Morgunblaðið - 26.08.1970, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 26.08.1970, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐ'IÐ, MIÐVKKUDAGUR 26. ÁGÚOT 1970 3 þingi í SÍÐUSTU viku minntust Þing- e.yingar 11 alda byggðar í Þing- eyjar’þingi með hátíðahöldum á Húsavík og að Laugum. Margt að komumanna heimsótti Húsavík í sambandi við hátíðahöldin, enda var veðurblíða alveg sérstök — logn, sólskin og hiti. Hátíðahöldin tókust mjög vel, og dagskráin hin fjölbreyttasta, eins og áður hefur verið getið um í blaðinu. íþróttaæskan setti svip sinn á hátiðahöldin og hér er skrúðganga hennar að leggja af stað á Húsavík Bæjarins bezta og mesta úrval af borðstofuhúsgögnum Meðon birgðir endast getum við selt ofantalin húsgögn á gamla verðinu. W°/o AFSLÁTTUR VIÐ STADGREIÐSLU Afborgunarsk.il málar: Jafnar greiðslur á 20 mánuðum. BORÐSTOFUSKÁPAR úr eik og teak. Lengd 122 cm verð kr. 6.150.00 — 160 — — — 10.500.00 — 160 — — — 11.350.00 — 170 — — — 11.500,00 — 170 — — — 12.765,00 — 170 — — — 15.960,00 — 185 — — — 14.000,00 — 205 — — — 15.200,00 — 210 — — — 16.315,00 — 215 — — — 16.900,00 — 216 — — — 18.400,00 — 228 — — — 17.610,00 Háir skápar lengd 106 cm hæð 117 cm — 14.260,00 12 gerðir af borðstofuborðum, hringlaga og aflöngum. Stólar i mjög fjölbreyttu úrvali. SKEIFAN Sími 16975 - 18S80 Kjörgarði Svo sem kunnugt er líta kommúnistar á sig sem samvizku alheims, og kynflokkur kommún- ista hér á íslandi er þeirrar skoð- unar, að íslendingar hljóti að hafa veruleg afskipti af heims- málunum, sérstaklega þar sem Bandaríkjamenn láta að sér kveða, svo sem í Víetnam og ann- ars staðar í þeim heimshluta. Til þess að leggja áherzlu á þessar kröfur flytja þingmenn kommún- ista maraþonræður um heims- vandamálin á Alþingi, ásamt ýmiss konar tillöguflutningi, og allur málflutningur þeirra er byggður á því, að íslendingar megi ekki einangra sig frá slík- um vandamálum. Þau komi okk- ur við, ekki síður en öðrum. Þessi áhugi kommúnista á lausn alvarlegra heimsvandamála er góðra gjalda verður, en því mið- ur er ekki sama hver í hlut á. í Þjóðviljanum 21. ágúst birtist t.d. stutt forystugrein um Tékkó- slóvakíu, augsýnilega skrifuð af þeim hvötum einum, að leiðara- höfundurinn hefur talið það óhjákvæmilegt. í forystugrein þessari er innrásin i Tékkósló- vakíu skýrð með því að hér sé um að ræða „valdstefnu stórveld- anna“ og viðleitni þeirra til þess að tryggja „áhrifasvæði" sín. Síðan segir: „Það er smáþjóð- unum lífsnauðsyn að kveða niður þessa valdstefnu stórveldanna og kenninguna um áhrifasvæði. Þá baráttu verður hver þjóð að heyja á sínum vettvangi." Á venjulegri íslenzku þýðir þetta, að íslendingar eigi ekki að skipta sér af Tékkóslóvakíu og því, sem þar gerist. Þeir eigi að halda sér að sínu, þegar ódæðisverk kommúnista eru annars vegar. Kommúnistar segja með öðrum orðum: Það kemur engum við hvaða glæpaverk við fremjum, en við höfum rétt til þeirra af- skipta, sem okkur þóknast af málefnum annarra. Þetta heitir tvöfeldni. STAKSTEINAR Hræddir við kosningar Þingeyjar Tvöfeldni kommúnista Að Laugum við upphaf hátíðahaldanna. Samband þingeyskra kvenna hafði sögusýningu, og komu konumar fram í búningum frá ýmsum tímum liðinna alda, eins og sjá má á myndinni 11 alda byggð í Ein athyglisverðasta staðreynd- in, sem við blasir í þeim umræð- um, sem fram hafa farið um haustkosningar, ekki sízt siðustu daga eftir að ákveðið var að þær færu ekki fram, er sú, að allir stjómmálaflokkar nema Sjálf- stæðisflokkurinn vildu komast hjá haustkosningum. Alþýðu- flokkurinn tók á sinar herðar þá ábyrgð að koma í veg fyrir kosn- ingar í haust þrátt fyrir eindreg- in vilja almennings í landinu um það gagnstæða. Bæði Framsókn- armenn og kommúnistar hafa sýnt það síðustu daga að þeir fagna því af alhug, að ekki verð- ur af kosningum nú í haust. Þenn an fögnuð hefur berlega mátt sjá á siðum blaða þeirra dag eftir dag og heyrist nú annað hljóð úr þeim herbúðum en á undanföm- um árum, er stjórnarandstöðu- flokkamir hafa hvað eftir annað krafizt þess að ríkisstjómin segði af sér og efnt yrði til kosninga. Ástæðan fyrir þessum ótta ann- arra stjómmálaflokka en Sjálf- stæðisflokksins við' kosningar í haust getur ekki verið önnur en sú, að þeir telja sig ekki hafa hag af því að leggja mál sín undir dóm kjósenda. Meiri vantraus|s- yfirlýsingu geta stjórnmálamenn og flokkar þeirra varla kvcðið upp yfir sjálfum sér. Þetta er staðreynd, sem almenningur í landinu á að veita eftirtekt. Allir stjórnmálaflokkar nema Sjálf- stæðisflokkurinn vildu koma í veg fyrir kosningar. Það segir sína sögu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.