Morgunblaðið - 09.09.1970, Page 12

Morgunblaðið - 09.09.1970, Page 12
12 MOMJUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. SfflPT. 1970 Costa del Sol næstbezt — Spjallað við íslendinga undir suðrænni sól Sagan segir að þegar guð hafi skapað Spán, hafi hann gefið íbúunnm þrjár óskir. Spánverjarnir óskuðu sér góðr ar veðráttu, gnótt ávaxta og góðra vína. Þeir fengu svo sannariega óskir sínar upp- fylltar, en þá komu þeir til Guðs og vildu fá að óska sér einu sinni til viðbótar — góðr- ar stjórnar. En þá fannst guði koniið nóg og því er blómaskeið í stjórnmálasögu Spánar frem- ur stutt og sagan kannski dap- urleg. Islendingar, sem gista Spán, verða þó harla lítið var- ir við að þar er einræðisstjórn. íbúarnir liafa að mestu gefið frá sér pólitískar vangaveltur og erlendir ferðamenn lifa vel á Spáni. Blaðamaður Morgunblaðsins hitti nýlega nokkra Islendinga suður á Costa del Sol, en þar er unnt að sleikja sólskinið í 320 daga á ári hverju að jafn- aði. 1 ágústmánuði er að jafn- aði einn sólarlaus dagur og bar hann nú upp á 27. — alla hina 13 dagana skein sól svo að segja í hvirfilpunkti og litaði hið ijósa hörund Islendinganna, sem óspart notuðu tækifærið. dAsamlegur SUMARAUKI Meðal þeirra fyrstu, sem við bittum í Fuengirola — litlu fiskimannaþorpi, sem á síðustu árum hefur verið breytt í ný- tízku ferðamannabæ — var Ivar Guðmundsson upplýsinga- stjóri Sameinuðu þjóðanna ásamt konu sinni Barböru og syninum Pétri, sem er 6 ára. — Þetta er i fyrsta skipti, sem við gistum Spán — segir Ivar. Það má segja að það sé fyrir íslenzk áhrif að við ákváð um Spánardvöl. Nokkrir dagar voru eftir af sumarleyfinu — við sáum auglýsingu I blaði og að allir heima voru á hraðri leið til Spánar. Við komum ekki hingað vegna sólarinnar, því að við höfum hana i ríkum mæli, þar sem við búum. En hér er dásamlegt að vera og eins að íslendingar geti og hafi tæki- færi til þess að njóta þessa sumarauka, sagði Ivar að lok- um. • LEIÐSÖGUMAÐUR í 2« ÁR. Ottó Jónsson, menntaskóla- kennari er annar fararstjóra Ferðaskrifstofunnar Útsýnar á Costa del Sol. Ríki Ottós er í Torremolinos, en i Fuengirola hefur Guðmundur Steinsson, rit höfundur veg og vanda af vel ferð Islendinganna. Ottó kom einn daginn i heimsókn til Fu- engirola, sem er 15 km vestar á ströndinni. Við tókum Ottó tali. Hann sagði: — Við komum hingað 31. júlr og verðum út september. Mér likar þetta líf vel. Það er skemmtilega erilsamt, ég kann Leifur Eiríksson, þjónn og fjölskylda á svölum íhiiiVar þeirra í Fuengirola Playa. Frá vinstri: Eiríkur Stefánsson með sonardótturina Kristrúnu, frú Kristrún Þorleifsdóttir, frú Guðrún Michel- sen og Leifur með soninn Atla Stefán. A ströndinni, frá vinstri Halla Olafsdóttir, Jóhanna Cortes, Hörður Einarsson, tannlæknir, Þóra Björk Ólafsdóttir og Þór Bjarkar. ívar Guðmundsson ásamt konu sinni Barböru og syninum Pétri. vel við veðráttuna og umhverf- ið. íslendingar eru líka ánægju legt fólk að dvelja með og ákaf lega samtaka um að skemmta sér og vera í góðu skapi. Það er alltaf gaman að vera innan um slíkt fólk. — Við höfum skipulagða dag- skrá fyrir hvern hálfan mánuð, þ.e. milli hvers leiguflugs. Reynt er að dreifa ferðunum niður, með hvíldum i milli. Fólk hefur og heldur rýmri tíma síð- ustu dagana og getur það þá notað sólina, enda þá fai/ið að venjast