Morgunblaðið - 01.04.1970, Side 17

Morgunblaðið - 01.04.1970, Side 17
MORGUÍNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1.970 17 Önundur Ásgeirsson: ÖPUS V um staðgreiðslukerfi opinberra gjalda Staðgreiðslunefnd hefur nú skilað frá sér 5. ritverki sínu (Opus V) um staðgreiðslukerfi opinberra gjalda og að þessu sinni í formi r.efndarálits, sem lagt hefur verið fyrir Alþingi. Jafnframt hefur nefndin lagt fram þingsályktunartillögu þar sem lagt er til, að staðgreiðslu- kerfi þetta verði tekið upp hér á landi. Segist nefndin hafa „unnið ágætt starf og skilgreint rækilega margvísleg fram- kvæmdaatriði, þótt enn vanti mikið á að grundvöllur sé lagð- ur að öllum einstökum atriðum löggjafar um málið.“ Er nú ósk- að nýrrar viljuyfirlýsingar Al- þingis eftir að þingmönnum hef- ur gefizt kostur á að kynna sér „hið greinargóða nefndarálit miLliþinganefndarinnar“. Höfundar nefndarálitsins hafa séð ástæðu til að nefna mig í sambandi við álit þetta, án þess að láta bess getið að ég hefi, hvar sem ég hef átt þess kost, snúizt gegn því og talið það mjög verulega afturför frá núverandi álagningar- og inn- heimtukerfi. Mér er því nauð- syn á að þvo I.endur mínar af aðild að tillögugerð þessari og reyna að gera grein fyrir í hverju ég tel að tillögur nefnd- arinnar séu rangar og að um aft- urför sé að ræða frá núverandi kerfi. EFNI NEFNDARALITSINS Svo sem fram kemur af orða- lagi ofangreindra tilvitnana í þingsályktunartillöguna eru höf undar nefndarálitsins harla ánægðir með störf sín. Er þar berum orðum sagt, að nefndin hafi unnið ágætt starf, skilgreint rækilega margvísleg fram- kvæmdaatriði og skilað grein- argóðu áliti. Unnið hefur verið að áliti þessu í þrjú ár og verður að telja að eftirtekjan sé rýr. Nefndin hefur talið nauðsynlegt að takmarka verksvið sitt. Þann ig telur nefndin það ekki í sín- um verkahring að gera tillögur um aðrar breytingar á skatta- lögum og skattakerfinu í heild, en þær sem að hennar áliti eru algjörar lágmarksbreytingar, nauðsynlegar til þess að hægt sé að taka upp framkvæmanlegt staðgreiðslukerfi (Op. V, bls. 12). Þó taka höfundar álitsins fram að ýmsu sé ábótavant í sambandi við íslenzka skatta framkvæmd. Þantnig segja þeir beinum orðum, að íslenzka skattakerfið sé frábrugðið kerf- um flestra annarra landa að því leyti, að beinir skattar og gjöld, sem ekki eru miðaðir við tekj- ur, eru mjög mikilvæg bæði hjá launþegum og atvinnurekendum (Op. V, 13). Þetta þýðir með öðrum orðum að íslenzk skatta- lög eru óraunhæfari og óbil- gjarnari en skattalög annarra þjóða. Er gott að fá slíka yfir- lýsingu frá opinberum aðilum að lokinni rannsókn, enda ekki um annað að ræða í þessari yfirlýs- ingu en það sem áður var vit- að. • En yfirlýsingin hefur þó nokkuð sjálfstætt gildi. Væri t.d. mjög æskilegt að Alþingi óskaði eftir því að fram færi at- hugun á þessari niðurstöðu eða staðhæfingu nefndarinnar og hvaða möguleikar eru á nauð- synlegum úrbótum í þessu efni. Greinargerðir þær, sem nefnd in heíur látið frá sér fara, hafa farið gildnandi með árunum. Þannig er þessi 5. greinargerð, Opus V, nefndarinnar rúmar 100 síður að stærð og má segja að að meginefni til megi skipta nefndarálitinu í þrjá þætti: 1. Tillaga um skipun skatta- mála almennt. 