Morgunblaðið - 30.05.1970, Page 11

Morgunblaðið - 30.05.1970, Page 11
MORG-UNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1970 11 — skólasel fyrir Vogaskóla undirbúið að Kolviðarhóli þegar skólafólkið í Vogaskóla færí heim að loknum 3kólaslit- um myndi það hafa meðferðis bréf til foreldra sinna þar sem þeir væru inntir eftir áhuga og skoðunum á uppbyggingu skóla sels, sem þess er fyrirhugað er að Kolviðarhóli þar sem nem- endur og kennarar myndu vinna saman að uppbyggingu at hafnasvæðis í fögru og hollu náttúruumhverfi. Þegar við renndum í hlað að Kolviðarhóli var fjöldi unglinga úti við að hreinsa til í rústum gamla Sæluhússins, ditta að lóð inni og nokkrir knáir piltar voru að setja gler í nokkra glugga hússins. Allir voru hressir og kátir og virtust brenna í skinninu eftir að vinna aðkallandi verkefni, en auk margs annars á eftir að mála húsið, búa húsgögnum, innrétta suma húshluta og margt fleira, en það var hlýtt í húsinu og öllum leið vel. Um kvöldið var síðan kvöld- vaka, dans og varðeldur og það var mikið sungið af gömlu góðu lögunum, eins og „Kátir voru karlar,“ og fleiri þjóð- kunn lög fyrir alla aldurs- flokka. Við röbbuðum við nokkra unglinga sem allir eru 13 ára um hugmyndina að aðstöðufyr ir skólann á þessari jörð og fara viðtölin hér á eftir: Ingibjörg Friðriksdóttir sagði að það væri mjög skemmtilegt að fá að fara hingað bæði til þess að vinna að uppbyggingu staðarins og til skemmtunar. Hún kvað það líka góða til- breytingu frá borgarlífinu að fara til Kolviðarhóls með félög um sínum. Hún sagði að krakk- arnir vildu gera sem mest, mála, hreinsa og áhuginn væri mikill, enda stæði allur skól- inn með þessu. Hún sagði einn- ig að foreldrar sínir væru mjög hlynntir þessu áformi um skiól a sel og aðstöðu til þess að njóta útilífsins í hollum félagsskap. Þá sagði hún að krakkarnir væru mjög ánægð með að marg ir fullorðnir hefðu gefið sitt- hvað til hússins, sem kæmi vel að notum. Áwú Sigfússon sagði að allir væru mjög samtaka um að gera þennan sögulega stað eins vel úr garði og hægt væri og skapa þarna varanlega að- stöðu fyrir skólafólk úr Voga- skóla til margháttaðs félags- starfs. Allir vilja gera eitt- hvað og hérna eru mörg verk efni, svo mörg að þau eru næst- um óþrjótandi og það gerir þetta líka svo spennandi. Auk þess að bæta úr því sem þyrfti væri hægt að fara í könnunarferðir í nágrenninu, njóta kennslu í sjálfu húsinu, fara í margs konar leiki, inni og úti, og það hefði sýnt sig að skemmtun í svona félagsstarfi væri örugg. Hann kvað reglur strangar um hegðun umglinganna og hann sagði að þeim líkaði það vel og sæju sér fært að fara eftir þeiim, en hins vegaf væri það alveg ljóst að það væri mikið líf og fjör í fólkinu og oft ekki sem hljóðlátast. „Við vonumst til að geta gert hérna skemmtilegt skólasel,“ sagði Ámi, „sem hægt er að ganga að hvenær sem er ársins og njóta hér fróðleiks og skemmtunar í framtíðinni.“ Elín Þóm Friðfininsdóttir 13 ára gömul sagði að sér hefði ekki litizt vel á þessa hug- mynd í fyrstu. „En nú lízt mér ofsalega vel á þetta,“ bætti hún við og ljómaði öll. Hún kvað það skemmtilegt að fá að vera hér með vinum sínum í nokkurs konar útilegu, en hafa samt ákveðin verkefni í starfi og leifc. Hún sagði að sér fyndist skemmtilegast að byggja þarna upp til þess að stuðla að því að geta farið þangað í fram- tíðinni. „Við gistum aðeins eina nótt hér núna,“ sagði hún, „en við vonumst til þess að geta gist hér lengur seinna." Elín sagði að krökkunum lit- ist mjöig vel á þá hugimynid að fara til Kolviðarhóls bæði að sumar- og vetrarlagi og sagð- ist hún viss um að allir skóla- krakkar í Reykjavík hefðu mikinn áhuga á svona félags- starfi undir handleiðslu kenn- ara. Þóroddur Svaimsson sagði að sér þætti þetta mjög skemmti- legt og taldi að svona aðstaða ætti að vfera fyrir alla skóla. Hann sagði að sér þætti mjög skemmtilegt að hreinsa til á jörðinni og svo væri líka svo hressandi að komast upp í sveit og vera' í næði og róleg- heitum sveitalífsirus. Hann sagði að sér þætti skemmtilegast að fara í fjallgöngur, en það væri líka margt að vinna, mála, hlaða upp og fleira. „Við viljum reyna að koma þessu húsi upp sem mest sjálf,“ sagði Þóroddur, „og með því að kennaramir skipuleggi starfið eigum við að geta það með hjálp góðra aðila.“ -á. j. — nemendur í vinnu- og skemmtiferð heimsóttir Kennararnir sem voru með nemendunum buðu upp á kaffi og þarna er kaffikönnunni hampað. Frá vinstri: Rag-nhildur Bjama dóttir, Sigfús J. Johnsen og Dagbjört Kristjánsdóttir. — Um kvöldið var varðeldur haldinn og kösturinn var hlaðinn upp úr spýtnabraki, sem hafði fallið til í hreinsunarferðinni. AUir skemmtu sér vel við varðeldinn. Þóroddur Sv-einsson Elín Þóra Friðfinnsdóttir Árni S. Johnsen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.