Morgunblaðið - 23.04.1970, Page 1

Morgunblaðið - 23.04.1970, Page 1
BLAÐ II 23. apríl 1970 í grennd við gufunnar afl Staður — þar safnast nú Grind víkingar til feðra sinna. Næsti nágranni Staðarklerks í Bergskoti, var einbúi, öldung- urinn Sturlaugur Jónsson, ekkju maður 73 ára. Síra Þorvaldur letrar lífsstöðu hans á latínu: Sui juris (sjálfs sín). Honum er farin að förlast sýn, sér ekki á bók, en hann er „við veg að sér‘“, „ekki óráðvandur.“ G. Br. skrifar Staðarhverfið stendur autt — Staðhverfingar dansa. Nei, nei — þetta er ekki upp- haf kveðskapar þrátt fyrir þess ar stuðluðu setningar. í óbundnu máli verður hér sagt frá einföldum staðreyndum. Það verður sagt frá örlitlum hluta af íslandi og íslendingum, eins og þetta tvennt kemur fyrir sjónir á yfirstandandi atom-öld. — Og okoðandi þessar staðreyndir skulum við: 1. Horfa til baka eins og eina öld aftur í tímann. 2. Líta í kringum okkur í dag. 3. Reynia að Skyggnast eitt- hvað inn í óvissu framtiðar- innar. —O— Staðarhverfið liggur vestast þeirra þriggja bæjarhverfa, sem mynduðu aðalbyggðina í Grinda vík. Meðan lífið í Staðarhverf- inu hefur fjarað út og það eyðzt af fólki fyrir fullt og allt, hefur byggðin í hinum hverf- unum tveim, sem kennd eru við þær heiðurskvinnur Þórkötlu og Járngerði eflzt og blómgazt svo að þar er nú orðin ein þrótt- mesta útróðrarstöð landsmanna. Ekki skal hér gerð tilraun til að rekja orsakir þessarar „þró- unar“. En við skulum aka rak- leiðis gegnum byggðina, þar sem lífið fossar í sínum mörgu far- vegum og halda áleiðis út með sjónum þar sem lífið hefur svo að segja sagt stopp, engin hrær ing sést nema soltinn hrafn uppi á hrauni, nokkrar kindur á beit, fáeinir sjófugiair í leit að æti út með ströndinni. Hér skul- um við nema staðar. Við tökum okkur gönguferð um þetta mannauða hverfi. Þá er ekki úr vegi að láta hugann reika eins og rúm hundrað ár til baka og sjá hvernig hér var umhorfs þá. fbúarnir voru að vísu ekki nema um hálft hundr- að en talsvert fleiri yfir vertíð- ina þegar útróðrarmennirnir voru allir komnir í sín rúm. Hér eru þá 7 heimili, jarðir ogþurra- búðir. — Á stað munu búa prestshjón- in síra Þorvaldur Böðvarsson Þorvaldssonar sálmaskálds í Holti og maddama Sigríður Snæ bjarnardóttir prests að Ofanleiti. Þau voru afi og amma Haralds Böðvarssonar á Akranesi. Síra Þorvaldi er svo lýst, að hann hafi verið höfðinglegur maður. Fór þar saman sjón og reynd. Hann var framfaramaður í and- legum efnum, einnig á hinu verklega sviði. Hann var maður kröfur til þess opinbera. Þá gerði hið opinbera kröfur til hennar og þær ekki billegar. Góðan vitnisburð gefur síra Þorvaldur sóknarbörnum sínum í Staðarhverfi. Þau eru öll „sæmilega" eða „dável“ lesandi og í hegðan sinni eru þau „skikk anleg“, „siðferðisgóð" og ráð- vönd. í Móakoti bjó Kristrún Jóns- dóttir með tvö börn sín, ekkja eftir Pétur Vigfússon, sem dó úr holdsveiki innan við fertugt, viku fyrir jól 1859. Hjá Margréti eru 4 börn hennar 13—18 ára. Hún hafði vinnumann og hús- konu. f þurrabúðinni Litla-Gerði bjó Jón Jónsson með konu sinni Vil- borgu Einarsdóttur og tveim son um þeirra, Jóni og JóhannesiVil hjálmi. Niður við sjóinn í þurra búðinni Kvíadal bjuggu barn- laus hjón bæði 54ra ára, Árni Árnason og Guðrún Guðmunds- dóttir. Á staðhverfingamóti — heiffursfélagarnir Guðsteinn frá Húsa- tóftum og Magnús frá Móakoti. Á Húsatóftum voru 15 manns í heimili. Þar réð fyrir búi Val- gerður Guðmundsdóttir, ekkja Jóns Sæmundssonar, sem dó úr taksótt vorið 1863. Valgerður var seinni kona Jóns. Synir hans af fyrra hjónabandi voru Einar í Garðhúsum og Sæmundur á Járngerðarstöðum faðir dr. Bjarna fiskifræðings og Mar- grétar konu Tómasar á Járn- gerðarstöðum. Þau Valgerður og Jón voru gefin saman í heimahúsum 6. desember 1856. Þá var hann 58 ára en brúður inn 32, en hún fékk líka hálfar Húsatóftir í morgungjöf. Börn hjálpfús og