2. Tillaga um upptöku nýs fyrirkomulags svoneÆnds staðgreiðslukerfis í sam- bandi við álagningu og inn heimtu 20 tegunda opin- berra gjalda, en jafnframt sé fellt niður núverandi kerfi um þessa sömu fram- kvæmd. 3. Umræður og hugleiðingar um framkvæmdaatriði í sam bandi við hið fyrirhugaða nýja kerfi skv. tölulið 2. Greinilega kemur fram í nefndarálitinu, að álitið sjálft hefur orðið nefndarmönnum of- viða. Þannig segja tveir nefnd- armenn, þ.m.t. ritari nefndarinn- ar: „Við höfum ekki haft að- stöðu til að kynna okkur ýmis framkvæmdaatriði, sem í all- löngu máli er fjallað um í þessu nefndiaráliti," (Opus V, 92) og í nefndarálitinu sjálfu segir svo í inngangi (Opus V, bls. III): „Hins vegar er skoðanamunur innan nefndarinnar um fyrir- komulag álagningar og inn- heimtu . . . Einstakir nefndar- menn hafa einnig þann fyrir- vara um þann kafla nefndarálits ins, sem fjallar um tæknileg framkvæmdaatriði staðgreiðslu- kerfisins, að þeir hafi ekki haft til þess tóm og aðstöðu aðkryfja þau svo til mergjar, að þeir vilji taka fulla ábyrgð á tillögum þeim, sem gerðar eru um lausn þeirra." Er það dapurlegur skortur á sjálfsvirðingu að skrifa undir slíkar yfirlýsingar og sfingur þetta mjög í stúf við hina gegndarlausu sjálfumgleði, sem lýsir sér í þingsályktunar- tillögunni og rakið var hér í upphafi. NÚVERANDI KERFI Áður en vikið er frekar að tillögum staðgreiðslunefndar er rétt að rakið sé núverandi álagningar- og innheimtukerfi, eins og framkvæmd þess er í dag hér í Reykjavík. Kerfi þetta hefur þróazt á alllöngu árabili og samlagast vel stað- háttum. Nú þegar gerð er til- laga um afnám þess má segja, að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Kerfi þetta er miðað við eitt framtal árlega, ári eftir skattár, og koma þar fram eignir og skuldir, tekjur og gjöld eða frá- dráttarliðir, eins og heimilað er og ákveðið í lögum. Framtali ein staklinga skal skilað til skatt- stofu fyrir lok janúarmánaðar, en fyrirtæki fá mánuði lengri tíma eða lengra ef um semst við skattstofu og ástæða þykir til. Undirbúningur álagningar fer fram á Skattstofu Reykjavíkur, en álagning og úrvinnsla fer fram í skýrsluvélum. Á s.l. ári mun hafa tekið u.þ.b. þrjár vik- ur að ganga frá allri álagningu fyrir Reykj avíkursvæðið í skýrsluvélum, senda út álagn- ingarseðla til allra gjaldenda, þar sem fram kom heildarálagn- ing og skipting niður á greiðslu mánuði, ennfremur innheimtutil- kynningar til fyrirtækja og ann arra kaupgreiðenda um inn- heimtu skattsins hjá þeim aðil- um. Yfirstjóm allrar innheimtu fer síðan fram hjá Gjaldheimt- unni í Reykjavík, þ.m.t. eftirlit með því að skattar séu innheimt- ir og þeim skilað svo sem vera ber. Gjöldunum er jafnað niður á 10 mánuði ársins, þ.e. 5 mánuði á fyrri árshelmingi og 5 mánuði á síðari árshelmingi, en jóla- mánuður og sumarleyfismánuður eru undanþegnir skattgreiðslu, og hlýtur