Morgunblaðið - 30.05.1970, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1970
Eiga Kópavogsbúar að bíða til 1986
eftir varanlegu slitlagi á gatnakerfið?
Framsóknarmenn og kommúnistar ráða ekki
við stærsta vandamál Kópavogs
og Hafnarfirði, er unnið ötullega að varan-
legri gatnagerð. Því er ekki að heilsa í Kópavogi. Neðri myndin er táknræn fyrir götumar
þar.
I KÓPAVOGI hafa Framsóknarmenn og kommúnistar haft
meirihluta sarnan um 8 ára skeið. Stjórnarferill þessara
tveggja flokka í Kópavogi er slíkur, að nú er orðin höfuð-
nauðsyn að þar verði breyting á. Að loknu 8 ára stjómar-
samstarfi þessara tveggja flokka í bæjarstjóm Kópa-
vogs er:
0 Gatnakerfið í molum.
0 Lausaskuldir óhæfilega háar.
0 Ástandið í holræsamálum stórhættulegt frá heil-
brigðissjónarmiði.
0 Stöðnun í vexti og uppbyggingu bæjarféiagsins.
Og þannig mætti lengi telja. Ástandið í gatnamálum
Kópavogs er hörmulegt og hefur nú þegar haft mjög al-
varlegar afleiðingar fyrir bæjarfélagið, t.d. varðandi fast-
eignaverð í bænum og vöxt þess og viðgang yfirleitt. Fyrir
kosningarnar 1966 samþykkti bæjarstjórn Kópavogs heild-
aráætlun um varanlega gatnagerð á næstu 10 ámm en
síðan hefur lítið orðið vart við þá áætlun.
Á síðustu árum hefur varnnlegt slitlag aðeins verið lagt
á 11 km af götum í Kópavogi og gangstéttir eru þar óþekkt
fyrirbrigði. Þetta ástand gatnakerfisins stingur mjög í
stúf vegna þeirra miklu framkvæmda við varanlega gatna-
gerð, sem orðið hafa í nágrannabæjum Kópavogs, t. d.
Garðahreppi og Hafnarfirði. Með sama framkvæmdahraða
og ríkt hefur undir stjóm Framsóknarmanna og komm-
únista mundi ef tii vill verða lokið við að leggja varan-
legt slitlag á núverandi gatnakerfi á árinu 1986 og er þá
ekki gert ráð fyrir væntanlegri aukningu á gatnakerfinu á
næstu árum.
Sjálfstæðismenn í Kópavogi telja, að þetta ástand sé
orðið með öllu óþolandi. Framsóknarmenn og kommún-
istar hafa sýnt, að þeir ráða ekki við það verkefni, sem
framundan er í gatnamálum Kópavogs.
Varanleg gatnagerð er hins vegar forsenda þess, að:
0 Uppbygging og vöxtur bæjarfélagsins haldi áfram.
0 Fasteignir í bænum haldi sama verði og fasteignir í
nágrannabyggðarlögum.
0 Fólk vilji búa í Kópavogi.
Stefnubreyting er nauðsyn í þessum málum sem öðrum
í Kópavogi. Sjálfstæðisimenn leggja áherzlu á eftirfarandi:
0 Gerðar verði nákvæmar verk- og fjárhagsáætlanir um
stóra áfanga í gatnagerð í senn og þeir boðnir út.
0 Fjárveitingar til varanlegrar gatnagerðar verði aukn-
ar verulega.
0 Varanlegt slitlag verði lagt á götur Kópavogs á næstu
árum.
Kópavogsbúar ættu að athuga eftirfarandi staðreyndir:
0 Meirihluti Framsóknarmanna og kommúnista hefur
fengið 8 ár til þess að sýna hvað í honum býr.
0 Gatnagerðaráætlunin frá 1966 hefur í höndum Fram-
sóknarmanna og kommúnista orðið marklaust plagg.
0 Reynslan sýnir, að núverandi meirihluti ræður ekki
við þctta verkefni.
0 Verði meirihluti Framsóknarmanna og kommúnista
áfram við völd er fyrirsjáanlegt að gatnakerfið í
Kópavogi heldur áfram að grotna niður.
Forysta Sjálfstæðismannia í bæjarstjórn Kópavogs er
forsenda þess, að ný vinnubrögð verði tekin upp á sviði
gatnagerðar — sömu vinnubrögð og Sjálfstæðismienn í ná-
grannabæjum hafa haft forystu um.