Morgunblaðið - 21.08.1970, Side 3

Morgunblaðið - 21.08.1970, Side 3
MOBGUNBLAÐH), FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1970 3 um mynd af Lagarfljótsormin um og verður ekki af henni annað séð en ormurinn ®é enn hinn sprækasti. En þá má líka telja mengun minni í Lagar- fljóti en Loch Ness; — enn- 11:»* Alla vega er hér á ferðinni mái, sem ekki má draga að glögigir menn geri sér grein fyrir. Við kveðjum til liðs skrímislfræðing okkar Þórberg Þórðarson. \ \ . .' .. Loch Ness og Lagarfljót ER Loch Ness-skrýmslið fræga orðið raengnn að bráð? Enski vísindamaðurinn Dougl as Drysdale heldur svo. Hann tekur fram, að hann trúi á skrímslið en hins vegar sé é- mögulegt að það lifi af þá miklu mengun, sem nú er í Loch Ness vatninu. Fvrirtæki það, sem selur ferðamönnum aðgang að skrímslinu, hefur brugðizt hart við fullyrðingum Drys- dale og spyr hvernig megi vera, að fiskur lifi enn góðu lifi í vatninu. Þvi þá ekki skrímslið? Og spumingu fyrir tækisins fylgdi frásögn um, að „Nessie“ hefði nýlega sézt og þá ekki virzt annað en við beztu heilsu. Okkur íslendingum má vera málið skylt, þar sem við höf um okkar Lagarfljótsorm. Fyr ir skömmu náði ljósmyndari Morgunblaðsins á Egilsstöð- mmm. Skrímslið í Loch Ne ss — bráð mengunar? TÍZKUVERZLLN UNGA FÓLKSINS TÝSGÖTU 1 <§» KARNABÆR ÞIÐ HAFIB BEÐID EFTIR................................................... HERRADEILD ÞESSUM VÖRUM: ★ STÖKUM JÖKKUM SAFARI-SNIÐ ÚR SKYGGÐU SKINNLlKI OG VELOUR- FLAUELI ★ BRODERUÐUM SKYRTUM OG SKYRTUM m/BINDI ★ BOLIR — BATIK EINLITIR OG m/MYND ★ TERYLENE & ULL BUXUM i MIKLU LITAÚRVALI k HERRAPEYSUM SÍÐUM PÓSTSENDUM UM LAND ALLT. „ÞEGAR ÉG ER ORÐIN STÓR ÆTLA ÉG AÐ KAUPA FÖTIN MÍN I KARNABÆ". DÖMUDEILD ÞESSUM VÖRUM: ★ SLÉTT — FLAUELISBUXUM 1 VÍNRAUÐU, FJÓLUBLAU DÖKKBRÚNU, STALBLAU k JAKKAPEYSUM ★ SÍÐUM PEYSUM k ANGÚRU-PEYSUM k BATIK-BOLUM k BOLUM k TERYLENE- & ULLARBUXUM í MIKLU LITAÚRVALI o.m.fl. OPIÐ TIL KL. 4 E. H. ALLALAUGARDAGA STVKSinwi; Undanlátssemi? Blöð stjórnarandstöðunnar eru f miklum ham um þessar mund- ir. Umræður þær, sem fram hafa farið um hugsanlegar haustkosn- ingar virðast hafa valdið upp- lausn í herbúðum stjórnarand- stæðinga. Þjóðviljinn segir í for- ystugrein í gær: „Uppdráttar- sýkin innan stjórnarliðsins hef- ur verið að magnast árum sam- an og hefur nú náð algeru há- marki. Stjórnvöldin beygja sig fyrir hverjum þrýstingi í þjóð- félaginu, til skiptis fyrir launa- mönnum, atvinnurekendum og fjárplógsmönnum og skeyta því engu þótt af hljótist bullandi óðaverðbólga." Þessi ummæli Þjóðviljans eru að ýmsu leyti merkileg, þar sem Þjóðviljinn hefur ævinlega hald- ið því fram, að ríkisstjórnin kúg aði launamenn; en mi hefur blað inu verið snúið við. Að vísu hef- ur rikisstjórnin ekki hlutazt til um kjarasamninga milli atvinnu rekenda og launþega, nema hvað rikisstjórnin lagði fram við síð- ustu kjarasamninga tillögu um gengishækkun krónunnar sem lið í kjarabótum, en á þessa til- lögu vildi hvorugur aðila fallast. Bikisvaldið hefur þannig aidrei látið undan þrýstingi við gerð kjarasamninga. Hitt er sérstaklega athyglis- vert við ummæii Þjóðviljans, að hann telur nú undanlátssemi við kröfur launþega í kjarasamning- um orsaka „builandi óðaverð- bólgu.“ Þjóðviljinn hefur ekki áðm- viðurkennt, að launahækk- anir, sem fara fram lir greiðslu- getu atvinnuveganna, leiði óhjá- kvæmilega til víxlhækkana verð- lags og kaupgjalds, sem aftur hefur í för með sér auka verð- bólguþróun. Það er ánægjulegt, að Þjóðviljinn skuli nú fallast á þessa staðreynd, sem oft hefur verið bent á. Bitstjóri Þjóðvilj- ans verður hins vegar að gera sér grein fyrir þvi, að kjara- samningar atvinnurekenda og launþega fara fam án íhlutunar ríkisvraldsins. Launþegasamtökin hafa talið það meginatriði, að þessi frjálsi samningsréttur yrði í engu skertur. Það kemur hins vegar úr hörðustu átt, ef rit- stjóri Þjóðviljans vill veikja þennan rétt með auknum af- skiptum stjórnvalda. En „kross- tré“ geta brostið sem önnur tré. Mikil örvænting Það má glöggt merkja á skrif um stjórnarandstöðublaðanna, að hugsanlegar kosningar valda þeim kvíða. Tíminn fer um það mörgum orðum í forystu- grein í gær, hversn lengi full- trtiar stjórnarflokkanna eru að komast að niðurstöðu um, hvort efna skuli tii kosninga í haust eða ekki. Tíminn uppliefur gömlu þuluna um dáðleysi stjórnarinn- ar, sem endurtekin hefur verið svo til óbreytt í heiian áratug: „Annars er ekki að vænta af rík isstjórn, sem er orðin uppgefin og ráðalaus, og hefur ekki áhuga á öðru en að hanga sem lengst . . . Slíka stjórn á þjóðin að fella við fyrsta tækifæri." Það er ekki nema von, að Framsóknarmenn tvistígi nú vegna kosningaskjálfta, þegar á það er litið, að hér er um að ræða staðnaðan flokk, sem sýnt hefur fádæma ístöðuleysi í stjórn málaafstoðu sinni. Forystugrein ar Tímans eru órækur vottur um þá stöðnun, sem átt hefur sér stað í Framsóknarflokknum lið- inn áratug. Ekki er nema von, að nú örvænti menn í þessum lier- búðum, jafnvel þótt framsóknar menn fái nú „vaxandi traust“ á I foringja sinum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.