Morgunblaðið - 03.01.1970, Qupperneq 8
I 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR H970
r
SJOWARP
Þegar frá líður verður sífellt erfiðara
að framreiða efni í sjónvarpi, sem verði
ok'kua' áhrifamikið og minnisstætt. Því
veldur saimanburðurinn við það, sem
áður er komið og svo ver'ða áhorfendur
sjónvarps eitthvað kröfu'harðari etftir
því sem árunum fjölgar frá_ tilkomu
þessa óskabaxns þjóðarinnar. Á þessum
þriðju sjónvarpsjólum og áramótum hef-
ur komið í ljós, að óskabarnið náði
undraverðum þroslka þegar á hvítvoð-
ungsárinu. Þá var talað um æfingar-
leysi, reynslutíma, tilraunasjónvarp.
Allt mundi þetta rísa til stórtfenglegrar
fullkomnunar síðar. En munurinn er
nánast enginn. Margt af því efni, sem
sjónvarpið flutti í frumbernsku sinni,
var fyllilega eins vel unnið og esf til vill
minnisstæðara en til dæmis dagskrá ný-
afstaðinna jóla.
★
Á tímamótum þykir hlýða að forystu-
menn láta í sér heyra og tvennt var það
í ræðukúnst, sem skylt er að þakka
fyrir og viðurkenna með fögnuði.
Annað var ræða biskups við aftansöng
á aðfangadag, en hitt ræða forseta ís-
lands á nýjársdag. Ræður biskupsine
eru orðinn fastur liður í aðfangadags-
kvöldinu og um leið liður, sem maður
hlakkar til. Biskupinn er kennimaður
par excellence og ber þar af öðrum
að minni hyggju. Ræða forsetans
var framúrs/karandi og báðir þessir
menn fluttu mál sitt á ljósan og áhrifa-
mikinn hátt. Því miður missti ég af
ávarpi forsætisráðherra og annáli út-
varpsstjórans.
★
Kraftaverkin í Fatíma vöktu mikla at
hygli á sínum tíma, en þar fyrir er
myndin harla lítils virði, þegar á al’lt
er litið; næsta ólistræn og langdregin.
A.uk þess var meira en lítið tortryggi-
legt, þegar heilög guðsmóðir fór að
segja blessuðum börnunum frá vondu
mönnunum í Rússlandi.
★
Á Hólum í Hjaltadal eru líkt og ann-
ars staðar á ísflandi sorglega fáar uppi-
standandi minjár, sem geri sögulega upp
rifjun ljósa í sjónvarpi. Gömul bæjar-
hella ,sokkin í gras, örvar ekki til muna
ímyndunarafl sjónvarpsáhorfenda. Kirkj
an er raunar það helzta og altairisbríkin
er greinilega stórkostlegt verk. En er
eklki annars makalaust, hvað mannvirki
ökkar frá fyrri öldum hafa gersamlega
horfið niður í jörðina. Það er munur að
standa á Forum Romanum, sem þó er
síðan fyrir Krists burð. Þennan mismun
gerir veðráttan fyrst og fremst. Þess
vegna verða myndir frá íslenzkum sögu
stöðum yfirleitt myndrænt fátæklegar.
★
Ástardrykkurinn eftir Donizetti var
helzta slkrautfjöður sjónvarpsins um
þessi jóL Nokkur hundruð þúsund mun
fyrirtækið haifa kostað og árangurinn
var einkar ánægjuleg kvöldstund. Vafa
laust gagnrýna margir svo dýran dag-
akrárlið, en er þetta ekki hlutur, sem
sjónvarpið verður að leggja í, ef það
á að halda einhverri reisn. Við viljum
ekki að það sé eins og hvert annað trog
fyrir hvers konar aðfengið frauðmeti.
Sem sagt; Ástardrykkurinn var að ýmsu
leyti vel heppnaður, einkum og sér í
lagi músíkailskt séð. Leikræn atriði virt
ust mér tæpast jafn góð og myndatak-
an óþarflega einhæf. Léttleiki Donizett
is, sem bærilega kom til skila í flutn-
ingi tónlistarinnar, náði hins vegar ekki
til leiksins og hreyfinganna, en því hetf-
ur stjórnandinn ráðið.
★
Þá höfum við séð inn fyrir þröskuld-
inn í Buckinghamhöll og þeim aðskilj-
anlegu höllum öðrum, sem hennar há-
tign hetfur fyrir samastaði í fjárhags-
þrengingum sánum. Vissulega er það í
meira lagi kyndugt, þegar ambassador-
um er gefin lexía í göngulagi, áður en
gengið er á tfund drottningar, en er það
ekki hetfðin, sem höldur þessu saman,
þegar öllu er á botninn hvolft. Þessi
mynd var fremur fróðleg og alls ekfci ó-
skemmtileg.
