lét þess getið að það væri ekki vamsalaust fyrir Mjólkur- samsöluna að hún skuli ekkivera búin að leysa þetta sjálfsagða réttlætismál neytendanna hér í höfuðborginni, þar sem þetta er víðast í miklu betra lagi í öllum stærri kaupstöðum landsins. Hvers eigum við að gjalda hér I höfuðstaðnum? Og þar sem ís- lenzkar ferhyrnur eru á boðstól- um! Af hverju má ekki nota þær. Húsmóðirin sagði að lokum: „Ég vil í lengstu lög reyna að fara bónarveg að forystumömn um Mjólkursamsölunnar. En hvað eigum við reykvískar hús- mæður að þurfa að biðja lengi?“ Velvakandi beinir þessari frómu ósk til þeirra, sem ber að bæta úr. % Flugeldar og áramótin Það er ákaflega fallegt að sjá flugelda yfir höfuðstaðnum á ára mótum. Fyrir allmörgum árum tíðkaðist að skjóta flugeldunum á loft sem næst sjálfum áraskipt- unum. Nú er þetta breytt og finnst mörgum sem það dragi úr fegurð og skrauti flugeldanna. Þetta skilja þeir sennilega bezt, sem hafa verið i Tivoli-garðin- um í Kaupmanmahöfn, þegar degi lýkur þax og flugeldahafið lýsir upp garðinn. Það yrði lít- ið um dýrðir þar ef verið væri að mjatla upp einum og einum flugeldi allt kvöldið. Velvakandi vill beina til allra þeim óskum, sem honum hafa borizt, um að sem flestir skjóti flugeldum sín- um á loft sem næst miðnættinu svo borgarbúar geti femgið að njóta þeirrar dýrðar, sem þeir veita. Vinna Maður óskast til að veita forstöðu litlu iðnfyrirtæki — getur hentað sem hálfsdagsvinna. — Tilboð óskast fyrir 7. janúar merkt: „vinna 8059". blaðbíírdarfolk / OSKAST í eltirtolin hverfi: Lönguhlíð — Lynghaga — Sjafnargötu Laugarnesveg I nr. 34-85 — Ránargötu Eskihlíð frá nr. 14-35 — Þinghcltsstrœti Ásvaflagötu frá 52 — Laugarásveg Flókagöfu neðri — Eiríksgötu Crettisgöfu frá 2 — 35 TALIÐ VIÐ AFGREIÐSLUNA í SÍMA 10100 •••••••••••••••••••• Skrifstofustarf Heildverzlun óskar eftir manni, sem getur unnið sjálfstætt að almennum skrifstofu- og bókhaldsstörfum. Þarf að geta byrjað fljótlega. Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist blaðinu merkt: „Fulltrúi 8236" fyrir 10. janúar. Jólafrésskemmtun verður í Templarahöllinni Eiríksgötu 5, sunnudaginn 4. janúar kl. 3. — Jólasveinar koma í heimsókn. Veitingar, Miðasala laugardaginn 3. janúar kl. 5—7 og sunnudag frá kl. 1. Allir velkomnir. Bamastúkurnar og U.T.F. Útgerðormenn — shipstjórnr Munið að fá ykkur sjálfvirku fiskþvottakerin, áður en vertíð hefst, þau skila fiskinum hreinum í lest. VÉLAVERKSTÆÐI J. Hinrikssonar. Skúlatúni 6. — Sími 23520. biláleigan AKBRA UT Lækkuð leigugjöld. 8-23-47 scnctum 2ja og 3ja herbergja íbúðir í Breiðholti 2ja og 3ja herb. íbúðir við Leirubakka í Breiðholti sem seljast tilbúnar undir tréverk og málningu og sameign frágengin, þvottahús og geymsla á hverri hæð og að auki sér geymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús, vestursvalir. íbúðirnar verða tilbúnar í júní í sumar, og sumar í nóvember ’70. 2ja herb. íbúðirnar kosta 750 þús. — 3ja herb. íbúðirnar 850 þús., beðið er eftir öllu húsnæðismálaláni, 440 þús., útb. 100 þús. við samning. — Teikningar liggja fyrir á skrifstofu vorri. Tryggingar og fasteignir til kl. 5 í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.