Morgunblaðið - 26.08.1970, Side 6

Morgunblaðið - 26.08.1970, Side 6
6 MORGUNBLAf>IÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1970 TÚNÞÖKUR Vélskorrvar túnþökur til sölu. Bjöm R. Einarsson. Sími 20856. ÍBÚÐ ÓSKAST A AKRANESI 3ja—4ra herbergja íbúð ósk- ast til leigu eða kaups á Akranesi. Uppl'ýsimgar í síma 93-2122. SKRIFSTOFUSTÚLKA ÓSKAST hálifan eða a'lten daginn. Góð v é Imuna'nkunnátta nauðsyn - ieg. Upplýsingar um mennt- un og fynri störf sendist Mbl. f. föstudag merkt „2899". ÓSKA EFTIR að taika á teiigu sælgætiis- og tóiba'kswerztuin með kvöWsöliu teyfi. Tillb. sendist Mibl. fyrir 28. þ. m. merkt: „Sælgœtiis- verzlem 4024". HÚSBYGGJENDUR Byggingaimeiistairi getur bætt við sig verkefmum. Geri fast verðtil'boð.Uppl. send'ist aifgr. blaðsims merkt: „4413". HAFNARFJÖRÐUR Óskum efti'r að taika á teigu 3ja—4ra herto. ílb'úð. Uppl. í siíma 52048 eftir kl. 7 á kvöl'd in. 3JA HERB. iBÚÐ óskaist tii leigu. Uppl. í sírna 84929. GJALDMÆLIR fyriir leigutoil ós'ka'St. Sími 38630 á kvöldim. SKIPSTJÓRI utan af landi óskar eftir íbúð frá og með 1. sept, Uppt. í síma 81776. 1. OKT. Vil taika á leigu góða itoiúð, helzt í Háal'eiti'Shverfi. Uppl. í síma 38069. HÓTELKAFFIKANNA eða kaffivél, griitofn og hit- unarborð, óskast til kaups. Uppl. í siíma 31269 eftir -kl. 6. ÓSKA EFTIR að kaupa góða múrsprautu. Uppl. í siíma 50658. IBÚÐ ÓSKAST 2ja—3ja herb. íbúð ósikaist í Hafnairfirði. Uppl. í síma 50658. ÚTGERÐARMENN Ósika eftir að fá keyptan fiskibát, 80—120 tonma. — Uppl. veittar í síma 98-1859. STÚLKA ÓSKAST til beimiiliisisita'rfa í Bandaríkj- unium. Konan ístenzk. Lág- marksa'Id'ur 18 ár. Uppl. í síma 36366. Þer.si unga stúlka sólar sig undir heygalta úti í Viðey. Sv. Þorm. rakst á hana á dögunum, og fannst endilega þetta minna sig á skerjagarðsrómantík og dalalíf, þótt úti í eyju væri. Hann sem ekki þyrmdi sínum eigin syni, heldur framseldi hann fyrir oss alla, liví skyldi hann ekki líka gefa oss allt með lionum. (Róm. 8.31). í dag er miðvikudagur 26. ágúst og er það 238. dagur ársins 1970. Eftir lifa 127 dagar. Árdegisháflæði kl. 1.49. (Úr fslands almanakinu). AA- samtökin. 'Tið!alstími er í Tjarnargötu 3c alla virka daga frá kl. 6—7 e.h. Siml •o373. Almomnar upplýsingar um læknlsþjónustu í borginní eru getfnar símsvara Læknafélags Reykjavíkur, sima 18888. Iækningastofur eru lokaðar á latigardöguan yfir sumarmánuðina. Tekið verður á mótl beiðnum um lyfseðla og þess háttar að Gfyðastræti 13. sfmi 16195, frá kl. 9-11 á laugardagsmorgnum Tannlæknavaktin er i Heilsuverndarstöðinni, laugar- daga og sunnudaga frá kl. 5—6. Næturlæknir í Keflavík 26.8. 27.8. Guðjón Klemenzson. 28.8., 29.8. og 30.8. Kjartan Ólafsson. 