Morgunblaðið - 26.08.1970, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.08.1970, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1970 Frú Sigríðu — Minning F. 24.12.1889. D. 12.8. 1970. Miðvikudaginn 12. ágúst s.l. lézt frú Sigríður Einarsson. Er þar gengin fyrsta borgarstjóra- frú Reykjavíkur og síðasta barn þeirra hjóna Franz sýslumanns Siemsens og konu hans í>órunn- ar dóttur Árna landfógeta Thorsteinson. Ekki er ætlun mín að rekja hér æviferil hennar að öðru en því, að hún var fædd i Hafnar- firði 24. desember, aðfangadag jóla, 1889. Hún giftist Páli Ein- arssyni þá borgarstjóra í Reykja vík, árið 1911. Þau hjón bjuggu 43 ár í farsælu hjónabandi, þótt þau yrðu fyrir sorgum og trega við missi tveggja dætra. Eftir lifa böm þeirra: Einar Pálsson verkfræðingur, Franz Pálsson verzlunarfulltrúi, Ólafur Páls- son verkfræðingur og Þórunn húsmóðir; öll búsett í Reykja- vík. Við fráfall elskulegrar móður systur minnar koma ýmsar minn ingar fram i hugskotið, ekki sizt vegna þess, hversu móðir min t Eigwkoma min og móðir okkar Elín Magnúsdótiir Suðureyri, Súgandafirði, andaðist í Sjúkrahúsinw á ísa- firði laiu@ardaigirm 22. þ. m. Útförin fer fram frá Suður- eyrarkirkju fimmtudaginn 26. ágúst kl. 14. Guðmundur Kr. Guðnason og böm. Jafnframt fer fram útför litlu dóttur okkar, Elínar Láru, er aindaðist í sjúkraihúsinu á Isafirði 15. þ. m. Fanney Guðmundsdóttir, Friðjón Guðmundsson. t Móðir okkar, Elsa Frieda Wiencke, Miklubraut 11, lézt í Landspítalanum 20. þ.m. Útförin fer fram frá Laugar- neiskirkju fimmtud,aginin 27. ágúst kL 13.30. Fyrir hömd tengdaibama og bamabarna. Karin Faber, Pétur Wiencke, Ragnar Wiencke. t Útför eigianmjamnts míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Þorvarðar G. Þormar, fyrrum prests í Laufási, sam lézt í Landspítalanum 22. þ.m., fer fram frá Dómkirkj- umni laugardaginn 29. ágúst kl. 10,30. Þeim, sem vildu miranast hams, er benit á Miinin ingargtjafasjóð Landspítaalns. Ólína Þormar, Guttormur Þormar, Doris Þormar, Halldór Þormar, Lil.ja Þormar, Hörður Þormar og bamaböm. r Einarsson og hún voru samrýmdar, eins og raunar öll þau Siemsenssystkin- in, og voru kynni mín af henni því e.t.v. nánari, en oft gengur og gerist um frændfólk af mis- munandi kynslóðum. Það fyrsta, sem mig rekur minni til Sísíar, en svo nefndum við ættingjamir hana, er þeg- ar hún kom til Reykjavikur og þau hjón fluttu hingað búferl- um. Það var árið 1920. Og þótt ég hafi þá aðeins verið fjögurra ára man ég þetta næsta glöggt, því að mikil var tilhlökkunin að kynnast frændfólkinu. Þau komu að norðan, því Páll hafði veríð bæjarfógeti á Akureyri ár in 1914—1919, en átti nú að taka við störfum hæstaréttardómara. Fyrstu mánuðina bjuggu þau hjá afa og ömmu í Ingólfsstræti 5, en fluttu fljótlega að Héðins- höfða og bjuggu þar um þriggja ára skeið ásamt Theódóri Jakobssyni, tengdasyni Páls, og Kristínu dóttur hans af fyrra hjónabandi, miklu ágætisfólki. Héðinshöfði var í mínum bamsaugum hálfgerð höll, sem