henni. Fyrstu 8 dagana eru ferðir til Granada, Malaga, í hellana við Nerja og 2ja daga ferð til Afríku, sem er mjög lærdómsrík þeim, sem ekki hafa kynnzt áður veröld þess fólks sem þar býr. -— Jú, ég er búinn að vera leiðsögumaður ferðafólks í æði mörg ár — jafnlegi og hús- bóndi minn Ingólfur Guð- brandsson, segir Ottó og bros- ir. Ég var fararstjóri i Norður- landaferðum Heklu og þar áð- ur í Skotlandsferðum eða í hart nær 20 ár. Öll sumarfríin min frá menntaskólanum hafa farið í þetta, sem er góð tilbreyting frá vetrarstarfinu. Þessar ferð ir hingað hófust í fyrra og tók- ust þá þegar mjög vel — áður var farið í gegnum erlendar ferðaskrifstofur, einkum brezk ar. — í sumar eru ráðgerðar 7 ferðir hingað. Hver hópur er 115 til 120 manns, en að auki koma alltaf einhverjir um Lond on, þ.e.a.s. 3ja vikna fólkið. — Eins og ég sagði áðan fell- ur mér mjög vel við þetta starf. Islendingar eru skemmtilegir og kunna betur en aðrar þjóðir að skemmta sér i hópi og sem betur fer finnst mér þessi mikli verzlunaráhugi landans fara minnkandi til mikilla muna, sagði Ottó að lokum. • PARADÍS NÚMER TVÖ Arnór Karlsson eigandi blómaverzlunarinnar Laufáss á Akureyri gisti Costa del Sol í annað sinn í sumar. Við hitt- um Arnór á ströndinni. Hann sagði: — Ég var hér í fyrra i októ- ber og líkaði þá mjög vel, sem sjá má af því að ég er nú kom- inn aftur. Mér finnst nú allt miklu stórkostlegra og er þess fullviss að þessi tími hentar mér bezt. Hér á jörðu er para- dís nr. 2. — Þú spyrð hvar paradís nr. 1 sé? Það er auðvitað Norður- land og Þingeyjarsýsla — jafn vel þetta slær ekki hana út. — Ég hef farið í allar ferð- irnar, nema Afríkuferðina. Hana ætla ég að eiga til góða. Mér finnst þjónusta öll hér til fyrirmyndar, hótelið gott og er mjög ánægður með að fá í mig kraft og heilbrigði með þvi að njóta hér sólar og sumars. • BARNFÓ.STRA UNDIR SUÐRÆNNI SÓL. Kristínu Guðmundsdóttur, nemanda í Verzlunarskóla Is- lands hittum við við sundlaug Hotel Las Piramides. Kristín hélt einmitt upp á 17 ára af- mælisdag sinn við sundlaugina hinn 27. ágúst. I vor réðst hún til brezkrar fjölskyldu, skipti síðan um vist og var svo hepp in að ráðast til fólks, sem tók hana síðan með til Spánar. —■ Mér líkar þetta líf ágæt- lega. Ég er barnfóstra hjá frú og gæti þriggja barna, 9 ára stráks og tveggja telpna, 7 og 4ra ára. Ég bjóst svo sannar lega ekki við því að lenda hér þegar ég fór utan i vor og heim kem ég 12. september. — Nei, starfið er alls ekkert erfitt. Að eins yngsta telpan er ósynd, svo að ég þarf litlar áhyggjur að hafa af eldri krökkunum. Ég veit satt að segja ekki, hvernig ég færi að ef þau væru öll ósynd, segir Kristín og stingur sér í laugina. • SPÁNSKT KVEF EKKI BETRA EN ÍSLENZKT Hrókur alls fagnaðar meðal íslendinganna á Costa del Sol er Sigtryggur Benedikz, skip- stjóri á Eskey SF 54 frá Horna- firði. SistryeKur Benedikz, skipstjóri. — Ja, það má nú segja að þetta sé áhyggjulaust líf. Ég var satt að segja dálitla stund að vejast staðháttum. Maturinn er margbreytilegur, maður er lengi að borða hann og aðbún- aður allur góður og til fyrir- myndar miðað við verð. — Ferðalögin hafa mér fund izt skemmtileg — sérstaklega ferðin til Tanger. Satt að segja hafði ég ekki gert mér grein fyrir aðstæðum fólks þar og að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.