★
Nú hljóta allir sannir aðdáendur Kefla
víkursjónvarpsins að hatfa gengið sælir
til rdkkju eftir að hafa séð Andy Willi-
ams S’how. Hve yndisflega amerískt. Og
hve dásamlega innantómt. Þetta er á-
reiðanlega það sem koma skal: Nægileg
ur hávaði, glitrandi ljós, væmnir karl-
menn og píur. En meðal annarra orða:
Voru ekki einhverjir að kvarta undan
tilræði við menninguna, meðan saims
konar efni var sent út frá Keflavík?
Hvað sögðu sextíumenningarnir? Engil
saxnesk áhrif, móðurmálið í hættu og
menningin í voða. Hvað segja menning
arvitarnir um það núna, þegar svo kall
aðir skemmtikraftar stynja ekki upp
eimiu orði nema á ensku? Er það í lagi,
bara ef það er sent út frá Vatnsendahæð
inni? Þið hatfið væntanlega hilustað á
„grúppu“ sem kallar sig Árið 2000. Ekki
heyrði ég mikla íslenZku í þeim flutn-
ingi, sem auk þess var allur hinn ömur-
legasti. En Ármi Johnsen bjargaði þó svo
sem bjargað varð, því hann söng allt
á móðurmálinu, kjarngóða texta þar að
auki.
★
Einleikur á ritvél tókst mæta vel og
var verkið í senn sigur fyrir sjónvarpið
og höfundinn, Gísla J. Ástþórsson. Ég er
í vatfa um að Gísli hafi gert betur
annan tíma. Þessa vertos var beðið með
notokurri eftirvæntingu vegna þess að
það mun vera fyrsta leikritið, sem inn-
lendur hötfundur hefur sérstaklega sam
ið fyrir sjónvaip. Sumir hafa ugglaust
séð sjálfa sig, því Gísli J. Ástþórsson
er fundvís á það skoplega í fari sam-
tímans; auk þess var vel fairið með hlut-
verkin. En hvað boðar niðurstaðan?
Annað hvort er höfundinn að sikopast að
hinni hundflötu meðalmennskudýrkun
íslendinga, eða þá að hann er sjálfur
þátttakandinn. En kannski var sá þjóð-
kunni Ríkharður ekki sá snillingur, sem
foreldrar og eigiinkona hugðu. Hver liif
ir ekki í einhvers konar blekkingu um
sjálfan sig og aðra? Sumum er blekking
in sá lífselexír, sem lætur gagnver'kið
mala. Eftir á að hyggja: Það mætti halda
að fyrrverandi ritstjóri Alþýðublaðsins
hafi eitthvað haft saman við útgetfend-
ur og krítiikera að sælda. Báðir voru góð
ir á sína vísu og krítikerinin þokkalega
vopnaður hinum alikunnu slagorðum,
sem efckert segja. Sem sagt: Gott.
★
Að lokum nokkur orð um áramóta-
skaupið. Flosi er orðinn fastur liður á
gamlárskvöld og sjálfur hetfur hann tek-
ið verulegum framförum frá frumraun
sinni. Að öllu jöfnu verður skaupið í
ár að teljast ‘hafa tekizt bezt. Flosi fær
ágætar hugmyndir, en stundum tekst
eklki nema rétt bærilega að vinna úr
þeim. Handvömmin í Breiðholtsíbúðun-
urn var bitastæð hugmynd, en ég átti
von á því, að Flosi notaði efníS betur.
Siðvæðingarnetfndin var allgóð, en
bæði þar og víðar var eins og fínasta
herzluimuninn vantaði. Og prýðishug-
mynd eiins og fjallkalilinn rann hrein-
lega út í sandinn. Sjálfur var Flosi af-
bragð í hlutverki hinnar miklu pop-
stjömu, sem fraimar öllum öðrum hetfur
tekizt að leggja undir sig sjónvarpiB á
liðnu ári og hlýtur því að teljast mað-
ur ársirns á þeim vettvangi.
BETUR MA EF DUGA SKAL
í DAG, laugardag, verður gam-
anleilkur Peter Ustinovs, sýndur
í 20. sinn í Þjóðleitohúsinu. Að-
sóton að leilknum hefur verið
mjög góð. Greinilegt er að þessi
„hippía-leikur" Ustinovs, fellur
vel í smekk íslenzkra leikhús-
gesta, enda hatfa undirtektir
verið með afbrigðum góðar á öll
um sýningum. Ævar Kvaran,
leikur aðalhutverkið, en Guð
björg Þorbjarnardóttir, Rúrik
Haraldsson og Sigurður Skúla-
son fara líka með stór hlutverk í
leiltonum. Myndin er af Ævari
Kvaran og Rúrilk Haraldss. í hlut
verkum sínum.