yfir hvíldi ævintýraljómi. Enda komst ég síðar að þvi, að það var ekki svo fjarri lagi, þvi Höfði mun upphaflega verið reistur af Frökkum, á árunum 1908—9, efni til hans að mestu flutt tilhöggvið frá Frakklandi °g byggður í frönskum „pavilli- on“-stíl, enda bjó þar fyrstur manna fyrsti franski aðalkon- súllinn hérlendis, Brillouin að nafni. í byrjun fyrri heimsstyrj- aldar keypti Einar skáld Bene- diktsson húsið og bjó þar um hríð og mun Valgerður kona hans hafa gefið húsinu nafnið. Á bemskuárum mínum stóð t Þöikkum aulðteýnda samúð og viiraar'hjuig við aindlát og jarð- arfÖr, Stefáns Jóns Sigurjónssonar frá Skuggabjörgum. Vandamenn. t Við þökikium imnilega auð- srýndia samúð og vkváttu við aradlát og jarðarför eigin- mamns mjíns, föðúr, tenigda- föður og afa, Bjöms Guðmundssonar, Njálsgötu 56. Evlalía Ólafsdóttir, börn, tengdaböm og bamaböm. t Okikar iininilegiuisitiu þakkir fyr- ir aulðsýnda siamúð og vináttu við andlát ag jarðarför mióð- ur okkar, tengdamóður og ömmiu, Halldóru Gunnlaugsdóttur frá Æriæk. Sérstakar þakkir til Kvenfé- iaigs öxarfjarðar fyrir auð- sýnda virðingiu við himia látniu. Böm, tengdaböm og bamaböm. Héðinshöfði að kalla mætti ut- an Reykjavíkur, og manni fannst nánast að farið væri upp í sveit þegar þangað var haldið, sem oft var gert á þeim árum. Var það jafnan mikið tilhlökkunarefni að fá að gista þar hjá Sísí og Páli, leika sér í fjörunni með frænd- systkinunum og skoða allar skipamyndimar, sem Einar hafði teiknað af togurum og flutninga skipum. Margar góðar minningar geymast frá þeim dögum. Stað- ir verða oft minnisstæðir og merkir vegna manna og mann- virkja. Ég held að Héðinshöfði sé einn þeirra. Páll Einarsson var fæddur og uppalinn á stórjörðinni Hraun- um í Fljótum og bar alla tíð i brjósti hneigð til búskapar. Mun það hafa ráðið nokkru um, að árið 1927 leigði hann sér að- stöðu að Búðum á Snæfellsnesi. Það sumar fór ég þangað í heim- sókn til frændfólksins ásamt móður minni. Þar var gott að vera, því gestrisni móðursystur minnar var mikil og þar kenndi Einar frændi mér fyrst skil á ís- lenzkum jurtum, enda Búða- hraun hrein Paradís á því sviði. Hann kenndi mér að greina þær, pressa og þurrka og líma upp. Þarna held ég, að fyrst hafi vaknað áhugi minn á ís- lenzkri náttúru; sjá sjóbirting- t Kærar þakkir til þeirra, sem miiranituist, Kristjáns Sigurðssonar frá Brúsastöðiun í Vatnsdal. Börn, tengdaböm og barnaböm. t Þökkum hjartamleiga aiuð- sýndia saimúð við amidlát og jaxðarför komiummar minnar, móðlur okkar, temigdamóður og ömmiu, Huldu Lúðvíksdóttur. Sérstaikar þaikkir flytjum við starfsfólki Landspdtalans, sem anmiaðist hama af alúð. Jónas J. Hagan, Lúðvik Jónasson, Steinunn Jónasdóttir, Sólveig Jónasdóttir, Sigurður Haraldsson og bamaböra. inn skvampa í ósnum, skoða stór burknann í gjótunum, sóla sig í gulum sandinum, arka um hraun in, læra ótal örnefni, liggja í túnfætinum og hlusta á Bjarna á Búðum segja frá svaðiiförum og ævintýrum og njóta svo góðs atlætis móðursystur