þetta að teljast mjög hagkvæmt fyrirkomulag fyrir skattgreiðendur, enda er það yf irlýst í nefndarálitinu að „hags- munir skattgreiðendanna hljóti alltaf að vera höfuðatriði," (Opus V, 4). Meginkostur núverandi fyrir- komulags er sá, að það er ein- falt í framkvæmd. Skattgreið- andi þarf aðeins að telja fram einu sinni á ári og sé um fast starf að ræða og engar breyt- ingar gerðar á framtali af hendi skattayfirvalda, greiðir gjald- andinn skatt sinn af launum sín um og hefur að fullu lokið skatt- greiðslunni fyrir lok gjaldárs, sem er sama ár og álagningar- ár. Unnt er að koma við vinnu í skýrsluvélum þegar frá upp- hafi og fylgja innheimtu eftir í skýrsluvélum. Ýmsir launamenn telja það til Önundur Ásgeirsson foráttu núverandi fyrirkomu- lagi að of lág gjöld séu greidd á fyrra helmingi árs og því verði skattar þyngri á síðari árs helmingi. Þetta kæmi þá því að- eins til greina að um verulegar kauplagsbreytingar hefði verið að ræða á skattárinu, þ.e. árinu á undan gjaldári. Einfalt væri þó að breyta þessu með því að ákveða, að skattur á fyrra helm ingi árs skyldi hækkaður, t.d. í hlutfalli við hækkun kaup- gjaldsvísitölu, og mundi þá ein- falt framkvæmdaatriðd að senda út greiðslutilkynningar í skýrsluvélum miðað við þá fram kvæmd. Þá hefur það verið fundið nú verandi skabtgreiðslufyrir- komulagi til foráttu, að ef um mikla tekjuaukningu væri að ræða á tekjuárinu, t.d. vegna aukinna tekna síldarsjómanna á góðum síldveiðiárum, þá greiddu menn ekki gjöld sín þeg ar í stað og hefðu e.t.v. ráð- stafað tekjum sínum til fjárfest- ingarframkvæmda og hefðu þannig ekki handbært fé til greiðslu skattsins þegar þar að kæmi. Slíkt fyrirhyggjuleysi er að sjálfsögðu til, en það getur vart talizt þjóðfélagslegit vanda- mál þótt sjómaður á góðu tekju- ári kaupi sér íbúð eða bíl, enda hafa skattyfirvöld aðgang að þessum eignum ef um van- greiðslu er að ræða á greiðslu- árinu. Með núverandi skattafyrir- komulagi eru álögð gjöld þann- ig áætluð á fyrra árshelmingi en mismunir jafnaðir út á síðari árshelmingi, og allir, bæði ein- staklingar og félög, eiga að hafa lokið sínum gjöldum fyrir lok álagningarársins. FYRIRHUGAÐ STAÐGREIÐSLUKERFI Rétt er að taka fram strax, að hið fyrirhugaða staðgreiðslu- kerfi nefndarinnar er aðeins bráðabirgðagreiðsla. Segir svo berum orðum í nefndarálitinu (Opus V, 9). „Staðgreiðsla skatta á skattárinu er yfirleitt einungis bráðabirgðagreiðsla, en endanleg álagning fer fram eft- ir á og er hún þá byggð á fram- tali skattþegnsins, þ.e. á sama hátt og nú á sér stað.“ Mismun- urinn á kerfunum tveimur er því einungis sá, að skv. nefndarálitinu er gert ráð fyr- ir að unnt sé að ná hærri skatti af skattborgaranum á tekjuár- inu. Verður að því vikið síðar. Fyrst skal þó vikið að til- lögu nefndarinnar, sem áður var nefnt að væri í þrem liðum: 1. tillaga um SKIPAN SKATTAJVIÁL Nefndin gerir það að aðaltil- lögu sinni, að skipan skattamála verði hagað á þann hátt, að skattamál verði fráskilin öllum öðrum stofnunum ríkisins og verði byggt upp mikið skatta- bákn, sem myndi