Bændur og EFTA
Mbl. hefur borizt eftirfarandi
ályktun frá auk.afundi Stéttar-
sambands bænda:
,,Aukafundur Stéttarsamibands
bænda 11. des 1969 lýsir sig and
vígam því að Alþingi veiti rik
isstjórninni að svo stöddu, heim
ild fyrir íslands hönd til að
gerasit aðili að Friíverzliuiniarsam
tötoum Evrópu. Álits bændia hef
ir að litfliu verið leitað og enigin
álitsgerð samin af hálfu stjórn-
valda varðandi hugsanleg áhrif
á þróun landbúnaðarins og hag
bændiastéttarinnar, enda engin
heilcfarstefna mörkuð um fram-
tíð ís'lenzkra atvinnuvegia, sem
er undirstaða þess, að ávinning
ur verði af slíkri aðild.
Enda þótt samningurinn við
„Efta“ taki að litlu leyti til
verzlunar með liand'búnaðarvör-
ur, hljóta áhrifin af aðild að
samningnum að snerta landbún-
aðinn á margan hátt, og bendir
fundurinn á eftirfarandi atriði:
1. Vegna breyttrar tekjuöfl-
uniar ríkissjóðs, læktounar vernd
artolla en hæktoumiar söluskatts,
má gera ráð fyrir einhverri
hæfckum á framLeiðslufcoatnaði
búvöru.
2. Hækkun söluskatts á inn-
lendum framtfeiðlsluvörum mundi
spillla samkeppn isaðstöðu þeirra
t.d. óniðurgreidda kjot- og
mjólkurvara, á móti erlendum
vörum.
3. Lækkun tolla á hátöllavör-
um en hækkun sölu'skatts á naiuð
synjavörum, þrengir kjör
bænda og annarra tekjulágra
stétta.
4. Samdráttur í iðnretostri í
dreifbýli og stofnun stórfyrir-
tækja í stærstu kaupstöðunum
getur gjörbreytt búsetuhilutfalli
og byggðaþróun í landiniu.
5. Erlend stórtfyrirtæki geta
kiamizt inn á svið ísienzltorar
verzliunar og iðnaðar og á þanin
veg haft áhrif á verðlag í land-
inu.
6. Uppbygging stóriðju í þétt
býli á grundvellii ódýrrar raf-
ontou hlýtur að veikja samkeppn
isaðstöðu landbúnaðarins, sem
býr nú við margfalt dýrari orku.
Treystir fumdurinn stjórn Stétt
arsambandsins til að vinna að
úrbótum á þessum atriðum og
standa í hvívetna fast á rétiti
bænda.
Fumdurinn vill vekja athygli
þjóðarinnar á því, að lífsham-
imgja henniar, efnaleg velgengni
og mienningarliegt sjálfstæði, hef
ir á öllum tímium reynzt þeim
mun traustara, sem erlend Shlut-
un hefur orðið minni á íslenzk
máfefni.
Vegna fámennis þjóðarinnar
og góðra framleiðsluskilyrða til
lands og sjávar, eru möguleikar
bennar til lifskjarabót'a engu
síðri en hjá háþróuiðum iðnaðar
þjóðum, ef vel er á haldið og
dugnaður og dáðrí’ki þjóðarinn
ar fær að njóta sín í auknu
frelsi og framtaki íslendinga
sjáltfra.
Sökum sérstöðu íslands og dýr
mæts menmingarartfs verðiur þjóð
in að gæta þess, að afsala sér
ekki fenignu frelsi og langþráðu
sjáltfstæði með ógætílegri utan-
ríkisistefnu og þartfliausiri þátt-
töku í viðskiptasamtö'kumi stærri
Þjóða, sem íslendingair gætu
aldrei orðið hliuitgengir aðilar að
sökum smæðar sinnar og fámenn
is, og lýsir fundurinn fullri and
stöðu við þátttöku íslands í
Efnaha.gsbandalagi Evnpóu, en
í fylgiskjáli með þimgsályktunar
tillögu um aðild íslands að Frí-
verziunarisamitökum Evrópu
virðist gert ráð fýrir sMfcri þátt
töku innan fárra ára.
BRIDGE
STARFSEM3 Bridgetfélags Rvík
ur á nýja árinu hetfst miðvikudag
inn 7. janúar með eins kvölds tví
menmingstoeppni. Eins og áður
mun stanfsemin fara fram í Dom
us Medica.
Sveitakeppni féllagsins hefst
14. janúar. Væntanlegir þátttaik
endur eru beðnir að tilkynna
þátttöku til stjómarinnar fyrir
mánudaginn 12. janúar.