minnar. Á þvi sumri tók ég ástfóstri við Snæfellsnes, og síðan hafa þær kenndir fremur vaxið en dofnað. Ekkert af þessu á trúlega heima í eftirmælagrein, en þetta allt og margt fleira rifjast upp og sækir að við fráfáll móður- systur minnar — allar þess- ar ánægjustundir í návist henn- ar — og raunar ótalmargt fleira. Sigríður Einarsson var hlé- dræg kona. Hennar heimur var heimili hennar. Þó átti hún sín hugðarefni, var trúhneigð kona í víðtækum skilningi. Hafði rri.a. áhuga á guðspeki og sálar- rannsóknum. Þó held ég að hún hafi verið öfgalaus i þeim efn- um og vel getað unnað hverjum og einum að verða sáluhólpinn á sína vísu. Ekki má heldur gleyma því að hún var mikill Reykvíklngur enda þótt hún væri fædd I Hafnarfirði, — og ekki hvað sízt Vesturbæingur því að lengst af bjó hún að Vesturgötu 38. Með brottför hennar fækkar því miður þeim, sem settu svip á gamla Vestur- bæinn. Einhver spekingurinn hefur sagt, að góðar konur eldist ekki. Þetta held ég vera ofmælt, en svo hefur mér virzt, sem góðar konur eldist oft vel og þannig var um Sigríði farið. Á áttræð- isafmæli sínu um síðustu jól var hún em og enn hress og kát í fjölmennum hópi niðja sinna, ætt ingja og vina. 1 vor tók hún las- leika, sem leiddi til andláts hennar. Sem betur fer átti hún ekki við langvarandi legu og miklar þjáningar að stríða, og mér er nær að halda, að það hafi verið henni styrkur, að hún trúði á framhald tilverunn- ar. Okkur ættingjum hennar skil- ur hún eftir góðar minningar. Hennar nánustu vil ég votta hjartanlega samúð okkar syst- kina og fjölskyldna okkar. Birgir Kjaran. NOKKUB MINNIN GA RORÐ Nýlátin er hér í bænum frú Sigríður Einarsson, f. Siemsen, og verður útför hennar gerð í dag. Hún var síðari kona móð- urbróður míns, Páls Einarsson- ar, en hann gegndi margvísleg- um embættisstörfum. Var sýslu- maður á Patreksfirði, og þá kvæntur Sigríði Thorsteinsson, dóttur Árna landfógeta og frú Soffíu Johnsen, en hún var af ætt Hannesar Finnssonar bisk- ups. Páli missti fyrri konu sína eftir stutta sambúð, og áttu þau tvö böm, Árna verkfræðing og Kristínu er giftist Theódór Ja- kobssyni, og er löngu látin. Síð- ar varð Páll sýslumaður í Gull- bringu og Kjósarsýslu og bæj- arfógeti í Hafnarfirði, en var kjörinn fyrsti borgarstjóri Reykjavíkur árið 1908, og gegndi því starfi til 1914. Árið 1911 gekk hann að eiga Sigríði f. Siemsen, sem ég mæli hér eft- ir og varð hún þannig fyrsta borgarstjórafrú Reykjavíkur. Hún var dóttir hjónanna Franz Siemsen sýslumanns og bæjar- fógeta i Hafnarfirði og konu hans Þórunnar, dóttur Áma landfógeta, og því systurdóttir fyrri konu Páls. Síðar tók Páll við embætti bæjarfógeta á Akur t Hugheilar þakkir viljum við flytja þeim mörgu, sem með blómum, skeytum, aðstoð og hvers kyns vináttu vottuðu samúð sína vegna andláts og jarðarfarar JÓNASAR MAGNÚSSONAR Stardal. Kristrún Eyvindsdóttir, böm og aðrir vandamenn. eyri og sýslumanns Eyjafjarðar- sýslu, en árið 1920 var hann skipaður hæstaréttardómari, og gegndi