eins konar þrí- hyrndan píramída (tetraeder) og skal ein hlið stofnunarinnar fara með álagningarmál, önnur með innheimtumál og sú þriðja með skattrannsóknamál. Á topp þessa púiatmiída miætbi setja gullna kúlu, sem á mætti letra, að fornum hætti dariisks ein- valdskonungs „vi alene vide“ og væri hentugt að það væri með gylltum stöfum. Hentar þetta al- menningi auðsj áanlega einkar vel, þar sem nefndarmenn hafa sjálfir lýst því yfir, að þeir hafi ekki treyst sér til þess að skilja það, sem tillögur eru gerðar um að framkvæma eigi. Megin- áhyggjur sérfræðinga nefndar- innar hafa einnig verið þær, að ekki muni finnast í landinu nægi legur fjöldi sérmenntaðs starfs- liðs til að framkvæma svo flók- ið og umfangsmikið kerfi. Eru þessar áhyggjur eðlilegar því það hlýtur að valda ungum og efnilegum mönnum efasemdum að láta grafa sig í svo fánýtu og ábyrgðarlausu kerfi. 2. STAÐGREIÐSLUKERFIÐ SJÁLFT 2. 1. Álagning samkvæmt hinu fyrirhugaða staðgreiðslukerfi. Skv. tillögum nefndarinnar er gert ráð fyrir tvenns konar framtölum til skatts í sambandi við staðgreiðslukerfið. Skulu framteljendur byrja á því, vænt- anlega í september til október- mánuði ár hvert, að leggja fram upplýsingar með umsókn um skattkort næsta árs til skatta- yfirvalda. Skattkort þetta er frumgagn að því er skattaálagn inguna varðar, og er því viður- hlutamikið fyrir skattborgarana, að vandað sé til umsóknar um skattkort. Þegar skattkort hefur verið gefið út, kemur þar fram í hverjum skattflokki viðkom- andi skattborgari á að vera og verða opinber gjöld tekin af honum skv. þeim upplýsingum, sem á skattkortinu standa, eins og frá þeim er gengið af skatt- stofu. 2. 2. Launagreiðendur skulu sjá um álagningu og innheimtu skatts- ins af öllum launum, sem greidd FYRRI HLUTI eru. Skal álagning þessi miðuð við þær upplýsingar, sem skatt- stofa hefur skráð í skattkort við komiamdi dkaibtlþelgnis og fr.am- kvæmd skv. sérstökum skatta- töflum, sem eru eins konar tossa töflur útgefnar af yfirstjórn skattamálanna fyrir hvert byrj- að skattár. Verða skattatöflur þessar, með ótal tilvikum inn- an hverrar töflu, eftir fjárhæð greiðslna og gerð skattkorts við komandi launþega. Er með þess um hætti talið að hæfilega sé séð fyrir möguleikum á skekkjum i framkvæmd hjá launagreiðend- um. Hver launagreiðandi verður þannig eins konar skattstofa og jafnframt innheimtustofnun. Má gera ráð fyrir að fjöldi skatt- stofa verði með þessu móti um 16.000 talsins í öllu landinu og er þá miðað við fjölda þeirra aðila, sem greiddu aðstöðugjöld og landsútsvör á árinu 1969. Gert er ráð fyrir að allir þessir aðilar framkvæmi þessi verk án endurgjalds og er því sérstak- lega mótmælt af Sambandi sveit- arfélaga að greiðsla verði innt af hendi fyrir þebta starf. Skal hér ekkert um það sagt hvort ríkisvaldinu tekst að koma þess- ari framkvæmd á hjá launagreið endum, en ef þetta telst ein- faldasta, ódýrasta og hagkvæm asta aðferðin við innheimtu op- inberra gjalda skv. núverandi löggjöf um skattamál, sýnist mér enn meiri nauðsyn á því að end- urskoða núverandi