31.8. Arnbjörn Ólafsson. Læknisþjónusta á stofu á laugar- dögum sumarið 1970. Suimarmániuðina (júní-júlí-ágúst- sept.) eru læknastofur í Reykja- vík lokaðar á laugardögum, nema læknzstofan í Garðastræti 14, sem er oplin alla laugardaga í sumar kl, 9—11 fyrir hádegi, sími 16195. Vitjanabeiðnir hjá læknava.kti.nni sími 21230, fyrir kvöld- nætur- og helgidagabeiðnir. Asgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið alla da.ga, nema laugar- daga, frá kl. 1.30—4. Aðgangur ókeypis. VÍSUK0RN Kalið veldur kvöl og neyð, kvarta bændur sáran. Byrgir askan bjargarleið, beltið herðir nárann. Gunnlaugur Gunnlaugsson. Spakmæli dagsins Útþráin er ekki jafn-sár og heimþráin. — Peter Egge. Margt eitt kvöld o g margan dag í dag kynnum við skáldið Þorstein Erlingsson. Þor- steinn var fæddur í Stóru- mörk undir Eyjafjöllum 27. september 1858, sonur Erlings Pálssonar (b. á Árhranni á Skeiðum) og konu hans I»u- ríðiir Jónsdóttur, (bónda á Stórumörk Guðmundssonar.) Mánaðargamall fór hann í fóst ur að Hlíðarendakoti í Fljóts- hlíð og ólst þar upp hjá ömmu sinni og seinni manni hennar. 18 ára gamall settist Þor- steinn í lærða skólann í Reykjavík fyrir atbeina skáld anna Matthiasar Jochumsson- ar og Steingríms Thorsteins- sonar. Lauk Þorsteinn stúd- entsprófi 1883, og sigldi sam- sumars til laganáms við Kaup mannahafnarháskóla. Varð cand. phil. 1884. Hætti laga- námi 1887. Samtals dvaldist hann í Kaupmannahöfn í 13 ár, og lagði nokkra stund á málfræði og bókmenntir, eink um forníslenzkar. Fjárskort- ur og heilsuleysi mun hafa valdið því, að hann hvarf frá námi, en á þessum árum orti hann sum sín beztu kvæði. Gekk þá m.a. frá handriti sínu að ljóðabókinni Þyrnum, sem skipaði honum strax á bekk með öndvegisskáldum. Var við fornminjarannsóknir á sunnan og vestanverðu Is- landi 1895. Fór snögga ferð til Ameríku með dr. Valtý Guðmundssyni 1896 i boði Miss Cornelia Horsford til rannsókna á fornminjum í Massachusetts. Ritstjóri Bjarka á Seyðisfirði 1896— 1900, 1901—02 ritstjóri Arn- firðings á Bíldudal. Fluttist til Reykjavíkur 1902 og dvaldist þar upp frá því. Kunnasta ljóðasafn hans eru Þyrnar, sem út kom i fjórum útgáfum, einnig Eiðurinn, um Ragnheiði biskupsdóttur, þá Málleysingjar. Einnig þýddi hann sögur eftir ýmsa höf- unda, skrifaði ritlinginn „Meðan um semur", pólitísk- ur bæklingur 1908, skrifaði líka fjölda greina í Tímarit Bókmenntafélagsins, Sunnan- fara, Dýravininn og Eimreið- ina. Hann kvæntist fyrst danskri konu, en seinni kona hans var Guðrún Jónsdóttir (Guðrún J. Erlings). Giftust þau 1901. Þorsteinn andaðist 28. september árið 1914. Við veljum til kynningar kvæðum hans: JYo'Cii cVu TncUCu. fó-ýP uam fUlw úv'i'H* icJci'j erx ou£ OiJíz&MmiÍma. , Rithönd Þorsteins Erlingssonar. í HLÍÐARENDAKOTI Fyrr var oft í koti kátt, krakkar léku saman. Þar var löngum hlegið hátt, hent að mörgu gaman. Úti um stéttar urðu þar einatt skrýtnar sögur, þegar saman safnazt var sumarkvöldin fögur. Eins við brugðum okkur þá oft á milli bæja til að kankast eitthvað á eða til að hlæja. Margt eitt kvöld og margan dag máttum við í næði æfa saman eitthvert lag eða syngja kvæði. Bænum mínum heima hjá Hlíðar brekkum undir er svo margt að minnast á, margar glaðar stundir. Því vill hvarfla hugurinn, heillavinir góðir, heim i gamla hópinn minn, heim á fornar slóðir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.