því embætti meðan emb- ættisaldur leyfði. Þau Sigríður og Páll lifðu í óvenju farsælu hjónabandi unz Páll lézt þá orðinn 86 ára. Börn þeirra sem á lífi eru: Einar B. Pálsson verkfræðingur, FranzE. Pálsson skrifstofumaður, Ólafur Pálsson verkfræðingur og Þór- unn. Öll eru þessi systkini gift og búsett hér í bæ, og afkom- endur þeirra Sigríðar og Páls orðnir mjög margir. Tvær dætur misstu þau, Þórunni á æsku- skeiði og Sigríði, gifta þýzkum manni og búsetta i Þýzkalandi eftir það. Yfír heimili Páls og Sigríðar var mikill menningarbragur. Þar var rætt frjálsmannlega um margt milli himins og jarðar; menning og lístir í hávegum hafðar. Sigríður var jafnan hin virðulega og hjartahlýja húsmóð ir, er tók með alúð á móti gest- um og gangandi. Ég get um þetta borið af eigin reynslu. Meðal annars var ég sumar eitt á sið- ustu skólaárum mínum gestur þeirra á Akureyri um skeið, og var boðinn með þeim í ferðaiag til Raufarhafnar, og mig minn- ir að tvennt annað af yngra ætt- fólki hafi verið með í ferðinni. Á Raufarhöfn sátum við 2—3 daga hjá frændfólki í miklu yf- irlæti. Farið var á hestum báðar leiðir, og margar dásemdir Norð urlands skoðaðar, syo sem Mý- vatnssveit, Dettifoss, Hólmatung ur, Hljóðaklettar og Ásbyrgi. Ég kynntist Sigríði þvi bæði í dags- ins önn, og í sumarfrii þeirra hjóna, en þau léku þá á als oddi, og nutu hvers dags í rík- um mæli. Alls staðar var hópn- um vel fagnað sem aufúsugest- um, og fann ég vel að orð stír þeirra sýslumannshjónanna hafði víða borizt. Mjög innilegt samband var ávallt milli Sigríðar og hinnar stóru fjölskyldu, barna, barna- barna, tengda- og stjúpbarna. Má nefna það til dæmis að fyrr- verandi tengdasonur hennar, þýzkur verkfræðingur, kom hingað á síðastliðnum jólum gagngert til að heimsækja hana og ættingja konu sinnar, sem er löngu látin, en Sigríður varð þá áttræð. Hún var ákaflega trygg vin- um sínum, og hélt við gömlum kynnum og vináttu við þá til hins síðasta. Systkini hennar eru nú öll látin, en þau voru Árni Siemsen ræðismaður, frú Soffía Kjaran og Theódór Siem- sen kaupmaður. Það er óhætt að segja að í og frá þessum ætt- boga sé margt fólk sem varð landsþekkt, og þó fyrst og fremst meðal þeirra „sem settu svip á bæinn,“ Reykjavík, sem svo hefir verið orðað. Á yngri árum mínum þótti eng um ráðum ráðið í fjölskyldu minni nema leitað vasri fyrst til Páls. Heimili þeirra stóð okkur systkinunum opið, og var jafn- an svipað því að við kæmum til elskulegra foreldra. Sigríður er nú horfin sjónum okkar, en minningin um þessa mætu konu er geymd. Að leiðarlokum henn- ar hér þakka ég allt þetta gamla og góða fyrir hönd mina og míns nánasta ættfólks, um leið og við vottum ástvinum hennar samúð okkar. Óskar Norðmann. Innáleigia þafeka ég ölluim þeim, viniuim og vamdlamiönin- um, siem sýndiu mér marg- hátta’ðia vimisiemd í tilefoi af 75 ára afmiæli miímiu 19. ágúsit sl. — Guð blessi yktour öll! Þorvaldur M. Magnússon, Laugamesvegi 88.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.