skattheimtu- kerfi í heild sinni með það fyr- ir augum að leita eftir öðrum til- tækilegum leiðum við skattt heimtu til ríkis- og sveitar- félaga. Rétt er hér að minna á tillög- ur þær, sem fram hafa komið, um að afnema beri alla beina skattlagningu á tekjur. Skrif- stofustjóri Skattstofu Reykja- víkur gerðist talsmaður þessarar hugmyndar í sjónvarpinu í jan- úarmánuði í vetur, en áður hafði Gísli Jónsson, alþm., flutt um það tillögu á Alþingi. Hingað til hafa slíkar tillögur ekki verið teknar alvarlega og engin rann- sókn átt sér stað. Sá möguleiki kann þó að vera fyrir hendi, að þessi leið sé hin jákvæðasta til uppbyggingar öflugu atvinnu- lífi og örari hagþróun hér á landi. Leikur ekki á tveim tung- um að samanlögð upphæð tekju- skatta og tekjuútsvara hér á landi á einstaklinga er allt of há, og að reglurnar um stighækk- un þessara gjalda eru löngu úr- eltar. Hefur verið reynt á und- anförnum árum að leiðrétta þetta með hækkun persónufrá- dráttar, sem haldið hefur verið fram að ætti að samsvara nauð- þurftartekjum. Allt er þetta fyr irkomulag hins vegar löngu óraunhæft og þarfnast gagn- gerðrar endurskoðunar og rann sóknar. „Staðgreiðsla“ viðkomandi gjaldárs fer því þannig fram, að u.þ.b. 16.000 launagreiðendur, eða undirskattstofur, munu leggja á fyrir opinberum gjöld- um eins konar bráðabirgða- greiðslur. Skal áætlun þessi framkvæmd hvert skipti, sem út borgun launa á sér stað, og myndi þannig vera um 12 álagn- ingar að ræða, ef í hlut ætti mánaðarkaupsmaður, en 52 álagningar ef í hlut ætti viku- kaupsmaður. Launagreiðendur skulu draga skattinn frá launa- greiðslu í hverju tilviki og standa innheimtustofnun skatt- kerfisins skil á andvirðinu ásamt tilskildum skilagreinum svo oft, sem þurfa þykir að áliti inn- heimtustofnananna. Meginstefna gj aldheimtunnar skal vera sú, að taka skal heldur meira af hverjum launþega en skattinum nemur, þannig að unnt sé eftir lok ársins að endurgreiða það, sem umfram er tekið. Er þetta gert í því skyni að ekki þurfi að hefja nýja innheimtuherferð gagnvart þessum launþega eftir á. 2. 3. Að loknu gjaldárinu skal launþegi skila framtali fyrir lok janúarmánaðar á sama hátt eins og nú á sér stað. Skal hann þá tína saman allar þær upphæð- ir, sem hinir ýmsu launagreið- endur hafa af honum tekið, og telja fram tekjur sínar, gjöld, eignir og skuldir á sama hátt og nú á sér stað. Fer síðan fram álagning með skýrsluvélum á sama hátt og nú er. Skal sú álagning heita frumálagning og er það orð væntanlega valið til að sýna skattborgurunum fram á, að öll sú vinna, sem á undan hafði gengið í u.þ.b. 18 miánuði, var aðeins lögð fram í því skyni að þjóna gamansemi skattyfirvalda. Skal frumálagn- ingin teljast hin endanlega álagning og sæta kærum skatt- borgaranna eins og nú tíðkast. SAMANBURÐUR Á FRAMKVÆMD SK ATTKERF ANN A Þegar hér er komið er rétt að staldrað sé við og að því spurt hvað hafi unnizt með hinni nýju framkvæmd. Hin endanlega álagning samkvæmt hinu fyrir- hugaða nýja „staðgreiðslukerfi“ Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.