gestrisinn, rausnar- legur og gaf fátækum stórgjafir. Þorvaldur prestur var ræðu- maður í meðallagi, framburður- inn skýr og snjall, stundaði öll sín störf af alúð og skyldu- rækni, lét sér annt um sjúka og vanheila. Hann var vinur bama og unglinga og framkvæmdi aldrei fermingar óklökkur. Síra Þorvaldur var skrifari ágætur og öll færsla embættisbóka til mikillar fyrirmyndar. Síra Þorvaldur Böðvarsson byggði upp Staðarkirkju. Var hún fyrsta timburkirkjan í Grindavík, hið stæðilegasta hús „með tvöföldu timburþaki sett á staðgóðum grunnmúr og í alla staði rammbyggilegt. í öllu til- liti er frá þessari kirkju, sem þó er bláfátæk, vandlega gengið fyr ir hvað Beneficiarius (staðarhald arinn, sr. Þorvaldur) á mestu þakkir skilið,“ segir í vísitazíu- gerð árið eftir að kirkjan var byggð. Átta árum síðar fluttist síra Þorvaldur frá Stað að Saurbæ á Hvalfj arðarströnd. Þá skuldaði kirkjan honum 472 ríkisdali, ,,sem eftir lögunum burt falla“ segir í úttektargerð- inni. Þá var embættismannastétt in ekki farin að gera sínar „skil yrðislausu,“ „ófrávíkj anlegu" steinisótt 36 ára gaamailil sumaa'ið 1857. Hjá henni er vinnumaður og húskona, Neríður Hafliðadótt ir með unga dóttur sína. í Stóra-Gerffi bjó önnur ekkja, Margrét Jónsdóttir. Maður henn ar, Björn Vernharðsson, lézt úr Gamli bærinn á Staff. Jóns og Valgerðar voru að minnsta kosti 3, sem upp kom- ust: Guðjón varð úti á Strandar heiði, Jósef, ætlaði að læra en varð ekki af og Guðbjörg kona Árna á Grund. — Ekki giftist Valgerður aftur eftir lát Jóns, þótt hún væri þá innan við fer tugt. Hún bjó ætíð á Húsa- tóftum og hafði jafnan mann- margt. Síðasta árið, sem hún lifði voru þar 12 manns. Valgerð ur andaðist 12. desember 1885 — þá orðin blind og limafalls- sjúk — svo ekki fór hún var- hluta af andstreymi lífsins — og var grafin í Staðarkirkjugarði þrem dögum fyrir jól. Eyffihýli í Staffarhverfi. Merki. Of langt mál væri það að telja hér upp alla þá, sem komið hafa við stjórn og for- ustu félagsins. Um formann hef- ur verið skipt árlega en þau Anna og Einar hafa setið í stjórn alla tíð. Af starfi félags- ins er það helzt að segja, að ár- lega hafa verið haldin þorra- blót með fjölbreyttri skemmti- skrá sem félagsmenn hafa sjálf ir samið og séð um að mestu. Síðan hefur verið dansað af miklu fjöri fram eftir nóttu. Stundum eru haldnir skemmti- fundir á haustin. Var þá aldurs forseti hvers fundar heiðraður, honum færð blóm og hugheilar heillaóskir um fagurt og bjart ævikvöld. Skemmtiferðir hefur félagið farið flest sumur, stund um austur fyrir Fjall, en oftast hefur leiðin legið suður í Staðar hverfið til að líta á fornar stöðv- ar og rifja upp kærar minning- ar frá bernsku- og æskuárum. Ekki er ótrúlegt að þá hafi jafnan vaknað í brjósti þær til- Framhald á bls. 15 Þá er lokið þessu manntali í Staðarhverfi fyrir einni öld. Eft ir það fjölgaði býlum þar nokk- uð, t.d. var um tíma þríbýli í Bergskoti. Guðsteinn frá Húsa- tóftum segir að 1915—16 hafi heimilin í Staðarhverfi verið einna flest, en fór verulega að fækka upp úr 1920ö Raituweiriu- legur flótti hófst samt ekki fyrr en á 4. áratugnum og hélt áfram Síðustu prestshjónin á Staff, Þór unn Þórffardóttir og sr. Brynj- þar til Gamalíel Jónsson á Stað ólfur Magnússson d. 1947. fannst látinn heima hjá sér þann 4. marz 1964. Með honum féll síðasti íbúi Stðarhverfisins í valinn. —O— En þótt sögu byggðarinnar í Staðarhverfinu væri lokið að minnsta kosti í bili hélt saga Staðhverfinganna áfram. — Tveim árum áður en síðasti íbúi Staðarhverfisins lézt, höfðu þeir myndað með sér félag. Fé- lagið þeirra, sem hlaut nafnið Átthagafélag Staðhverfinga var stofnað á þorrafagnaði í Aðal- veri i Keflavík 10. febrúar 1962. Fyrsti formaður þess varKrist- inn Reyr en aðrir í stjórn þess voru Anna Vilmundardóttir frá Löndum og Einar Einarsson frá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.